Morgunblaðið - 21.09.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.09.2020, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020 ✝ Sif Ingólfs-dóttir fæddist í Reykjavík 26. jan- úar 1941. Hún lést á Hrafnistu við Laugarás í Reykja- vík 14. september 2020. Foreldrar henn- ar voru Helga C. Jessen húsmóðir, f. 27. júní 1907, d. 2. júlí 1987, og Ing- ólfur B. Guðmundsson, húsa- smíðameistari og forstjóri í Söginni hf., f. 30. desember 1904, d. 21. desember 1970. Sif var sú þriðja í fjögurra systkina hópi en elst var Erna Vigdís Ingólfsdóttir, f. 29. des- ember 1931, d. 20.2. 2019, þá Leifur Ingólfsson, f. 4. janúar 1935, d. 20. apríl 1988, svo Sif Ingólfsdóttir, f. 26. janúar 1941, en yngst af hópnum var Sigþrúður (Dúa) Ingólfsdóttir, f. 10. nóvember 1949, d. 2. febrúar 2010. Sif giftist 26. júní 1959 Herði Sigurðssyni en þau skildu 1996. Sif og Hörður eignuðust tvö börn: 1) Ásta, f. 19.12. 1959, maki Björn Helga- son, f. 22.9. 1957. Þeirra synir eru: Helgi Davíð, f. 18.7. 1982, maki Eva Lukàs Björnsson, f. unnar, en átti auk þess sér tryggt athvarf á Núpi í Fljóts- hlíð hjá heiðurshjónunum Guð- mundi og Katrínu sem hún leit á sem sína aðra foreldra og taldi þeirra börn til síns systk- inahóps. Hún dvaldi löngum stundum á Núpi og hélt tengslum við fjölskylduna allt fram til dauðadags. Að afloknum Melaskóla lá leiðin Sifjar í Verzlunarskóla Íslands. Hún starfaði um skamma hríð við skrifstofu- störf í Söginni, eða þar til umönnun barna og heimilis tók yfir. Sif var að eðlisfari forvitin og fróðleiksfús, óhrædd við að fara ótroðnar slóðir og kynnti sér meðal ann- ars óhefðbundnar lækningar. Ásamt manni sínum, Herði Sigurðssyni, stofnuðu þau fót- anuddstofu sem þau ráku sam- an um árabil, eða þar til leiðir þeirra skildu. Sif var virkur félagi í Kvennadeild Flug- björgunarsveitarinnar í Reykjavík auk annarra fé- lagstengdra starfa á hinum ýmsu æviskeiðum lífs síns. Hún var ættrækin og rækt- arsöm við sitt fólk og viðhélt meðal annars tengslum við danskan ættlegg afa síns allt til síns dauðadags. Útför Sijfar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 21. sept- ember 2020, og hefst athöfnin klukkan 11. 16.9. 1987. Þau eiga tvö börn, Írisi Ruth og Alexand- er Thor. Hörður Ingi, f. 18.1. 1984, maki, Þórunn Guðmundsdóttir, f. 15.2. 1989. Þau eiga þrjú börn, Benedikt Örn, Karítas og Birkir Leó. Arnar Björn, f. 30.8. 1986, maki, Hildigunnur Úlfsdóttir, f. 22.1. 1986. Þau eiga tvö börn, Emil- íu Ástu og Hrafn Darra. 2) Ingólfur Harðarson, f. 3.2. 1961. Fyrri kona hans er Hanna Björg Sigurjónsdóttir, f. 30.10. 1962. Þau eiga tvær dætur: Arna Gunnur, f. 14.3. 1983, maki Baldvin Ósmann Brynjólfsson, f. 29.10. 1982. Þau eiga tvo syni, Hilmi og Sölva, en frá fyrri sambúð á Arna Gunnur Lúkas Loga. Elva Sif, f. 6.11. 1984, maki, Ásgeir Þór Jónsson, f. 29.12. 1981. Þeirra synir eru Óliver Þór og Axel Þór. Núverandi sambýliskona Ingólfs er Berg- lind Líney Hafsteinsdóttir, f. 24.12. 1966. Hún á fyrir dótt- urina Agnesi Ísold, f. 3.7. 