Morgunblaðið - 07.09.2020, Page 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Jobsbók er ágætis
lestur, en torræð á
köflum. Þar koma
einnig fram kynjaver-
ur sem ekki koma
fram annars staðar í
Gamla testamentinu
og eru þær oft búnar
að skapa í kringum sig
mikla dulúð og kenn-
ingar. Flestir heilvita
menn gera sér grein
fyrir því að biblían var ekki sköpuð
fullmótuð og send hingað til jarð-
arinnar niður af himnum heldur er
þar á ferðinni safn rita sem tók
margar aldir að skrifa og koma frá
mismunandi tímabilum úr sögu
hebresku þjóðarinnar.
Jobsbók virðist hafa komið til eftir
útlegðina, og tel ég að hún sé í raun
og veru babýlónsk saga sem hefur
verið staðfærð og þýdd á hebresku.
Þessu til stuðnings vill ég benda á
nokkur atriði sem ég hef fundið. Í
fyrsta lagi er persóna Guðs í sögunni
mjög óhefðbundin þeirri mynd sem
við höfum af honum í dag, en jafnvel
öðruvísi en við getum áætlað að hug-
myndir Hebrea um Guð hafi verið. Í
byrjun ritsins, í inngangi sem er
jafnan talinn skrifaður eftir á, enda
mun lakari bókmenntir heldur en
meginefni ritsins, stingur Satan upp
á veðmáli við Guð og Guð tekur því. Í
öðru lagi er oftast Guð nefndur til
sögunnar af sögupersónunum sem
sá sem kastar eldingum, veðuraf-
brigði eru á hans valdi en sköpun
heimsins lítið nefnd sem dæmi um
kraft Guðs. Þess í stað er talað um
að Guð hafi byrgt inni hafið.
Í þriðja lagi lýsir Guð því hve
skelfileg Levíathan er. Sumir telja
þar á ferðinni krókódíl en svo heldur
Guð áfram með lýsingarnar og segir
að hann hafi spúið eldi og þessháttar
og hvernig enginn nema hann hefði
getað sigrað þessa skepnu. Flestir
líffræðingar í dag eru sammála um
að krókódílar spúi ekki eldi.
Hins vegar eru öll þessi dæmi út-
skýrð ef Guði er einfaldlega skipt út
fyrir babýlónska þrumuguðinn Mar-
duk. Marduk var þrumuguð sem
skaut eldingum og hafði þá eflaust
stjórn á óveðrinu líka, enda var það
mesti eyðileggingarmáttur sem
Babýlóníumenn eflaust höfðu kynni
af, og því ekki ólíklegt að sá guð sem
stjórni þeim náttúruöflum sé mátt-
ugastur guða þeirra. Sé gengið út
frá því að upphaflega sagan sé í
fjölguðalegu umhverfi, er ekki ólík-
legt að Satan (sem þýðir andstæð-
ingur) hafi í raun verið einhver ann-
ar, jafnvel hrekkjóttur, babýlónskur
guð, sbr. Loka í norrænni goðafræði.
Í þriðja lagi, skapaði Marduk ekki
heiminn heldur kom skipulagi á
hann. Þá þurfti hann að sigra Tia-
mat, sem var sædreki, sbr. Mið-
garðsormur. Þegar hann sigraði
þennan óskapnað gat hann aðskilið
sjóinn og landið, þ.e. byrgt sjóinn
inni, sem annars hefði flætt yfir allt
og gert jörðina óbyggilega.
Babýlonsk goðafræði er áhuga-
vert fræðisvið en því miður er ef-
laust mun meira sem við vitum ekki
og er glatað heldur en við vitum.
Bretar hafa verið ötulastir í að fletta
ofan af leyndardómum Babýlón. En
hér er mögulega á ferð-
inni babýlónskur texti í
Jobsbók sem hægt er
að nota örlítið til hlið-
sjónar ef hugmynd mín
stenst, að hinn duttl-
ungafulli Guð í Jobsbók
sé í raun Marduk og því
eru duttlungarnir ef-
laust réttlætanlegir.
Áhugavert er einnig
að skoða textann í kafla
38:22-23. „Hefir þú
komið til forðabúrs
snjávarins og séð forða-
búr haglsins, sem ég hefi geymt til
tíma neyðarinnar, til orustu- og
ófriðardagsins?“ Nú erum við ekki
með neitt rit í Gamla testamentinu
sem lýsir heimsslitum, hvað þá rit
þar sem segir að til komi ófriður og
orrusta í framtíðinni (nema auðvitað
spámennirnir með bölsýni sína yfir
framtíð Ísraels, en ekki heimsins!),
og að Guð hafi geymt snjó og hagl til
að nota í baráttunni. Auk þess tók
Guð ekki virkan þátt í verndun Ísr-
aels, heldur þvert á móti, notaði
Babýlónumenn til að refsa Hebreum
fyrir syndir þeirra að þeir töldu. Hér
tel ég því vera á ferðinni mjög sterka
vísbendingu um að hér sé á ferðinni
heiðin saga.
