Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Stólaleik- fimi í Hreyfisalnum kl. 10. Söngstund við píanóið með Helgu kl.13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall með Hrafni kl.15. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar frá kl. 13-16. Kaffi og með því í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Sýnum bráðskemmtilega þætti úr Heilsubælinu kl. 13.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 411 2600. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10. Námskeið í tálgun kl. 9.15-11.45. Gönguferð um hverfið kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Bústaðakirkja Félagsstarfið verður í dag frá kl. 13-16, spilað, skrafað og unnin handavinna. ,,Ferðumst innanlands” myndasýning Hólm- fríðar djákna frá sumrinu. Kaffið góða verður á staðnum og prestur verður með hugleiðingu og bæn. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Starfsfólk Fossvogsprestakalls. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall við hringborðið kl. 8.50. Skráning á þátttökulista er á skrifstofunni kl. 8.50-16. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgað með Valdóri kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.30 og 17.15. Gerðuberg 3-5 111 RVK Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 útskurður með leiðbeinanda (Grænagróf), kl. 11 leikfimi Helgu (Háholt), kl 12.30-15 Döff, félag heyrnalausra (Lágholt). Kl. 13-16 útskurður / pappamódel með leiðbeinanda. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Dansleikfimi kl. 13-13.45. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13-16. Korpúlfar Gönguhópar kl. 10 í dag, gengið frá Borgum, kaffispjall á eftir. Kynningarhátíð í Borgum í dag kl. 13. Leiðbeinendur munu kynna sín námskeið og spennandi viðburði. Svarað verður fyrir- spurnum um félagsstarfið og skráning hefst á hin ýmsu námskeið og viðburði m.a. leikhúsferð og haustferðina um Suðurströndina. Þá mun Svavar Knútur heiðra okkur með nærveru sinni og söng. Allir hjartanlega velkomnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag verður postulínsmálun kl. 9-12. Bókbandið verður á sínum stað í smiðju kl. 9-13 og 13-17. Þá verður hlaðvarp spilað í handverksstofu kl. 13.30-14.30. Dagskrá fer fram með þeim hætti að hægt sé að tryggja fjarlægð milli einstaklinga. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Gler og bræðsla kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kafispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna með leiðbeinanda, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13-16. Ath. Bónusbíllinn fer frá Skólabraut kl. 14.50 og til baka frá Bónus kl. 15.50. Ath. Vatnsleikfimin er komin yfir á fimmtudaga. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt- ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Aðalfundur A1988 hf. verður haldinn mánudaginn 5. október nk. að Suðurlandsbraut 30 – 3ju hæð, Reykjavík, og hefst kl. 8:30. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf skv. 13 gr. samþykkta félagsins. Reykjavík, 8. september 2020. Stjórn A1988 hf. Aðalfundur A1988 hf. Fundir/Mannfagnaðir mbl.is alltaf - allstaðar Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk- efni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com ✝ Pétur RúnarRagnarsson fæddist í Hafn- arfirði 7. mars 1948. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 27. ágúst 2020. Foreldrar Péturs voru Ragnar Pét- ursson kaupfélags- stjóri, f. 21. október 1919, d. 4. nóv- ember 2013, og Valgerður Hanna Valdimarsdóttir, f. 26. október 1921, d. 4. desember 2003. Systur Péturs eru: 1) Guðrún Valdís, f. 29. maí 1944. 