1997. Sif ólst upp á Grenimel 2 í Reykjavík faðmi stórfjölskyld- Hugurinn leitar til baka, kveðjustundin nálgast. Ég sit í smitgát eftir komu frá Noregi. Náum við að hittast og kveðj- ast áður en þú ferð? Náum við síðasta faðmlagi, skiptast á hlýjum orðum og þakka sam- fylgdina? Þú veist að þú ert að fara, baðst fyrir kveðju til mannsins míns „verst að hann gat ekki komið líka til Íslands, ég hefði svo gjarna vilja hitta hann líka.“ Farðu vel móðir mín, við náðum að hittast, skiptast á hlýjum orðum, faðmast, kveðj- ast og hafðu þökk fyrir sam- fylgdina. Ég man unga konu sem brann fyrir málefnum sínum, fylgdi hjartanu, hafði sterka réttlætiskennd og tók auka- skref og króka þegar þess þurfti. Ég man kærleiksríka móður, konu sem umvafði allt í kringum sig, stundum of fast – vildi öllum vel. Ég man hana og pabba, hamingjusöm og sam- stillt hjón. Hjón sem létu ekki deigan síga, fyrir heyrnarleysi eða öðru, sem þó sennilega skapaði langvinnt álag sem hvorugt þeirra hélt út – þau skildu. Ég man hve hjartanlega hún söng lögin úr Sound of Music og komst við yfir fegurð og boðskap myndarinnar, og hvernig þau pabbi hrifust sam- an, t.d. af Fiðlaranum á þakinu eða þegar platan með karla- kórnum Vísi var sett á fóninn. Ég man að hún fylgdi fast eftir að það væri rétt og vel þurrkað af, að maður gerði rétt og vel það sem gera skyldi – vega- nesti sem byggði upp þolgæði fyrir stormum lífsins. Man líka að hún samdi lög við sum skólaljóðin til að hjálpa mér að læra þau. Ég man ömmu sem gat gert aumasta hreysi og að því er virtist ónýtt drasl og gagnslausa hluti að ævintýra- veröld svo barnsaugun ljóm- uðu. Ég man skapandi konu í stöðugri leit eftir hamingjunni og svörum og hvernig hún gæti hjálpað öðrum. Ég man þig og gleðina og þakklætið yfir fólk- inu þínu, barnabörnum og gæfu þeirra, og langömmubörnunum sem þú fylgdist með. Hamingjuna hefurðu fundið og kveður sátt við Guð og menn, umvafin englum. Þú ert farin, en þó ekki farin, því við munum þig, ég man þig – mun ætíð muna þig, elsku móðir mín. Ásta Harðardóttir. Elsku amma Sif. Um leið og ég er glöð yfir að þú sért komin á betri stað tekur það mig virkilega sárt að þú sért farin frá okkur. Það er svo margt sem ég er þér þakklát fyrir; allar samverustundirnar, föndrið, bíóferðirnar, gisting- arnar. Ég minnist þín sem kraftmikillar konu með risa- stórt hjarta, uppátækjasamrar og staðfastrar. Takk fyrir allar minningarn- ar sem þú gafst mér, þær rifj- ast upp hver á fætur annarri þessa síðustu daga: Hláturjóga, gerviblóm, nupo létt, svanir, nálastungur, fjallagrös, volgt pepsí, margar íbúðir, margir bílar, útsölur, trölladeig, og í gegnum þær allar skín fallega brosið þitt. Elsku amma, ég elska þig og er óendanlega þakklát fyrir að þú varst amma mín, ég veit að guð og allir hans englar hafa tekið einstaklega vel á móti þér. Takk fyrir allt sem þú varst mér. Elska þig. Þín Elva Sif. Elsku amma. Það er með trega í hjarta sem ég kveð þig eftir að hafa fylgt þér öll mín ár. Það er skrýtið að geta ekki tekið upp símann og hringt í þig eða dott- ið inn í kaffi eða hádegismat. Við höfum átt viðburðaríkt ferðalag saman, gengið í gegn- um skin og skúrir. Þú varst mikill