Morgunblaðið - 21.09.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.09.2020, Qupperneq 26
GRAFARVOGUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is KA kreisti fram jafntefli gegn Fjölni í leik liðanna í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu á laugardaginn, lokatöl- ur 1:1. Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði metin fyrir gestina í Grafarvoginum um stundarfjórðungi fyrir leikslok eftir að Jón Gísli Ström kom Fjölni í forystu úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Það má segja að úrslitin hafi ekki komið á óvart. Fjölnismenn hafa enn ekki unnið leik á Íslandsmótinu, eru í botnsætinu með sex stig eftir 15 leiki. Þá eru norðanmenn jafntefliskóngar deildarinnar, hafa gert níu slík í 14 leikjum og sjálfir aðeins unnið tvo. Það var í raun eins og upp væri komin pattstaða þegar KA-menn jöfnuðu metin, hvorugur aðilinn gat sigrað. Vendipunktur leiksins var þegar varnarmaðurinn Mikkel Qvist gerðist sekur um heimskupör, reif Sigurpál Melberg Pálsson niður inni í vítateig. Daninn fauk út af með rautt spjald og Fjölnismenn fengu vítaspyrnu til að taka forystuna. Þó KA-menn hafi leikið manni færri í tæpa klukku- stund voru þeir samt sterkari aðili leiksins og verðskulduðu kannski jöfnunarmarkið. KA-liðið byrjaði talsvert betur og hefði jafnvel farið alla leið með fullskipað lið. Það segir líka kannski mikið um þeirra leik, að jafnvel þótt þeir hafi verið undir- mannaðir allan þennan tíma, voru þeir engu að síður ekki sáttir með stigið. Pattstaða í Grafarvoginum Morgunblaðið/Íris Grafarvogur Kristófer Óskar Óskarsson sendir fyrir mark KA í leiknum í gær. Andri Fannar Stefánsson er til varnar og Kristijan Jajalo í markinu.  Rauða spjaldið breytti leiknum 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020 FJÖLNIR – KA 1:1 1:0 Jón Gísli Ström 35. 1:1 Ásgeir Sigurgeirsson 76. M Grétar Snær Gunnarsson (Fjölni) Péter Zachán (Fjölni) Sigurpáll Melberg Pálsson (Fjölni) Ásgeir Sigurgeirsson (KA) Hrannar Björn Bergmann (KA) Ívar Örn Árnason (KA) Rautt spjald: Mikkel Qvist (KA) 34. Dómari: Þorvaldur Árnason - 7. Pét- ur Guðmundsson 46. - 7. Áhorfendur: 60.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og grein um leikinn – mbl.is/sport/ fotbolti. Pepsi Max-deild karla Fjölnir – KA.............................................. 1:1 Staðan: Valur 14 11 1 2 34:14 34 FH 13 8 2 3 26:17 26 Stjarnan 12 6 6 0 20:10 24 Breiðablik 13 7 2 4 29:21 23 Fylkir 14 7 1 6 21:20 22 KR 12 6 2 4 23:17 20 HK 14 5 2 7 24:30 17 KA 14 2 9 3 12:15 15 Víkingur R. 13 3 5 5 19:21 14 ÍA 14 4 2 8 31:36 14 Grótta 14 1 4 9 12:29 7 Fjölnir 15 0 6 9 14:35 6 Lengjudeild karla Vestri – Leiknir F .................................... 2:0 Magni – Leiknir R.................................... 0:1 Staðan: Leiknir R. 17 10 3 4 37:21 33 Fram 16 9 6 1 35:21 33 Keflavík 15 9 4 2 45:22 31 ÍBV 16 6 8 2 26:19 26 Þór 16 8 2 6 30:27 26 Vestri 17 7 5 5 24:22 26 Grindavík 15 5 8 2 30:26 23 Afturelding 16 5 3 8 32:27 18 Víkingur Ó. 16 4 4 8 21:35 16 Þróttur R. 16 3 3 10 13:30 12 Leiknir F. 17 3 3 11 16:36 12 Magni 17 2 3 12 17:40 9 2. deild karla Völsungur – Kórdrengir .......................... 0:6 Dalvík/Reynir – Fjarðabyggð................. 