Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Qupperneq 11
Þegar kemur að því að viðhalda heilsu okkar árið um kring, þar á meðal á tímum aukinnar áhættu eins og í dag, gegnir næring lykilhlutverki. C-vítamín, hvítlaukur og krydd eins og engifer hefur löngum verið þekkt sem náttúruleg ónæmisörvun, en vaxandi fjöldi klínískra rannsókna sannar að D-vítamín er ósungna hetjan sem við öll þurfum til að halda sýkingu í skefjum. D-vítamín gegnir gríðarlega víðtækuhlutverki í líkamsstarfsemiokkar og hafa fjölmargar rannsóknir gefið okkur vísbendingar um hversu alvarlegar afleiðingar D-vítamín skortur hefur í för með sér. Rekja má allt að 100 mismunandi sjúkdóma og sjúkdómseinkenni til skorts á D-vítamíni. Beinþynning og D-vítaminskortur D vítamínskortur er algengur í vestrænum löndum en hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma. Skiptir þetta vítamín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, starfsemi vöðva og fyrir sterkar tennur og bein. Rannsóknir gefa þó til kynna að það gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu, byggja upp ónæmiskerfið og fyrirbyggja sjúkdóma. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D vítamínskorti. D-vítamín er talið leika lykilhlutverk gegn bólgum í líkamanum og skortur getur átt þátt í því að ónæmiskerfið virkar ekki sem skyldi. Einnig getur orðið aukin hætta á öllum helstu krabbameinum, hjartasjúkdómum, minnisglöpum, sykursýki 1 og 2, MS, liðagigt, smitsjúkdómum og jafnvel meðgöngueitrun. D-vítamínskortur á norðlægum slóðum Sérfræðingar við Friedman School of Nutrition Science and Policy hafa birt rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra voru í D-vítamín skorti. Einnig kom þar fram að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka húð og/eða lifa á norðlægum slóðum séu oftar í skorti en aðrir. Í september á síðasta ári voru birtar niðurstöður klínískra rannsókna við þennan sama skóla þar sem skoðað var hvað það þyrfti mikið magn í daglegri inntöku af D-vítamíni til að hækka gildin hjá þeim börnum sem mældust í skorti. Í ljós kom að stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í 6 mánuði til að ná ásættanlegum gildum en hámarksskammtur fyrir 9 ára og eldri er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um D-vítamín skort er að ræð dugir ekki að taka bara ráðlagða dagsskammt, enda eru eru þeir hugsaðir til að viðhalda þeim gildum sem fyrir eru, ekki til að hækka þau. Skortur á Íslandi Landskönnun á mataræði 6 ára barna á Íslandi frá 2011–201 sýndi að einungis um 25% barnanna fékk ráðlagðan dagskammt eða meira af D-vítamíni og var neysla fjórðungs barna undir lágmarksþörf (2,5 μg/dag). Þessar tölur eru væntanlega orðnar betri í dag en það er full þörf á stöðugri umfjöllun þar sem þetta vítamín er okkur svo lífsnauðsynlegt. Önnur rannsókn frá 2004 leiddi í ljós að 15% Íslendinga 30 ára og eldri þjáist af D-vítamínskorti. En á þeim tíma taldist vera skortur ef gildin voru undir 25 nmól/l sem er af mörgum erlendum sérfræðingum talið allt of lágt viðmiðunargildi. Síðan þessi rannsókn var gerð hefur Landlæknisembættið hækkað skortsmörkin í 50 nmol/l en ákjósanlegast er að hafa gildin á bilinu 75-125 nmol/l. Hvar fáum við D vítamín mín er ekki eins og önnur mín sem við getum fengið r fjölbreyttri fæðu en aðeins um 10% af D-vítamíni kemur úr matnum. Sólin er helsta og besta uppspretta D-vítamíns en það verður l í líkama okkar vegna rifa UVB geisla sólarinnar ina. Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans. Því er erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að tryggja sér nægilegt magn nema kannski rétt yfir hásumarið. Landlæknisembættið hvetur fólk til þess að taka D-vítamín sérstaklega á formi bætiefna. D-vítamín frá fæðingu Allir þurfa að taka inn D-vítamín og er ráðlagt að gefa ungabörnum það nánast alveg frá fæðingu eða um 2 vikna aldur. D-lúx munnspreyin frá Better You eru hönnuð sérstaklega með þetta í huga en munnsprey fyrir yngstu krílin eru bragðlaus og innihalda ráðlagðan dagsskammt í einum úða. Munnúði kemur einnig í veg fyrir magaónot sem margir kannast við. Munnsprey frá Better you Nú er komin heildstæð lína af D-vítamín munnspreyjum sem henta hverju aldursbili fyrir sig og í réttum skammtastærðum. Spreyin eru einnig góð fyrir þá sem vilja hækka gildin sín og svo eru þau afar bragðgóð og auðveld í notkun. Munnsprey er góður kostur þar sem meltingin okkar getur verið undir álagi og dregið úr frásogi en með því að úða D-lúx út í kinn förum við framhjá meltingarkerfinu. DLúx hentar grænmetisætum og sykursjúkum, sem og þeim sem eru á glúteinlausu fæði. Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana Algeng einkenni B-12 skorts: • Nálardofi í hand- og fótleggjum• Erfiðleikar með gang• Skapsveiflur• Minnisleysi Munnúði tryggir hraða og góða upptöku þar sem vítamínið frásogast auðveldlega í gegnum slímhúðina í munninum og beint út í blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til að tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12 vítamíni og til að verja okkur gegn skorti. B12 -MUNNÚÐI SEM VIRKAR D-vítamín fyrir ónæmiskerfið a, n 2 D-víta víta ú ti áh á húð D-vítamín munnúðarnir: n Tryggja hámarksupptöku n Eru sykurlausir og án gerviefna n Innihalda 3ja mánaða skammt í hverju glasi DLÚX vítamínmunnúði tryggir hámarksupptöku Munum eftir D-vítamíninu ALLA DAGA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.