Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Miklar sviptingar hafa einkennt ís- lenskan matvörumarkað á undan- förnum árum: Matvöruverslanaflór- an breyttist í kjölfar bankahrunsins og verslanakeðjur skiptu um eig- endur, og aftur var hrist rækilega upp í markaðinum árið 2017 með komu Costco. Nú síðast hefur kór- ónuveirufaraldurinn orðið til þess að margir hafa uppgötvað kosti þess að gera matarinnkaupin á netinu frek- ar en að versla með gamla laginu. Basko er í dag eitt umsvifamesta félag landsins á sviði matvöruversl- anarekstrar en félagið varð til árið 2010 í kringum rekstur 10-11-versl- ananna og verslana Iceland sem bættust síðar inn í reksturinn. Í september 2019 varð Basko dótturfélag Skeljungs og rekur í dag þrettán bensínstöðvarverslanir und- ir merkjum Kvikk on the go, fjórar matvöruverslanir merktar 10-11 og þrjár merktar Extra en árið 2018 seldi Basko frá sér fimm Iceland- verslanir, fimm 10-11-verslanir auk háskólaverslana HÍ og HR. Eru starfsmenn Basko í dag um 250 tals- ins. Sigurður Karlsson, framkvæmda- stjóri Basko, er brattur nú þegar þriðja Extra-verslunin er nýopnuð á horni Hverfisgötu og Barónsstígs, þar sem 10-11 var áður til húsa. Extra-verslanirnar urðu til árið 2018 eftir söluna á verslunum Ice- land en Samkeppniseftirlitið heim- ilaði ekki sölu Iceland-búðanna í Keflavík og Akureyri svo úr varð að leggja grunninn að nýrri verslana- keðju. „Það má lýsa Extra-búðunum sem nokkurs konar „mini market“. Við leggjum ríka áherslu á að bjóða viðskiptavinum okkar upp á gott verð, m.a. í krafti góðs samstarfs við Costco og höfum alltaf í boði 20 vörur á Costco-verði. Við höfum fækkað birgjum en á sama tíma auk- ið úrvalið og á neytandinn að geta gengið að öllum helstu nauðsynja- vörum heimilisins á besta mögulega verði,“ segir Sigurður og bætir við að stefnan sé sett á að ná 10% mark- aðshlutdeild á íslenska matvöru- markaðinum á næstu 24 mánuðum. Bensínstöðvar fá nýtt hlutverk Þá má reikna með áhugaverðum breytingum í kringum Kvikk-bens- ínstöðvaverslanirnar. Sigurður minnir á að Skeljungur á hlut í net- versluninni Heimkaupum og er núna í boði að panta matarinnkaup- in á netinu og sækja í verslanir Kvikk við Orkuna á Miklubraut annars vegar og við Orkuna á Dal- vegi hins vegar. „Við erum líka að auka við þjónustuna með samstarfi við Póstinn um að taka við og af- henda pakka. Þá eignaðist Skelj- ungur nýlega fjórðungshlut í bæði Brauð &Co og Gló og ætlunin að bjóða upp á enn betra framboð ljúf- fengra heilsurétta og -drykkja und- ir yfirskriftinni Gló to go.“ Sigurður segir markaðinn kalla á þessa þróun. Þjónusta þurfi neyt- endur með fjölbreytilegum hætti og gera bensínstöðvarnar að áfanga- stað þar sem fólk geri meira en bara fylla tankinn. Hann nefnir sem dæmi um hvernig hlutverk bensín- stöðvarinnar er að breytast að ný- lega var Lyfsalinn apótek opnað í húsnæði Orkunnar og Kvikk á Vest- urlandsvegi. „Við getum líka vænst þess að með minnkandi hlut bensín- og díselbíla í ökutækjaflotanum breytist hlutverk bensínstöðvanna og ýmiss konar þjónusta vegi æ þyngra, í bland við alls kyns orku- gjafa fyrir ökutæki framtíðarinn- ar.“ Íslendingar vilja skjótast út í búð Vestanhafs og víða í Evrópu hef- ur orðið kippur í sölu á matvöru yfir netið í kórónuveirufaraldrinum og fullyrða sumir markaðsgreinendur að búið sé að breyta hegðun neyt- enda til frambúðar. Sigurður segir netverslun vissulega hafa styrkst og salan gengið vel hjá systurfélaginu Heimkaupum en greina megi merki um að íslenskir neytendur haldi fast í það að koma við í matvöruverslun nokkrum sinnum í viku. „Skýringin er kannski sú hvað aðgengi að mat- vöruverslunum er gott hérlendis. Í Bandaríkjunum er það t.d. víða raunin að ferðast þarf um langan veg til að komast í næsta stórmark- að og innkaupin taka langan tíma. Að skjótast í verslun í næsta ná- grenni með 250-400 fm grunnflöt er allt annað en að aka langar leiðir í 1.500 eða 2.000 fm stórmarkað.