Morgunblaðið - 21.09.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.09.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2020 Englandsmeistarar Liverpool stóð- ust fyrsta stóra prófið á nýju leiktíð- inni er þeir heimsóttu gífurlega vel mannað lið Chelsea á Stamford Bridge í annarri umferð úrvalsdeild- arinnar í gær. Liverpool vann 2:0- sigur, þökk sé tveimur mörkum Sa- dio Mané, og er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina. Leikurinn fór rólega af stað, eins og oft vill gerast þegar stærstu liðin mætast snemma á mótinu; enginn vill tapa. Vendipunkturinn átti sér hins vegar stað í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar danski miðvörðurinn Andreas Christensen fékk beint rautt spjald fyrir að fella Mané þeg- ar Senegalinn var að sleppa í gegn. Meistararnir nýttu sér liðsmuninn og skoruðu tvö mörk áður en Jorg- inho brenndi af vítaspyrnu fyrir Chelsea undir lokin. Nýi leikmaður Liverpool, Thiago, kom inn á í hálf- leik eftir að hafa gengið til liðs við fé- lagið frá Evrópumeisturum Bayern München. Hann gaf að vísu vítið er hann braut á Timo Werner innan teigs en var annars frábær. Átti til að mynda fleiri sendingar á 45 mín- útum en nokkur leikmaður Chelsea afrekaði á 90 mínútum. Það hefur enginn leikmaður gefið 75 sendingar á svo stuttum tíma síðan úrvals- deildin hóf að halda utan um slíka tölfræði árið 2003. Það er alveg klárt að Spánverjinn styrkir lið sem nú þegar er gríðarlega sterkt og vel mannað. Tottenham fór á flug Suður-Kóreumaðurinn Heung- Min Son lék á als oddi er Tottenham vaknaði til lífsins og vann 5:2- stórsigur á Southampton á útivelli. Son skoraði fyrstu fjögur mörk Tott- enham eftir að Danny Ings hafði komið heimamönnum í forystu snemma leiks. Það var svo fyrirlið- inn Harry Kane sem rak smiðs- höggið á frammistöðu Tottenham með fimmta markinu en þar áður var hann búinn að leggja upp öll fjögur mörkin sem kollegi hans skoraði. Ings klóraði svo í bakkann undir lok leiks með marki úr víta- spyrnu en Tottenham er komið á blað, vann sinn fyrsta sigur á tíma- bilinu. Margar spurningar vöknuðu þegar liðið virkaði máttleysislegt í 1:0-tapi gegn Everton í fyrstu um- ferðinni. Eftir þennan sigur, og fregnir um endurkomu Gareths Bale til liðsins, er ekki ólíklegt að stuðn- ingsmenn liðsins fyllist bjartsýni á nýjan leik. Leeds vann sinn fyrsta sigur í efstu deild í 16 ár er liðið hafði betur í fjörugum nýliðaslag gegn Fulham á Elland Road, lokatölur 4:3. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson kom við sögðu í 5:2- sigri Everton á West Brom. Hann kom inn á á 65. mínútu eða rétt áður en Dominic Calvert-Lewin innsigl- aði þrennu sína með fimmta marki liðsins. Arsenal er enn með fullt hús stiga eftir að því tókst að merja 2:1- sigur á West Ham í Lundúnaslag á laugardaginn en Manchester United fékk skell í sínum fyrsta leik á tíma- bilinu, tapaði 3:1 á heimavelli gegn Crystal Palace. Meistararnir stóðust prófið  Suður-Kóreumaðurinn skoraði fernu  Man. Utd fékk skell í fyrsta leik AFP Meistarar Sadio Mané (fyrir miðju) kom Liverpool á bragðið gegn Chelsea. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék vel á Opna portúgalska mótinu í golfi sem lauk í gær. Guð- mundur Ágúst hafnaði í 17.