Morgunblaðið - 07.09.2020, Side 14

Morgunblaðið - 07.09.2020, Side 14
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Nýja lántökuúrræðið sem áað auðvelda tekjulágufólki að eignast sínafyrstu íbúð hefur nú ver- ið innleitt með lögfestingu Alþingis á hlutdeildarlánum. Flestum ber sam- an um að hér sé stigið stórt og rót- tækt skref til að aðstoða ungt fólk og tekjulitla einstaklinga við að festa kaup á íbúaðarhúsnæði en útfærsl- urnar hafa verið mjög umdeildar og ljóst að mikil óvissa er um hver áhrif- in verða. Þar vega þyngst spurn- ingar um hvort lánin muni nýtast þeim sem mest þurfa á að halda og hvort fyrirkomulagið muni leiða til þess að húsnæðisverð hækki. Sam- tök atvinnulífsins hafa t.a.m. varað við að töluverð hætta sé á því að hlut- deildarlánin gagnist fyrst og fremst þeim sem þurfi lítið eða ekkert á þeim að halda. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra telur hins vegar að lánin muni nýtast þeim sem eru í lægstu tekjutíundunum og hafa verið fastir á leigumarkaði og eigi ekki að þrýsta upp húsnæðis- verðinu því samhliða verði stuðlað að auknu framboði húsnæðis. Lögin voru samþykkt með 56 atkvæðum sl. fimmtudag. Einn þing- maður, Óli Björn Kárason Sjálfstæð- isflokki, sat hjá. Ýmsar breytingar voru gerðar á frumvarpinu í með- förum velferðarnefndar og ráðherra á eftir að útfæra fjölmörg atriði í reglugerð. Lögin taka gildi 1. nóv- ember. 20% af kaupverði Þá fær Húsnæðis- og mann- virkjastofnun (HMS) heimild til að veita tekjulágum fyrstu kaupendum og þeim sem ekki hafa átt íbúðar- húsnæði síðastliðin fimm ár hlut- deildarlán sem getur numið allt að 20% af kaupverði, sem á að brúa bilið milli íbúðalána banka og lífeyris- sjóða og kaupverðs að ýmsum skil- yrðum uppfylltum. Lánin verða af- borgana- og vaxtalaus á láns- tímanum en lántakinn þarf að endur- greiða lánið ef hann selur íbúðar- húsnæðið eða í lok lánstímans. Þingnefndin stytti lánstímann úr 25 árum í upphaflegu frumvarpi í 10 ár. Hægt verði þó að framlengja láns- tímann þrisvar sinnum í fimm ár í senn en þá þarf lántakinn að hafa sótt sér ráðgjöf HMS. Skilyrðin sem lántakinn þarf að uppfylla til að geta fengið hlutdeildarlán eru m.a. þau að hann standist greiðslumat „sem nemur mismun á eigin fé og hlut- deildarláni annars vegar og kaup- verði íbúðarinnar hins vegar“. Hann þarf sjálfur að leggja fram eigið fé að lágmarki 5% kaupverðs og meðal- afborganir vegna íbúðarkaupanna mega ekki vera umfram 40% af ráð- stöfunartekjum. Skiptar skoðanir hafa verið á tekjumörkunum sem sett eru. Meg- inreglan er sú að eingöngu ein- staklingar með tekjur undir 7.560.000 á ári og hjón eða sambúð- arfólk með 10.560.000 á sl. tólf mán- uðum geta átt kost á 20% hlutdeild- arláni. Þó er undanþáguheimild um að veita megi allt að 30% lán til ein- staklinga með lægri tekjur en 5.018.000 kr. á ári og hjóna/ sambúðarfólks undir 7.020.000. Úthluta á sex sinnum á ári og er gert ráð fyrir að lánaðir verði fjórir milljarðar árlega eða 40 milljarðar á næstu tíu árum. Velferðarnefnd gerði þá breytingu á frumvarpinu að 20% hlutdeildarlánanna fari til kaupa á íbúðum á landsbyggðinni. Fjárheimildirnar eiga að vera á fjár- lögum ár hvert og ef þær duga ekki til að anna eftirspurn verður dregið úr umsóknum. Þá munu þeir sem eru með samþykkt kauptilboð njóta for- gangs að lánunum. ASÍ gerði ýmsar athugasemdir við frumvarpið og féllst þingið m.a. á að ekki verði gerð krafa um að lánsumsækjendur skuli ráðstafa séreignasparnaði inn á grunnlánin og að ekki verði lagðir vextir á lánin þótt tekjur lántakans fari umfram tekjumörkin. