Morgunblaðið - 09.09.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.09.2020, Qupperneq 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það verður mjög gott að fá loksins að frum- sýna, enda erfitt að setja sig endurtekið í frum- sýningarstellingar og fá svo ekki að klára ferl- ið,“ segir dansarinn og danshöfundurinn Inga Maren Rúnarsdóttir sem frumsýndi sólóverkið sitt Ævi hjá Íslenska dansflokknum um helgina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Blaðamaður settist fyrir helgi niður með Ingu Maren og Júlí- önnu Láru Steingrímsdóttur, sem hannar bæði búninga og leikmynd uppfærslunnar. Þær hafa verið að vinna að sýningunni með hléum, meðal annars út af tveimur óléttum, síðustu þrjú árin og hún var næstum tilbúin í vor þegar fresta þurfti frumsýningu vegna kórónuveirunnar. „Þótt sýningin hafi verið tilbúin í vor var ákveðinn hluti sem ég var ekki alveg sátt með. Þegar frumsýningunni var frestað hélt ég áfram að vinna sýninguna og henti miðjuhlut- anum og samdi nýjan, sem var miklu betri. Núna er ég því alveg sátt við sýninguna eftir þennan langa meðgöngutíma,“ segir Inga Mar- en og rifjar upp að hugmynd verksins byggist á sjónvarpsþáttaröðinni Ævi sem Sigríður Hall- dórsdóttir skapaði í samvinnu við RÚV. Hafa sjónræna ánægju að leiðarljósi „Sigga skipti ævinni upp í sjö skeið, sem mér fannst passa mjög vel,“ segir Inga Maren, en dansverk hennar, sem afmarkast af ævinni, skiptist í Fæðingu – nýgræðlinga; Bernsku – brum; Unglingsár – Foss; Ungt fólk – vindur; Fullorðinsár – tré; Efri ár – mosa og Ævilok – snjókomu. „Ég tengi þannig hvert æviskeið við element úr náttúrunni,“ segir Inga Maren og bendir á að fæðingin tengist innöndun, bernsk- an einkennist af áhyggjulausri ævintýraleit, á unglingsárunum gerist allt svo hratt, ungt fólk leiti eftir ákveðinni kyrrð og með tímanum verði manneskjan samofin náttúrunni á fullorðins- árum, á efri árum séu minningarnar orðnar margar á löngum tíma og við ævilokin sé um að gera að njóta síðustu augnablikanna áður en takinu er sleppt. „Mér fannst gott að skrifa smá hugleiðingu um hvert æviskeið, sem birtist að hluta í leikskránni, en síðan er það auðvitað áhorfenda að túlka verkið á sínum forsendum.“ Aðspurð segist Inga Maren leita sér mikils innblásturs í tónlist og að hún fái oft hugmyndir að hreyfiefni á tónleikum, en líka í göngutúrum með barnavagninn. Tónlistin í Ævi er í höndum Ólafs Arnalds. Spurðar nánar út í umgjörð sýningarinnar segjast Inga Maren og Júlíanna Lára hafa haft hina sjónrænu ánægju að leiðar- ljósi. „Það má segja að við séum að snúa röng- unni út og gera hluti innan úr líkamanum sýni- lega,“ segir Júlíanna Lára, sem nýtir viðtalið til að leggja lokahönd á einn þeirra mörgu búninga sem Inga Maren klæðist í sýningunni og saum- ar æðar á grunnbúninginn. „Mér finnst þetta líka endurspegla það hvernig við fáum að horfa inn í sálina á Ingu Maren,“ segir Júlíanna Lára. „Okkur fannst mikilvægt að einblína ekki bara á ævi manneskjunnar heldur er þetta birtingar- mynd alls þess sem lifir,“ segir Júlíanna Lára og bendir á að blóðrauðar greinar leikmyndar- innar vísi í æðakerfi í víðum skilningi. „Ævin er því ekki bundin aðeins einni manneskju eða konu heldur náttúrunni allri,“ segir Júlíanna Lára og tekur fram að þannig sé verkið í sjálfu sér mjög abstrakt. Hamskiptin sýnileg á sviðinu Blaðamanni verður starsýnt á litríkan og fyr- irferðarmikinn búning úr tjulli þar sem rauðir og appelsínugulir litir njóta sín til fulls. Spurð hvort það skapi aukavídd í verkinu að hreyfa efni búninganna svarar Inga Maren því játandi og tekur fram að búningaskiptin séu hluti af verkinu og fari fram á sviðinu. „Við hugsum þetta eins og hamskipti. Þessi tiltekni búningur tengist fullorðinsárunum og kallast á við þyngsli trésins. Það er mjög erfitt að hreyfa sig í honum, en það er skemmtileg