Morgunblaðið - 09.09.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.09.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 www.flugger.is Mött Gæðamálning í öllum litum Auðvelt að þrífa Sigurður Már Jónsson blaðamað-ur ritar pistil á mbl.is sem hann nefnir Félagsleg yfirboð og segir þar að eins og annars staðar á Norðurlöndunum ríki góð sátt um að reka traust og öruggt velferð- arkerfi á Íslandi. Ágreiningur geti hins vegar verið um stærð og útfærslu velferðarkerfisins.    Hann bendir ámiklar kröfur sem gerðar eru til velferðarkerfisins og minnir á að sé velferðarkerfið rekið á lán- um þá komi að skuldadögum. Vandanum sé velt yfir á skatt- greiðendur framtíðarinnar.    Sigurður Már nefnir líka aðsterk tilhneiging sé í sam- félaginu að telja öll vandamál þess eðlis að opinberir sjóðir eigi að koma að lausn þeirra: „Hve oft byrja ekki fréttir sjónvarpsstöðva á því að tíunda að þessi eða hinn eigi við þetta eða hitt að etja og það sé bara ótrúlegt að það sé ekki „gjaldfrjálst“ úrræði til staðar. Að sumu leyti má líkja þessu við um- ræðu um gjafsókn en sumir virðast telja að ríkið eigi á öllum tíma að greiða allan málakostnað þeirra sem á hverjum tíma telja sig þurfa að leita til dómstóla. Í upphafi gat verið um ákveðna sanngirni að ræða í afmörkuðum tilvikum en svo taka hin félagslegu yfirboð við og liður sem þessi getur óhjá- kvæmilega sogað til sín mikið fjár- magn. Þetta á við á mörgum svið- um. Við getum tekið sem dæmi málefni hælisleitenda og flóttafólks en þar koma yfirboðin í bylgjum frá lýðsleikjum hversdagsumræð- unnar.“    Það er alltaf mikilvægt, en ekkisíst þegar árar sem nú, að minna á að opinberir sjóðir eru ekki ótæmandi hít. Sigurður Már Jónsson Félagsleg yfirboð og lýðsleikjur STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ 44. þing Alþýðusambands Íslands sem standa átti yfir dagana 21. til 23. október verður með breyttu sniði en ráðgert var vegna samkomutak- markana og sóttvarna gegn faraldri kórónuveirunnar. Í stað þriggja daga þinghalds hefur miðstjórn ASÍ ákveðið að eingöngu skuli halda raf- rænt þing 21. október sem mun sam- kvæmt dagskrá aðeins standa yfir í þrjár klukkustundir. Allri málefna- vinnu sem fram átti að fara á þinginu, nefndastörfum, umræðum um mál og afgreiðslu þeirra verður frestað fram á vor, samkvæmt upplýsingum frá Höllu Gunnarsdóttur, framkvæmda- stjóra ASÍ. ,,Við viljum afgreiða það sem við þurfum að afgreiða núna og síðan hittumst við til ítarlegri stefnu- mótunar með vorinu, vonandi, ef lífið verður orðið betra þá,“ segir Halla. Um 300 fulltrúar aðildarfélaganna eiga rétt til setu á þinginu en þeir munu taka þátt í fundinum með fjar- fundabúnaði hver frá sínu félags- svæði. Þingið á að hefjast með ávörpum kl. 10 miðvikudaginn 21. október skv. drögum að dagskrá. Því næst fer fram kosning í æðstu stöður sam- bandsins, afgreiða á ársreikninga og gert er ráð fyrir almennum um- ræðum í hálfa klukkustund áður en þinginu verður svo frestað kl. 13. M.a. á að kjósa forseta og 1. og 2. varafor- seta ASÍ. Forsetar ASÍ í dag eru Drífa Snædal forseti ASÍ, Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ er 1. varaforseti og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar er 2. varaforseti eftir að Vilhjálmur Birg- isson, formaður VLFa, sagði af sér sem 1. varaforseti ASÍ sl. vor. Ekki hafa borist tilkynningar um framboð til forsetaembættanna eftir því sem næst verður komist. Einnig verður kosið í miðstjórn rafrænt á þinginu. omfr@mbl.is Rafrænt þing í fáar klukkustundir  Þing ASÍ með gjörbreyttu sniði 21. október  Málefnavinnu frestað til vors Icelandair hefur gert samstarfs- samning við breska flugfélagið easy- Jet. Með samningnum gerist Ice- landair aðili að stafrænni bókunar- þjónustu easyJet, Worldwide by easyJet. Með bókunarþjónustunni geta farþegar sjálfir bókað flug með easyJet og fjölmörgum samstarfs- flugfélögum á sjálfvirkan og einfald- an hátt og þannig aukið möguleika á tengiflugi til fjölda áfangastaða um allan heim. Fram kemur í tilkynningu frá Ice- landair að gert sé ráð fyrir að þjón- ustan verði virk á næstu vikum og þegar markaðsaðstæður leyfa. Þá munu farþegar geta bókað flug frá áfangastöðum easyJet í Evrópu og áfram inn í leiðakerfi Icelandair til áfangastaða bæði í Evrópu og Norð- ur-Ameríku. Icelandair er nú þegar í samstarfi við önnur flugfélög á borð við SAS, Finnair og airBaltic í Evrópu og Jetblue og Alaska Airlines í Banda- ríkjunum. Worldwide by easyJet tengir sam- an yfir fimm þúsund flugleiðir víða um heim. liljahrund@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Icelandair og easyJet Gert er ráð fyrir að þjónustan virkist á næstu vikum. Icelandair í sam- starf við easyJet

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.