Morgunblaðið - 21.09.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.09.2020, Qupperneq 25
með foreldrum mínum og núna eru börnin mín byrjuð að koma í veiði- ferðir og við njótum þess að eiga þennan tíma saman. Ari segist mest hafa veitt í Vopnafirði, bæði í Hofsá og Selá. „Ég var í Selá um daginn með konunni minni og á einni vakt- inni veiddum við þrjá laxa og skutum einn skarf, þannig að það var góð veiði þann daginn.“ Fjölskylda Eiginkona Ara er Helga Lilja Gunnarsdóttir viðskiptafræðingur og stjórnendamarkþjálfi, f. 18.1. 1981. Foreldrar Helgu Lilju eru Gunnar Magnússon, f. 17.9. 1950, sem vann lengst af sem forstöðumaður tölvu- deildar RÚV, giftur Margréti Hall- dórsdóttur flugfreyju og hjúkrunar- fræðingi, f. 6.10. 1951. Þau eru búsett í Kópavogi og hafa gert mestalla sína sambúð. Börn Ara og Helgu Lilju eru Vil- hjálmur Darri, f. 30.1. 2007, Viktoría, f. 15.3. 2009 og Alexandra, f. 11.10. 2013. Systir Ara er Björg Fenger, f. 13. 8. 1978, lögfræðingur og bæjarfulltrúi í Garðabæ og er formaður íþrótta- og tómstundaráðs bæjarins ásamt því að sitja í stjórn 1912 ehf. Björg býr í Garðabæ ásamt manni sínum Jóni Sigurðssyni stjórnarformanni Stoða. Foreldrar Ara eru Vilhjálmur Fenger, f. 26.2. 1952, d. 21.10. 2008 og Kristín Fenger Vermundsdóttir, f. 18.2. 1955. Vilhjálmur starfaði allan sinn starfsferil hjá fjölskyldufyrir- tækinu Nathan & Olsen og þar lengst af sem framkvæmdastjóri félagins. Kristín starfaði sem bókasafnsfræð- ingur og fræðslufulltrúi hjá Íslands- pósti. Þau byggðu og áttu heimili á Seltjarnaresi þar sem þau ólu börnin upp. Ari Fenger Ingunn Guðjónsdóttir saumakona í Reykjavík Páll Einarsson rafvirki í Reykjavík Ruth Pálsdóttir ritari hjá Sjálfsbjörg, Reykjavík Vermundur Eiríksson húsasmiður í Reykjavík Kristín Fenger Vermundsdóttir bókasafnsfræðingur í Reykjavík Kristín Vermundsdóttir húsfr. á Varmalandi í Skagafirði Eiríkur Sigurgeirsson bóndi á Varmalandi í Skagafirði Rannveig Elísabet Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Vilhjálmur Þór forstj. Sambandsins, Rvík Borghildur Fenger vann í móttöku Hótels Loftleiða í Reykjavík Hilmar Fenger framkvstj. Nathan & Olsen, Rvík Kristjana Fenger húsfreyja í Reykjavík John Fenger stórkaupmaður í Reykjavík Úr frændgarði Ara Fenger Vilhjálmur Fenger framkvstj. Nathan & Olsen, Rvík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020 Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w w. i t r. i s ÁLAGSMEIÐSL. „LÁTTU ÞENNAN STAÐGREIÐA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að gera allt saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VEISTU HVAÐ? KAFFIVAGN IRMU ER LOKAÐUR Í DAG EITTHVERT NEYÐARTILVIK… Ó, NEI! DJÚP STEIK- INGAR FEITIN KLÁRAÐIST! OJ! ÉG BORÐA ÞETTA EKKI! SMAKKAÐU ÞETTA! ÉG LOFA AÐ ÞÚ KVARTAR EKKI EFTIR ÞAÐ! MEINARÐU Á SAMA HÁTT OG ÞESSI KVARTAR EKKI? JÆJA, ATLAS MINN. ÞAÐ GENGUR EKKI AÐ VERA MEÐ ALLAR HEIMSINS ÁHYGGJUR Á HERÐUNUM LENGUR. Rjúpan er vafalaust sá fugl semokkur Íslendingum er kær- astur og, þótt skrýtið sé, einnig sá fugl sem okkur þykir bestur til mat- ar. Sigurlaug Ólöf yrkir á Boðnar- miði: Ropar lítil rjúpa rótar snjó með fótum. Leitar ört að æti, illt er svöngum fylli. Hált er ísað holtið, hindrar fuglinn vindur. Veitir vörn í gjótu visinn dögglingskvistur. Indriði á Skjaldfönn svaraði og þakkaði með þessari stöku: Hefur lipra listataug, ljóðaperlur skína. Sómakonu Sigurlaug sendi kveðju mína. Dagbjartur Dagbjartsson segir: „Fékk senda vísu þar sem ég var minntur á aldur minn. Eins og skrokkurinn sé nú ekki stöðugt að nudda manni upp úr þessu!“: Ég finn það er fer ég að hátta og fráleitt við skaparann þrátta. Skrokkurinn gengur víst skorpinn sem þvengur í samtökin sjötíuogátta. Dóra Gissurardóttir yrkir haust- vísu um það sem fyrir augum bar: Ég fann eitt lítið laufblað úti á bletti sem langt frá sínum stofni hafði fokið og sterkur vindur fleiri blöðum fletti sem fuku líkt og hismi út í rokið Sturla Friðriksson var á Balí í september 1990 og orti þar um mý- flugur: Erlendis er flugnaflóð, feikn af moskítóum. Upp þær sjúga saklaust blóð með sogpípunum mjóum. Þessi vargur fólskuflár fyllir holdið spýju, og því veitir sviðasár og síðan malaríu. Mýraköldu í blóðið ber bitkrókurinn argi. Mikið lán að Ísland er ekki hrjáð þeim vargi. Anton Helgi Jónsson orti einn septembermorgun á Skólavörðu- holtinu: Það blæs nú af ruddaskap rokið, svo reyndar er mér öllum lokið; hér skelf ég sem strá og skiljanlegt þá að skuli í mig geta fokið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af rjúpu, laufblaði og moskítóflugu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.