Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 15
UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi Umhverfisvænt og náttúrulegt Þurrgufan í LauraStar hreinsar fötin þín á náttúrulegan hátt án þess að nota efnavörur. Meira en 99,999% af bakteríum, sveppagróðri, rykmaurum og lykt er útrýmt á áhrifamikinn hátt. Þurrgufan hjá LauraStar skilar fatnaðinum fullkomlega þurrum og gefur þannig örverum litla möguleika á að vaxa. Einn þeirra erlendu tónlistarmanna, sem getið er í ágætri bók Óðins Melsted „Með nótur í farteskinu“, og út kom hjá Sögufélag- inu fyrir nokkrum ár- um, var dr. Heinz Edelstein. Hann fæddist í Bonn 1902, lauk doktorsprófi í tónvísindum frá há- skólanum í Freiburg (ritgerð hans fjallaði um viðhorf Ágústínusar kirkjuföður til tónlistar) og var sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Ís- lands; hafði flust hingað til lands á stríðsárunum. Árið 1952 stofnaði hann Barnamúsíkskólann og var fyrsti skólastjóri hans (Tón- menntaskóli Reykjavíkur núna). Þetta var tæpur meðalmaður, grannur, hvíthærður með gulbrúnt litaraft, sem oftast klæddur ljós- gráum alfatnaði. Það varð hljóðbært í Reykjavík, að dr. Edelstein væri svo mikill út- lendingur á Íslandi, að hann hefði jafnvel steikt skyr. Kennsla hans fór fram í Vals- heimilinu fyrst í stað, en fluttist seinna í húsakynni Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, vestast á Hringbraut- inni, en sú bygging var seinna kölluð JL-húsið, kennd við Jón Loftsson. Tónfræðin Dr. Edelstein lagði í kennslu sinni áherslu á hreyfingu eftir hljóðfalli. Til er ljósmynd af krökkum á gangi um salinn í Valsheimilinu, í takt við einhverja hrynjandi. Lært var að þekkja lengdargildi nótnanna með því að segja ta-a-a-a við heilnótur, ta-a við hálfnótur, ta við fjórðaparts- nótur og ta-tí við áttundapartsnótur. Líka kom duglega við sögu tonica- do-kerfið: do-re-mí-fa-so-la-tí-do; og æfðu krakkarnir sig að lesa hljóð af blaði, syngja eftir nótum sem kallað er, og nefna tónana um leið þessum nöfnum. Jafnframt var spilað á blokkflautu. Þegar sungið var fylgdi hverjum tóni ákveðið tákn, sem myndað var með hægri/vinstri hendi. Do var krepptur hnefi, sem haldið var ofan við beltisstað, re var flatur lófi eilítið ofar og stefndu fing- ur 45° upp á við, mí kom næst með flötum lófa haldið lárétt, fa var krepptur hnefi með því fráviki, að vísifingur benti 45° niður í áttina að tóninum fyrir neð- an, so var flatur lófi, opinn, og stefndi hönd- in nú nær lóðrétt upp í loftið, eins og þegar veifað er í kveðjuskyni, la var aftur flatur lófi láréttur, haldið á móts við hársræturnar, tí var krepptur hnefi, með vísifingri bendandi 45° upp á við og loks var do aftur krepptur hnefi rétt fyrir of- an höfuðið. Þessi tákn og sá veru- leiki, sem þau birtu, með stórum og litlum tónbilum á viðeigandi stöðum, hafa ekki gleymst síðan, því að hér var lögð afar ákjósanleg undirstaða til skilnings á tónstiganum. Gígjurnar Þegar forskólanum lauk, og ákveða skyldi hvort og á hvaða hljóðfæri krakkarnir skyldu læra, tók dr. Edelstein af skarið og ákvað, að lært skyldi á gígju. En hvað var nú það? Þessi dugmikli hugsjóna- maður hafði látið koma frá útland- inu hljóðfæri, sem