Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Það voru skoruð fjögur mörk eða
meira í öllum fimm leikjum Pepsi
Max-deildar kvenna í fótbolta í gær
er 13. umferðin var leikin. Í Laug-
ardalnum komst Breiðablik aftur á
beinu brautina eftir fyrsta deild-
artapið í tæp tvö ár í síðustu um-
ferð gegn Selfossi. Breiðablik vann
afar öruggan 4:0-sigur á nýliðum
Þróttar þar sem Agla María Al-
bertsdóttir og Alexandra Jóhanns-
dóttir skoruðu tvö mörk hvor.
„Takturinn í Blikaliðinu er aðeins
öðruvísi eftir að Berglind Björg
Þorvaldsdóttir fór til Frakklands.
Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði
sem fremsti maður í dag, en það
virðist ekki skipta neinu máli hvar
Sveindís spilar, alltaf er hún besti
maður vallarins,“ skrifaði Bjarni
Helgason m.a. um leikinn á mbl.is.
Þróttarinn Guðrún Ólafía Þor-
steinsdóttir lék sinn fyrsta leik í
efstu deild.
Gunnhildur stal senunni
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir stal senunni í leik Vals
og ÍBV en hún skoraði tvö mörk í
öruggum 4:0-sigri Valskvenna.
Valskonur eru áfram í toppsætinu
og líta afar vel út um þessar mund-
ir. Eftir fimm leiki í röð án taps hef-
ur ÍBV tapað síðustu tveimur.
„ÍBV skipti í hálfleik út þremur
leikmönnum, sem höfðu staðið sig
ágætlega og rætt var um að liðið
ætlaði sér að hvíla þá. Reyndar var
eins og Valskonur væru líka að
hvíla sig, það vantaði neistann og
með því að vanda sig hefði liðið get-
að byrjað strax að bæta við mörk-
um,“ skrifaði Stefán Stefánsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
Mörkin sem Gunnhildur skor-
aði eru þau fyrstu hjá landsliðskon-
unni í efstu deild síðan 2012.
Eyjakonan Inga Dan Ingadótt-
ir lék sinn fyrsta leik í efstu deild.
Stjarnan hefndi ófaranna
Útisigur Stjörnunnar á Selfossi
var afar óvæntur en lokatölur urðu
3:2. Stjarnan var í fallbaráttu um
skeið en Stjörnukonur hafa aðeins
tapað einum af síðustu fimm leikj-
um og virðast vera of góðar til að
falla.
„Lið Stjörnunnar gæti átt eftir að
taka fleiri stig í síðari hluta mótsins
en í þeim fyrri ef mið er tekið af
leiknum í dag. Vafalaust er gott fyr-
ir unga leikmenn liðsins að fá Mál-
fríði Ernu Sigurðardóttur í miðja
vörnina,“ skrifaði Kristján Jónsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
Anna María Friðgeirsdóttir
lék sinn 200. keppnisleik fyrir Sel-
foss, 119 hafa komið í efstu deild.
Selfyssingurinn Helena Hekla
Hlynsdóttir skoraði sitt fyrsta mark
í efstu deild.
Betsy Hassett Stjörnunni lék
sinn 50. leik í efstu deild hér á
landi.
Málfríður Erna Sigurðardóttir
lék sinn fyrsta leik með Stjörnunni.
Skrautlegt í Árbænum
Fylkir hafði betur gegn Þór/KA í
Árbæ, 4:2. Voru mörk Akureyringa
í skrautlegri kantinum og hefur
Cecilía Ósk Rúnarsdóttir í marki
Fylkis oft átt betri leik. Sem betur
fer fyrir hana voru sóknarmenn
Fylkis í stuði. Fylkir er nú með sex-
tán stig, eins og Selfoss, í barátt-
unni um þriðja sætið en Fylkir á
leik til góða. Þór/KA er aðeins einu
stigi fyrir ofan fallsæti.
„Berglind Rós Ágústsdóttir er
svo sannarlega miðjumaður. Hún
hefur verið að spila sem hafsent í
sumar, og reyndar á síðustu leiktíð
líka, en var færð á miðjuna í dag og
það gekk heldur betur upp,“ skrif-
aði Kristófer Kristjánsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Bryndís Arna Níelsdóttir skor-
aði sitt tíunda mark í efstu deild.
Margrét Árnadóttir fékk sitt
fyrsta rauða spjald á ferlinum.
FH sendi KR í botnsætið
FH vann afar mikilvægan 4:2-
sigur á KR í fallbaráttuslag í Kapla-
krika. Hefur FH unnið tvo af síð-
ustu þremur leikjum og er fyrir vik-
ið komið úr botnsætinu, einu stigi
frá öruggu sæti. KR er í botnsæt-
inu, en á þrjá leiki til góða.