-23. sæti í mótinu og má gera ráð fyrir að hann fái í kringum fimm þúsund evrur í verðlaunafé. Guðmundur lék þrjá hringi á 69 höggum og einn á 72 og var samtals á níu undir pari. Haraldur Franklín Magnús, einnig úr GR, tók þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurð kepp- enda eftir 36 holur. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni, þeirri sterk- ustu í Evrópu. Guðmundur lék vel í Portúgal Morgunblaðið/Kristinn Magnússon -9 Guðmundur Ágúst lék þrjá hringi undir 70 höggum. Leiknir úr Reykjavík er kominn í toppsæti Lengjudeildar karla í knattspyrnu eftir 1:0-sigur á Magna á Grenivíkurvelli í gær. Sævar Atli Magnússon skoraði sigurmark Leiknismanna á 40. mín- útu úr vítaspyrnu og er Leiknir nú með 33 stig á toppnum eftir 17 leiki en bæði Fram og Keflavík í næstu sætum eiga leiki til góða. Þá komst Vestri upp að hlið ÍBV og Þórs í 4.-6. sætinu með 2:0- heimasigri gegn Leikni úr Fá- skrúðsfirði. Nacho Gil og Viktor Júlíusson skoruðu mörkin. Leiknir á toppi deildarinnar Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Toppliðin Leiknir og Fram eru í efstu tveimur sætum deildarinnar.  Víkingur Reykjavík varð í gær tvö- faldur Íslandsmeistari í liðakeppni í borðtennis. Varð meistari í karla- og kvennaflokki. Stella Kristjánsdóttir, Agnes Brynjarsdóttir, Nevana Tasic, Þórunn Árnadóttir og Lóa Zink skipa kvennalið Víkings sem hafði betur gegn BH, 3:0. Karlaliðið mætti KR í úrslitum og vann að lokum nauman 3:2-sigur eftir mikla spennu. Ingi Dar- vis, Daði F. Guðmundsson og Magnús J. Hjartarson skipa liðið.  Skjern og GOG skildu jöfn, 31:31, þegar liðin mættust í dönsku úrvals- deildinni í handknattleik. Elvar Örn Jónsson átti góðan leik hjá Skjern og skoraði sex mörk úr níu skotum. Vikt- or Gísli Hallgrímsson varði níu skot í markinu hjá GOG og var með 23 pró- senta markvörslu.  Hólmar Örn Eyjólfsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, er snúinn aftur til norska félagsins Rosenborg en hann hefur leikið undanfarin þrjú tímabil með Levski Sofia í Búlgaríu.  Haukar héldu toppbaráttunni í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu lif- andi með 3:0-sigri á botnliði Völsungs á heimavelli. Vienna Behnke skoraði tvö mörk fyrir Hauka og Hildur Kar- ítas Gunnarsdóttir skoraði eitt. Hauk- ar eiga enn möguleika á að fara upp í efstu deild en liðið er fjórum stigum frá Keflavík í öðru sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.  Brøndby hafði betur gegn FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu, 2:1. Ragnar Sig- urðsson lék allan leikinn með FCK og Hjörtur Hermannsson gerði slíkt hið sama hjá Brøndby. Brøndby hefur unnið báða leiki sína til þessa í deild- inni en FC Kaupmannahöfn tapað báðum.  Haukur Helgi Pálsson og Martin Hermannsson, landsliðsmenn í körfu- knattleik, léku fyrstu deildarleikina með nýjum liðum á Spáni. Haukur skoraði níu stig fyrir Andorra sem vann 84:66-sigur á Murcia en Haukur var með 100% skotnýtingu. Martin gaf tvær stoðsendingar fyrir Valencia sem tapaði gegn spænsku meist- urunum Baskonia, 76:73.  Bandaríkjamaðurinn Bryson De- Chambeau sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem lauk í New York í gærkvöldi. Var þetta fyrsti sigur DeChambeau á risamóti í íþróttinni. Eitt ogannað KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Norðurálsvöllur: ÍA – Grótta .............. 16.30 Kópavogsvöllur: Breiðablik – KR....... 19.15 Samsungv.: Stjarnan – Valur .............. 