Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2020 Vikan hófst með látum og þaðaf gleðilegri gerðinni, því ís-lenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir greypti nafn sitt í marmaratöflur íþróttasögunnar með því að fagna sigri í Meistara- deild Evrópu með liði sínu Lyon. Hún þótti einn besti leikmaður úr- slitaleiksins, sem fram fór á sunnu- dagskvöld, og skoraði þriðja og síð- asta mark Lyon, sem innsiglaði sigur þess á Wolfsburg frá Þýskalandi, sem Sara Björk lék raunar áður með. Aðeins einn Íslendingur annar hefur hrósað sigri í Meistaradeild Evrópu, en það er Eiður Smári Guðjohnsen með Barcelona árið 2009. Fréttir voru sem fyrr illa þjakaðar af kórónuveirunni, en fram kom að tugmilljarða króna vanti upp á til þess að sveitarfélögin hangi réttum megin núllsins. Þar er horft sérstak- lega til vandræða við rekstur hjúkr- unarheimila víða um land, en svo gæti farið að heilbrigðisstofnanir rík- isins þyrftu að taka reksturinn að sér líkt og fyrr var gert á Akureyri. Lögreglan varaði fólk við auknum umsvifum og hugvitssemi netsvindl- ara, sem reyna að blekkja fólk með ýmsum ráðum til þess að greiða fé til sín eða ljóstra upp um lykilorð og ámóta. Afar erfitt hefur reynst að skakka leikinn eftir á, svo árvekni er besta ráðið. Margt bendir til þess að þessar svindltilraunir standi í sam- hengi við stóraukna verslun og sýsl á netinu á dögum faraldurs og sóttkví- ar. Hópáflog brutust út í Bankastræti á sunnudagsnótt, en þar tókust á bæði íslenskir karlar og af erlendu bergi brotnir. Margir urðu sárir en enginn mjög alvarlega, sem má telj- ast nokkur mildi miðað við atgang- inn, sem vitaskuld var myndaður og birtur á félagsmiðlum. Lögreglan átti fullt í fangi með að stilla til frið- ar, en hafði ekki hendur í hári neins ófriðarseggja. Þóra Hallgrímsson, athafnakona og eiginkona Björgólfs Guðmunds- sonar, lést níræð að aldri.    Um mánaðamót kom á daginn að landsframleiðsla hafði dregist saman um 9,3% að raungildi á öðrum fjórð- ungi ársins frá sama tímabili árið 2019. Þetta er mesti samdráttur milli ára frá upphafi mælinga, en hann má að mestu rekja til hruns ferðaþjón- ustunnar. Þaðan streymdu enda áfram ótíðindi af stórfelldum upp- sögnum, þar sem mörg fyrirtæki róa lífróður til þess eins að sökkva ekki. Til dæmis má nefna að Íslandshótel hafa tapað milljarði króna á hálfu ári. Allt þetta rekur ferðaþjónustan til hinnar tvöföldu skimunar og sóttkví- ar við komuna til landsins. Sama dag var sagt frá því að ekk- ert nýtt innanlandssmit hefði greinst við skimun síðasta dag ágúst sem gæfi vonir um að menn væru við það að koma böndum á farsóttina í bili. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði af því tilefni að vonandi yrði því hægt að slaka á innanlandstakmörk- unum vegna veirunnar bráðlega, en eftir sem áður væri nauðsynlegt að skima komufarþega til landsins og óráðlegt að slaka á þeirri kló. Núver- andi sóttvarnaaðgerðir renna að óbreyttu út í næstu viku. Í borgarstjórn lögðu sjálfstæðis- menn fram tillögu um tilrauna- verkefni um sjálfakandi strætis- vagna. Það væri eðlilegt framhald á tilraunaverkefni undanfarinna ára um að aka þeim án farþega að hafa þá vagnstjóralausa líka.    Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra dró ekki fjöður yfir það í viðtali við Morgunblaðið að efna- hagsástandið væri erfitt í augnablik- inu, en hins vegar undirstrikaði hann þá trú sína að um leið og veiran væri gengin hjá tæki við mjög ör hag- vöxtur. Íslendingar hefðu áður sýnt getu sína til þess að vinna sig út úr erfiðum efnahagsaðstæðum, en nú fælist vandinn fyrst og fremst í skorti á eftirspurn sem ástæða væri til þess að ætla að tæki skjótt við sér aftur. Þar taldi hann ferðaþjón- ustuna kunna að leika lykilhlutverk, því þrátt fyrir að hún væri í einstakri lægð í augnablikinu, þá hefði ekki horfið sú fjárfesting, þekking og mannauður, sem þar hefði byggst upp á undanförnum árum. Bjarni vék einnig að samgöngu- sáttmála höfuðborgarsvæðisins og þá sérstaklega Sundabraut, sem hann furðaði sig á að væri árum sam- an í skipulagsvandræðum hjá borg- inni. Minnti svo á að sáttmálinn fæli ekki í sér að unnt væri að velja eitt og eitt verkefni þar úr, en ef eitthvað vantaði upp á efndirnar myndi ekki