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hverfi Fasteignasalar hafa bent á að að allt of fáar íbúðir verði til að mæta þörf á höfðuðborgarsvæði með þeirri kröfu laganna að fasteignir séu nýjar. Róttækt úrræði en mikil óvissa um áhrif Hlutdeildarlánin » Talið er að endanleg áhrif hlutdeildarlána á skuldir ríkis- sjóðs gætu orðið 30-40 millj- arðar. » Fjármálaráðuneytið bend- ir á að lánin feli í sér ígildi stöðutöku ríkissjóðs í húsnæðismarkaðnum þar sem ríkissjóður hagnist hækki húsnæðisverð en hann tapi er það lækkar. » Við lánsfjárhæðina bæt- ast 1.560.000 kr. fyrir hvert barn eða ungmenni undir 20 ára aldri sem er á framfæri umsækjanda eða býr á heim- ilinu. » Áætlað er að veitt verði hlutdeildarlán til kaupa á um 400 íbúðum á ári. » Lánað verður til kaupa á nýjum íbúðum á höfuðborgar- svæðinu en einnig til kaupa á endurbættu eldra húsnæði á landsbyggðinni. » Óheimilt er að leigja út íbúðina á lánstímanum nema með samþykki HMS. » Lántaki endurgreiðir rík- inu sama hlutfall af söluverð- inu og upphaflegt lán nam af söluverði. Ef hann greiðir lánið án þess að hafa selt íbúðina á að miða við verðmat fast- eignasala og verðsjá HMS. 14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Frjáls sam-félög búavið ýmsar hættur sem þau geta ekki lokað augunum fyrir þótt freistandi sé. Það er til dæmis þægilegra að segja og gera sem minnst þegar öfg- arnar vaða uppi og yfirtaka nánast alla umræðu en að taka á móti. Öfgafólkið eirir engum sem andmælir því og gætir þess vandlega að viðkomandi sæti árásum, ekki síst í netheimum, og velji að hafa sig frekar hæg- an en að verða fyrir sífelldu að- kasti. Einn öfgahópur af þessu tagi starfar í Bretlandi og kallar sig Extinction Rebellion, XR, og berst af ákafa fyrir heimsenda- kenningum í loftslagsmálum og fordæmir alla sem ekki vilja taka eins stórt upp í sig í þeim efnum. Mörg frægðarmennin hafa tekið undir með þessum öfga- samtökum og sumir stjórn- málamenn á vinstri vængnum hafa hrósað starfsemi þeirra. Við þessi jákvæðu viðbrögð við öfgunum virðist samtökunum hafa vaxið ásmegin og hafa að undanförnu gengið enn lengra en áður. Nýjasta dæmið um öfgarnar eru aðgerðir XR um helgina þegar samtökin stöðvuðu út- gáfu nokkurra blaða í Bret- landi, þeirra á meðal Telegraph og Times, með því að koma í veg fyrir að unnt væri að dreifa blöðunum. Þetta töldu öfga- samtökin réttlætanlegt þar sem umrædd blöð hefðu ekki fjallað á þóknanlegan hátt um lofts- lagsmálefni. Nú er rætt um það í Bretlandi hvernig eigi að skil- greina þessi sam- tök. Er þetta skipu- lögð glæpa- starfsemi eða ef til vill hryðjuverkastarfsemi? Ann- að þarf ef til vill ekki að útiloka hitt, en hvernig sem starfsemin verður skilgreind er ljóst að hún er hættuleg frelsi, lýðræði og réttarríki í Bretlandi og það er verulegt áhyggjuefni. Það er líka áhyggjuefni að svo virðist sem vinstri öfgahópar, verka- lýðshópar, sósíalistar, marx- istar, kommúnistar og fleiri slíkir hafi reynt að koma sér fyrir í þessum samtökum til að sameina kraftana og kröfuna um byltingu. Óvíst er hvaða áhrif slíkir hópar höfðu á árásir XR á frjálsa fjölmiðla um helgina, en aðgerðirnar hafa þó dregið fram hve víða öfgahóp- arnir leynast sem eru reiðubún- ir að stunda lögbrot og reyna að bylta núverandi þjóðskipulagi með ofbeldi í stað umræðna og lýðræðislegra kosninga. Þá gefa þessir atburðir tilefni til að endurmeta það hvernig fjallað er um málefni á borð við loftslagsmál. Þar hefur ríkt mikil einstefna í umræðunni og iðulega heyrst kröfur um að ein- ungis ein rödd megi hljóma. Þeir sem viðra önnur sjónarmið hafa verið úthrópaðir. Slík ein- stefnuumræða, ekki síst þegar hún er fléttuð saman við hræðsluáróður á borð við heimsendatal, ýtir vitaskuld undir hættuna á að fólk missi sjónar á því hvar eðlileg mörk liggja í baráttunni fyrir eigin sjónarmiðum. Í Bretlandi reyndu umhverfisöfgamenn að hindra umræður með ofbeldi} Öfgarnar springa út Viðtal Morgun-blaðsins um helgina við Björn Zoëga, forstjóra Karólínska sjúkra- hússins í Stokk- hólmi, stærsta sjúkrahúss Svíþjóðar, og fyrr- verandi forstjóra Landspít- alans, var afar athyglisvert. Hann segir næstum enga með kórónuveiruna á sjúkrahúsum í Svíþjóð enda dragi úr faraldr- inum á hverjum degi. Ein ástæða þessa er að mati Björns að í Stokkhólmi séu 16% með mótefni. Þá sé mikið gert af kórónuveiruprófum í Svíþjóð og aðgerðir í Svíþjóð hafi ekki ver- ið ósvipaðar því sem hafi verið hér á landi, sem er ólíkt því sem ætla mætti