Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 23
ÞJÓÐADEILDIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Fjögurra marka tap er skellur, þótt það sé á útivelli gegn sterkasta landsliði heims. Samt var margt já- kvæðara við leik íslenska landsliðs- ins þegar það tapaði 5:1 fyrir Belg- um í Brussel í gærkvöld en þegar það beið lægri hlut fyrir Englend- ingum með allra minnsta mun á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Sérstaklega frammistaðan í fyrri hálfleik þegar íslenska liðið náði for- ystunni eftir aðeins tíu mínútna leik, hefði hæglega getað verið búið að skora áður og skapaði sér fleiri færi á fyrstu 25 mínútunum á Baldvins- velli í Brussel en í öllum leiknum við Englendinga. Staðan var 2:1 í hálf- leik og miðað við liðsskipan Íslands og liðsskipan Belgíu, sem var með lungann af sínum stórstjörnum inn- anborðs gegn hálfgerðu varaliði Ís- lands, hefðu væntanlega margir ver- ið afar sáttir fyrirfram með að ganga til búningsherbergja í hálfleik með þær tölur á markatöflunni. Merkileg innkoma Hólmberts Innkoma Hólmberts Arons Frið- jónssonar í liðið er í raun stór- merkileg. Strákur sem hefur spilað í norsku B-deildinni síðustu ár en hef- ur svo sprungið út í úrvalsdeildinni þar í landi í sumar. Kom inná í upp- bótartímanum gegn Englandi og fékk vítaspyrnu um leið, og hafði eft- ir tíu mínútur í gærkvöld skorað gegn Belgum og komist í dauðafæri sem hann var óheppinn að skora ekki úr. Eftir góða frammistöðu íslenska liðsins í fyrri hálfleik slógu Belg- arnir á væntingarnar með því að komast í 3:1 í byrjun síðari hálfleiks. Eftirleikurinn var þeim tiltölulega auðveldur og með hinn magnaða Ke- vin De Bruyne í aðalhlutverki settu þeir gríðarlega pressu á íslensku vörnina á löngum köflum í seinni AFP Brussel Thomas Meunier og Jón Guðni Fjóluson eigast við á leikvangi Baldvins konungs í belgísku höfuðborginni í gærkvöld. hálfleik þar sem þeir dönsuðu í kringum íslenska vítateiginn og ógn- uðu hvað eftir annað. Þeir hefðu al- veg getað skorað fleiri en fimm mörk þegar upp var staðið. Kosturinn við að vera án lykilmanna Kosturinn við að hafa verið án margra lykilmanna í þessum tveim- ur fyrstu leikjum í Þjóðadeild UEFA er einmitt sá að þar með gafst öðrum leikmönnum tækifæri til að stíga ákveðin skref í átt að byrjunarliði Íslands, sem hefur ekki tekið miklum breytingum um árabil. Þar hefur Hólmbert látið vita vel af sér, rétt eins og Albert Guð- mundsson, Arnór Sigurðsson, sem og Guðlaugur Victor Pálsson sem setur nú pressu á sjálfan landsliðs- fyrirliðann með frammistöðu sinni í hans stöðu gegn Englendingum. Þessir þrír hafa vissulega verið í og við liðið undanfarin misseri en fengu dýrmætan spiltíma í þessum verk- efnum. Eins var gott að sjá Birki Bjarnason vera líkari sjálfum sér í gær en í leiknum á laugardaginn. Ögmundur Kristinsson komst ágæt- lega frá sínu í íslenska markinu og steig engin feilspor þrátt fyrir að hafa fengið á sig fimm mörk. Átján ára nýliði í byrjunarliði Andri Fannar Baldursson leik- maður Bologna á Ítalíu fékk tæki- færi í byrjunarliðinu, 18 ára gamall, og spilaði sinn fyrsta landsleik. Hann lagði 54 mikilvægar mínútur inn í reynslubankann. Það sem öllu máli skiptir er að lið- ið sé klárt í næsta verkefni, umspils- leikinn gegn Rúmeníu á Laugardals- vellinum eftir fjórar vikur. Þá koma Gylfi, Aron, Jóhann Berg, Alfreð, Ragnar og Rúnar vonandi allir inn í hópinn á nýjan leik, ásamt Sverri Inga, Hannesi, Kára og Kolbeini, og eflaust fer stór hluti þeirra beint í byrjunarliðið. Ef ekki, þá eru fleiri en áður tilbúnir í slaginn eftir leikina gegn Englandi og Belgíu. Fleiri tilbúnir en áður  Stórt tap gegn besta liði heims í Brussel en mikilvæg reynsla fyrir marga  Hólmbert skoraði eftir tíu mínútna leik en Belgar svöruðu fimm sinnum ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 Heimsmeistarar Frakka og Evr- ópumeistarar Portúgala heyja ein- vígi um sigurinn í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta en Frakkar sigruðu Króata 4:2 og Portúgalar unnu Svía 2:0 í Stokk- hólmi í gærvöld. Frakkar og Portú- galar eru því með sex stig eftir tvær umferðir en Króatar og Svíar sitja eftir án stiga. Antoine Griez- mann, Dayot Upamecano og Olivier Giroud skoruðu fyrir Frakka, auk sjálfsmarks, og Cristiano Ronaldo gerði bæði mörk Portúgala. Það fyrra var hans 100. landsliðsmark. Einvígi meist- araliðanna AFP 100 Cristiano Ronaldo fagnar