Morgunblaðið - 09.09.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 09.09.2020, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Margt hefur verið að sækja að þér og nú er tímabært að vinna úr hlutunum. Þú ert góður og heldur hurðum fyrir fatl- aða og leiðbeinir týndum sálum. 20. apríl - 20. maí  Naut Aðstoð við að koma á umbótum á heimilinu stendur þér til boða. Einbeittu þér að því að vera í frábæru skapi og taka hlutunum eins og þeir koma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að segja eitthvað erfitt við vin. Farðu varlega þannig að þú missir ekki bæði vin og það sem um er deilt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samtal við ættingja eða nágranna hefur jákvæð áhrif á þig. Mundu að átök leysa engan vanda. Ekkert vex þér í augum og þú mátt vera ánægður með sjálfan þig að loknu dagsverki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú átt sérlega auðvelt með öll sam- skipti og munt því hugsanlega stofna til nýrrar vináttu á þessum tíma í lífi þínu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag kemur upp þetta rafmagnaða augnablik þegar þú skyndilega veist allt sem þú þarft að vita. Leggðu málin vel nið- ur fyrir þér áður en þú ákveður þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki er allt sem sýnist og það er þitt verk að komast að hinu sanna. Fólk er tilbúið til að rétta þér hjálparhönd, jafnvel án þess að þú biðjir um það. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gleymdu því ekki að tvær hliðar eru á öllum málum og oft þarf lítið til að skapa misskilning. Mundu að vera tillitssamur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Dagurinn er kjörinn til orku- ríkra athafna. Hlustaðu vel á þinn innri mann, því þú býrð sjálfur yfir lausninni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Til þess að framkvæma hið ómögulega, þarf manni fyrst að detta í hug eitthvað óhugsandi. Þú endurheimtir hlut sem þú taldir glataðan að eilífu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur lagt hart að þér en munt nú uppskera árangur erfiðis þíns. Passaðu að ekkert komist upp á milli þín og elskunnar þinnar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ástin er hafin yfir allar skilgrein- ingar, algerlega frábær og geggjuð. Veltu vandamálunum fyrir þér og flýttu þér hægt í leit að lausn þeirra. og seldi búðina ákvað Linda að fara í háskólann og lauk hún BA-prófi í ensku frá HÍ. Hún reyndi að fá vinnu við kvikmyndir en var alltaf sagt að hún yrði að hafa menntun í faginu. Hún starfaði í tvö ár sem rit- ari hjá Verslunarmannafélagi Ís- lands en fór síðan til kvikmynda- borgarinnar Los Angeles þar sem hún lauk mastersprófi í búninga- hönnun frá California Institute of the Arts. Linda byrjaði ferilinn úti með því að vinna við alls konar smærri verk- efni. „Það er svolítið erfitt að komast inn í þennan bransa svo þetta er ansi mikið hark.“ Stella, fyrrverandi yfir- maður Lindu, bjó í LA og bauð Lindu að koma með sér til New Orleans að heimsækja son sinn, Friðgeir Helgason. Þar tóku örlögin aftur í taumana, því Linda gjörsam- lega kolféll fyrir þessari skrautlegu og skrýtnu borg. „Ég hugsaði með mér að ef ég fengi ekki vinnu í bransanum myndi ég bara leggja tarotspil fyrir túrista.