1:3 Selfoss – Þróttur V................................... 1:4 Staða efstu liða: Kórdrengir 17 12 4 1 36:10 40 Selfoss 17 12 1 4 30:19 37 Þróttur V. 17 10 4 3 34:17 34 Njarðvík 17 10 3 4 33:22 33 3. deild karla Einherji – KV............................................ 6:2 Augnablik – Elliði..................................... 4:4 Höttur/Huginn – Ægir ............................ 2:4 KFG – Álftanes......................................... 1:0 Staða efstu liða: KV 17 12 1 4 49:28 37 Reynir S. 17 11 3 3 54:34 36 KFG 17 8 4 5 32:27 28 Augnablik 17 7 5 5 38:35 26 Lengjudeild kvenna Tindastóll – ÍA.......................................... 2:0 Afturelding – Fjölnir................................ 1:0 Staða efstu liða: Tindastóll 14 12 1 1 39:5 37 Keflavík 14 10 3 1 36:14 33 Haukar 14 9 2 3 26:14 29 Afturelding 14 6 3 5 18:17 21 2. deild kvenna HK – Sindri ............................................... 2:2 Hamar – ÍR............................................... 1:0 FHL – Álftanes ........................................ 4:0 Staða efstu liða: HK 14 10 1 3 44:12 31 Grindavík 12 8 2 2 30:10 26 FHL 13 8 2 3 33:21 26 Hamrarnir 13 5 3 5 18:20 18 England Everton – WBA ........................................ 5:2  Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á hjá Everton eftir 65 mínútur. Leicester – Burnley................................. 4:2  Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Leeds – Fulham........................................ 4:3 Manchester U. – Crystal Palace ............. 1:3 Arsenal – West Ham................................ 2:1 Southampton – Tottenham...................... 2:5 Newcastle – Brighton .............................. 0:3 Chelsea – Liverpool ................................. 0:2 Staða efstu liða: Leicester 2 2 0 0 7:2 6 Everton 2 2 0 0 6:2 6 Arsenal 2 2 0 0 5:1 6 Liverpool 2 2 0 0 6:3 6 Crystal Palace 2 2 0 0 4:1 6 Tottenham 2 1 0 1 5:3 3 Wolves 1 1 0 0 2:0 3 Brighton 2 1 0 1 4:3 3 Leeds 2 1 0 1 7:7 3 Chelsea 2 1 0 1 3:3 3 Newcastle 2 1 0 1 2:3 3  Olísdeild karla Haukar – ÍBV ....................................... 30:23 Staðan: Valur 2 2 0 0 76:54 4 Haukar 2 2 0 0 50:42 4 Afturelding 2 1 1 0 51:49 3 KA 2 1 1 0 47:45 3 Selfoss 2 1 1 0 51:50 3 FH 2 1 0 1 54:52 2 ÍBV 2 1 0 1 61:61 2 Fram 2 0 1 1 48:50 1 Stjarnan 2 0 1 1 51:52 1 Grótta 2 0 1 1 44:45 1 Þór Ak. 2 0 0 2 41:48 0 ÍR 2 0 0 2 55:81 0 Olísdeild kvenna KA/Þór – Stjarnan ............................... 21:23 Haukar – FH ........................................ 26:25 HK – ÍBV .............................................. 21:25   FRJÁLSAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson heldur áfram að gera það gott á hlaupabrautinni og bætti um helgina eigið Íslandsmet í 10 þúsund metra hlaupi. Hljóp hann á 28:55,47 mín- útum á Hollenska meistaramótinu en eldra metið var 29:20,92 mínútur frá árinu 2018. Hlynur segist hafa haft væntingar um að geta hlaupið álíka hratt og raunin varð. Vandamálið á þessu ári hafi frekar verið hversu fá tækifæri hafi boðist til að keppa á tím- um kórónuveirunnar. