Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is Sjálfvirk pottastýring með snertiskjá og vefviðmóti POTTASTÝRING Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - Við erum hér til að aðstoða þig! - • Sérsmíðaðir skór • Skóbreytingar • Göngugreiningar • Innleggjasmíði • Skóviðgerðir Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands Tímapantanir í síma 533 1314 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Íbúum fjölgar, bærinn stækkar og samfélagið breytist,“ segir Al- dís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. „Eigi að síður hefur okkur tekist að halda í einkenni sem skapa Hveragerðisbæ sér- stöðu. Hér er gróðursæld og gufustrókar frá kraumandi hver- um setja svip á lágreista byggð- ina. Menningin dafnar og sú saga nær langt aftur. Stór hluti bæj- arbúa er aðfluttur, hefðir sam- félagsins frjálslyndar og við slík- ar aðstæður verður til skemmtilegur bæjarbragur.“ Mikið er undir í Kambalandi Í Hveragerði standa yfir um þessar mundir framkvæmdir við rúmlega 180 nýjar íbúðir; sem ýmist er þá verið að byggja, jarð- vinna stendur yfir eða lóðum hef- ur verið úthlutað. Mest er undir í svonefndu Kambalandi vestast í bænum. Þar er nú verið að reisa alls 40 íbúðir í fjölbýli, 34 íbúðir í raðhúsum og einbýlishúsin eru 15 talsins. Í undirbúningi er svo bygging tveggja raðhúsa á sama svæði með samtals 10 íbúðum sem Bjarg, húsnæðisfélag verkalýðs- hreyfingarinnar, hyggst reisa. Á þessum slóðum eru göt- urnar Búða-, Dala-, Dreka-, Kapla- og Laugahraun, en til við- bótar hraunum eru brún, heiði, skógur og mörk algeng viðskeyti á nöfnum gatna og vega í Hvera- gerði. Á svonefndum Edenreit, þar sem blómaskálinn vinsæli stóð forðum, verða 77 íbúðir í mis- stórum fjölbýlishúsum, um 40 íbúðir eru komnar vel á veg eða framvæmdum er lokið og fleiri í farvatninu. Þá er talsvert byggt við götur í miðkjarna bæjarins, við göturnar Heiðmörk og Þela- mörk þar sem áður voru gróð- urhús. „Hér í Hveragerði eru miklir möguleikar til að þétta byggð. Á fyrstu árum bæjarins var algengt að fólk fengi úthlutað 1.000-1.300 fermetra lóð sem svo á var reist kannski 100 fermetra einbýlishús; einfalt í öllum stíl og gerð,“ segir Aldís. „Að undanförnu hefur ver- ið talsvert um að lóðarhafar þess- ara lóða, sem bærinn á, hafi óskað eftir að mega byggja í bakgarði eða gera aðrar breytingar. Séu þær innan skipulags er slíkt heim- ilt. Betri nýting á landi í þéttbýli er hvarvetna ofarlega á blaði.“ Hvergerðingar eru skv. allra nýjustu tölum 2.743 en voru 2.310 fyrir áratug. Þessi stígandi hefur verið jöfn lengi. Skapa sína framtíð „Ég tók við embætti bæjar- stjóra hér í Hveragerði snemma í júní 2006 og eitt af fyrstu verkum mínum var að veita viðurkenn- ingu til tvöþúsundasta Hvergerð- ingsins, nýfædds drengs, og for- eldra hans. Síðan þá hefur þróunin verið öll á sama veg og ástæður fjölgunar eru marg- ar,“segir Aldís. „Margir sem eiga rætur hér í bænum velja að skapa sína framtíð hér – eignast börn og fjölskyldu. Einnig er talsvert um að fólk flytji hingað í ódýrara hús- næði, en verðmunurinn miðað við höfuðborgarsvæðið getur verið umtalsverður. Þetta er þá oftar en ekki fólk sem sækir vinnu yfir Hellisheiðina, þó margir auðvitað vinni líka hér í bæ. Hafa ber í huga að fjarvinnsla, sem gerir mögulegt að rækja störfin að heiman, færist sífellt í vöxt. Svo eru þess líka dæmi að fólk komið yfir miðjan aldur minnki við sig húsnæði í borginni og komi hing- að í einfalt líf í rólegum takti. Slíkt býðst hér í Hveragerði.