19.15 Würth-völlur: Fylkir – FH .................. 19.15 Víkingsvöllur: Víkingur R. – HK ............. 20 1. deild karla, Lengjudeildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Þór ................... 16.30 Nettóvöllur: Keflavík – Þróttur R ...... 16.30 Varmá: Afturelding – Víkingur Ó ....... 19.15 Framvöllur: Fram – Grindavík ........... 19.15 Í KVÖLD! Úrslitakeppni NBA Austurdeild, úrslit: Miami – Boston................................. 106:117  Staðan er 2:1 og fjórði leikurinn fer fram í nótt. LA Lakers - Denver......................... 126:114  Staðan er 1:0 og annar leikurinn fór fram í nótt.  Haukar eru með fullt hús stiga í Olísdeild karla í handknattleik eftir tvær umferðir en Haukar höfðu betur gegn ÍBV á heima- velli á laugardag, 30:23. Haukar fóru gríðarlega vel af stað og komust í 8:2 snemma leiks. ÍBV lagaði stöðuna fyrir hálfleik og var staðan í leikhléi 14:10. Tókst ÍBV ekki að minnka muninn í seinni hálfleik og Hauk- ar sigldu öruggum sigri í hús. Haukar lentu frekar óvænt í spennuleik gegn Gróttu í fyrstu umferðinni og náðu naumlega í bæði stigin. Þeir fundu taktinn betur að þessu sinni. Orri Freyr Þorkelsson skoraði átta mörk fyr- ir Hauka, Geir Guðmundsson sex og Brynjólfur Snær Brynjólfsson skoraði fjögur. Hornamaðurinn Theodór Sigur- björnsson var markahæstur hjá ÍBV með sjö mörk en hann missti af fyrsta leiknum gegn ÍR. Hákon Daði Styrmisson og Kári Kristján Kristjánsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Eyjamenn. Morgunblaðið/Íris Á línunni Kári Kristján Kristjánsson skorar fyrir ÍBV í leiknum. Öruggur sigur hjá Haukum gegn ÍBV Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH tókust á í Olís-deild kvenna í hand- knattleik á laugardaginn en þá voru þrír leikir á dagskrá. Leik- irnir fóru fram án áhorfenda sam- kvæmt tilmælum sóttvarna- yfirvalda og Hafnfirðingar gátu því ekki fjölmennt á grannslaginn. Haukar unnu eins marks sigur, 26:25, en að loknum fyrri hálfleik var staðan jöfn 13:13. Ragnheiður Ragnarsdóttir var markahæst hjá Haukum með 7 mörk og Sara Odd- en skoraði 5 mörk. Britney Cots var langmarkahæst hjá FH með 11 mörk. Var þetta fyrsti sigur Hauka í deildinni í vetur og ÍBV vann einn- ig sinn fyrsta sigur er liðið heim- sótti HK í Kópavoginn og vann 25:21. FH og HK eru án stiga eftir tvo leiki. Fyrri hálfleikurinn var jafn á nánast öllum tölum, en ÍBV skoraði tvö síðustu mörkin og var staðan í leikhléi því 14:12. ÍBV komst í 16:12 í upphafi seinni hálf- leiks og tókst HK ekki að jafna eft- ir það. Landsliðskonurnar Birna Berg Haraldsdóttir og Sigríður Hauksdóttir fóru mikinn í marka- skorun í leiknum. Sigríður skoraði 9 mörk fyrir HK og Birna Berg 10 mörk fyrir ÍBV. Stjarnan hefur unnið fyrstu tvo leikina en liðið vann KA/Þór 23:21 á Akureyri. KA/Þór er hins vegar með eitt stig. KA/Þór fór mun bet- ur af stað og komst snemma í 7:3 og var staðan í hálfleik 13:11. Það tók Stjörnuna sjö mínútur að jafna í 16:16 í seinni hálfleik og korteri fyrir leikslok var staðan orðin 21:17. Landsliðskonur voru marka- hæstar. Helena Rut Örvarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Stjörnuna en Rut Jónsdóttir sex fyrir KA/Þór. Eins marks sigur í grannaslagnum Morgunblaðið/Íris Vítaskytta Ásta Björt skorar eitt fimm marka sinna fyrir ÍBV.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.