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá var þetta svipað og ég bjóst við. Ég reikn- aði með því að ég gæti hlaupið hvern hring á mínútu og níu sekúndum að meðaltali og það gekk eftir. Ég hef fengið fá tækifæri til að keppa sem er auðvitað leiðinlegt en ég hef bara þrisvar keppt á brautinni í ár. Í öll skiptin hef ég sett met,“ segir Hlynur en þegar hann nefnir hlaupabraut sér- staklega þá er það til aðgreiningar frá keppnum í lengri vegalengdum á mal- biki sem Hlynur tekur einnig þátt í. Hlynur þurfti á allri sinni einbeit- ingu að halda þegar leið á hlaupið. „Skóreimarnar á vinstri fæti losnuðu eftir fimm hringi og ég hljóp því tutt- ugu hringi með annan skóinn hálf- lausan. Fyrst hafði ég miklar áhyggj- ur af þessu en svo gleymdi ég þessu í því andlega stríði sem fylgir síðustu tíu hringjunum. Að hlaupa 10 þúsund metra tekur mjög á andlega því þú þarft að vera með allt í botni í hálf- tíma.“ Mótið í bakgarðinum Hollenska meistaramótið var mjög sterkt og hraðinn í hlaupinu mikill. Nicholas Kipkorir frá Kenía sigraði í hlaupinu á 26:58,97 mínútum sem er besti tími ársins í greininni. „Kannski má segja að þetta sé sterkasta 10 þúsund metra hlaupið á árinu. Það var mjög gott fyrir mig að fá þetta mót því samkeppnin var meiri en í hinum tveimur mótunum á árinu. Nú kom ágætis bæting sem ég er sáttur við. Auk þess var þetta í bæn- um mínum en ég bý bara í fimm mín- útna fjarlægð frá hlaupabrautinni. Það er fínt að hafa mót í bakgarðinum hjá sér í Leiden.“ Lágmarkið í grein- inni fyrir Ólympíuleikana í Tókýó á næsta ári er erfitt viðureignar eða 27:28,00 mínútur. Hlynur segir ekki marga ná því og telur sig eiga mögu- leika á að komast á leikana ef hann bætir sig frekar. „Já, lágmarkið er eiginlega algert bull enda eru ekki margir í heiminum sem geta hlaupið 10 þúsund metrana svo hratt. Félagi minn á besta tíma Evrópubúa á árinu en er samt hálfri mínútu frá lágmarkinu. Lágmarkið er því frekar ósanngjarnt en árangur á heimslista mun þá raða mönnum inn á leikana í takti við keppendakvóta sem þjóðirnar fá. Ég þarf að bæta mig frekar til að eiga möguleika á að kom- ast á Ólympíuleikana. Ef ég bæti mig aftur um hálfa mínútu þá á ég mögu- leika. Ég hef æft mjög vel en þarf að fá fleiri tækifæri til að keppa,“ segir Hlynur Andrésson en Morgunblaðið hafði samband við hann í gær.  Enn eitt Íslandsmetið hjá Hlyni Ljósmynd/Bjorn Parée Methafi Hlynur Andrésson bætti sig um hálfa mínútu í Leiden. Laus í skónum en setti met Skallagrímur lagði Val að velli, 74:68, í Meistarakeppni KKÍ í Borg- arnesi í líflegum leik í gærkvöldi. Valur var með nauma forystu í hálfleik, 32:31, en deildarmeist- ararnir voru mest sex stigum yfir fyrir hlé. Heimakonur og ríkjandi bikarmeistararnir sneru hins vegar taflinu við eftir hlé og unnu þriðja leikhlutann 27:21. Keira Robinson var atkvæðamest í liði Skallagríms, skoraði 21 stig og gaf fimm stoð- sendingar. Hildur Björg Kjartans- dóttir var með 22 stig fyrir Val, sjö fráköst og fjórar stoðsendingar. Skallagrímur hafði betur Morgunblaðið/Árni Sæberg Öflug Keira Robinson var drjúg fyrir bikarmeistarana í gær. Nýliðar Hamars í úrvalsdeild karla í blaki tóku á móti deildarmeist- urum síðustu leiktíðar, Þrótti frá Neskaupstað. Hamarsmönnum var, þrátt fyrir að vera nýliðar, spáð efsta sæti af þjálfurum og fyrir- liðum og liðið stóð undir vænt- ingum í fyrsta leik. Hamar vann öruggan 3:0 sigur. Afturelding fer vel af stað í Miz- uno-deild kvenna. Liðið fór til Ak- ureyrar og hafði betur gegn KA 3:2 eftir að hafa lent 0.2 undir. Thelma Dögg Grétarsdóttir fór á kostum hjá Aftureldingu og skoraði 38 stig Hvergerðingar byrjuðu vel Morgunblaðið/Ívar Benediktsso Atkvæðamikil Thelma Dögg Grét- arsdóttir skoraði 38 stig á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.