Morgunblaðið - 21.09.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 21.09.2020, Síða 2
Morgunblaðið/sisi Skarfabakki Vera D rakst á hafnarbakka. Viðgerð var langt komin í gær og var reiknað með að skipið gæti aftur hafið siglingar í dag. Viðgerð á leiguskipi Eimskips, Veru D, var langt komin í gær. Edda Rut Björnsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Eimskips, sagði að gert væri ráð fyrir því að skipið gæti siglt frá Reykjavík í dag. Vera D rakst utan í bryggju á Grundartanga í síðustu viku og varð fyrir skemmdum. Skipið lagði af stað í áætlunarferð síðdegis á fimmtudaginn var en var snúið við úti á Faxaflóa og kom aftur til hafnar í Sundahöfn. Skipið lá síðan við Skarfabakka lestað gámum þar sem viðgerð fór fram. Edda Rut sagði að viðkvæmur farmur eins og ferskur fiskur hefði strax verið tekinn frá borði og sendur með öðrum skipum. Engin ferskvara er því enn um borð í skipinu. Vera D átti að vera í Árósum í dag, samkvæmt siglingaáætlun. Edda Rut sagði að ekki hefði kom- ið til þess að fá þyrfti annað skip til að stökkva inn í siglingaáætlun Veru D. Skipið er 179 metra langt, 17.188 brúttótonn og getur flutt 1.678 gámaeiningar. gudni@mbl.is, sisi@mbl.is Rakst á bryggju á Grundartanga  Gert við skemmdir á flutningaskipi 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020 NÝJ UNG ! Öruggar þvaglekavörur Extra rakadræg 100% Lyktarvörn Passa frábærlega Hlæðu, hoppaðu, hóstaðu og hnerraðu áhyggjulaus! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég er mjög ánægður með þennan árangur,“ sagði Gauti Jóhannesson, oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi. Listinn fékk mest fylgi þegar kosið var til sveitarstjórnar vegna sameiningar Borgarfjarðar- hrepps, Djúpavogshrepps, Fljóts- dalshéraðs og Seyðisfjarðarkaup- staðar á laugardag. „Okkur tókst að mynda samstæðan hóp og málefna- skrá sem allir gátu fellt sig við. Ég held að við höfum verið að uppskera vegna þess og fólk hafi skynjað okk- ur sem samhentan hóp með skýra sýn,“ sagði Gauti. Hann segir stefnt að því að við- ræður um myndun meirihluta hefj- ist sem fyrst en formlegar viðræður voru ekki hafnar í gær. Ellefu fulltrúar verða í nýju sveitarstjórn- inni sem tekur við 4. október og mun sitja til loka kjörtímabilsins ár- ið 2022. Nýja sveitarfélagið verður það víðfeðmasta á landinu. Gauti sagði að eitt fyrsta verkefni nýrrar sveitarstjórnar yrði væntan- lega að ákveða hvað nýja sveitarfé- lagið á að heita. Einnig var kosið til heimastjórna en þær verða fjórar, ein í hverju nú- verandi sveitarfélaga. Tveir fulltrú- ar voru kjörnir í hverju sveitarfé- lagi. Þar til viðbótar kemur þriðji fulltrúinn í hverri heimastjórn úr sveitarstjórninni og taldi Gauti lík- legt að hann yrði einnig heimamað- ur. Heimastjórnirnar starfa í um- boði sveitarstjórnar og er markmiðið með þeim að tryggja áhrif heimamanna á ákvarðanir sem varða þeirra nærumhverfi. Hver kjósandi gat valið einn aðalmann í heimastjórn. Allir íbúarnir voru í kjöri en 18 gáfu formlega kost á sér, að sögn fréttavefjarins austurfrett- .is. Þurfa að ákveða nafn á sveitarfélagið  D-listinn fékk flest atkvæði þegar kosið var til sveitarstjórnar í nýju sveitarfélagi á Austurlandi  Formlegar viðræður um myndun meirihluta ekki hafnar í gær  Víðfeðmasta sveitarfélag landsins Austurfrétt/Gunnar Talning atkvæða Kjörseðlar í kosningunni voru taldir í Menntaskólanum á Egilsstöðum á laugardagskvöldið og fram á aðfaranótt sunnudagsins. D-listi Sjálfstæðisflokks fékk 29% atkvæða og fjóra fulltrúa í kosningunum á laugardaginn var, L-listi Austurlista fékk 27% og þrjá fulltrúa, B-listi Framsóknarflokks fékk 19% og tvo fulltrúa, V-listi Vinstri- hreyfingarinnar - græns fram- boðs fékk 13% og einn full- trúa og M-listi Miðflokksins fékk 11% atkvæða og einn fulltrúa. D-listinn fékk fjóra fulltrúa SAMEINAÐ SVEITARFÉLAG Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Á föstudag og laugardag greindust alls 113 með kórónuveirusmit, 75 á föstudag og 38 á laugardag. Sam- tals voru 47 af þessum 113 þegar í sóttkví við greiningu. Eitt