„Tilkoma Phoenetiu Browne hef-
ur gjörbreytt allri ásýnd liðsins og
hún er nú þegar orðin langmikil-
vægasti leikmaður Hafnfirðinga,“
skrifaði Bjarni Helgason m.a. um
leikinn á mbl.is.
Helena Ósk Hálfdánardóttir
lék sinn 50. leik í efstu deild með
FH.
Kristín Erna Sigurlásdóttir
KR lék sinn 200. keppnisleik á ferl-
inum.
Markasúpa
af allra
bestu gerð
Toppliðin sannfærandi Óvæntur
sigur Stjörnunnar FH vann fallslaginn
Morgunblaðið/Eggert
Mark Alexandra Jóhannsdóttir kemur Breiðabliki í 1:0 með föstum skalla.
Breiðablik skaut sér upp í annað
sæti Pepsi Max-deildar karla í
knattspyrnu með öruggum 4:1-sigri
á botnliði Fjölnis í Grafarvoginum á
laugardaginn. Blikar hafa nú unnið
fjóra í röð en Fjölnir er enn án sig-
urs, sjö stigum frá öruggu sæti.
Í liði Fjölnis fengu Grétar Snær
Gunnarsson og Sigurpáll Melberg
Pálsson eitt M. Í liði Breiðabliks
fékk Thomas Mikkelsen tvö M og
þeir Alexander Helgi Sigurðarson,
Elfar Freyr Helgason, Höskuldur
Gunnlaugsson og Viktor Karl Ein-
arsson eitt M.
Sannfærandi
Blikar í öðru sæti
Morgunblaðið/Eggert
Sigurganga Höskuldur Gunn-
laugsson fagnar með Blikum.
KA/Þór vann sinn fyrsta titil í
meistaraflokki kvenna er liðið vann
sannfærandi 30:23-sigur á Fram í
meistarakeppni HSÍ í Safamýri í
gær. KA/Þór var með undirtökin
allan tímann og var staðan í hálf-
leik 17:10. Martha Hermannsdóttir
skoraði sjö mörk fyrir KA/Þór.
Í karlaflokki hafði ÍBV betur
gegn Val, 26:24, í Origo-höllinni.
Hákon Daði Styrmisson skoraði sex
mörk fyrir ÍBV. Íslandsmót karla
hefst fimmtudaginn 10. september.
Degi síðar hefst Íslandsmótið í
kvennaflokki.
Fyrsti titillinn í
sögu KA/Þórs
Þórir Tryggvason
Markahæst Martha Hermanns-
dóttir skoraði mest hjá KA/Þór Íslenski landsliðsmaðurinn Sigvaldi
Björn Guðjónsson fer vel af stað með
pólska stórliðinu Kielce en liðið lagði
Gdansk að velli á heimaveli í 1. umferð
úrvalsdeildarinnar í handbolta í gær,
34:25. Sigvaldi lék vel og skoraði fimm
mörk úr sex skotum, en hann kom til
félagsins frá Elverum í Noregi fyrir
leiktíðina. Haukur Þrastarson lék ekki
með Kielce vegna meiðsla, en Haukur
kom sömuleiðis til Kielce fyrir leiktíð-
ina frá Selfossi.
Glódís Perla Viggósdóttir skoraði
þriðja mark Rosengård í öruggum 3:0-
sigri á Djurgården í Íslendingaslag í
sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í
gær. Guðrún Arnardóttir lék allan leik-
inn með Djurgården en Guðbjög
Gunnarsdóttir er enn frá eftir barn-
eignir.
Markvörðurinn Patrik Sigurður
Gunnarsson er á leið til danska knatt-
spyrnufélagsins Viborg að láni frá
Brentford. Patrik er í íslenska lands-
liðshópnum sem mætir Belgíu í Þjóða-
deildinni annað kvöld. Hann stóð á
milli stanganna hjá U21 árs landsliðinu
sem vann 1:0-sigur gegn Svíþjóð í
undankeppni EM á föstudag.
Atvinnukylfingurinn Guðmundur
Ágúst Kristjánsson hafnaði í fimmta
sæti á Opna norðurírska mótinu í golfi
sem fram fór á Galgorm-vellinum í
Ballymena á Norður-Írlandi um
helgina en mótið var hluti af Áskor-
endamótaröð Evrópu. Guðmundur lék
hringina fjóra á samtals níu höggum
undir pari en fyrir mót helgarinnar var
níunda sætið hans besti árangur í
Áskorendamótaröðinni en þeim
árangri náði hann á Írlandi á síðasta
ári. Haraldur Franklín Magnús tók
einnig þátt í mótinu og endaði í 33.-
36. sæti og Andri Björnsson hafnaði í
48.-50. sæti.
Körfuknattleiksmaðurinn Danero
Thomas hefur framlengt samning sinn
við ÍR og mun hann leika með liðinu á
komandi tímabili. Danero, sem er
fæddur í Bandaríkjunum en er með ís-
lenskt ríkisfang og hefur leikið með
landsliðinu, kom fyrst hingað til lands
árið 2013 og hefur leikið með KR,
Fjölni, Val, Þór Akureyri, Tindastóli og
ÍR.
Íslandsmeistarinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir endaði í 14. sæti á
Flumserberg Ladies Open-mótinu í
Sviss. Er mótið hluti af LET Access-
mótaröðinni. Lék Guðrún hringina þrjá
á þremur höggum undir pari. Var hún í
toppbaráttu eftir góðan fyrsta hring
en náði ekki að fylgja því eftir á seinni
tveimur hringjunum.
Keflvíkingurinn Elías Már Ómars-
son skoraði þrennu fyrir Excelsior í tíu
marka leik í 2. umferð hollensku B-
deildarinnar í knattspyrnu í
gær. Elías og félagar töp-
uðu þó leiknum, 6:4, á
útivelli gegn Almere. Elí-
as hefur farið mjög vel
af stað á tímabilinu en
hann skoraði tvö mörk
í fyrstu umferðinni og
gerði gott betur í gær.
Excelsior var í mikilli
toppbaráttu á síðustu
leiktíð, en fékk að lok-
um ekki tækifæri til að
berjast um sæti í efstu
deild þar sem tímabilinu
var aflýst vegna kórónu-
veirunnar.
Eitt
ogannað
ÞRÓTTUR – BREIÐABLIK 0:4
0:1 Alexandra Jóhannsdóttir 33.
0:2 Agla María Albertsdóttir 57.
0:3 Alexandra Jóhannsdóttir 63.
0:4 Agla María Albertsdóttir 80.
MM
Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðabliki)
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðabliki)
M
Sonný Lára Þráinsdóttir (Breiðabliki)
Hafrún Rakel Halldórsd. (Breiðabliki)
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
Karólína Lea Vilhjálmsd. (Breiðabliki)
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Andrea Rán Snæfeld (Breiðabliki)
Laura Hughes (Þrótti)
Stephanie Ribeiro (Þrótti)
Morgan Goff (Þrótti)
Mary Alice Vignola (Þrótti)
Elísabet Freyja Þorvaldsd. (Þrótti)
Dómari: Þórður Már Gylfason – 6.
Áhorfendur: 100.
SELFOSS – STJARNAN 2:3
0:1 Betsy Hassett 1.
0:2 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir 10.
1:2 Barbára Sól Gísladóttir 36.
1:3 Shameeka Fishley 39.
2:3 Helena Hekla Hlynsdóttir 90.
MM
Shameeka Fishley (Stjörnunni)
M
Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi)
Karitas Tómasdóttir (Selfossi)
Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörnunni)
Málfríður E. Sigurðard. (Stjörnunni)
Jasmín Erla Ingadóttir (Stjörnunni)
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Dómari: Aðalbjörn H. Þorsteinss. – 7.
Áhorfendur: 100.
FYLKIR – ÞÓR/KA 4:2
0:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 10.
1:1 Eva Rut Ásþórsdóttir 19.
2:1 Þórdís Elva Ágústsdóttir 62.
2:2 Hulda Björg Hannesdóttir 67.
3:2 Bryndís Arna Níelsdóttir 69.
4:2 Bryndís Arna Níelsdóttir 77.
MM
Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki)
M
Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylki)
Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylki)
Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Fylki)
Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki)
Berglind Baldursdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
María C. Ólafsdóttir Gros (Þór/KA)
Rautt spjald: Margrét Árnadóttir
(Þór/KA) 50.
Dómari: Jóhann Atli Hafliðason – 7.
Áhorfendur: 100.
VALUR – ÍBV 4:0
1:0 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 5.
2:0 Sjálfsmark 29.
3:0 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 38.
4:0 Arna Eiríksdóttir 81.
MM
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Val)
M
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Guðný Árnadóttir (Val)
Elísa Viðarsdóttir (Val)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Val)
Hlín Eiríksdóttir (Val)
Lillý Rut Hlynsdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Guðný Geirsdóttir (ÍBV)
Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV)
Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
Karlina Miksone (ÍBV)
Eliza Spruntule (ÍBV)
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason – 8
Áhorfendur: 100.
FH – KR 4:2
1:0 Phoenetia Browne 29.
2:0 Helena Ósk Hálfdánardóttir 33.
2:1 Ingunn Haraldsdóttir 62.
3:1 Maddy Gonzalez 67.
3:2 Alma Gui Mathiesen 70.
4:2 Andrea Mist Pálsdóttir 82.
MM
Phoenetia Browne (FH)
Andrea Mist Pálsdóttir (FH)
M
Telma Ívarsdóttir (FH)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (FH)
Ingibjörg Rún Óladóttir (FH)
Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
Taylor Sekyra (FH)
Katrín Ómarsdóttir (KR)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (KR)
Rebekka Sverrisdóttir (KR)
Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertss. – 6.
Áhorfendur: 68.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.