2) Jón- ína, f. 13. apríl 1953, eig- inmaður Ólafur Jónsson, f. 7. febrúar 1952. 3) Ragnheiður, f. 27. maí 1959, eiginmaður Sig- urjón Ásgeirsson, f. 28. mars 1961. 4) Hanna, f. 31. ágúst 1960, eiginmaður Kristinn Guð- laugsson, f. 15. febrúar 1968. Árið 1974 hóf Pétur sambúð með Margréti Ólafsdóttur, f. 14. 27. júlí 1969, eiginkona hans er Sólveig Kristbjörg Vagnsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 29. ágúst 1971, synir þeirra eru Arnar, f. 1995, Elmar, f. 1997, og Hlynur, f. 2010. Pétur var síðar í sambúð með Sjöfn Ágústsdóttur sálfræðingi. Pétur var fæddur í húsnæði fjölskyldunnar á annarri hæð Kaupfélags Hafnfirðinga að Strandgötu 28 þar sem faðir hans var kaupfélagsstjóri árin 1947-1976. Hann lauk landsprófi frá Flensborgarskólanum í Hafn- arfirði og síðan stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík árið 1968. Hann lagði stund á nám í læknisfræði við Háskóla Íslands en söðlaði um eftir kandídatsár á Ísafirði og réð sig til starfa hjá IBM á Íslandi árið 1973. Hjá IBM, síðar Nýherja, starfaði Pétur alla sína starfs- ævi og gegndi þar ýmsum stjórnunarstörfum. Útför Péturs hefur farið fram í kyrrþey. maí 1950, d. 29. júlí 2012. Þau voru gift frá árinu 1983 til 1997. Börn þeirra eru: 1) Ragnar Pétursson matreiðslu- meistari, f. 6. júlí 1979, eiginkona hans er Kristný Steingrímsdóttir félagsráðgjafi, f. 15. janúar 1988, dóttir þeirra er Margrét Mía, f. 2017, fyrir á Ragnar dótturina Ylfu Nótt, f. 1999, sambýlis- maður hennar er Snorri Björg- vin Magnússon, f. 1999, og eiga þau soninn Ragnar Óla, f. 2018. 2) Hlín Pétursdóttir ráðgjafi, f. 13. ágúst 1982, eiginmaður hennar er Guðjón Rafnsson verkfræðingur, f. 26. nóvember 1979, börn þeirra eru Jakob, f. 2009, og Margrét, f. 2015, fyrir á Guðjón soninn Orra Hrafn, f. 2001. Stjúpsonur Péturs er Ólafur Þórðarson kerfisfræðingur, f. Í útliti líkastur Jesús Kristi biblíumyndanna, sem gefin voru barni í sunnudagaskóla Hall- grímskirkju, var Pétur Ragnars- son þegar hann kom inn í líf okk- ar mömmu þar sem við bjuggum þröngt á Barónsstíg 78, ég fimm ára og hún eitthvað eldri. Hann hár og grannur með mikið ljóst hár og gerðarlegt alskegg. Fararskjótinn ekki asni held- ur Matti, Austin Mini bifreið skreytt límmiðum í bak og fyrir. Postularnir voru Barmahlíðar- gengið, ærslafullir Hafnfirðingar af 68 kynslóðinni sem enn vaka yfir fjölskyldunni. Pétur var úr Hafnarfirði og ekki kom annað til greina en að láta á það reyna að setjast að í þeim fagra bæ, ekki langt frá foreldrum hans, þeim Hönnu og Ragnari og yngstu systrunum, Röggu og Hönnu, á Miðvangi. Valdís og Nína fluttar að heiman fullorðnar konur. Norðurbærinn í uppbyggingu, Kaupfélagsblokkin, blokkahring- urinn á Breiðvangi og svo Norð- urvangurinn, rótum rækilega skotið í Hafnarfirði. Alltaf var mikið lagt upp úr að fararskjótarnir væru ekki af verri endanum, með einhverjum undantekningum þó. Ávallt var bílstjórasætinu hallað vel aftur, pakki af PK og gulur Ga-Jol á milli sætanna, upprúllað hand- klæði í aftursætinu, á leið í sund eða úr. Mikilvægt að spóla örlítið í mölinni. Vínillinn snérist hring eftir hring og jafnvel spilað undir á bassann, nálin var meðhöndluð af virðingu og plötunni pakkað vandlega inn eftir spilun. Zeppel- in, Deep Purple, Pink Floyd og John Lennon. „Kveð ég um konu og mann…“. Tónlist 68 kynslóð- arinnar hljómaði í eyrum barns og unglings og hljómar enn. En einnig rokk og ról níunda áratug- arins og svo jazz fyrir lengra komna. Einn kostur við starf Péturs hjá IBM var að snemma á ní- unda áratugnum voru á heim- ilinu PC-tölvur, fyrst með einu diskettudrifi og engum hörðum diski, seinna með tveimur disk- ettudrifum og svo harður disk- ur. Þessi