Morgunblaðið - 21.09.2020, Qupperneq 10
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Norðurþing vinnur að undirbúningi
þess að þróa iðnaðarsvæðið á Bakka
við Húsavík sem vistvæna iðngarða.
„Ég er þess fullviss að okkur takist
að fjölga fyrirtækjum á Bakka á
næstu árum. Hér eru ótvíræð tæki-
færi fyrir þá sem eru í slíkum hug-
leiðingum. Búið er að leggja í fjár-
festingar í innviðum og við erum í
mjög góðri stöðu til að taka við nýrri
atvinnuuppbyggingu og annars kon-
ar verðmætasköpun,“ segir Kristján
Þór Magnússon bæjarstjóri.
„Við teljum mikilvægt að þeir
hagsmunaaðilar sem hafa byggt upp
innviði á Bakka nái saman um fram-
tíðarsýn um nýtingu svæðisins. Við
teljum mikilvægt að horfa sérstak-
lega á svæðið í ljósi tækifæra sem ef
til vill eru að opnast til að þróa svæð-
ið sem vistvæna iðngarða, eins og
verið er að gera víða erlendis, þar
sem stuðst er við skilgreiningu Þró-
unarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna,“ segir Kristján Þór.
Iðnaðarsvæðið á Bakka er skammt
frá Húsavík. Norðurþing, ríkið,
Landsvirkjun og Landsnet lögðu í
miklar fjárfestingar í innviðum, með-
al annars í hafnargerð, jarðgöngum
að svæðinu, virkjun á Þeistareykjum
og háspennulínum vegna byggingar
kísilvers PCC. Raunar var alltaf rætt
um að fjárfestingarnar væru fyrir
iðnaðarsvæðið í heild, ekki aðeins
kísilverið, og þær myndu nýtast öðr-
um fyrirtækjum sem þar myndu
staðsetja sig.
Verkefnisstjórn sett á fót
Kristján telur að nú sé staða til að
þoka vinnunni áfram. „Við teljum
eins og við höfum alltaf gert, frá því
ríkið og sveitarfélagið ákváðu að
opna þetta iðnaðarsvæði, að nýta
þurfi þessa fjárfestingu að fullu og
því fyrr því betra fyrir atvinnulífið og
samfélagið hér. Við leggjum áherslu
á að settur verði kraftur í vinnuna
næsta árið til þess að við verðum í
stakk búin til að taka við atvinnu-
tækifærum framtíðarinnar sem
byggjast á sjálfbærri nýtingu orku-
auðlindarinnar á svæðinu,“ segir
bæjarstjórinn.
Byggðarráð Norðurþings óskar
eftir því að atvinnu- og nýsköpunar-
ráðuneytið komi að fjármögnun vinn-
unnar. Þá stendur til að stofna verk-
efnastjórn sem skipuð verður
hagaðilum uppbyggingar svæðisins.
Kristján segir að settur verði
rammi og viðmið uppbyggingar en
ekki ákveðið fyrirfram hvers konar
atvinnustarfsemi eigi að vera á svæð-
inu. Viðmiðin grundvallist meðal
annars á markmiðum stjórnvalda í
loftslagsmálum og heimsmarkmið-
um Sameinuðu þjóðanna. Telur hann
til dæmis að matvælaiðnaður og
ræktun geti fundið sér farveg innan
svæðisins og það geti bæði verið lítil
og millistór fyrirtæki eða verkefni
sem þurfi meiri orku, en fullnægi
jafnframt þeim skilyrðum sem sett
verða.
Telur Kristján að kísilverið trufli
ekki aðra uppbyggingu heldur geti
ýmis starfsemi þrifist í skjóli þess og
fyrirtækin þar notað ónýtta auð-
lindastrauma hvert annars.
Vilja þróa vistvæna
iðngarða á Bakka
Nýta þarf fjárfestingu í innviðum til fulls, segir bæjarstjóri
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Iðnaðarsvæði Heilmikið land er til ráðstöfunar á Bakka. Þar er vilji til að nýta endurnýjanlega orku úr héraði.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020
Framkvæmdir ganga vel við nýtt
þjónustuhús við Dettifoss að vest-
anverðu og verður lokið við fram-
kvæmdir í vetur. Kostnaður við
framkvæmdina er áætlaður um 140
milljónir króna og er fjármagnaður
af Innviðasjóði ferðamannastaða.
Magnús Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vatnajökulsþjóð-
garðs, segir að aðstaðan bæti úr
brýnni þörf og verði tilbúin næsta
sumar þegar ferðaþjónustan verði
vonandi aftur komin í gang. Árið
2019 komu um 360 þúsund manns að
Dettifossi að vestanverðu. Nýja
þjónustuhúsið er timburhús byggt í
fjórum einingum á forsteyptri plötu
og forsteyptum sökklum. Bygging-
arverktaki er Byggingafélagið
Stafninn ehf. á Akureyri. Húsið er
staðsett við aðkomu ferðamanna að
bílastæði nálægt Dettifossi, vestan
Jökulsár á Fjöllum. Þar er fyrir-
huguð frekari uppbygging þjónustu
og aðstaða fyrir landverði.
Í nýja húsinu verða 14 þurrsalerni
ásamt geymslu, tæknirými og dag-
skjóli fyrir landverði og gott aðgengi
verður fyrir fatlaða. Aðstaðan er
hönnuð að finnskri fyrirmynd. Húsið
er 150 fermetrar, sem skiptast í 94
fermetra kjallararými, þar sem
vökvi og fastefni eru aðskilin, og 57
fermetra jarðhæð. Gert er ráð fyrir
því að bæði þurrefni og vökvi muni
verða nýtt til landgræðslu á nálæg-
um svæðum í samvinnu við Land-
græðsluna.
Miklar framkvæmdir hafa verið
við Dettifoss síðustu ár við gerð
göngustíga og hófust framkvæmdir
við fjórða áfanga þeirra í sumar.
Nýtt 3.500 fermetra bílastæði við
Gljúfrárstofu við Ásbyrgi verður
einnig tekið í notkun í ár og áfram
hefur verið unnið að hjóla- og göngu-
stígum í Ásbyrgi og Jökulsár-
gljúfrum. Meðal annars er í und-
irbúningi að gera útsýnispall á
Langavatnshöfða þar sem sér yfir
Hljóðakletta.
Demantsleiðin, nýr vegur milli
Kelduhverfis og Mývatnsöræfa með
tengingu við Dettifoss, Hljóðakletta
og fleiri staði, var opnuð formlega
fyrr í þessum mánuði. aij@mbl.is
Nýtt þjónustuhús
fyrir ferðamenn
rís við Dettifoss
Morgunblaðið/Kristján H. Johannessen
Aðstaðan bæti úr brýnni þörf
Fjórtán salerni Finnsk fyrirmynd
Keyrt með efni Miklar framkvæmdir hafa verið við Dettifoss síðustu ár.
AUÐVELT, FLJÓTLEGT OG ÖFLUGT
BYGGINGAKERFI
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR R
MBERSENDUM F TT UM ALLT LAND Í SEPTE
NÝ VEFVERSLUNdvergarnir.is
Bestu undirstöðurnar fyrir:
SÓLPALLINN
SUMARHÚSIÐ
GIRÐINGUNA
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is