En nú vil ég benda á hve sam-
bærilegur Marduk virðist vera við ás
sem við flest þekkjum hérlendis,
hann Þór. Hér fyrir stuttu nefndi ég
að Marduk (eða Guð) gefur í skyn að
í framtíðinni verði mikil orrusta. Þór
á sjálfur eftir að heyja mikla orrustu
sem nefnd er Ragnarök. Ekki tel ég
þó að hann hafi safnað miklum snjó
og hagli, en hérna norðanmegin á
hnettinum vitum við að snjór er að
mestu meinlaus, þótt hann hafi ef til
vill verið skelfilegur váboði fyrir
Babýlónsmenn. Helsti óvinur Þórs
er einnig sædreki, sem spýr reyndar
eitri í stað elds, en í báðum tilvikum
er það þrumuguð sem berst við sæ-
drekann. Þótt meira en þúsund ár
aðskilji og fleiri þúsund kílómetrar
er stórmerkilegt að sjá líkindin með
goðafræðinni.
Loks má nefna önnur líkindi með
goðafræðinni. Í babýlónskri, grískri
og norrænni goðafræði þurftu goðin
að sigra forneskjulegar verur til að
geta skapað mannkynið. Æsirnir
drápu Ými, Seifur drap títaninn
Krónos og Marduk barðist við Tia-
mat og börn hennar, sem höfðu eitur
í stað blóðs. Skapaði hann svo landið
úr líkama hennar. Hér er á ferðinni
leyndardómur einnig, hvort sög-
urnar hafi sameiginlegan stofn eða
hvort fornir menningarheimar hafi
alltaf tekið guði þeirra sem bjuggu á
landinu á undan þeim, og látið sína
guði einfaldlega drepa þá í eigin
goðafræði.
Guð, Marduk og
Þór: Aðfinnslur
við Jobsbók
Eftir Arngrím
Stefánsson
Arngrímur Stefánsson
» Jobsbók virðist hafa
komið til eftir út-
legðina, og tel ég að hún
sé í raun og veru bab-
ýlónsk saga sem hefur
verið staðfærð og þýdd
á hebresku.
Höfundur er guðfræðingur.
Á árunum 1967-2004
sýndi RÚV þættina
„Nýjasta tækni og vís-
indi“. Voru þeir fyrst í
umsjón Örnólfs
Thorlacius og síðar
Sigurðar H. Richter.
Þetta voru í minning-
unni bæði skemmti-
legir og fróðlegir
þættir sem ég tel fulla
þörf á að yrðu endur-
vaktir – af ýmsum ástæðum.
Sú fyrsta er að í auknu atvinnu-
leysi er mikilvægt að örva nýsköp-
un og vikulegur þáttur um helstu
tækninýjungar gæti örvað hug-
myndaflug manna og orðið kveikjan
að nýjum hugmyndum sem svo
mætti þróa áfram í samvinnu við
opinbera aðila og Samtök iðnaðar-
ins. Ekki er tryggt að ferðaþjón-
ustan haldi uppi atvinnustigi í land-
inu til frambúðar og því mikilvægt
að auka tæknikunnáttu þjóð-
arinnar.
Önnur ástæðan er sú að vís-
indaleg hugsun virðist vera í lægð
nú um stundir. Gott dæmi er þegar
okkur var sagt ítrekað að 97% vís-
indamanna teldu mannkynið ábyrgt
fyrir hlýnun jarðar með notkun
sinni á jarðefnaeldsneyti. Vísindin
byggjast hins vegar ekki á sam-
þykki. Landrekskenning Wegeners
taldist t.d. röng í meira en 50 ár
eftir að hann setti hana fram. Að
auki reyndist þessi niðurstaða um
97% samsinnið hreint fals þrátt fyr-
ir að hafa birst í virtum vísinda-
tímaritum.
Nýlega birtu fjölmiðlar, jafnvel
Morgunblaðið, frétt um að ísbirnir
væru í útrýmingarhættu vegna
hlýnunar sem stafaði af aukningu
CO2 í andrúmsloftinu og var þar
vísað í skýrslu Peters K. Molnars
o.fl. Við nánari skoðun kom í ljós að
höfundar höfðu skoðað afkomu ís-
bjarna við vesturhluta Hudsonflóa,
stað þar sem fáir ungselir komast
upp í köldum árum vegna þess að
vakir lokast (Journal of Mamm-
alogy 16. feb. 2012), og alhæft nið-
urstöður þaðan. Að auki er talið að
ísbirnir hafi verið til í meira en
100.000 ár og lifað af mörg hita- og
kuldaskeið.