“ Spáir Sigurður því að stærstu verslununum muni ekki fjölga mikið en minni búðir sem leggja megin- áherslu á matvöru muni standa sterkar að vígi. Fólk leiti frekar til sérverslana til að kaupa fatnað og ýmsa vöru fyrir heimilið eða panti þannig vörur á netinu, en þyki gott að renna við í hæfilega stórri mat- vöruverslun á leið heim úr vinnu eða skóla. „Frekar en að gera stórinn- kaup vikulega eða sjaldnar virðist íslenskum neytendum þykja best að fara oftar í búðina og kaupa minna í einu.“ Eðlilegt að skoða hverju inngripin hafa áorkað Til að markaðurinn geti aðlagast sem best og hraðast þarf að tryggja að engar óþarfa hindranir þvælist fyrir. Samkeppnisyfirvöld hafa fylgst náið með framvindunni á mat- vörumarkaði og gerðu m.a. athuga- semdir við það þegar til stóð að selja fjórtán verslanir frá Basko. Tafði það söluferlið um meira en hálft ár og endaði með því að Basko var meinað að selja tvær af verslunun- um. Sigurður segir rétt að staldra við og skoða hverju inngrip yfir- valda hafa skilað, og hvort afskipti af matvörumarkaði hafi í reynd bætt hag neytenda eða örvað samkeppni. „Er skemmst að minnast sam- runa Olís og Haga þar sem gerð var sátt við Samkeppniseftirlitið sem kvað m.a. á um sölu á rekstri mat- vöruverslana sem starfræktar voru á nokkrum stöðum á höfuðborgar- svæðinu. Útkoman er sú að í dag er enginn rekstur á umræddum stöð- um,“ segir Sigurður. „Í okkar tilviki tafðist söluferlið og á meðan þurft- um við að takast á við miklar flækjur þar sem rekstur búðanna sem við vildum selja var bæði í höndum okk- ar og kaupandans. Ef við lítum í baksýnisspegilinn þá er því ekki alltaf auðsvarað hvort ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins hafi verið til gagns. Þessi markaður hefur í gegn- um tíðina sýnt að hann sér um sig sjálfur, hvað öfluga samkeppni varð- ar, og er álagning á matvöru á Ís- landi minni en í nágrannalöndunum þótt aðföng séu dýrari vegna legu og smæðar landsins.“ Stefna á 10% hlutdeild á næstu 24 mánuðum Morgunblaðið/Árni Sæberg Extra Sigurður segir íslenska neytendur halda fast í þá hefð að kíkja í matvöruverslun nokkrum sinnum í viku.  Vert að skoða hverju inngrip samkeppnisyfirvalda hafa skilað 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Hlutabréfaverð bandaríska rafbíla- framleiðandans Tesla lækkaði um 7% á föstudag þegar í ljós kom að fyrirtækið mun ekki verða í hópi þeirra þriggja félaga sem tekin verða inn í S&P 500-vísitöluna síðar í mánuðinum. Að sögn Reuters höfðu margir fjárfestar reiknað með að Tesla þætti sjálfsögð viðbót við vísitöluna enda sýndi ársfjórðungsuppgjör frá í júlí að reksturinn gengi prýðilega. S&P Dow Jones Indices, sem held- ur utan um vísitöluna, vildi ekki upplýsa hvers vegna Tesla var haldið úti á meðan langtum minni félög voru tekin inn. Eins og nafnið gefur til kynna mælir S&P 500-vísitalan þróun hlutabréfaverðs 500 fyrirtækja á bandarískum hlutabréfamarkaði. Sérstök nefnd ræður því hvaða fyrirtæki eru tekin inn í hópinn og á valið m.a. að ráðast af markaðs- verði og lausafjárstöðu félaga og hversu hátt hlutfall hlutabréfa er í höndum almennra fjárfesta. Þegar fyrirtæki er tekið inn í S&P 500-vísitöluna gerist það alla jafna að hlutabréfaverð þess hækk- ar enda margir fjársterkir sjóðir sem láta fjárfestingar sínar ráðast af samsetningu vísitölunnar. Markaðsvirði Tesla er í dag um 370 milljarðar dala og félagið því í hópi þeirra verðmætustu í Banda- ríkjunum, og verðmætara en 95% þeirra fyrirtækja sem í dag mynda S&P 500. Það sem af er þessu ári hefur hlutabréfaverð Tesla hækkað um 400%. Þau fyrirtæki sem tekin verða inn í vísitöluna mánudaginn 21. september eru netverslunin Etsy, hálfleiðaraframleiðandinn Tera- dyne og lyfjatæknifyrirtækið Cata- lent en samanlagt markaðsvirði þeirra er 40 milljarðar dala. Út fara skattaráðgjafarfyrirtækið H&R Block, snyrtivörufyrirtækið Coty og stórmarkaðakeðjan Kohls. ai@mbl.is Tesla ekki hleypt inn í S&P 500 AFP Vonbrigði Tesla hefur átt mjög gott ár en kemst þó ekki á S&P 500.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.