áskorun,“ segir Inga Maren. „Búningurinn er byggður upp af mörgum lögum sem kallast með táknrænum hætti á við reynslu og þroska einstaklingsins sem er með allt á herðum sér,“ segir Júlíanna Lára. Ævi er fyrsta dansverkið sem Inga Maren semur ein, en hún hefur á síðustu árum tekið þátt í samsköpun verka. Aðspurð segir Inga Maren það mikla áskorun að flytja eigið verk. „Ég fann hins vegar að ég yrði að gera þetta sjálf,“ segir Inga Maren og tekur fram að hún hafi fundið fyrir aukinni þörf fyrir að semja. „Þetta er búið að vera mjög lærdómsríkt sköp- unarferli,“ segir Inga Maren og tekur fram að Ásgeir Helgi Magnússon hafi verið hennar hægri hönd og veitt mikilvæga dramatúrgíska ráðgjöf. „Ég hefði aldrei getað þetta án hans, því hann hefur verið augu mín úti í sal meðan ég er á sviðinu,“ segir Inga Maren og tekur fram að Júlíanna Lára eigi líka sinn slatta af hreyfiefni í verkinu. „Ég treysti mjög mikið á þau þegar ljósavinnan fer að stað, en ég er reyndar svo heppin að vera með besta ljósa- meistara landsins,“ segir Inga Maren og vísar þar til Björns Bergsteins Guðmundssonar. Vegna samkomutakmarkana má aðeins selja um 25% af sætum salarins. Spurð hvernig það leggist í hana sem flytjanda segir Inga Maren raunar heppilegt að Ævi henti mjög vel fyrir fá- menna og nána upplifun. „Kannski gefst líka tækifæri til að sýna verkið oftar sökum þess hversu fáir komast á hverja sýningu. Og það er alls ekki slæmt,“ segir Inga Maren að lokum. Næstu sýningar verða 11. og 13. september. Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir „Fáum að horfa inn í sálina“  Íslenski dansflokkurinn frumsýndi um helgina sólóverkið Ævi eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur  „Þetta er búið að vera mjög lærdómsríkt sköpunarferli,“ segir höfundurinn sem dansar eigið verk Ævi Inga Maren Rúnarsdóttir dans- ar eigið sólóverk. Safnið í Haworth í Jórvíkurskíri sem tileinkað er minningu bresku skáld- kvennanna og systranna sívinsælu Charlotte, Anne og Emily Brontë glímir við alvarlegan rekstrarvanda. Ástæðan er sú að safninu, sem rekið er af The Brontë Society, þurfti að loka vegna kórónuveirufaraldursins strax í mars og var ekki opnað aftur fyrr en seint í ágúst. Á meðan var engin innkoma af aðgöngumiðasölu. Um 70 þúsund gestir hafa sótt safnið heim árlega en til að unnt sé að standa undir rekstrinum, án þess að segja starfsfólki upp og sinna að auki mikilvægu viðhaldi, segja stjórnar- menn safnið þurfa um 100 milljónir króna. Þegar þær fréttir spurðust barst aðstoð úr óvæntri átt, frá löngu látnu ensku skáldi. Samkvæmt fréttavef BBC gaf dánarbú T.S. Eliots Brontë-safninu 20 þúsund pund eða sem nemur 25 milljónum króna. Stjórnarmaður í dánarbúinu segir gjöfina mögulega vegna höfundar- launa af söngleiknum Cats en ekkja Eliots gaf á sínum tíma leyfi fyrir því að hinn vinsæli söngleikur Andrews Lloyds Webbers yrði byggður á bók Eliots, Old Possum’s Book of Practi- cal Cats. Talskona The Brontë Society fagnar gjöfinni og segir hana mikil- vægt framlag í því verkefni að safna áðurnefndum 100 milljónum. Hún segir að lítt þekkt tengsl hafi verið á milli skáldsins og húss Brontë- systra. Í sínu þekktasta ljóði, Eyði- landinu, vísi Eliot á einum stað til auðkýfings en talið er að fyrir- myndin að honum hafi verið iðnrek- andi sem keypti heimili skáldkvenn- anna í Haworth og gaf það The Brontë Society. „Það er stórkostlegt að enn séu tengsl milli Eliots og Brontë- systranna, svona löngu síðar,“ segir talskonan. Þrátt fyrir að Brontë-safnið sé nú opið að nýju er gestafjöldi vegna sóttvarna stórlega takmarkaður frá því sem áður var, en víða er þröngt í húsinu og erfitt að viðhalda nauðsyn- legu bili milli gesta. Dánarbú Eliots styrkir safn um Brontë-systur Skáldið Dánarbú T.S. Eliots (1888- 1965) styrkir menningarlífið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.