“ Þekkir allflesta bæjarbúa Fjölgun íbúa hefur kallað á jafna og stöðuga uppbyggingu innviða í Hveragerði; svo sem í skólamálum. „Þjónusta sveitar- félagsins þarf að vera í samræmi við þarfir íbúa. Því höfum við hér í Hveragerði náð að mæta svo sem í þjónustu við börn og for- eldra og vonandi flesta aðra. Skilyrðin eru líka til staðar því hér gildir sú hugsun um starf- semi bæjarins – að þetta sé vett- vangur okkar allra til að skapa gott samfélag sem heldur utan um fólk og er bakland þess. Sveitarfélag má aldrei reka eftir hörðum lögmálum atvinnulífs og fyrirtækja,“ segir Aldís sem flutti með foreldrum sínum ársgömul í Hveragerði og hefur búið þar lengst af. „Mér finnst ómetanlegt í starfi bæjarstjórans að þekkja eða vita að minnsta kosti deili á allflestum bæjarbúum. Þegar fyrri bylgja kórónuveirunnar gekk hér yfir í vetur var þessi bær í vanda, meðal annars vegna andláts hjóna sem hér bjuggu og áttu sterkar rætur. En við þær aðstæður fann ég líka afar vel hvað þetta samfélag er sterkt og að fólk stendur vel saman, sem gerir bæinn eftirsóknarverðan til búsetu,“ segir Aldís að endingu. Rúmlega 180 nýjar íbúðir eru á byggingarstigi í Hveragerði Morgunblaðið/Eggert Bæjarstjórinn Aldís Hafsteinsdóttir hér stödd á byggingarsvæði í Kambalandi, sem er vestast í bænum. Vettvangur allra til að skapa gott samfélag  Aldís Hafsteinsdóttir fædd- ist árið 1964. Hún er kerfis- fræðingur að mennt, auk þess að hafa meðal annars stundað nám í viðskiptafræðum í há- skóla. Starfaði lengi hjá Kjörís, fyrirtæki fjölskyldu sinnar, tók sæti í bæjarstjórn Hveragerðis 1998 og hefur verið bæjarstjóri frá 2006. Hefur auk þess sinnt fjölmörgum félags- og trún- aðarstörfum fyrir heimabyggð sína og fleiri. Formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga frá 2018.  Eiginmaður Aldísar er Lárus Ingi Friðfinnsson og eiga þau fjögur börn og fimm barna- börn. Hver er hún? Heimili Ný íbúðarhús í miðbænum þar sem áður voru gróðrarstöðvar. Um komandi mánaðamót hefjast framkvæmdir við endurbætur á húsi Sundlaugar Hveragerðis í Lauga- skarði, sem er norðan Varmár í brekkunum ofan við bæinn. Vegna þessa verður laugin lokuð frá 1. októ- ber til 1. apríl á næsta ári. Heilsu- ræktarstöðin Laugasport verður þó áfram opin og nýta gestir þá sturtur og búningsaðstöðu í íþróttahúsi Hveragerðisbæjar skammt frá. Hús sundlaugarinnar var reist ár- ið 1963, skv. teikningu Gísla Hall- dórssonar arkitekts, og er í skjól- sælli dalkvos og þykir falla einstaklega vel inn í umhverfi sitt. Búið er að endurbæta afgreiðslu og aðra aðstöðu í sundlauginni sem er á 2. hæð en nú verður hafist handa á 1. hæðinni. Stækka á, endurnýja og fjölga búningsklefum og útbúa sjúkraherbergi. Sérstaklega hefur verið horft til þess að halda uppruna- legum stíl í hönnun og litum við þessa endurgerð. Áætlaður kostnaður við fram- kvæmdir er áætlaður um 150 millj- ónir króna. Af þeirri upphæð verður þriðjungi varið til verksins á þessu ári. Sundlaugin í Laugaskarði hefur jafnan notið vinsælda. Gestir í júlí sl. voru um 8.500, sem var met. „Nei, ég hef ekki orðið vör við telj- andi óánægju með boðaða lokun laugarinnar í sjö mánuði, fólk sýnir þessu skilning. Að útbúa bráða- birgðaklefa hefði kostað mikið svo þetta varð niðurstaðan,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í samtali við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Laugaskarð Enginn fer hér í sund frá októberbyrjun og fram til vors. Sundlaug lokað vegna endurbóta  Framkvæmdir fyrir 150 milljónir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.