Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Síða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2020 ræstingarmálin Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Haustið er góður tími til að endurskoða Hafðu samband og við gerum fyrir þig þarfagreiningu og tilboð í þjónustu án allra skuldbindinga. Ég sá myndband á netinu um daginn ummann sem eignaðist kött. Óvart. Hannvaknaði einn morguninn og það var köttur fyrir utan gluggann hjá honum sem starði á hann allan daginn. Hann endaði á að hleypa honum inn og setti hann svo út þegar hann fór í vinnu. Daginn eftir var kisi mættur aftur, starði reiðilega inn og hætti ekki fyrr en hann var fluttur inn. Maðurinn auglýsti eftir eiganda en enginn gaf sig fram og þannig gerðist það að hann eignaðist kött. Og var eiginlega frekar ánægður með það, eins og gjarnan er með fólk sem eignast gæludýr. Eða öfugt, í tilfelli katta. Það eru miklu frekar kettirnir sem eignast okkur. Og jafnvel þó að við reynum að sannfæra okkur um að svo sé ekki kemur að því að það rennur upp fyrir manni ljós. Það byrjaði rólega. Köttur í götunni fór að venja komur sínar til okkar síðasta vetur. Við erum í góðu sambandi við eigendur hans sem sýna því mikinn skilning að kisinn velji sér bæði náttstað og mat víðar en á lögheimilinu. Hann getur hins vegar ekki flutt inn til okkar. Þar spilar auðvitað inn í að við eigum hann ekki en raunverulega vandamálið er valdajafnvægi katta heimilisins. Litlikisi (sjö ára) á mjög erfitt með gestaketti. Finnst eig- inlega alveg nóg um að við höfum fengið hjartaknúsarann Gorm (18 mánaða) á meðan hann var týndur og er í stanslausu taugaáfalli yfir því að við ætlum mögulega að bæta við fleiri köttum. Þess vegna setti Litlikisi gesta- kettinum stólinn fyrir dyrnar í vor og nú get- ur hann helst ekki komið inn. Hann kemur samt ennþá í mat. Á sína eigin skál við bak- dyrnar og mætir stundvíslega upp úr hálfsjö á morgnana. Við teljum svo sem ekki eftir okkur að gefa honum morgunmat. Og ekki heldur þótt hann mæti aftur um hádegisbil og svo síðdegis og mögulega undir kvöld. Við þetta bætist svo Valgerður. Hún verð- ur 17 ára í mánuðinum og er algjörlega óútreiknanleg (eins og áður hefur verið rætt á þessum vettvangi). Um daginn var ég sem sagt kominn í bað. Þá byrjar hún að klóra í dyrnar. Ég klöngrast upp úr til að gefa henni að drekka úr vasknum (sem er það eina sem hún vill) og koma mér aftur í baðið. Þá þakk- ar hún fyrir sig með því að míga á gólfið. Horfir svo bara á mann með augnaráði sem segir: Og hvað ætlar þú að gera í þessu? Stutta svarið: Ekki neitt. Hún er nefnilega komin með elliglöp og kemst upp með allt. Þetta er bara hluti af því að eiga ketti. Þeir verða skrítnir og gera alls konar hluti og hvað ætlar maður að gera í því? Hvernig sem maður lítur á það munu kettirnir alltaf stjórna því hvern- ig þetta heimili er rekið. Þrátt fyrir þetta hef ég alltaf litið þannig á að ég hafi fengið mér ketti, en ekki öf- ugt. En svo læðast að mér efasemd- irnar. Sérstaklega um daginn. Ég var orðinn of seinn einn morguninn en gestakötturinn var mættur í morgunmat og vildi fá skammtinn sinn. Sem ég var að gefa honum uppgötva ég að í kringum mig sitja þrír aðrir kettir, sem er út af fyrir sig ekkert stórmál, nema vegna þess að ég á engan þeirra. Þarna var ég 53 ára, orðinn of seinn, að reyna að halda ókunnugum köttum frá matn- um sem ég var að gefa ketti sem ég á ekki. Og sem ég hleyp um bílaplanið að passa upp á að köttur, sem er strangt til tekið mér óvið- komandi, fái að éta með því að halda frá hon- um köttum sem koma mér enn minna við, þá rennur upp fyrir mér ljós: Ég á ekki ketti. Það er akkúrat öfugt. ’Það eru miklu frekar kett-irnir sem eignast okkur. Ogjafnvel þó að við reynum aðsannfæra okkur um að svo sé ekki kemur að því að það rennur upp fyrir manni ljós. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Lífið í Kattholti III Glíman við heimsfaraldur áborð við Covid-19 reynirmjög á öll samfélög. Áskorun af þessu tagi getur af- hjúpað bæði styrkleika og veik- leika í samfélagsgerð, þjóðarsál og stjórnmálum. Víða hefur réttilega verið höfð- að til samstöðu um að fylgja vís- indalegum ráðleggingum. Þó að nauðsynlegt sé að styðjast við bestu mögulegu þekkingu og ráð- gjöf býður viðfangsefnið þó ekki upp á einföld og afdráttarlaus svör. Viðbrögð og ákvarðanataka markast því ekki einungis af ófull- kominni vísindalegri þekkingu um sjúkdóminn heldur einnig af dóm- greind og pólitískri forgangs- röðun. Þótt við þráum