Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 Andrés Magnússon andres@mbl.is Af alþjóðlegum samanburði á sóttvarna- aðgerðum stjórnvalda blasir við að Íslendingar hafa ekki yfir miklu að kvarta. Þær hafa verið í hófstilltara lagi hér á landi, með tiltölulega lítil áhrif á þjóðlíf og eins lítil áhrif á atvinnulíf og óska má, þótt áhrifin á ferðaþjónustuna séu vitaskuld tilfinnanleg. Nú er nærri einn meðgöngutími síðan heims- faraldur kórónuveirunnar hóf að breiðast út frá Kína. Margt bendir til þess að hann sé í rénun þótt ekki sé hann genginn hjá, en að einhverju leyti endurspeglar sá árangur vafalaust þær sóttvarnaaðgerðir sem gripið hefur verið til, betri þekkingu á meðhöndlun sjúkdómsins og eins aukna árvekni almennings, sem er varari um sig gagnvart veirunni en áður. Viðbrögð stjórnvalda við heimsfaraldrinum hafa verið nokkuð ólík. Í fyrstu aðallega vegna þess að ekki var öllum ljóst við hvað var að fást, en síðan hafa þau fremur miðast við ólíkar að- stæður í einstökum löndum, þótt þau hafi nær öll haft sömu markmið um að hefta för veir- unnar, einangra hina smituðu o.s.frv. Á öllum þessum sóttvarnaaðgerðum eru mis- jafnar skoðanir. Þær eru vitaskuld hamlandi á líf borgaranna og svo er deilt um árangurinn eins og gengur. Sums staðar er fólk raunar svo þjakað af langvinnri einangrun og bælingu at- vinnulífs að komið hefur til mótmæla og jafnvel pústra. Gagnrýni á Íslandi Hér á Íslandi hefur slík gagnrýni öll raunar verið með prúðara móti, en samt sem áður hef- ur hennar gætt æ meira að undanförnu, sér í lagi eftir að teknar voru upp reglur um tvöfalda skimun og sóttkví við komuna til landsins. Þar hafa málsvarar ferðaþjónustunnar eðli- lega haft sig í frammi, enda erfitt eða ómögu- legt að drepa ferðageirann úr dróma við slíkar aðstæður og allt hringl og óvissa getur ónýtt sölustarf úti í heimi marga mánuði fram í tím- ann. Sömuleiðis hafa ýmsir stjórnmálamenn, aðallega úr þingliði Sjálfstæðisflokksins, haft orð á því að gæta þurfi meðalhófs í aðgerðum þessum og minnt á að þær geti gengið gegn borgararéttindum sé ekki varlega farið í sak- irnar. Það er því afar fróðlegt að skoða samanburð á sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda, sem tekinn er saman á vefnum ourworldindata.org, en þar eru bornar saman margvíslegar aðgerðir, sem bæði eru til þess fallnar að halda aftur af út- breiðslu veirunnar, en geta jafnframt haft víð- tæk áhrif á efnahag og þjóðlíf. Hófstilltar aðgerðir Af þeim samanburði má ljóst heita að að- gerðir íslenskra stjórnvalda hafa verið afar hófstilltar, nánast á hvaða mælikvarða sem er. Það á einnig við um millilandaferðir, en víða eru á þeim verulegar hömlur til landa, sem litið er á sem sérstök hættusvæði. Eins hefur sum- staðar verið brugðið á það ráð að leyfa þær ein- ungis frá stöku löndum, sem þá búa við mjög litla útbreiðslu veirunnar eða er litið á sem jafningja að því leyti. Svo eru auðvitað allmörg lönd, sem gripið hafa til nær fortakslauss ferðabanns við umheiminn. Á Íslandi eru komur frá öllum löndum heims heimilar, en þó því aðeins að komufarþegar fari í tvöfalda skimun og fimm daga sóttkví á milli. Í þeirri sóttkví má fara í gönguferðir enda sé eins metra reglan virt, en hins vegar ekki nota almenningssamgöngur, fara á veitingastaði, í verslanir eða þess háttar. Hins vegar eru alls kyns takmarkanir aðrar, sem víða hefur verið beitt, en Íslendingar hafa alveg látið eiga sig eða aðeins gripið til í skamman tíma þegar fyrsta bylgja veirunnar reið yfir. Þar munar sjálfsagt mest um skólalokanir, sem hafa víða á Vesturlöndum verið reglan og hefur reynst afar erfitt að vinda ofan af. Þær hafa haft mikil áhrif á þjóðlífið og atvinnuþátt- töku foreldra. Það á vitaskuld enn frekar við í löndum eða einstökum borgum og svæðum inn- an þeirra, þar sem útgöngubann hefur verið í gildi um lengri eða skemmri tíma, með aug- ljósum áhrifum á sálarlíf og atvinnulíf. Víðar hafa svo verið settar margskonar hömlur á at- vinnulíf af ýmsu tagi, einkum auðvitað þar sem fólk kemur saman, þarf að sitja saman á bið- stofum og þar fram eftir götum. Það er því kannski ekki að undra að þar er fólk víða orðið langþreytt á einangruninni og hömlunum öllum. Sú umræða er t.d. orðin mjög hávær í Bretlandi, en þar í landi er m.a. rætt hvort ekki megi taka upp meira meðalhóf, t.d. á borð við það sem tíðkist á Íslandi. Óskráð 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 Óskráð 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 Óskráð Engar Ráðlagðar Skylda í sumum greinum Skylda nema hjá lykilstarfsmönnum Óskráð Engar Ráðlagðar Skyldar (nema nauðsynjar) Skyldar (fáar undantekningar) Óskráð Engar Ráðlagðar Skyldar (á sumum stigum) Skyldar (á öllum stigum) Óskráð Engar hömlur Skimun Sóttkví (frá hættusvæðum) Bann frá hættusvæðum Landamærin lokuð Vísitala viðbragðshörku stjórnvalda Vinnustaðalokanir í faraldrinum Skólalokanir í faraldrinum Vísitala sóttvarna og heilsu Heimavistarskyldur í faraldrinum Hömlur á millilandaferðum Samsett vísitala níu þátta á borð við vinnustaðalokanir og ferðahömlur (100 eru hörðustu aðgerðir). Miðað er við hörðustu aðgerðir innan hvers ríkis. Samsett vísitala ellefu þátta á borð við skimun, smitrakningu, skólalokanir og ferðahömlur (100 eru hörðustu aðgerðir). Miðað er við hörðustu aðgerðir innan hvers ríkis. H ei m ild ir: O ur W or ld in D at a, H al e, W eb st er , P et he ric k, P hi lli ps , a nd K ira (2 02 0) . Sóttvarnaaðgerðir á heimsvísu  Aðgerðir stjórnvalda á Íslandi í hófstilltara lagi  Takmarkanir í þjóðlífi óvíða minni en hér  Munar miklu að hér voru engar skólalokanir  Ferðahömlur ekki verulega íþyngjandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.