búnaður var nógu áhugaverður á þeim tíma til að ungur drengur fór að skoða. Og á þessum tíma var lítið annað að gera við PC tölvu en að keppa í tugþraut við Daley Thompson eða fikta við forritun. Ef til vill hefur þetta átt þátt í því að marka þá braut sem ég sjálfur valdi í mínu lífi. Mamma og Pétur eignuðust tvö börn, systkini mín þau Ragn- ar og Hlín. Þeim sinnti Pétur afar vel og var stoltur af þeim hvort sem var í námi, við leik eða störf. Það er því gott að sjá hvernig þau hafa tekið við keflinu og hafa haldið í hönd pabba síns í hans veikindum undanfarið. Hvíl þú í friði Pétur. Ólafur Þórðarson. Meðal þeirra sem luku stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1968 var nokkuð þétt- ur hópur Hafnfirðinga og ann- arra „dreifbýlinga“ sem mynd- uðu U-bekk með piltum úr Hagaskóla. Hópurinn hristist ágætlega saman og hefur haldið sambandi bekkjarfélaga umfram meðallag. Einn úr hópnum, Pétur Rúnar Ragnarsson, hafði þegar verið í forystu Gaflaranna og prúðmennska hans og samviskusemi gerði hann augljósastan kost sem um- sjónarmann bekkjarins, sem hann sinnti allan menntaskóla- tímann óaðfinnanlega. Samferðamenn skipta miklu máli, þeir eru áhrifavaldar síns tíma. Móta áhugamál, smekk, lífsstíl og námsframvindu. Dreg- ur hver dám af sínum sessunaut. Pétur var ábyrgur og grand- var og gott mótvægi við suma hina sem voru meiri trallar. Glæsilegur á velli með sítt ljóst hár, óaðfinnanlega klæddur og vel heima í dægurperlum og tísku tímans. Hann var traustur þáttur þeirrar blöndu sem U- bekkurinn var, þar sem allir þok- uðust til einhvers þroska og hver maður var annars gaman. Pétur var á stundum rödd skynseminn- ar. Góðu heilli. Við stúdentspróf kættust menn vel, en að sjálfsögðu sundraðist hópurinn og fór til ýmissa átta til framhaldsnáms. Allnokkrir freistuðu þess að ná inn í læknadeild HÍ og tókst það bærilega. Pétur var einn þeirra og sóttist nám þar síst verr en samstúdentum. Áhugi hans fór þó smám saman til ann- arrar áttar. Hann skipti um námsbraut, trúr þeirri sannfæringu að það hentaði honum betur. Djörf ákvörðun en farsæl. Hann sá þar tækifæri á undan okkur hinum, í byrjun tölvualdar um miðjan átt- unda áratuginn, og fann sinn vettvang í tölvuheimum, m.a. við forritun, og starfaði þar æ síðan. Við andlát Péturs minnumst við góðra stunda og rifjum þær áfram upp með mánaðarlegum U-hittingi sem efnt var til fyrir tveimur árum. Við vottum ættingjum þessa góða drengs samúð okkar. F.h. 6-U MR ’68, Friðrik E. Yngvason. Haustið 1973 hittust fjórir ungir menn í teiti sem haldið var á heimili eins þeirra á efstu hæð húss við Strandgötu í Hafnar- firði. Eitthvað barst talið að því hvort ekki væri kominn tími til að menn færu að segja skilið við foreldrahús. Lauk því samtali með því að láta reyna á hvort ekki fyndist hentug íbúð sem gæti hýst þá alla. Og viti menn; ofarlega í Barmahlíð var laus íbúð með fjórum ofvöxnum svefnherbergjum, eldhúsi og baði. Meira þyrfti ekki og nokkru síðar voru menn mættir í Hlíð- arnar með reytur sínar sem voru ekki miklar, aðallega hljómflutn- ingsgræjur og hljómplötur. Þar með hófst sambúð sem entist í nokkur ár og var upphaf- ið að vináttu okkar fjögurra sem varla hefur slegið skugga á síð- an. Látið var í veðri vaka að þessi vistaskipti væru mjög skynsam- leg ráðstöfun. Menn voru í vinnu og námi í Reykjavík, auk þess sem nauðsyn var talin að kynna sér menningu borgarinnar. Samt spillti ekki að Klúbburinn og Sig- tún og hvað þessir staðir hétu í den voru nánast í göngufæri. Margt var brallað í Barma- hlíðinni sem nærri má geta, mikl- ar veislur um helgar og sjaldan drukkið við sleitur. Samt sem áð- ur rifum við okkur þó upp flesta