Morgunblaðið - 07.09.2020, Page 32

Morgunblaðið - 07.09.2020, Page 32
Félagi íslenskra bókaútgef- enda bárust samtals 273 umsóknir frá bókaunn- endum sem áhuga hafa á að velja athyglisverðustu bæk- ur ársins í dómnefnd Íslensku bókmenntaverð- launanna. Alls sóttu 55 karl- ar (20% umsækjenda) og 218 konur (80% umsækj- enda) um að gegna dóm- nefndarstörfum. Elsti umsækjandi var 80 ára og sá yngsti 10 ára, en meðalaldur umsækjenda var 43 ár. Umsækjendur gátu sótt um að komast í eina eða fleiri nefndir. Alls 165 sóttu um að vera í dómnefnd barna- og ungmennabóka; 207 sóttu um að vera í íslensku skáldverkanefndinni og 131 sótti um að vera í dóm- nefnd fræðibóka og rita almenns efnis. Verðlaunanefnd félagsins fer nú yfir umsóknirnar og leggur fram til- lögur sínar á stjórnarfundi félagsins í vikunni. Greint verður opinberlega frá nöfnum dómnefndarmanna um leið og tilnefningar verða kynntar, hinn 1. desember. 273 vilja velja vinningsbækurnar þegar stjórn sjálfseignarstofnunar- innar hugsaði um að loka því var ég á öndverðum meiði og tók rekst- urinn að mér sem samfélagsverk- efni,“ segir Þuríður. Til stendur að gera upp Norðurbrautarskúrinn, sem var fyrsta vegasjoppan á svæðinu, og tengja hann við safna- húsið. Hugmyndin er að báturinn Bangsi, sem Bangsi, Björn Sigurðs- son, smíðaði 1958, verði þar til sýn- is. Sjálfboðaliðar komu safninu upp, hafa alla tíð verið því innan handar og einu tekjurnar, fyrir utan styrki, eru vegna sölu muna. Í fyrra var safnið opið daglega frá 1. maí til 20. október og þá voru erlendir ferðamenn í miklum meirihluta, en Íslendingar hafa ekki látið sitt eftir liggja í sumar. „Þeir hafa verið mun fleiri en við gerðum ráð fyrir og það er mjög gleðilegt.“ Óvíst er hvað opið verður lengi fram á haustið vegna kórónuveir- unnar en sem fyrr verður opið um helgar í desember. „Þótt opið sé frá klukkan eitt til fimm á daginn hafa vegfarendur oft samband á öðrum tíma og þá er ekkert mál fyrir mig að skjótast og opna.“ Þuríður segir að gestir vilji gjarnan kaupa ýmsa muni úr kram- versluninni, til dæmis fatnað, skó, smávörur og fleira, en eðlilega séu þeir ekki til sölu. „Í fyrra vildi er- lendur ferðamaður kaupa gamla Álafossúlpu og ég sagði að hún væri ekki til sölu. „Ég borga 100 þúsund krónur fyrir hana,“ sagði hann þá en ég stóð fast á mínu. Þá hækkaði hann boðið í 700 þúsund en ég sagði aftur nei. Hann horfði orðlaus á mig en málið er að sé selt úr safninu verður ekkert safn eftir á endanum.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þuríður Þorleifsdóttir hefur staðið vaktina í verslunarminjasafninu Gallerí Bardúsu á Hvammstanga síðan í maí 2018 og er ánægð með viðtökurnar. „Allir sem hingað hafa komið segja að heimsóknin hafi verið skemmtileg og þá er tak- markinu náð,“ segir hún, en á há- annatímanum á sumrin hefur hún fengið aðstoð frá öðrum starfs- manni. Hvammstangahöfn var löggilt sem verslunarhöfn 1895 og í tilefni 100 ára afmælis verslunar í pláss- inu var komið upp verslunarminja- sýningu við höfnina í endurbættu pakkhúsi, sem var byggt 1909. Sýn- ingin stendur enn. Handverk og gamlir munir Gengið er inn í gallerí, þar sem handverk eftir listafólk í hand- verkshópnum Bardúsu er til sölu. Inn af því er safn, krambúð með vörum sem voru til sölu í verslun Sigurðar Davíðssonar í kjallara þinghússins 1920 til 1970. Auk þess eru munir frá öðrum verslunum á Hvammstanga eins og til dæmis KVH, VSP, Gunnars verslun og Glaumbæ. „Afkomendur Sigurðar héldu hlutum úr verslun hans til haga og það er þeim að þakka að við getum skyggnst inn í fortíðina með áþreifanlegum hætti,“ segir Þuríður. Uppi á lofti er verslunarsagan rakin í máli og myndum auk þess sem þar eru innréttingar og ýmis búnaður. Ennfremur líkön af göml- um húsum eftir Egil Ólaf Guð- mundsson, en inn af afgreiðslu- borðinu niðri eru líka gamlir hlutir sem hann safnaði og setti þar upp. Samfélagsverkefni „Vegna frumkvæðis kjarnorku- kvennanna Eddu Hrannar Gunn- arsdóttur og Kolbrúnar Karls- dóttur varð safnið að veruleika en reksturinn gekk illa og svo fór að Bauð 700 þúsund fyrir gamla Álafossúlpu  Verslunarsagan á Hvammstanga rakin í máli og myndum í verslunarminjasafninu Gallerí Bardúsu Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Gull og gersemar Þuríður Þorleifsdóttir í krambúð safnsins. SÆKTU APPIÐ á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Með Hreyfils appinu er fljótlegt og einfalt að panta leigubíl. Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð þegar bíllinn er mættur á staðinn. Þú getur fylgst með hvar bíllinn er staddur hverju sinni. Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis getur þú valið viðskiptareikning og opnað aðgang. Hreyfils-appið er ókeypis. MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 251. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Það voru skoruð fjögur mörk eða meira í öllum fimm leikjum Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í gær er 13. umferðin var leikin. Í Laugardalnum komst Breiðablik aftur á beinu brautina eftir fyrsta deildartapið í tæp tvö ár í síðustu umferð gegn Selfossi. Breiðablik vann afar öruggan 4:0-sigur á nýliðum Þróttar. Valur vann sömuleiðis 4:0 á ÍBV og er enn í toppsætinu. Stjarnan vann afar óvæntan 3:2-sigur á Selfossi á útivelli og Fylkir vann Þór/KA í sex marka leik, 4:2. Þá vann FH fallslaginn við KR með sömu markatölu, 4:2. »27 Markaveisla af bestu gerð í 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.