Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2020 LÍFSSTÍLL Englendingarnir frægu náðu jafntefli Enskar sparkmenntir hafalöngum verið í hávegum hafð-ar hér við nyrstu voga. Fyrir vikið varð uppi fótur og fit þegar fréttist að enska landsliðið myndi sækja það íslenska heim í júníbyrjun 1982. Um var að ræða vináttuleik en enska liðið var að búa sig undir þátt- töku á HM á Spáni, sem hófst örfáum dögum síðar, en hið íslenska að stilla saman strengi sína fyrir undankeppni EM í Frakklandi tveimur árum síðar. Englendingar höfðu ekki valið end- anlegan hóp fyrir HM og notuðu leik- inn til að skoða leikmenn sem voru á jaðri hópsins; meðan skærustu stjörnurnar á borð við Kevin Keegan, Bryan Robson, Ray Wilkins og Peter Shilton sátu heima. Það kom þó ekki að sök frá sjónarhóli sparkelskra Ís- lendinga enda menn eins og Glenn Hoddle, Phil Neal, Terry McDermott og Cyrille Regis, sem völdust til verk- efnisins, einnig fastagestir í stofum landsmanna. Á móti kom að nafntog- aðasti leikmaður Íslands, Ásgeir Sig- urvinsson, var ekki með vegna meiðsla. Ekki var síður ástæða til að gleðj- ast yfir úrslitum leiksins en honum lauk með jafntefli, 1:1. Í umsögn Morgunblaðsins daginn eftir kom fram að leikurinn hefði verið enn einn stórsigur fyrir íslenska knattspyrnu og að það hefðu verið Englending- arnir frægu sem náðu jafntefli við þetta tækifæri en ekki öfugt. „Ekki er gott að segja til um við hverju al- menningur bjóst af íslenska liðinu, en ekki er ólíklegt að lengst af hafi frammistaða þess farið fram úr björt- ustu vonum hinna bjartsýnu. Í fyrri hálfleik er skemmst frá að segja að ís- lenska liðið var betri aðilinn og í síð- ari hálfleik mátti lengi vel vart á milli sjá. Hins vegar dró nokkuð af ís- lenska liðinu síðasta stundarfjórð- unginn, enda tveir af bestu mönnum liðsins þá farnir út af meiddir, þeir Arnór Guðjohnsen og Lárus Guð- mundsson,“ skrifaði Guðmundur Guðjónsson blaðamaður í inngangi sínum. Eins og Guðmundur gat um byrj- uðu Íslendingar betur og Joe Corrig- an markvörður Englands þurfti að vera mun betur á verði en Guð- mundur Baldursson, kollegi hans. Fyrsta mark leiksins kom á 22. mín- útu og var því svo lýst í Morgun- blaðinu: „Atli Eðvaldsson náði knett- inum á vallarmiðjunni, lék út á vinstri vænginn og brunaði fram völlinn. Lárus var á vinstri hönd, Arnór á hægri og áður en þeir ensku gátu spornað við stakk Atli glæsilegri sendingu inn fyrir vörnina, í veg fyrir Lárus sem hlaupið hafði í eyðuna. Lárus lék að endamörkunum og renndi knettinum út til Arnórs sem skoraði með þrumuskoti neðst í blá- hornið. Frábært mark!“ Markið kom víst flatt upp á gestina sem áttu erfitt uppdráttar fram að leikhléi. Englendingar byrjuðu seinni hálfleik betur og Guðmundur varði vel aukaspyrnu frá Hoddle. Eftir það sóttu Íslendingar aftur í sig veðrið og Arnór fékk dauðafæri sem Corrigan varði meistaralega. „Ég lagði mig all- an fram við að ná boga á boltann en um leið að hafa skotið fast. Ég mátti ekki fara nær því þá hefði ég þrengt skotvinkilinn um of. Það sem skorti á skotið var að boltinn var ekki alveg nógu hár og í of litlum boga,“ sagði Arnór eftir leik. Arnór og Trausti Haraldsson kom- ust í þokkleg færi