vera þingmeirihluti fyrir fjárheim- ildum til hans. Sama mál bar á góma í óundir- búnum fyrirspurnum í borgarstjórn, sem þar voru á dagskrá í fyrsta sinn. Eyþór Arnalds, oddviti minnihlut- ans, gagnrýndi að með skipulags- breytingum hefði hagstæðasta leiðin verið gerð ómöguleg og ekkert ból- aði á brautinni þótt Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri hefði sagt hana algert forgangsverkefni fyrir 14 ár- um. Menningarmálaráðherrann sam- þykkti tillögur fjölmiðlanefndar um styrki til einkarekinna fjölmiðla til mótvægis við áhrif kórónuveirunnar á rekstur þeirra. Árvakur (útgefandi þessa blaðs, mbl.is og K100) fékk mest í sinn hlut, þá Sýn (Stöð 2, Bylgjan og Vísir) og svo Torg (Fréttablaðið), en 20 aðrir smærri miðlar fengu einnig styrk. Þar á meðal Birtíngur, væntanlega vegna útgáfu Mannlífs, sem þó hefur ekki komið út mánuðum saman. Gerðardómur komst að þeirri niðurstöðu að ríkissjóði bæri að greiða 1,1 milljarð króna til Land- spítalans og fleiri stofnana til þess að bæta kjör hjúkrunarfræðinga. Samherji kærði Helga Seljan og 10 starfsmenn Ríkisútvarpsins (Rúv) aðra til siðanefndar stofnunarinnar fyrir margvísleg brot á siðareglum hennar, einkum þó þeirri sem mein- ar frétta- og dagskrárgerð- armönnum að taka afstöðu í póli- tískri umræðu eða umdeildum þjóðmálum. Kom þá í ljós að ekki hafði verið skipað í siðanefndina eins og tilskilið er og enginn til þess að veita kærunni viðtöku, að sögn vegna þess að siðareglurnar hefðu verið teknar til allsherjarendurskoðunar í fyrra. Hér skal spáð löngu og líflegu framhaldsleikriti.    Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, skrifaði grein í Morgunblaðið, þar sem hann lýsti þeirri skoðun að þótt ástæða væri til þess að viðhalda eða jafnvel herða sóttvarnir innanlands væri rétt að af- létta sóttkví á komufarþega að utan og láta heimkomusmitgát duga. Kári Stefánsson var honum ekki fyllilega sammála um þetta og svaraði honum á síðum blaðsins daginn eftir af þeirri stillingu og varfærni í orðum sem honum er töm. Fram kom að hvergi á Norður- löndum væri brottfall úr framhalds- skólum meira en hér á landi eða um 18%. Það er helmingi minna í Dan- mörku og Noregi, enn minna í Sví- þjóð og Finnlandi. Sömuleiðis er kynjamunurinn sláandi, því piltarnir hverfa mun frekar frá námi eða nærri 25%, um tvöfalt meira en hjá stúlkum. Sama dag skrifaði Lilja D. Al- freðsdóttir menntamálaráðherra blaðagrein um að markmið hennar væri að tryggja íslenskum börnum menntun á heimsmælikvarða, enda væri íslenskt skólakerfi til fyrir- myndar og góð menntun verðmætt vegabréf til framtíðar. Haustið kom með hvelli en gefin var út almannavarnaviðvörun vegna hríðar sem gekk yfir norðaustanvert landið. Sérstaklega var óttast að gangnamenn á fjalli gætu ratað í vandræði, en þeir komust ofan í tæka tíð. Hins vegar tókst ekki að reka féð nema hálfa leið niður eða svo. Fram kom að mistök við skoðun á sýnum hjá frumurannsóknarstofu Krabbameinsfélagsins hefðu leitt til þess að kona væri nú með ólæknandi leghálskrabba. Endurskoðun á þús- undum annarra sýna stendur nú yfir. Því var lekið frá héraðssaksóknara að Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, og fimm starfsmenn félagsins hefðu fengið réttarstöðu sakbornings við rannsókn málsins. Sama dag voru sagðar fréttir af því að Kveikur hefði verið seldur til Danmerkur. Við nánari lestur kom þó í ljós að þar ræddi um stóðhestinn Kveik frá Stangarlæk.    Ýmsar lagabreytingar voru sam- þykktar á Alþingi með 57 samhljóða atkvæðum, en allar miða þær að því að spyrna við efnahagslegum áhrif- um heimsfaraldurs kórónuveir- unnar. Þau fela meðal annars í sér vinnumarkaðsaðgerðir, þar á meðal framlengingu hlutabótaleiðarinnar. Stjórnarandstaðan var almennt á því að ganga hefði mátt mun lengra en ríkisstjórnin lagði til. Það var frekar að ágreiningur væri um ríkisábyrgð á lánalínu Ice- landair, sem ljóst er að þingmenn eru mistrúaðir á. Þingmenn Pírata eru hins vegar fullir vantrúar, vilja að félagið gangi plankann eitt en ekki með skattborgara í halarófu á eftir sér. Sókn og vörn, sigrar og töp Sara Björk Gunnarsdóttir, efst fyrir miðju, hrósaði sigri í Meistaradeild Evrópu. AFP 30.8.-4.9. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.