“ Það varð þó ekki raunin, því þarna hófst ferill Lindu við bæði kvikmyndir og sjón- varpsþætti fyrir alvöru og hægt er að skoða á www.imdb.com langan feril hennar. Fyrsta stóra myndin sem Linda vann við var The Firm og þarna tengdist Linda inn í þá litlu fjölskyldu sem segja má að kvik- myndagerðarmenn í New Orleans séu. Síðan tók hvert verkefnið við af öðru og hefur Linda unnið með mörgum þekktum leikurum, eins og Gene Hackman, Tom Cruise, George Clooney, Brad Pitt, James Franco, Gerald Butler, Susan Sar- andon og Denzel Washington svo einhverjir séu nefndir. Tim Curry Linda Garðar, deildarstjóri búningadeilda fyrir sjónvarp og kvikmyndir – 60 ára Ljósmyndir/Úr einkasafni Stjörnufans Linda sést hér með leikaranum Gene Hackman við upptökur á kvikmyndinni Runaway Jury frá 2003. Myndi leggja tarotspil fyrir túrista ef ég fengi ekki vinnu New Orleans Hér er Linda í borg- inni skrautlegu með hundinum Lukku, sem er sárt saknað. L inda Garðar fæddist í Hafn- arfirði og ólst þar upp og gekk í Öldutúnsskóla og síð- ar í menntaskólann Flens- borg. Hún dvaldi mikið á sumrum í Munaðarnesi á Ströndum sem barn. „Ég lærði að synda í sundlauginni á Krossnesi en þá var ég send í nokkra daga þangað og gisti í húsi sund- laugarinnar. Þetta var ótrúleg laug, alveg niðri í flæðarmálinu og stund- um gekk sjórinn næstum því yfir laugina.“ Þegar unglingsaldrinum var náð vann Linda við ýmis störf og greinilegt að hún á ættir sínar að rekja til Strandamanna. „Ég vann í fiskvinnslu og eitt sumarið aðstoðaði ég pabba við pípulagnir svo ég get alveg gert við smá leka,“ segir hún hlæjandi. Einnig vann Linda eitt sumar með Páli bróður sínum á bíla- verkstæði og segist hafa lært mikið af því. Meðfram menntaskólanáminu vann Linda sem saumakona í Karnabæ. Á þessu tímabili muna kannski margir eftir Lindu úr hljómsveitinni Q4U, en Linda og Ellý (Elínborg Halldórsdóttir) leigðu saman í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavíkur ásamt Steinþóri Stefánssyni, fyrri eiginmanni Lindu. Það var líka á þessu tímabili sem ör- lögin höguðu því þannig að Linda hitti Hrafn Gunnlaugsson, sem var að gera kvikmyndina Okkar á milli og réð hann Lindu til að sjá um pönkbúning fyrir aðalleikkonu myndarinnar. Þessi tengsl urðu til þess að Linda var ráðin til að vinna með Karli Júlíussyni við myndirnar Hrafninn flýgur og síðar Í skugga hrafnsins. „Þarna ákvað ég að ég myndi ekki vinna á saumastofu meira, og ég fór að vinna í Tískuhúsi Stellu. Ég var þekkt sem pönkari í bænum en hélt að það myndi ekki ganga vel í svona Tískuhúsi og klæddi mig í eins venjuleg föt og ég mögulegast gat. Stella (Traustadótt- ir) réð mig samt því henni fannst ég skera mig úr hópnum. Þegar Stella ákvað að flytjast til Bandaríkjanna Til hamingju með daginn 30 ára Dagrún fædd- ist á Akureyri, en ólst upp á Árlandi í Þingeyj- arsýslu en býr núna á Akureyri. Hún vinnur sem öryggisvörður hjá Securitas og hefur áhuga á hestamennsku og handavinnu. Maki: Jón Þór Sigurðsson, f. 1983, sjó- maður. Dætur: Bryndís Helga, f. 2008, Klara Alexandra, f. 2012 og Andrea Lillý, f. 2016. Foreldrar: Hrefna Sævarsdóttir, f. 1970, stuðningsfulltrúi á Akureyri og Hafsteinn Björnsson, f. 1962, flotaforingi hjá Stræt- isvögnum Reykjavíkur. Dagrún Birna Hafsteinsdóttir 40 ára Haukur Ingi fæddist í Reykjavík en býr núna á Höfn í Hornafirði. Hann rekur jöklafyrirtækið Glacier Adventures á Hala í Suðursveit með eigin- konu sinni. Hann hef- ur áhuga á útivist. Maki: Berglind Steinþórsdóttir, f. 1978, kennari og ferðamálafræðingur. Börn: Tómas Nói, f. 2004, Arney, f. 2007 og Steinþór, f. 2013 Hauksbörn. Foreldrar: Einar Sveinn Ingólfsson, f. 1957, fjármálastjóri lögmannsstofunnar LEX, og Ingibjörg Hauksdóttir, f. 1957, ritari á lögmannsstofu. Þau búa í Reykja- vík. Haukur Ingi Einarsson Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.