áður en Englend- ingar jöfnuðu. „Glenn Hoddle stal knettinum af íslenskum leikmanni á miðjum vallarhelmingi íslenska liðs- ins, óð upp völlinn og sendi knöttinn síðan til Paul Goddard sem gat vart annað en skorað, þó svo að Guð- mundur hafi verið nálægt því að verja,“ stóð í leiklýsingu Morg- unblaðsins en Goddard hafði skömmu áður komið inn á sem varamaður. Gestirnir voru sterkari aðilinn eftir þetta og komust næst því að gera sig- urmarkið þegar miðvörðurinn Rus- sell Osman átti skalla í þverslá. En inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan 1:1-jafntefli. Stórkostlegur leikmaður Morgunblaðið var á því að besti mað- ur íslenska liðsins og reyndar lang- besti maður vallarins hefði verið Arn- ór Guðjohnsen. „Hann er orðinn stórkostlegur leikmaður, sívinnandi, síógnandi, fljótur og teknískur. Einn- ig má geta Janusar Guðlaugssonar, Lárusar Guðmundssonar, Arnar Óskarssonar og Guðmundar Bald- urssonar. Atli og Karl [Þórðarson] áttu mjög góða spretti, en vörn liðsins var hins vegar ekki traust á köflum. Þegar draga tók af íslenska liðinu leyndi sér hins vegar ekki hversu snjall leikmaður Glenn Hoddle er. Peter Withe og varamaðurinn Paul Goddard stóðu einnig mjög vel fyrir sínu. “ Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari var hinn rólegasti þegar Morgun- blaðið hitti hann að máli í leikslok. Hann var búinn að kveikja í pípunni sinni og tottaði hana ótt og títt. „Ánægður með árangurinn, jú að sjálfsögðu. Ég er stoltur af þessum strákum eins og allir Íslendingar geta verið. Þeir eru satt best að segja löngu hættir að koma mér á óvart. Það eina sem ég var hræddur við var það að þeir keyrðu sig alveg út,“ sagði Jóhannes. „Það var fyrst og f remst sterk liðs- heild sem náði þessum góða árangri. Við börðumst vel og megum vel við una að ná jafntefli við enska lands- liðið,“ sagði Arnór Guðjohnsen sem valinn var maður leiksins og hlaut að launum 5.000 króna peningaverðlaun frá fasteignasölunni Húsafelli. Ekki amalegt! Arnór Guðjohnsen (hulinn að hluta) kemur Íslandi yfir gegn Englandi 1982 án þess að Joe Corrigan fái rönd við reist. Ljósmynd/Kristján Örn Enska landsliðið í knattspyrnu verður gestur þess íslenska á Laugardalsvellinum um helgina í fyrsta sinn í 38 ár. Síðast skildu sveitirnar jafnar, 1:1, í sumarbyrjun 1982. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Íslenska liðið lék mjög vel, og verðskuldaði svo sannarlega þessi úrslit. Það var ekkert van- mat hjá okkur til. Við vissum vel að íslenska liðið var sterkt og gat leikið vel. Það er enginn landsleikur auðveldur. Þessi úr- slit hljóta að verða lyftistöng fyrir íslenska knattspyrnu,“ sagði goðsögnin Bobby Robson, sem stýrði enska liðinu í leikn- um í fjarveru einvaldsins, Rons Greenwoods. Sér í lagi var Robson hrifinn af því hversu sterkur varnar- leikur íslenska liðsins var í síðari hálfleiknum en þá varðist liðið mjög vel. Miðvörðurinn Steve Perry- man tók í sama streng. „Þetta er góður árangur hjá ykkur. Það er ótrúlegt að svona margir góðir knattspyrnumenn komi frá ekki fjölmennari þjóð,“ sagði Perryman. Á móti kom að honum þótti völlurinn lélegur. Verðskuldaði úrslitin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.