Morgunblaðið - 21.09.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020
Við erum sérfræðingar
í malbikun
Á Iðnþingi fyrir helgi komu framáhyggjur forsvarsmanna Sam-
taka iðnaðarins um stöðu efnahags-
mála. Árni Sigurjónsson, formaður
samtakanna, var ómyrkur í máli og
sagði að upp væri
runninn „tími sam-
dráttar og atvinnu-
leysis.“ Þetta eru
ekki uppörvandi
skilaboð, en raunsæ.
Árni sagði að liðnir
væru „dagar launa-
hækkana umfram
svigrúm í efnahags-
lífinu,“ en þeir dagar hefðu auðvit-
að aldrei átt að koma. Miklu skiptir
að beggja vegna borðs í umræðum
aðila vinnumarkaðarins á næstunni
verði tekið tillit til slíkra sjónar-
miða. Því miður hefur lítill vilji ver-
ið til þess hjá einstaka verkalýðs-
forkólfum sem virðast telja framtíð
sinni í verkalýðshreyfingunni best
borgið með óraunsæjum yfirboðum
og hótunum.
Ef aðilar vinnumarkaðarins násaman í haust um nýja leið
sem felur í sér frestun umsaminna
hækkana á grundvelli forsendu-
brests er augljóst að hægt er að
verja mun fleiri störf en ella. Um
þetta getur enginn efast og það er
alveg nýtt ef forysta verkalýðs-
hreyfingarinnar neitar að huga að
starfsöryggi umbjóðenda sinna.
Verkalýðshreyfingunni eru veittmikil völd í íslenskri löggjöf og
hún hefur tekið sér áhrif umfram
það. Þetta sást meðal annars á
þeirri yfirlýsingu sem knúin var
fram sömu daga og hlutafjárútboð
Icelandair stóð yfir.
Þann atburð hlýtur að verða aðrannsaka og völd verkalýðs-
hreyfingarinnar hljóta að koma til
endurskoðunar ef forysta hennar
er komin algerlega úr tengslum við
hagsmuni félagsmanna og alls al-
mennings.
Árni
Sigurjónsson
Verður hlustað
á varnaðarorð?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stíf suðvestan- og vestanátt var með
suðurströndinni í gær. Á Stórhöfða í
Vestmannaeyjum mældist allt að 25
m/s vindur og hviður upp á 38 m/s í
gær. Heldur dró úr vindstyrknum
þegar leið á kvöldið. Herjólfur ohf.
tilkynnti í gær að veðurspá fyrir
næstu daga væri ekki hagstæð fyrir
siglingar í Landeyjahöfn og því lík-
legast að siglt yrði í Þorlákshöfn
eins og gert var í gær.
Eyjamaður einn segir að nýi
Herjólfur sé góður í sjó að leggja og
að veltiuggarnir á honum virki mjög
vel. Hann sé gott sjóskip sem komi
sér vel á siglingarleiðinni milli lands
og Eyja, sem geti oft verið erfið.
Veðurstofa Íslands spáði því í gær
að í nótt myndi draga úr vindi en
einnig því að það færi að snjóa á
fjallvegum um landið norðanvert. Í
dag á að verða suðvestlæg eða
breytileg átt, 5-13 m/s og skúrir.
Sums staðar norðanlands geta orðið
él eða slydduél. Lengst af verður úr-
komulítið austantil. Hitinn verður á
bilinu 1-8 stig, hlýjast syðst á land-
inu. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjar Herjólfur sigldi til Þorlákshafnar síðdegis í gær og stímdi
upp í stífa vestanátt og krappa öldu. Ferðin tók rétt um þrjár stundir.
Snjóað gæti á fjall-
vegum fyrir norðan
Herjólfur sigldi til Þorlákshafnar
„Við erum að vinna með smitrakn-
ingarteyminu að finna út hverjir
þurfa að fara í sóttkví og hverjir ekki
– það verður einhver hópur. Á með-
an eru flestir starfsmenn hvattir til
að vera heima,“ sagði Pétur Magn-
ússon, forstjóri Reykjalundar, í gær.
Þá greindust þrjú smit hjá starfs-
fólki Reykjalundar til viðbótar við
smit sem greindist á miðvikudaginn
var. Þá hefur einn skjólstæðingur
Reykjalundar greinst með CO-
VID-19.
Í ljósi þess ákvað framkvæmda-
stjórn Reykjalundar að gera með-
ferðarhlé hjá öllum þjónustuþegum
dag- og göngudeilda Reykjalundar
dagana 21.-25. september.
„Það er eiginlega lunginn af starf-
semi Reykjalundar,“ segir Pétur
sem býst við því að einhver fjöldi
starfsmanna og skjólstæðinga þurfi
að fara í sóttkví í ljósi þeirra nýju
smita sem hafa greinst.
„Í síðustu viku fóru 18 starfsmenn
í sóttkví og svipaður hópur skjól-
stæðinga. Ég get ekki svarað því
hversu margir það verða núna en
það verður líklega annað eins.“
Meðferðarhléið hefur áhrif á rúm-
lega eitt hundrað skjólstæðinga.
Vonast er til þess að starfsemi
Reykjalundar geti hafist að fullu á
nýjan leik 28. september.
Meðferðarhlé gert á Reykjalundi
Greint frá smitum þriggja starfs-
manna í gær Margir fara í sóttkví
Morgunblaðið/Eggert
Reykjalundur Meðferðarhléið hef-
ur áhrif á yfir 100 skjólstæðinga.