hér voru ókunn áður. Þau finnast ekki heldur í upp- flettiritum, að minnsta kosti ekki í fljótu bragði. En Þjóðverjar hófu að smíða þessi hljóðfæri á öndverðri 20. öld með hliðsjón af fornum instrúmentum. Gígjurnar voru af tveimur stærðum. Sú meiri var nokkru minni en knéfiðla, hin tals- vert stærri en fiðla. Þýskir kölluðu þessi hljóðfæri „Fidel“ (fiðla hjá okkur), en fiðlu nefna Þjóðverjar „Geige“ (sama og gígja á íslensku). Báðum var gígjunum haldið á milli hnjánna. Stærri gígjunni var stutt í gólfið, líkt og gerist hjá sellóleik- urum; hún var aukin pinna niður úr sér, sem eftir atvikum var af grímu- lausri óskammfeilni höggvið ofan í línoleum-gólfdúkinn (seinna parket). En sú minni var án þessa prjóns. Leikið var með boga, sem þó var frábrugðinn sellóbogum núna; froskurinn var einfaldari að gerð og stöngin sveigðist í átt frá hárunum, eins og gerðist fyrr á öldum. Auk þess var haldið á þessum bogum eins og kontrabassaleikarar sam- tímans gera, þ.e. ef þeir fara eftir þýska skólanum: lófinn snýr upp. Gígjurnar voru ljósgular að lit, en sumar brúnar. Enn er ótalið það, sem ef til vill var merkilegast við þessi hljóðfæri, en það voru þver- bönd úr girni, sem felld voru ofan í gripbrettið eins og á spönskum gít- ar. Þetta var gert til þess að auð- velda hljóðfæraleikaranum að finna fingrunum réttan stað til þess að hitta á hreina tóninn. Söngurinn Dr. Edelstein var enginn aukvisi í uppelsisstarfi sínu. Hann leitaði til íslenskra skálda um kveðskap við barnamúsík. Það var Þorsteinn Valdimarsson, sem orti „Fiðlu- Hansi, komdu á kreik, krakkar vilja dansa, dansa eftir léttum leik, litla stund hjá Hansa“. Lagið er aðeins þriggja tóna, en gladdi allt um það fyrstu börn Íslandssögunnar, sem höfðu þá hamingju að hljóta eig- inlega tónlistarmenntun. „Heyr, fiðlan hún byrjar“ var íburðarmeira tónverk en „Fiðlu- Hansi“. Hér var um að ræða fimm radda lag, og hafði hver rödd sinn sérstaka texta. Fyrsta röddin söng lagið: „Heyr, fiðlan hún byrjar og fagnandi ómar, heyr, fiðlan hún byrjar með fagnaðarbrag.“ Önnur röddin kom þá til skjalanna sem fylgirödd, á meðan lagið var end- urtekið: „En klarínettan, klarín- ettan syngur dúa-dúa dátt og blítt, en klarínettan, klarínettan syngur dúa-dúa-dú!“ Þriðja rödd: „Og svo gellur við trompettinn, ta-ta-ta- tatara-ta-ta-ta-ta-tatara, og svo gell- ur við trompettinn o.s.frv.“ Sú fjórða: „En pákunni er létt um sitt lag eftir vanda, fimm einn einn einn fimm fimm fimm, búmm búmm búmm búmm!“ Og sú fimmta og síð- asta: „En hornið blæs og hvílir sig, en hornið blæs og hvílir sig!“ Síðast voru allar raddirnar farnar að syngja saman og þá var komin heil hljómsveit. Það er síst ofmælt, þegar sagt er að börn muni það lengi, sem þau læra ung. Þetta litla hljómsveitarverk hefur ekki gleymst, þótt ekki hafi það heyrst sungið, síðan krakkarnir í Barna- músíkskólanum hjá dr. Edelstein fluttu það. Fleiri nótur í farteskinu Eftir Gunnar Björnsson » Stærri gígjan var aukin pinna niður úr sér, sem eftir atvikum var af grímulausri óskammfeilni höggvið ofan í línoleum-gólfdúk- inn (seinna parket). Gunnar Björnsson Höfundur er pastor emeritus. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.