Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 Þjótandi Rafhjól af ýmsu tagi hafa komið fram á sjónarsviðið í samgöngumálum en hér er nýstárlegt hjól, eða bretti, á ferðinni. Einhver gæti efast um að eigandinn væri maður þessa heims. Eggert Hafi sagan kennt okkur eitthvað þá eru það þessi einföldu sannindi: Frelsi þrífst ekki án frjálsra og op- inna skoðanaskipta. En þrátt fyrir þennan lærdóm virðast borg- arar lýðræðisríkja ekki alltaf skynja þegar frelsinu er ógnað. Kannski er það vegna þess að ógnvaldurinn skiptir stöðugt um andlit, breytir aðferðum og orða- notkun. Kannski er sinnuleysið af- leiðing velmegunar. Ef til vill kemur óttinn við afleiðingar í veg fyrir að tekið sé til máls. David Green, forstöðumaður Civi- tas-hugveitunnar í Bretlandi og dálkahöfundur The Spectator, held- ur því fram að ný tegund stjórnmála sé að festa rætur; „réttlát ógnun“ [righteous intimidation] – þar sem samfélögum er skipt í fórnarlömb og kúgara. Í nýlegum pistli bendir hann á að „réttlát ógnun“ sé fyrsti kostur margra baráttumanna fyrir þjóð- félagsbreytingum. Baráttumenn fyrir róttækum aðgerðum í lofts- lagsmálum reyna að koma í veg fyrir útgáfu dagblaða sem eru þeim ekki að skapi. Undir yfirskini réttlætis og baráttu gegn ógeðfelldri kynþátta- hyggju og rasisma eru minnismerki rifin niður. Skoðanir sem ekki eru þóknanlegar eru bældar niður og Twitter er nýttur til að bola einstaklingum úr starfi. Frelsið krefst mikils Á síðustu árum hafa sjálfsmyndastjórnmál orðið stöðugt áhrifa- meiri. Í stað almennrar hugmyndafræði, s.s. um réttindi ein- staklinga, hlutverk rík- isins og stjórnskipan, byggjast stjórnmál sjálfsmynda á þjóð- félagsstöðu, kynþætti, kynhneigð, trúarbrögðum o.s.frv. Það er úr jarðvegi sjálfsmyndastjórnmála sem „réttmæt ógnun“ er sprottin. Og í mörgu er það kaldhæðnislegt að Do- nald Trump Bandaríkjaforseti hafi lagt mikið af mörkum til að gera jarðveginn frjórri en nokkru sinni fyrir hugmyndir og baráttuaðferðir af því tagi. Frelsi krefst mikils af borg- urunum. Sjálfsmyndastjórnmál mynda hins vegar farveg fyrir kröf- ur á samborgarana. Ýta undir trúna á að samfélagið skuli skipulagt af hinum réttsýnu. Til að ná markmið- inu er nauðsynlegt að pólitísk holl- usta byggist á gremju, kvörtunum og dylgjum í garð annarra. Þeir sem ekki taka undir eru skilgreindir sem fjandmenn og kúgarar sem verði að þagga niður í. Að hver og einn leiti að innri styrkleika til að lifa farsælu lífi er fyrirlitlegt. Sjálfsmyndastjórnmál ganga á hólm við frjáls og opin samfélög sem umbera ekki aðeins ólík sjónarmið og skoðanir heldur hvetja til rök- ræðna – mynda öflugt skjól fyrir dýnamíska umræðu og skoðana- skipti, ekki síst í háskólum og fjöl- miðlum. Í áðurnefndri grein segir David Green að réttlæti sé ein meg- instoð frjáls samfélags þar sem leit- ast er við að leiðrétta óréttlæti öllum til hagsbóta. Hann telur að stjórn- mál „réttlátrar ógnunar“ séu ósam- rýmanleg frjálsu samfélagi þar sem við reynum að læra hvert af öðru með beinum skoðanaskiptum. Efasemdir og spurningar Sú hætta er raunveruleg að undir ógn sjálfsmyndastjórnmála