markinu í Solna í Stokkhólmi gær. Danir og Englendingar gerðu markalaust jafntefli í 2. riðli A- deildarinnar í Þjóðadeildinni í fót- bolta á Parken í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Leikurinn þótti daufur en Danir sköpuðu sér betri færi. Þeim hefur ekki tekist að skora mark í fyrstu tveimur leikjum sín- um í riðlinum en Englendingar eru með eitt mark, vítaspyrnuna sem Raheem Sterling skoraði úr gegn Íslandi. Englendingar tefldu fram þremur nýliðum en Conor Coady og Kalvin Phillips voru í byrjunarlið- inu og Tony Grealish kom inn á. Danir hafa ekki náð að skora AFP Köben Harry Kane og Christian Nørgaard takast á í gær. BELGÍA – ÍSLAND 5:1 0:1 Hólmbert Aron Friðjónsson 11. 1:1 Axel Witsel 13. 2:1 Michy Batshuayi 17. 3:1 Dries Mertens 50. 4:1 Michy Batshuayi 69. 5:1 Jeremy Doku 79. M Hólmbert Aron Friðjónsson Arnór Sigurðsson Birkir Bjarnason Albert Guðmundsson Belgía: (4-3-3) Mark: Koen Casteels (Simon Mignolet 55). Vörn: Thomas Meunier, Toby Alderweireld, Jason Denayer, Jan Vertonghen. Miðja: Kevin De Bruyne (Hans Vanaken 80), Axel Witsel, Thorgan Hazard (Yari Versc- haeren 65). Sókn: Dries Mertens, Michy Batshuayi, Jeremy Doku. Ísland: (4-3-3) Mark: Ögmundur Krist- insson. Vörn: Hjörtur Hermannsson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Jón Guðni Fjóluson, Ari Freyr Skúlason. Miðja: Guðlaugur Victor Pálsson, Andri Fann- ar Baldursson (Emil Hallfreðsson 54), Birkir Bjarnason. Sókn: Arnór Sigurðs- son (Mikael Neville Anderson 72), Hólmbert Aron Friðjónsson (Jón Daði Böðvarsson 70), Albert Guðmundsson. Dómari: Pawel Raczkowski – Póllandi. Áhorfendur: Engir.  Björn Bergmann Sigurðarson, knattspyrnumaður frá Akranesi, spil- aði í gær sinn fyrsta mótsleik í hálfan áttunda mánuð. Björn lék þá fyrsta klukkutímann með Lilleström sem vann Ranheim 3:1 í norsku B-deildinni. Hann kom til félagsins um miðjan ágúst en síðasti leikur hans var bikar- leikur með APOEL á Kýpur í lok janúar. Það var eina tækifærið sem hann fékk með kýpverska liðinu eftir að hafa ver- ið lánaður þangað frá Rostov í Rúss- landi um áramótin.  Englendingurinn Lucy Bronze, sem hefur verið í hópi bestu knatt- spyrnukvenna heims síðustu ár, er komin á ný til liðs við Manchester City og hefur samið við félagið til tveggja ára. Bronze hefur verið afar sigursæl með Evrópumeisturum Lyon í Frakk- landi undanfarin þrjú ár og orðið þrisv- ar Evrópumeistari og þrisvar franskur meistari. Hún lék þar við hlið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Wolfsburg á dögunum. Bronze, sem er 28 ára bakvörður, á að baki 81 landsleik og var kjörin besta knattspyrnukona Eng- lands 2018 og 2020. Hún lék áður með City árin 2014-2017 og varð enskur meistari með liðinu 2016.  Guðmundur Karl Guðmundsson, reyndasti leikmaður Fjölnis, var eini leikmaður Pepsi Max-deildar karla sem var úrskurðaður í leikbann á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í gær. Guðmundur Karl tekur út eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda þeg- ar Fjölnir mætir Gróttu í botnslag lið- anna á Seltjarnarnesi á mánudags- kvöldið kemur. Fleiri eiga þó eftir að taka út leikbann þar sem vegna lands- leikjahlésins var aðeins einn leikur í deildinni um síðustu helgi.  Serbneski handboltamaðurinn Vuk Perovic leikur ekki með nýliðum Þórs á Akureyri í úrvalsdeild karla á komandi vetri. Magnús Eggertsson, formaður handknattleiksdeildar Þórs, staðfesti þetta við Vísi í gær og sagði að Þórs- arar væru nýbúnir að fá upplýsingar frá HSÍ um að þeir mættu aðeins vera með tvo leikmenn frá löndum utan EES. Fyrir eru í liði Þórs þeir Ihor Kopshynskyi frá Úkraínu og Jovan Kukobat frá Serbíu.  Sky Sports fjallaði talsvert um enska knattspyrnuliðið Everton í gær en það hefur keypt þrjá sterka miðju- menn, James Rodriguez frá Real Ma- drid, Allan frá Napoli og Abdoulaye Doucouré frá Watford. Alan Myers hjá Sky Sports sagði að þetta gæti þýtt meiri bekkjarsetu fyrir Gylfa Þór Sig- urðsson en hinsvegar væri stjórinn Carlo Ancelotti ánægður með hann. „Gylfi gæti reynst mjög hættulegur leikmaður fyrir Everton á komandi tímabili. Hann er með ótrúlega spyrnutækni og góður í föstum leik- atriðum. Hann hefur verið góður á undirbúningstímabilinu, skor- aði gott mark á dög- unum upp úr engu, og ég get alveg séð fyrir mér að Ancelotti muni halda Gylfa á komandi keppnis- tímabili,“ sagði Myers. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.