smit greindist við landamæraskimun á föstudag og eitt á laugardag, sam- tals voru 5.147 sýni tekin innan- lands og 1.423 sýni á landamærum. Fyrir helgi undirritaði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tillögu Þórólfs Guðnasonar sótt- varnalæknis um að loka skemmti- stöðum og krám yfir helgina. Í gær lagði Þórólfur til að lokunin yrði framlengd um eina viku. Hefur Svandís samþykkt tillöguna og er lokunin í gildi út sunnudaginn 27. september. Þórólfur sagði á fundi almanna- varna í gær að hann sæi ekki ástæðu til að grípa til harðari að- gerða, vegna þess hve markvisst smitrakningu og sóttkví væri beitt. Víðir Reynisson, yfirlögreglu- þjónn hjá ríkislögreglustjóra, fór í sóttkví um helgina og var ekki á upplýsingafundi almannavarna í gær. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri var staðgengill hans á fundinum. Uppruni flestra smita á skemmtistöðum Flest þau smit sem greindust um helgina eiga rætur sínar að rekja til skemmtistaða. Aðeins tveir þessara staða hafa verið nafn- greindir opinberlega, BrewDog og Irishman Pub. Aðrir veitingastaðir sem hafa verið til skoðunar hjá smitrakningarteyminu hafa það óljósa tengingu við tilfelli að ekki þykir ástæða til að rekja frekar út- setta einstaklinga í tengslum við þá, að því er segir í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra og sóttvarnalækni. Þar kemur einnig fram að yfirvöld muni héðan í frá greina frá nöfnum staða ef nauðsyn krefur. Ákveðið var á fundi viðbragðs- stjórnar og farsóttarnefndar Land- spítala í gær að færa spítalann af óvissustigi yfir á hættustig í sam- ræmi við viðbragðsáætlun Land- spítala. Að minnsta kosti átta smit hafa greinst. Gert er ráð fyrir að 200 starfsmenn verði í úrvinnslu- sóttkví á meðan skimanir fara fram. Grímur í boði í skólum Á upplýsingafundi almannavarna í gær hvatti Þórólfur til þess að framhalds- og háskólar myndu bjóða upp á grímur í þeim tilvikum þar sem ekki væri hægt að kenna í fjarkennslu. Háskóli Íslands, Há- skólinn í Reykjavík og Mennta- skólinn í Reykjavík eru meðal þeirra skóla sem hafa brugðist við ábendingu Þórólfs. Grímuskylda verður í bæði HR og MR en Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, hvatti til grímunotkunar í skól- anum og sagði að grímur yrðu í boði. Alls eru nú 1.290 manns í sóttkví og hefur þeim fjölgað hratt á milli daga. Fjöldi nemenda í Melaskóla var sendur í sóttkví um helgina eft- ir að nemandi í 7. bekk í skólanum greindist smitaður af kórónuveir- unni. Nemendur missa því af sam- ræmdu prófunum sem fara eiga fram á fimmtudag og föstudag. Tveir nemendur við Fjölbrauta- skólann við Ármúla greindust með kórónuveiruna um helgina. Fjórir nemendur eru í sóttkví. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framlengt Þórólfur lagði til að lokun skemmtistaða yrði framlengd. 1.290 manns í sóttkví og hef- ur fjölgað hratt síðustu daga  Landspítalinn á hættustigi  Grímuskylda í skólum Önnur bylgja heimsfaraldursins er í miklum vexti víða um heim, en fjöldi látinna af völdum kórónuveirunnar nálgast nú milljón á heimsvísu og aukinna smita hefur orðið vart í 73 löndum heims. Þrátt fyrir aukna greiningu smita vonast margir til þess að önnur bylgja veirunnar verði vægari en sú fyrri og enn sem komið er bendir margt til þess. Sjúkra- húsinnlögnum hefur ekki fjölgað eins og í vor og dauðsföllum enn síður. Í Bandaríkjunum greindust tæplega 42 þúsund á laugardag og 672 voru skráðir látnir með Covid-19. Í Bretlandi fóru daglegar greiningar yfir 4.000 á dag í fyrsta sinn frá í maí og stjórnvöld útiloka ekki nýtt út- göngubann. Í Frakklandi greindust 13.500 á laugardag og látnum hefur einnig fjölgað í fyrsta sinn síðan í vor. Á Ítalíu var á laugardag sagt frá 1.600 nýjum smitum, en samt var eilítið slakað á fjöldatakmörkunum. Nýjum smitum hefur fækkað töluvert í Ástralíu, svo þar er sumstaðar verið að slaka á aðgerðum, sem hafa verið með þeim hörðustu í heimi. Faraldurinn í vexti víða um heim DAUÐSFÖLLUM OG INNLÖGNUM FJÖLGAR SÍÐUR EN SMITUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.