Vísindin eiga í alvar-
legum vanda því póli-
tík, spilling og óvönd-
uð vinnubrögð hafa
gert þau óáreiðanleg
segir Ástralinn Peter
Ridd sem var rekinn
frá James Cook--
háskóla fyrir að segja
eftir 40 ára athuganir
á Kóralrifinu mikla að
það væri við góða
heilsu. Hann skrifaði
nýlega grein um þörf-
ina á kamakazi-vísindamönnum;
mönnum sem ættu það stutt í eft-
irlaun að þeir þyrðu að segja sína
skoðun.
Hvenær var annars sannað að
losun CO2 ylli hlýnun jarðar? Hver
kom fram með þá sönnun? Hvað
olli þá fyrri hlýindaskeiðum þegar
lítið var af CO2 í andrúmsloftinu?
Mínóska hlýskeiðinu? Rómverska
hlýskeiðinu? Hokkíkylfugraf Mich-
aels Manns var kynnt sem sönnun
og m.a. notað í mynd Als Gores
„An Inconvenient Truth“ en Mann
hefur ekki fengist til að afhenda
gögn sín til prófunar þótt hann hafi
fallist á það fyrir dómi. Að auki
gengur graf hans gegn þeirri niður-
stöðu sagnfræðinga og fornleifa-
fræðinga að það hefðu verið hlý-
skeið og kuldaskeið í heiminum á
síðasta árþúsundi. IPCC birti graf
sem sýndi þær sveiflur í skýrslu
sinni 1990 en 1995 var það horfið.
Patrick Moore, einn stofnenda
Greenpeace, hefur sagt að kenning-
unni um hlýnun jarðar sakir CO2-
útblásturs sé viðhaldið af vísinda-
mönnum í þörf fyrir rannsókna-
styrki, fjölmiðlum í þörf fyrir
fyrirsagnir, háskólum sem vilji
styrki og stjórnmálamönnum sem
vilja skapa sér þá ímynd að þeir
séu að búa í haginn fyrir komandi
kynslóðir. Einnig mun hugmynda-
fræði um jöfnuð ríkra og fátækra
þjóða spila þar inn í og líka hagn-
aður fjármálamanna vegna við-
skipta með Kyoto-aflátsbréfin.
Þriðja ástæðan fyrir þörfinni á
að endurvekja Nýjustu tækni og
vísindi eru allar þær skrýtnu kenn-
ingar sem þrífast á netinu og víðar.
Sem dæmi má nefna kenninguna
um að 5G-geislun valdi því að menn
veikist fremur af Covid-19. Kenn-
ingin um að skortur á melaníni
valdi meðfæddum rasisma hefur
líka náð flugi vestanhafs. Hvaða
gen eða vöntun gena skyldu annars
valda rasisma?
En það eru ekki aðeins skrýtnar
kenningar sem kalla á ábyrga og
fræðilega umræðu í stíl þeirra Örn-
ólfs og Sigurðar. Gaman væri t.d.
að sjá umfjöllun um þá spá NASA
að kólna muni á komandi árum
vegna minni sólvirkni. Hinrik
Svensmark, sem er sólareðlisfræð-
ingur við Dönsku geimrann-
sóknastöðina, telur jafnvel að sú
kólnun muni standa yfir næstu 50
árin.
Svo væri einnig gaman að sjá
umfjöllun um AMO-sveifluna svo-
kölluðu, þar sem hlýir og kaldir
hafstraumar skiptast á í N-
Atlantshafi með um 30 ára millibili.
Hitastig á Íslandi virðist að miklu
leyti stjórnast af henni. Erum við
kannski nú þegar komin inn í tíma-
bil kólnunar?
Annað sem væri nauðsynlegt að
fá á hreint er hve mikil áhrif aukið
magn CO2 hefur til hlýnunar. Willi-
am Happer, sérfræðingur í loft-
eindafræði við Princeton, segir að
áhrif þess séu lógaritmísk, það
þurfi sem sagt alltaf tvöfalt meira
magn til að ná fram fyrri áhrifum.
Er ef til vill magn CO2 í andrúms-
loftinu orðið það mikið að frekari
aukning hafi aðeins lítil eða nær
engin áhrif?
Talað hefur verið um það í sam-
bandi við Covid-19-faraldurinn að
mikilvægt sé að villandi eða skað-
legar kenningar nái ekki flugi. Þar
er komin enn ein ástæða þess að
æskilegt sé að endurvekja þáttinn
„Nýjasta tækni og vísindi“.
Eftir Ingibjörgu
Gísladóttur » Sakir óáreiðanlegra
og misvísandi frétta
úr heimi vísindanna er
full þörf á að endurvekja
þáttinn „Nýjasta tækni
og vísindi“.
Ingibjörg Gísladóttir
Höfundur starfar við umönnun
aldraðra.
Nýjasta tækni og vísindi
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is