verði hætt að spyrja spurninga, leita nýrra lausna. Þegar allt kapp er lagt á að þagga niður gagnrýni eru spurningar ekki aðeins óþarfar held- ur beinlínis hættulegar. Það er ekk- ert rúm fyrir efasemdir og engin nauðsyn á því að leita nýrra leiða við úrlausn verkefna. Samkeppni hug- mynda er ógn en ekki mikilvæg leið til að virkja krafta mannshugans. Við þurfum ekki að leita út fyrir landsteinana til að finna dæmin. Ábendingum og gagnrýni virts íslensks prófessors við læknadeild Harvard-háskóla var mætt með hroka, yfirlæti og hreinum dóna- skap. Spurningar og ólík sjónarmið eru eitur í beinum hinna „réttlátu“ sem hafa höndlað sannleikann í eitt skipti fyrir öll. Alvarlegum efasemdum um hvort stjórnvöld hafi heimild að lög- um til að hefta athafnafrelsi og samfélagslegt samneyti til lengri tíma í nafni sóttvarna er mætt með tómlæti af fræðaheimi lögfræðinga. Engu er líkara en þeir sem ættu að leiða gagnrýna umræðu um stjórn- skipan landsins og lagalegar for- sendur fyrir ákvörðunum stjórn- valda á hverjum tíma forðist að taka til máls. Ég óttast að háskólasamfélagið, sem á að vera griðastaður frjálsrar umræðu og ólíkra skoðana, sé hægt og bítandi að breytast í einskonar kirkjudeild pólitísks rétttrúnaðar. Ekki aðeins hér á landi heldur ekki síður í öðrum lýðræðislöndum. Í bandarískum háskólum eru fræði- menn flæmdir úr starfi og komið er í veg fyrir að gestafyrirlesarar með skoðanir sem ekki eru þóknanlegar geti tekið til máls. Verið er að hneppa háskóla í spennitreyju rétt- hugsunar. Frjó hugsun og frjáls vísindastarfsemi eru fórnarlömbin. Samfélagið allt ber skaðann. Hlekkir ógnunar Stjórnmál „réttlátrar ógnunar“ eru þegar grannt er skoðað annað andlit stjórnlyndis – verkfæri til að umbylta skipulagi lýðræðisríkja sem tókst ekki undir gunnfána sósíalism- ans. Þetta er hugmyndafræði átaka, þar sem reka skal fleyg milli borg- aranna, milli stétta, kynslóða, trúar- bragða, kynþátta, kynja, atvinnu- rekenda og launafólks. Stjórnlyndi breytist ekki þótt það sé klætt í nýj- an búning. Réttarríkið, þar sem allir eru jafn- ir fyrir lögum, er sett til hliðar í hug- arheimi „réttlátrar ógnunar“. Því er hafnað að frelsi einstaklingsins og réttindi séu algild og óumbreyt- anleg. Allt er háð aðstæðum og tíð- aranda. Að halda því fram að uppspretta valdsins sé hjá borgurum er talin hættuleg hugmynd sem grefur und- an stjórnlyndi og markmiðum sjálfs- myndastjórnmála. Þess vegna er öll- um slíkum hugmyndum, innan háskóla, í fjölmiðlum, stjórnmálum og samfélagsumræðu, mætt af fullri hörku. Andrúmsloft opinberrar um- ræðu er eitrað og gagnrýnin um- ræða kafnar hægt en örugglega þar sem einstaklingar, fræðimenn sem aðrir, forðast að taka til máls. Sú hætta er raunveruleg að frjáls- ir borgarar vakni einn daginn í hlekkjum „réttlátrar ógnunar“. Eftir Óla Björn Kárason » Stjórnmál „rétt- látrar ógnunar“ er annað andlit stjórn- lyndis – verkfæri til að umbylta skipulagi lýðræðisríkja sem tókst ekki undir fána sósíalismans. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Ógn hinna „réttlátu“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.