morgna og tókum sundsprett í Laugardalslauginni, en Pétur Ragnarsson var mikill sundgarp- ur og dró okkur hina með sér. Við bjuggum að þeim góða sið árum saman. Þegar þarna var komið sögu var Pétur farinn að starfa hjá IBM. Hann hafði lært læknis- fræði, en ákvað á síðustu metr- unum að söðla um yfir í tölvu- geirann sem varð hans ævistarf. Þar komu námshæfileikar hans og meðfædd greind að góðu gagni og var hann fljótur að setja sig inn í þennan heim, sem var þá að mestu hulinn okkur hinum. Pétur var mikill áhugamaður um músík, hafði verið í unglinga- hljómsveit þar sem hann lék á bassa og hélt hann því áfram fram á efri ár. Tónlistarsmekkur hans var að sjálfsögðu sérstakur og voru hans menn Collosseum, Greenslade, Mountain og fleiri bönd sem fáir þekktu. En Barmahlíðarvistin hlaut að enda, menn hættu að elska allar konur jafnt, fundu hina einu réttu og tóku síðan að tínast úr Barmahlíðinni einn af öðrum. Pétur hafði hitt Möggu okkar og það var ást við fyrstu sýn. Þau hófu búskap í Firðinum og eign- uðust tvo snillinga, Ragnar og Hlín. Þriðja snillinginn, hann Óla, átti svo Magga fyrir. Samverustundunum fækkaði með árunum, þráðurinn sem bundinn er á yngri árum getur trosnað, en hann slitnar aldrei. Við félagarnir kveðjum Pétur með söknuði og biðjum um guðs- blessun til handa afkomendum hans. Eyjólfur, Gunnlaugur og Pétur Friðrik. Pétur Rúnar Ragnarsson Við vorum fjórir strákarnir á Egils- stöðum, Bói, Monni, Jonni og Óli. Það var níu ára aldursmunur á milli þess elsta og þess yngsta. Elst- ur okkar strákanna var Jón Eg- ill, kallaður Bói, bróðir hans Ingimar, kallaður Monni, og við Jón Egill Sveinsson ✝ Jón EgillSveinsson fæddist 27. ágúst 1923. Hann lést 27. ágúst 2020. Útför Jóns Egils fór fram 4. sept- ember 2020. bræður, ég og Óli, sem var yngstur. Við lékum okkur, flugumst á og sig- uðum jafnvel hund- unum hverjum á annan en vorum yf- irleitt fljótir til sátta. Okkur krökk- unum var strang- lega bannað að fara niður að Fljóti, en auðvitað fórum við beinustu og stystu leið á þetta bannsvæði. Einhverju sinni stóð á tæpu í þessum strákalátum og dró Jón Egill mig á land eftir misheppnaða tilraun mína til að hoppa á milli ísjaka. Við sem yngri vorum bárum óstjórnlega virðingu fyrir Jóni Agli. Hann hjálpaði okkur að smíða kassa- bíla og það sem meira var hann gerði við allar vélar og alvöru- bíla. Það var sameiginlegur áhugi þeirra frændanna, Jóns Egils og Ólafs heitins bróður míns, á öllu því sem sneri að vél- væðingu, sem var grunnstoðin í þeirra góðu vináttu. Jón Egill var alla tíð vélamaður. Hann lærði til flugvirkja í Bandaríkj- unum og starfaði sem slíkur hjá Flugfélagi Íslands í nokkur ár. Síðan flutti hann heim í Egils- staði og fór ekki þaðan aftur. Jón Egill og hans prýðiskona, Magna Gunnarsdóttir, byggðu sér myndarlegt hús og þar ræktuðu þau svo sannarlega garðinn sinn og af sömu natni ólu þau upp synina sína sex. Jón Egill var einn af grunnstofnend- um Egilsstaðabúsins, í samstarfi við föður sinn Svein og bróður sinn Ingimar. Jón Egill þótti ekki líklegur til búskapar en hann var eigi að síður trygg stoð í þessu þríeyki, vélvirkinn sem var svo nákvæmur og samvisku- samur. Hjá þeim feðgum kom saman víðþætt þekking að ógleymdri elju og vinnusemi. Saman byggðu þeir upp það sem varð eitt af bestu búum á land- inu. Var það Jón Egill sem átti hugmyndina að allri vélvæðing- unni en hann var oftar en ekki langt á undan sinni samtíð í þeim efnum. Ég kveð Bóa frænda minn með þakklæti fyrir samferðina. Við hjónin vottum afkomend- um Jóns Egils og Mögnu samúð okkar alla. Blessuð sé minning Jóns Eg- ils Sveinssonar. Jón Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.