grúskari og fórst heils- hugar í öll þín verkefni. Ég minnist þess ennþá með kátínu og viðbjóði þegar þú ákvaðst að fara í eitthvert heimsátak og eldaðir ofan í okkur barnabörn- in grjónagraut með heilkorna hrísgrjónum þegar ég hef varla verið meira en 8 ára gömul. Þú komst síðar að þeirri niðurstöðu að þú værir hugsanlega ekki heimsins besti kokkur og við tók tímabil þar sem ég útbjó handa þér máltíðir í álbökkum sem þú áttir síðan í frysti – sem betur fer fékkstu þó aftur trú á eigin getu, þó mér hafi þótt það heiður að þér þætti ég svona góður kokkur, bara 16 ára göm- ul. Það er skrýtið að sitja heima í eldhúsinu og reyna að hripa niður orð til að minnast veru þinnar hér á þessari jörð, ég veit samt að þú last allar minn- ingargreinar og klipptir þær jafnvel út svo mig grunar að þú hefðir ekki verið sátt við mig ef ég hefði ekki getað sett niður a.m.k. eitt orð eða tvö um okkar tíma saman Elsku amma – ég mun sakna þín ávallt en ég veit að þú ert á betri stað núna – laus úr hjóla- stólnum – dansandi og hlæjandi með þeim sem biðu þín handan þessa heims. Í kvöld opnaði ég bréf sem þú stílaðir á mig og átti að af- henda mér að þér látinni, í því voru ljóð eftir þig sem þú skrif- aðir líklega fyrir 15 árum þegar þú varst í mikilli sjálfskönnum og baðst mig um að deila með þér mínum ljóðum. Mér finnst við hæfi að enda þessa kveðju á ljóði eftir þig, elsku amma, sem að vill svo vel til að er kveðja til barnanna þinna. Þú getur þá sagt þeim þarna hinum megin að þú hafir fengið ljóð eftir þig birt. Móðurást – Kveðja Árin líða því best er ekki að bíða með ósk mína til allra ykkar. Óskin mín er sú, hér og nú: Albest ert þú, albest ert þú. Barn mitt blíða, ég bið þig ekki líða þó hverfi ég loks sjónum þér. Þá hvíldu í faðmi Guðs, faðmi Guðs, faðmi Guðs. Algóður Guð og englar hennar alltaf megi fylgja þér eins. Ég þakka hið yndislega er þú sýndir mér daglega. Ég bið þér ætíð gæfu og gengis og Guð gefi að vel þér farnist. En haltu fast í hendi Guðs, hennar mikla góða kærleika, kærleika, kærleika. (Sif Ingólfsdóttur) Elska þig alltaf Þín ömmustelpa, Arna. Nú kveðjum við hana ömmu okkar Sif og minnumst þeirra góðu stunda sem við höfum fengið að eiga með henni. Í minningum okkar var amma alltaf hlý og tók okkur ávallt opnum örmum. Þá skipti það engu máli að stundum var þröng á þingi því eins og amma orðaði það sjálf: „ef það er pláss í hjartanu þá er nóg pláss“. Það má líka með sanni segja að amma átti stórt hjarta og lagði sig mjög fram um að halda sambandi við okkur. Til að mynda bárust títt póstkort frá ömmu Sif í póstinum þar sem við vorum staddir erlendis við nám þar sem skrifað var smátt og enginn auður reitur látinn fara til spillis. Þar að auki fengum við reglulega vel valda mynd af engli með kort- unum þannig að dvalarstaðir okkar gátu alltaf verið fallega skreyttir englum frá ömmu Sif. Við minnumst einnig bíóferða og leikhúsferða en amma hafði þann sið að bjóða okkur alltaf eitthvað með sér í kringum af- mæli. Gat maður þá látið sig hlakka til að fá eitthvað gott að borða og gera eitthvað skemmtilegt með ömmu þegar