öll skjól og fullvissu á óvissum og ögrandi tímum, þá stendur okkur engin fullvissa til boða önnur en sú að allt sé óvissu háð. Flokkamunur vestanhafs Ekki er augljóst að viðbrögð við faraldrinum fari alltaf eftir skýr- um hugmyndafræðilegum átaka- línum eða flokkadráttum. Þó má finna áhugaverðar vísbendingar um tilhneigingu í þá átt, til dæmis í Bandaríkjunum. Scientific American sagði í sum- ar frá greiningu á afstöðu banda- rískra þingmanna til faraldursins. Skoðaðar voru um 30 þúsund twitter- færslur þing- manna beggja flokka. Í ljós kom greinilegur mun- ur. Þingmenn demókrata notuðu oftast orðin „heilsa“, „skimun“ og „veikindaleyfi“ en þingmenn repúblikana notuðu helst orðin „sameinuð“, „Kína“ og „viðskipta- lífið“. Áherslumunurinn var aug- ljós. Forsprakki rannsóknarinnar taldi að þessar ólíku áherslur tor- velduðu glímuna við faraldurinn af því að stuðningsmenn flokkanna fengju gerólík skilaboð. Þess má geta að skoðanakannanir í Banda- ríkjunum hafa einmitt sýnt að mikill munur er á afstöðu kjós- enda flokkanna til faraldursins og viðbragða við honum. Fyrrnefndur rannsakandi bar þetta ástand saman við þá miklu samstöðu sem einkenndi áherslur beggja flokka fyrst í kjölfar hryðjuverkaárás- anna 11. september 2001. Gildi samstöðu Því verður varla mótmælt að sam- staða stuðlar almennt að betri árangri í baráttunni við ógnir og áskoranir. Það er þó auðvitað háð því að samstaðan sé um skynsam- lega og yfirvegaða stefnu. Glíman við Covid-19 er flókin og margslungin og því ekki óeðlilegt að áherslur séu misjafnar. Og meira að segja í kjölfar hryðju- verkanna 2001, þar sem mikill ein- hugur og samstaða ríktu í byrjun, kviknaði fljótt gagnrýnin umræða um rétt viðbrögð; ekki bara um hernaðaraðgerðir heldur líka um umdeildar takmarkanir á persónu- frelsi og friðhelgi einkalífs, sem réttlættar voru með baráttunni við hryðjuverk. Slík gagnrýnin um- ræða er nauðsynleg í lýðræðislegu mannréttindasamfélagi. Ef ein- hver samstaða má ekki bresta, þá er það einmitt samstaðan um mik- ilvægi gagnrýninnar hugsunar. (Því má skjóta inn hér að kannski mætti sýna fram á að töluverð líkindi væru með um- ræðunni 2001 og núna, nema hvað hlutverk flokkanna hefðu víxlast. Það væri verðugt rannsóknarefni út af fyrir sig og gæti kannski varpað áhugaverðu ljósi á um- ræðuhefð stjórnmálanna.) Það er dýrmætt að nálgun stjórnvalda í hverju landi njóti stuðnings hjá sem flestum og valdi ekki klofningi og úlfúð. En þó að ákvarðanirnar séu byggðar á bestu mögulegu þekkingu, ásamt yfirveguðu mati á margvís- legum hagsmunum, er ekki víst að bestu ákvarðanirnar verði alltaf þær vinsælustu. Hin dýrmæta samstaða verður að spretta úr trausti, sem vinnst með rökstuðn- ingi, samtali, gagnsæi og auðmýkt gagnvart óvissunni. Þar hefur okkur Íslendingum farnast vel til þessa. Bjartsýni á framtíðina Við eigum mikið undir því að Ís- land „komist í gang“ sem fyrst, bæði í efnahagslegu og samfélags- legu tilliti. Þar er réttilega mikið horft til landa- mæranna sem þurfa að vera eins opin og óhætt þykir, svo að Ísland ein- angrist ekki efnahagslega og menningarlega. Einangrun frá umheiminum er sjálfstæð ógn. Skylda okkar er að draga úr skaðanum á samfélaginu í heild og gera þjóðinni mögulegt að lifa í samfélagi sem einkennist af fram- takssemi og lífsgleði en ekki doða og kvíða. Eins og margoft hefur verið sagt eru ekki forsendur til að halda að fólki voninni um „veiru- frítt land“. Á meðan Covid- sjúkdómurinn er að ganga í heim- inum er mun ábyrgari afstaða að gera ráð fyrir að veiran muni ber- ast hingað en að skipuleggja sam- félagið út frá þeirri forsendu að mögulegt sé að einangra þjóðina í nokkurs konar sameiginlegri veirulausri sóttkví frá umheim- inum. Þessi stefna endurspeglast í þeirri ákvörðun nú í vikunni að slaka á sóttvarnaaðgerðum innan- lands jafnvel þó að enn séu að greinast smit. Við höfum ýmis tækifæri til að sækja fram á þessum tímum. Hin- ir mörgu kostir Íslands eru að verða sífellt skýrari og betur þekktir í alþjóðlegu samhengi og í því felast mörg tækifæri. Við munum líka sækja fram í nýsköp- un og fjárfestingum og fleiri svið- um. Og við munum aftur sækja fram í ferðaþjónustu, mögulega kröftugri en nokkru sinni fyrr. Um styrkleika Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’Skylda okkar er aðdraga úr skaðanumá samfélaginu í heild oggera þjóðinni mögulegt að lifa í samfélagi sem einkennist af framtaks- semi og lífsgleði en ekki doða og kvíða.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.