Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is MÁLA Í SUMAR? VITRETEX á steininn. HJÖRVI á járn og klæðningar. „SKILDU ÞAU EFTIR HÉRNA. HÚN VAR AÐ LOSNA VIÐ SAUMANA OG MÁ ALLS EKKI HLÆJA” „ÉG VISSI AÐ HANN VÆRI FÁRSJÚKUR. HANN HEFUR EKKI RÖFLAÐ YFIR NOKKRUM SKÖPUÐUM HLUT Í ÞRJÁ DAGA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... liggur í augum uppi. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann JÆJA … ÚR HVAÐ TRÉ DATT ÉG Í GÆR? GÆTI VERIÐ ÞETTA FRÖKEN ESMERALDA VEIT ALLT — SÉR ALLT HELGA, ÉG VIL AÐ ÞÚ VITIR AÐ ÉG HEF VERIÐ Á SPÁ Í FRAMTÍÐ OKKAR! ERTU AÐ NURLA SAMAN VARASJÓÐI? NEI! ÉG HEF VERIÐ AÐ FARA TIL ESMERÖLDU SPÁKONU! Ámundadóttir og börn þeirra Auð- ur Böðvarsdóttir, Oddný, Steinunn og Þorsteinn Þorvaldsbörn. 2) Helga, f. 29.11. 1968, hjúkrunar- fræðingur, gift Bjarna Ármanns- syni, forstjóra Iceland Seafood. Börn þeirra eru Tómas, Helga Guð- rún, Benedikt og Auður. 3) Halla, f. 30.8. 1970, þýðandi í Reykjavík. Hún er gift Agli Axelssyni jarð- fræðingi og börn þeirra eru Silja og Styrmir. Systkini og uppeldissystkini: 1) Ingólfur Helgason, f. 20.7. 1937, d. 16.11. 2019, arkitekt og skipulags- fræðingur í Edinborg, Skotlandi. 2) Jóhanna Margrét Helgadóttir, f. 29.5. 1939, d. 29.7. 2015, fv. banka- starfsmaður í Hafnarfirði. 3) Gísli Helgason, f. 6.3. 1942, bankastarfs- maður í Hafnarfirði. 4) Unnur Helgadóttir, f. 20.6. 1944, fv. for- maður Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar. 5) Arnar Helgason, f. 8.6. 1946, húsasmíðameistari í Hafnarfirði. 6) Bjarni Helgason, f. 13.7. 1948, d. 16.9. 1997, fv. verslunarmaður í Hafnarfirði. 7) Viðar Helgason, f. 25.2. 1950, fiski- fræðingur í Reykjavík. 8) Leifur Helgason, f. 1.9. 1954, framhalds- skólakennari í Hafnarfirði. 9) Gerð- ur Helgadóttir f. 15.7. 1952, heil- brigðisgagnafræðingur í Garðabæ. Foreldrar Guðrúnar voru hjónin Ingigerður Eyjólfsdóttir, f. 9.6. 1913, d. 26.12. 1995, húsfreyja og Helgi Kristján Guðlaugsson, f. 16.8. 1908, d. 26.3. 1991, sjómaður. Þau bjuggu í Hafnarfirði. Úr frændgarði Guðrúnar Helgadóttur Guðrún Helgadóttir Ólafía Þórarinsdóttir húsfreyja og ráðskona í Arnarholti, Kjós, og í Reykjavík Þórður Halldórsson bóndi Vatnsleysu, Arnarholti, Hrauntúni Guðrún Þórðardóttir húsfreyja í Reykjavík og Hafnarfi rði Helgi Kristján Guðlaugsson sjómaður í Hafnarfi rði Guðlaugur Hinriksson húsgagnasmiður og bóndi, Reykjavík, Hafnarfi rði og í Norðurárdal Þuríður Jónsdóttir vinnukona og húsfreyja í Kjós og í Reykjavík Hinrik Halldórsson húsbóndi í Reykjavík Jóhanna Margrét Jónasdóttir húsfreyja og bústýra í Ásmúlum í Holtum, og í Norðurkoti, Ássókn Tómas Þórðarson húsmaður og bóndi, í Norðurkoti, Ássókn, og í Húnakoti í Þykkvabæ Ingibjörg Tómasdóttir vinnukona, húsfreyja í Bjólu í Ásahreppi, í Villingaholtshreppi og í Hafnarfi rði Eyjólfur Ámundason bóndi og tré- og járnsmiður í Bjólu í Ásahreppi, í Villingaholtshreppi og í Hafnarfi rði Ragnheiður Eyjólfsdóttir húsfreyja á Bjólu í Holtum, Rangeyjarsýslu Ámundi Filippusson bóndi á Bjólu í Holtum, Rangárvallasýslu Ingigerður Eyjólfsdóttir verkakona og húsfreyja í Hafnarfi rði Þessar limrur fylgdu lausn HelgaR. Einarssonar á laugardags- gátunni. Fyrst: „Góður endir á lygi“: Ég lýg því, ég segi það satt, að Sigga í Dettifoss datt. hún synti þar um í sokkabuxum og síðan til baka sér vatt. Og síðan: „Þetta gerist hins veg- ar of oft, - of algengt“: Margur fer á því flatt að fara á brattann of hratt. Í of mörgu brasa, að endingu hrasa og þetta er því miður satt. Yfirskrift þessa Vísnahorns veld- ur því, að mér þykir rétt að rifja upp stöku Páls Ólafssonar: Satt og logið sitt er hvað, sönnu er best að trúa. En hvernig á að þekkja það þegar flestir ljúga? Guðsteinn Fannar Jóhannsson yrkir á Boðnarmiði: Mundu þó að myrkvi’ um sinn, mun þig ekkert henda. Ljósið veginn lýsi þinn, lífið allt til enda. Hallmundur Guðmundsson yrkir „Saðningarljóð“ og er ekki laust við að maður fái gott bragð í munninn við tilhugsunina: Nú á ég skilið í gogginn gott; gómsæta pönnsu með rjóma. Hungrið mun þá hald’ á brott og holdafarið ljóma. Björn Skúlason Eyjólfsstöðum orti: Betra er að fara stillt af stað, steypist einhver þarna. Skyldi ’ann hafa hálsbrotnað helvítið að tarna? Sigvalda Skagfirðingaskáldi var gefið kaffi í sprungnum bolla: Drottinn fyrir drykkinn holla, dygðakonan, launi þér, þó hann væri í brotnum bolla brotlegum það hæfir mér. Úr Síraksrímum Jóns Bjarnason- ar á Presthólum: Hvað sem býr í brjósti manns birtist skjótt í augum hans glaðlegt tillit glöggt til sanns gleðina merkir hjartaranns. Gamall húsgangur að lokum: Þrír eru hlutir, það ég veit, sem þýða gleðja rekka: kona feit og kaka heit og kaldar áfir að drekka. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Satt og logið sitt er hvað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.