Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Page 11
Þegar kemur að því að viðhalda heilsu okkar árið um
kring, þar á meðal á tímum aukinnar áhættu eins og í
dag, gegnir næring lykilhlutverki. C-vítamín, hvítlaukur
og krydd eins og engifer hefur löngum verið þekkt sem
náttúruleg ónæmisörvun, en vaxandi fjöldi klínískra
rannsókna sannar að D-vítamín er ósungna hetjan
sem við öll þurfum til að halda sýkingu í skefjum.
D-vítamín gegnir gríðarlega víðtækuhlutverki í líkamsstarfsemiokkar og hafa fjölmargar
rannsóknir gefið okkur vísbendingar um
hversu alvarlegar afleiðingar D-vítamín
skortur hefur í för með sér. Rekja má
allt að 100 mismunandi sjúkdóma og
sjúkdómseinkenni til skorts á D-vítamíni.
Beinþynning og D-vítaminskortur
D vítamínskortur er algengur í vestrænum
löndum en hann getur haft mjög
alvarlegar afleiðingar til lengri tíma.
Skiptir þetta vítamín t.a.m. sköpum
fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, starfsemi
vöðva og fyrir sterkar tennur og bein.
Rannsóknir gefa þó til kynna að það
gegni mun víðtækara hlutverki en talið
var og það sé í raun grundvallarefni
til að viðhalda heilsu, byggja upp
ónæmiskerfið og fyrirbyggja sjúkdóma.
Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi
sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem
tengjast D vítamínskorti. D-vítamín er
talið leika lykilhlutverk gegn bólgum í
líkamanum og skortur getur átt þátt í því
að ónæmiskerfið virkar ekki sem skyldi.
Einnig getur orðið aukin hætta á öllum
helstu krabbameinum, hjartasjúkdómum,
minnisglöpum, sykursýki 1 og 2, MS,
liðagigt, smitsjúkdómum og jafnvel
meðgöngueitrun.
D-vítamínskortur á norðlægum slóðum
Sérfræðingar við Friedman School of
Nutrition Science and Policy hafa birt
rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum
í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra
voru í D-vítamín skorti. Einnig kom þar
fram að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka
húð og/eða lifa á norðlægum slóðum séu
oftar í skorti en aðrir. Í september á síðasta
ári voru birtar niðurstöður klínískra
rannsókna við þennan sama skóla þar
sem skoðað var hvað það þyrfti mikið
magn í daglegri inntöku af D-vítamíni til
að hækka gildin hjá þeim börnum sem
mældust í skorti. Í ljós kom að stærstur
hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e.
(alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í 6
mánuði til að ná ásættanlegum gildum
en hámarksskammtur fyrir 9 ára og eldri
er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að
ef um D-vítamín skort er að ræð
dugir ekki að taka bara ráðlagða
dagsskammt, enda eru eru þeir
hugsaðir til að viðhalda þeim
gildum sem fyrir eru, ekki til
að hækka þau.
Skortur á Íslandi
Landskönnun á mataræði 6
ára barna á Íslandi frá 2011–201
sýndi að einungis um 25% barnanna
fékk ráðlagðan dagskammt eða meira af
D-vítamíni og var neysla fjórðungs barna
undir lágmarksþörf (2,5 μg/dag). Þessar
tölur eru væntanlega orðnar betri í dag
en það er full þörf á stöðugri umfjöllun
þar sem þetta vítamín er okkur svo
lífsnauðsynlegt. Önnur rannsókn frá
2004 leiddi í ljós að 15% Íslendinga 30
ára og eldri þjáist af D-vítamínskorti. En
á þeim tíma taldist vera skortur ef gildin
voru undir 25 nmól/l sem er af mörgum
erlendum sérfræðingum talið allt of lágt
viðmiðunargildi. Síðan þessi rannsókn var
gerð hefur Landlæknisembættið hækkað
skortsmörkin í 50 nmol/l en ákjósanlegast
er að hafa gildin á bilinu 75-125 nmol/l.
Hvar fáum við D vítamín
mín er ekki eins og önnur
mín sem við getum fengið
r fjölbreyttri fæðu en aðeins
um 10% af D-vítamíni
kemur úr matnum. Sólin er
helsta og besta uppspretta
D-vítamíns en það verður
l í líkama okkar vegna
rifa UVB geisla sólarinnar
ina. Þetta gerist eingöngu
þegar hún er mjög hátt á lofti og ef
hún skín á stóran hluta líkamans. Því er
erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að
tryggja sér nægilegt magn nema kannski
rétt yfir hásumarið. Landlæknisembættið
hvetur fólk til þess að taka D-vítamín
sérstaklega á formi bætiefna.
D-vítamín frá fæðingu
Allir þurfa að taka inn D-vítamín og
er ráðlagt að gefa ungabörnum það
nánast alveg frá fæðingu eða um 2 vikna
aldur. D-lúx munnspreyin frá Better
You eru hönnuð sérstaklega með þetta í
huga en munnsprey fyrir yngstu krílin
eru bragðlaus og innihalda ráðlagðan
dagsskammt í einum úða. Munnúði kemur
einnig í veg fyrir magaónot sem margir
kannast við.
Munnsprey frá Better you
Nú er komin heildstæð lína af D-vítamín
munnspreyjum sem henta hverju aldursbili
fyrir sig og í réttum skammtastærðum.
Spreyin eru einnig góð fyrir þá sem vilja
hækka gildin sín og svo eru þau afar
bragðgóð og auðveld í notkun. Munnsprey
er góður kostur þar sem meltingin okkar
getur verið undir álagi og dregið úr frásogi
en með því að úða D-lúx út í kinn förum
við framhjá meltingarkerfinu. DLúx hentar
grænmetisætum og sykursjúkum, sem og
þeim sem eru á glúteinlausu fæði.
Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og heilsuhillur
verslana
Algeng einkenni B-12 skorts:
• Nálardofi í hand- og fótleggjum• Erfiðleikar með gang• Skapsveiflur• Minnisleysi
Munnúði tryggir hraða og góða upptöku þar sem vítamínið frásogast auðveldlega
í gegnum slímhúðina í munninum og beint út í blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum
slímhúð í munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til að tryggja líkamanum
nægjanlegt magn af B12 vítamíni og til að verja okkur gegn skorti.
B12 -MUNNÚÐI SEM VIRKAR
D-vítamín
fyrir ónæmiskerfið
a,
n
2
D-víta
víta
ú
ti
áh
á húð
D-vítamín munnúðarnir:
n Tryggja hámarksupptöku
n Eru sykurlausir og án
gerviefna
n Innihalda 3ja mánaða
skammt í hverju glasi
DLÚX vítamínmunnúði tryggir hámarksupptöku
Munum eftir
D-vítamíninu
ALLA DAGA