maður náði þeim merka áfanga að verða árinu eldri. Sama við- horf fengum við svo að upplifa gagnvart langömmubörnunum þar sem alltaf var gætt að því að nóg væri af leikföngum, lit- um og blöðum fyrir krakkana þegar við komum í heimsókn. Sumardaginn fyrsta tengjum við einnig sterkt við ömmu Sif. Hvort sem það var vegna sér- staks dálætis ömmu á þessum degi í íslensku almanaki eða hvort hún einfaldlega sá tæki- færi í að nýta þennan dag til þess að safna fólkinu sínu sam- an, þá minnumst við árlegra hátíðarhalda með ömmu Sif. Var þá alltaf nóg framboð af góðgæti, hlutum til að föndra úr, leikföngum og leikjum. Í hjörtum okkar lifa minningar af ávallt sólríkum fyrsta degi sumars með ömmu Sif. Líklega var veðrið misgott en ömmu Sif tókst alltaf að fylla hjörtu okk- ar af sólskini. Að sama skapi minnumst við ömmu með sól í hjarta. Hvíldu í friði elsku amma. Þínir ömmudrengir, Arnar Björn, Hörður Ingi og Helgi Davíð. Sif Ingólfsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Sif. Ég mun aldrei gleyma ferðinni okkar upp á Esju. Þinn langömmustrákur, Lúkas Logi. Elsku amma Sif. Mig langar bara svo mik- ið að knúsa þig einu sinni enn. Þinn langömmustrákur, Hilmir Ósmann. Elsku bróðir. Þegar ég fékk sím- talið á miðvikudags- morgun 19. ágúst að þú værir allur trúði ég því ekki. Þú þessi hrausti maður, golfari og dug- legur að hreyfa þig. Hvernig má þetta vera? Ofboðslega getur lífið verið hverfult og ósanngjarnt. Minningarnar hafa hellst yfir mann og allir þeir góðu tímar sem við átt- um saman, frá því vorum ungir krakkar, unglingar og fullorðnir menn. Mikið er ég þakklátur fyrir að hafa átt tíma með þér sirka viku fyrir andlát þitt, þeir tímar eru dýr- mætir í minningunni núna. Þú varst svo góður við litlu frændsystkini þín, enda elskuðu þau öll Fúsa frænda. Þú varst kíminn og alltaf stutt í stríðnina, sérstaklega í fótboltan- um. Þú varst mikill Man Utd-maður en ég West Ham-maður, svo þú lést mig því í friði þar sem Man Utd stóð ekki mikil ógn af svona litlu liði. Sigfús Fannar Stefánsson ✝ Sigfús FannarStefánsson fæddist 24. maí 1969. Hann lést 19. ágúst 2020. Útför Sigfúsar Fannars fór fram 5. september 2020. Það hefði verið verra ef ég hefði ver- ið Liverpool-maður, þá hefði skotunum rignt yfir mig. Ég man vel eftir fæðing- argjöf yngri stelp- unnar, það var nátt- úrlega Man Utd-handklæði og Man Utd-föt á hana. Þú reyndir strax að gera krakkana að Man Utd-aðdáendum í lítilli þökk pabbans. Það var alltaf stutt í spaugið og grínið hjá þér elsku Fúsi minn, þú varst jákvæður og vildir gera gott úr hlutunum. Ef ég var æstur ró- aðirðu mig strax niður og sagðir að það þýddi ekkert að láta svona og fékkst mig yfirleitt á þína skoðun. Þú varst mikill tónlistarunnandi og spilaðir í hljómsveitum. Ég held að þér hafi aldrei liði betur en þegar þú spilaðir á bassann, ekki nema þá ef Man Utd vann Liverpool en svoleiðis er náttúrlega erfitt að toppa. Þegar yngri dóttir mín fékk áhuga á gítar varstu fyrsti maður til að hvetja hana áfram, ráðlagðir og hjálpaðir henni. Við Sonia og stelpurnar eigum svo eftir að sakna þín elsku bróðir. Hvað við eigum eftir að sakna þeirra stunda sem við áttum sam- an, t.d. okkar föstu rútínu sem við áttum þegar ég kom í bæinn; út að borða í fisk og franskar og síðan bíó á eftir. Alltaf sami staður, sami matur – hvers vegna að breyta ef maður hefur fundið eitthvað sem er gott og líkar við? Svona vorum við báðir vanafastir. Það er með gríðarlegri sorg og trega sem ég kveð þig elsku bróðir. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin - mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Við elskum þig og munum sakna þín að eilífu elsku Fúsi okk- ar. Máni, Sonia, Guðbjört og Eirikka. Fallinn er frá mikill félagi úr ’69-árganginum á Egilsstöðum. Gull af manni. Fúsi var hógvær en samt áhrifavaldur. Hljómsveitin Lover- boy var í miklum metum hjá Fúsa og þegar við félagarnir vildum vera töffarar og stofna klíku var leitað í smiðju þeirrar hljómsveit- ar og nafn fundið. Gangs in the Streets skyldi klíkan heita. Við vorum fjórir í henni. Ekkert varð þó af framgangi þeirrar klíku. Fúsi var hæfileikabúnt. Tónlist, íþróttir, tölvur. Fjölhæfur mjög í íþróttum. Hann átti líklega einn þann besta leik sem markvörður hefur átt í úrslitakeppni 3. flokks í Kefla- vík 1984, þegar hið litla lið Hattar, sem hafði tapað daginn áður 16-0 (í utanhússknattspyrnu), mætti tilvonandi Íslandsmeisturum sem voru enn betri en fyrri mótherjar. Ekki bætti úr að forföll voru hjá Hetti og vantaði m.a. markvörð. Úr varð að Fúsi fór í markið. Þrátt fyrir látlausar marktilraunir KR þá stefndi í markalaust jafn- tefli, þökk sé Fúsa. Hann náði samt ekki að koma í veg fyrir eitt mark seint í leiknum. Fúsi var einstakur félagi. Alltaf til ef eftir hans framlagi var leitað. Gerði aldrei á hlut annars manns. Ef Fúsi hefði ekki haldið með Manchester United, þá myndi ég líklega halda því fram að hann hefði verið fullkominn. Hann var einstakur. Glettinn, stríðinn, en góður drengur. Það er svo mikil synd að hans skuli ekki njóta lengur. En minn- ingar um drenginn góða hjálpa til. Samúðarkveðjur til fjölskyldu, vina og samstarfsfélaga Fúsa Fannars. Hilmar Gunnlaugsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR GUÐMUNDSSON frá Ófeigsfirði, Lýsubergi 11, Þorlákshöfn, lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn 10. september. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju föstudaginn 25. september klukkan 13. Inga Anna Waage Ásgeir Ingi Ásgeirsson Magnús Ásgeirsson Kolbrún Birna Pálsdóttir Sigrún Ásgeirsdóttir Kristján Þorvaldsson Jóhanna Ásgeirsdóttir Sigurður Jón Skúlason Helga Guðrún Ásgeirsdóttir Hávarður Jónsson Halldóra Björk Kristinn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR SIGGEIRSDÓTTIR húsmóðir, lést laugardaginn 19. september á Eir hjúkrunarheimili. Sendum við starfsfólki á Eir sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Útförin mun fara fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 25. september kl. 13. Kolbeinn Steinbergsson Erla K. Ólafsdóttir Sigrún Steinbergsdóttir Sigmundur Felixson Ólafur Þ. Steinbergsson Jóhanna S. Ragnarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.