Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Blaðsíða 12
Glatt á hjalla á Hesteyri. Hrólfur
Vagnsson þenur nikkuna í kaffi
eftir leiðsögn um þorpið.
Tvær bandarískar vinkonur á leið til
Hesteyrar. Þær eru frá New York
og ætla að dveljast um skeið á Ís-
landi vegna heimsfaraldursins.
Draugar og dýrð
Sjaldan hafa fleiri Íslendingar ferðast innanlands en
sumarið 2020 enda árferðið með afbrigðilegasta móti.
Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, er þar engin
undantekning en hann varði tæpri viku á Vestfjörðum
ásamt enskri vinkonu sinni, Catherine Sherlock, nú
síðsumars og skilaði sé endurnærður í bæinn.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ljósmyndir
ÁRNI SÆBERG
Blessuð börnin taka á
rás við bryggjuna á
Hesteyri. Veðrið lék
við fólk þennan dag.
Skrúður, elsti skrúðgarður á
Íslandi, er alltaf jafnfallegur.
ferðir inn á Hesteyri. „Það var svo sem ekkert í planinu
hjá okkur en fyrst það bauðst fannst okkur upplagt að
sigla þangað og sjáum ekki eftir því. Það er mjög fallegt á
Hesteyri og gaman að skoða gamla læknisbústaðinn sem
gerður var frægur í kvikmynd Óskars Þórs Axelssonar
eftir sögu Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig. Katherine
varð að vísu ekki um sel eftir að ég sýndi henni stikluna
sem gerð var fyrir myndina enda er Ég man þig drauga-
saga.“
Hann glottir.
Allt fór þó vel og Árni og Katherine komust heilu og
höldnu aftur til Ísafjarðar, drauglaus og reynslunni ríkari.
Þ
að hefur sjaldan verið eins gaman að ferðast
um Vestfirðina og nú í sumar. Fegurðin og
kyrrðin eru engu lík og að þessu sinni tókum
við ferðafélagi minn, Katherine Sherlock frá
Englandi, meðvitaða ákvörðun um að kúpla
okkur frá öllu og fylgjast ekki með neinum miðlum í sex
daga. Við hlustuðum ekki einu sinni á fréttir. Það er auð-
vitað ekkert auðvelt fyrir fréttaljósmyndara en maður
hefur gott af því að gera þetta annað slagið; ekki síst á
tímum sem þessum þegar neikvæðar fréttir tröllríða öllu
vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta var voðalega nota-
legt.“
Þetta segir Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins,
en Sunnudagsblaðið birtir hér aðra myndaopnu frá ferða-
lagi hans um Vestfirði í ágúst. Sú fyrri var í blaðinu fyrir
tveimur vikum.
Þau Katherine fóru vítt og breitt um firðina en hún
hafði ekki í annan tíma litið þá dýrð augum og þótti mikið
til koma. Þau gistu meðal annars tvær nætur á Gemlufelli
í Dýrafirði, skammt frá Núpi, þar sem Árni var tvö ár í
skóla sem unglingur.
Meðal þess sem þau skoðuðu var Skrúður, fyrsti skrúð-
garðurinn á Íslandi, en svo skemmtilega vill til að gamall
kennari Árna, Þorsteinn Gauti Gunnarsson, kallaður Þor-
steinn bjútí, kom með fyrstu blómin þangað. „Þorsteinn
er mjög eftirminnilegur kennari; mikið stærðfræðiséní og
gaf út bækur um það efni.“
Þau vörðu dágóðum tíma á Ísafirði og ber Árni lof á bæ-
inn; stemningin sé þægileg og góð og margt að sjá og
gera.
Þegar þau voru að spóka sig á bryggjunni á Ísafirði
rákust Árni og Katherine á konu sem var að selja dags-
Vaskað upp eftir kaffi-
samsætið í gamla læknabú-
staðnum. Gamla eldavélin
stendur enn fyrir sínu.
Í MYNDUM
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2020