af umræðunni, en af henni mætti stundum ætla að ekkert hafi verið gert í Svíþjóð til að bregðast við faraldrinum. En vissulega lenti Svíþjóð illa í því í upphafi faraldursins mið- að við hinar Norðurlanda- þjóðirnar og virtist þá beita vægari aðgerðum en þær, þó að ástandið hafi líka verið verra víða. En ætla má að þessu kunni að fylgja að fleiri séu með mót- efni í Svíþjóð en til að mynda hér á landi, þar sem mótefni er hverfandi, og að það kunni að hjálpa Svíum nú þegar önnur bylgja hefur gert vart við sig. Þá er athyglisvert að Björn segir of snemmt að dæma um það hvort stefna yfirvalda í Sví- þjóð hafi verið rétt, sem undir- strikar meðal annars þá miklu óvissu sem ríkir um það hvaða aðgerðir eru réttastar og best- ar. Það breytir því ekki að mik- ilvægt er að fyrir liggi með skýrum hætti hvert markmið aðgerðanna er. Er ætlunin að reyna að útrýma smitum, sem sumir telja óraunsætt markmið, eða að reyna að halda þeim hóf- legum og um leið tryggja að þjóðfélagið geti starfað sem lík- ast því sem var fyrir veirutíð? Standa Svíar betur en aðrir nú vegna hærra hlutfalls íbúa með mótefni?} Óvissan og markmiðin Á komandi þingvetri mun ég leggja fram á nýjan leik frumvarp um ærumeiðingar. Með frumvarpinu er leitast við að færa laga- umhverfi meiðyrðamála til nú- tímahorfs. Refsingar vegna ærumeiðinga yrðu að meginstefnu til aflagðar í þágu tjáning- arfrelsis. Almenn ákvæði laga um ærumeið- ingar yrðu færð úr almennum hegningarlögum yfir í sérstök lög á sviði einkaréttar. Sú breyt- ing hefur verið gerð á frumvarpinu frá fyrri út- gáfu þess síðastliðið vor að nafnlausar æru- meiðingar yrðu sérstakt hegningarlagabrot. Rógsherferðir, neteinelti og annað af því tagi myndi því áfram sæta rannsókn af hálfu lög- reglu eftir kröfu þess sem misgert er við. Á undanförnum árum hafa flest mál sem snúa að ærumeiðingum beinst að blaðamönn- um. Því hefur verið haldið fram að óprúttnir að- ilar hafi notað slíkar málsóknir sem verkfæri til þöggunar. Sama gildir um hótanir gagnvart blaðamönnum um mál- sóknir ef ákveðnum fréttaflutningi verði haldið áfram. Flestir þeirra sem gerst þekkja telja að úrelt laga- umhverfi sé á skjön við ákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi. Núver- andi lagaumhverfi virki beinlínis gegn frelsi til tjáningar. Með frumvarpinu er stefnt að því að lögin á þessu sviði endurspegli þau viðmið sem viðurkennd eru af íslenskum dómstólum og grundvallast á dómaframkvæmd Mann- réttindadómstóls Evrópu í þessum málaflokki. Gert er ráð fyrir þrenns konar úrræðum í frumvarpinu; miskabótum, bótum fyrir fjártjón og ómerk- ingu ummæla. Síðastnefnda úrræðið var ekki í fyrra frumvarpi. Dómstólar gætu þá látið þann sem með saknæmum og ólögmætum hætti meiðir æru einstaklings með tjáningu greiða miskabætur til þess sem misgert er við. Með sömu skilyrðum væri unnt að dæma bætur fyr- ir fjártjón ef því væri að skipta. Við beitingu þessara úrræða væri samkvæmt frumvarpinu m.a. höfð hliðsjón af sök, efni tjáningar og að- stæðum að öðru leyti. Tilgreindar eru að- stæður sem gera það að verkum að ekki kemur til bótaábyrgðar þegar þær eru fyrir hendi. Meðal þessara aðstæðna er að ummæli séu sannleikanum samkvæm eða ef um er að ræða gildisdóm sem settur er fram í góðri trú og hefur stoð í staðreyndum. Í frumvarpinu felst mikil réttarbót og þá ekki síst í þágu fjölmiðla til að fjalla um brýn þjóðfélagsmál. Um leið felst í ákvæðum þess krafa um vönduð vinnubrögð fréttamanna og allra þeirra sem vilja tjá sig á opinberum vettvangi um mál þar sem æra ein- staklinga liggur undir. Í þeim efnum munu áfram gilda sem endranær hin fleygu vísdómsorð Ara fróða að skylt sé að hafa það heldur er sannara reynist. Blaðamönnum og öðrum þeim sem tjá sig á opinberum vettvangi verður áfram skylt að vanda til verka, setja mál fram með hliðsjón af staðreyndum og vera í góðri trú um sannleiksgildi orða sinna. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Að hafa það heldur er sannara reynist Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.