Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2020
LESBÓK
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
AFKÖST Eitt ákafasta tónleikaband seinni tíma, Metallica, hef-
ur ekki komist á túr síðustu mánuði frekar en aðrar hljóm-
sveitir. Og hvað gera menn þá? Þeir semja nýtt efni. Þetta upp-
lýsti James Hetfield, söngvari og gítarleikari, í samtali við
bandarísku útvarpsstöðina SiriusXM á dögunum. Kvaðst
hann vera kominn með helling af nýju efni án þess að
gefa upp hvað hann hygðist gera við það. Í viðtalinu
kom einnig fram að vel fer um Hetfield en hann býr í
bænum Vail í Colorado, þar sem kórónuveirufarald-
urinn hefur ekki stungið sér eins harkalega niður og
víða annars staðar í landinu. „Ég finn til með fólki í
stóru borgunum. Hérna komumst við enn þá út,
hvort sem það er til að hjóla, fara í flúðasiglingu,
stunda skot- eða fiskveiði – hvað sem er.“
Semur bara og semur
AFP
ALDREI Paul Bostaph, trymbill
málmbandsins sáluga Slayer, staðfesti á
dögunum að hann ætti aðild að verkefni sem
Kerry King gítarleikari sama bands vinnur
nú að og hermt var af á þessum vettvangi fyr-
ir viku. Bostaph gat þess einnig að efninu,
sem King semur, svipaði mjög til Slayer. Þau
tíðindi urðu til þess að aðdáandi nokkur
spurði á Instagram hvort virkilega stæði til
að Slayer kæmi á ný saman án Toms Araya,
bassaleikara og söngvara, sem sestur er í
helgan stein. Ayesha King, eiginkona Kerrys,
tók strax af öll tvímæli um það. „Hafið engar
áhyggjur, þeir verða aldrei SLAYER aftur!“
Þeir verða aldrei Slayer aftur
Tom Araya er enn þá hættur að flytja tónlist.
AFP
Ellen hefur átt betri mánuði.
Síðustu mán-
uðir erfiðir
SPJÓT Andy Lassner, sem verið
hefur einn af aðalframleiðendum
spjallþáttar Ellenar DeGeneres frá
upphafi, viðurkenndi á samfélags-
miðlum í vikunni að undanfarnir
mánuðir hefðu verið erfiðir en öll
spjót standa nú á Ellen og forsvars-
mönnum þáttarins vegna fjölda
ásakana um eitrað andrúmsloft á
vinnustað. Það væri lygi að halda
öðru fram en á móti kæmi að fólk
lærði gjarnan mest um sjálft sig og
þroskaðist mest við erfiðar að-
stæður í lífinu. „En ég er kominn
aftur,“ sagði hann. Sjálf hefur Ellen
beðist afsökunar og heldur enn
starfi sínu en sjónvarpsstöðin sem
sýnir þættina, NBC, hefur heitið því
að taka til í kringum þáttinn.
Þetta er frasi frá Birgi Andr-éssyni myndlistarmanni.Hann sagði þetta gjarnan
þegar hann hafði útskýrt flókna hluti
á sinn einstæða hátt,“ segir Þröstur
Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1,
um heiti á nýjum þætti sínum,
„Svona er þetta“, sem fer í loftið kl.
9.05 í dag, sunnudag.
Í þættinum er ætlunin að ræða við
forvitnilegt fólk, stjórnmálamenn,
fræðimenn, listamenn og aðra, sem
hafa sérþekkingu á tilteknum málum
eða búa að áhugaverðri reynslu.
„Hugmyndin er að fá viðmælandann
hverju sinni til að segja hlustendum
hvernig hlutirnir eru en um leið fáum
við að kynnast honum sjálfum; hver
hann er, hvaðan hann kemur og svo
framvegis,“ segir Þröstur.
Þáttur Ævars Kjartanssonar,
Samtal, var áður á dagskrá á þessum
sama tíma og að sögn Þrastar er nýi
þátturinn rökrétt framhald af hon-
um. Ævar lét sem kunnugt er af
störfum hjá Rás 1 um liðna helgi fyrir
aldurs sakir.
„Ævar var lengi með þátt á sunnu-
dagsmorgnum þar sem hann fjallaði
um allt mögulegt og setti mál á dag-
skrá með því að ræða við sérfræðinga
á hinum og þessum sviðum. Oftar en
ekki tengdist umfjöllunin straumum
og stefnum í samfélaginu. Söguleg,
trúarleg og kirkjuleg málefni voru
honum gjarnan hugleikin, eins
menntamál, menning og ýmislegt
fleira. Okkur fannst ástæða til að
halda áfram á svipaðri braut og bjóða
upp á umræðu um hugmyndaleg efni
og samfélagsleg mál og freista þess
að svara stærri spurningum.“
– Ævar Kjartansson er goðsögn í
íslensku útvarpi. Hvernig leggst í þig
að fara í hans stóru skó?
„Ég vona að ég lendi ekki í því að
verða borinn saman við Ævar; það
kæmi líklega ekki vel út fyrir nokk-
urn mann,“ svarar Þröstur hlæjandi.
„Ég ætla bara að gera þetta á minn
hátt og hlakka mikið til að byrja. Það
er algjör draumastaða fyrir útvarps-
mann að fá tækifæri til að spjalla við
fólk sem veit hvað það syngur og hef-
ur kafað ofan í tiltekið efni. Það getur
orðið mjög skemmtilegt, bæði fyrir
mig og vonandi hlustendur líka, að fá
innsýn í fólk og fyrirbæri. Þátturinn
er tæplega klukkustundar langur,
þannig að gott svigrúm er til að kafa
vel ofan í málin.“
Gestur Þrastar í fyrsta þættinum í
dag verður Eiríkur Bergmann
stjórnmálafræðingur en hann gaf í
sumar út bókina Neo-Nationalism:
The Rise of Nativist Populism, sem
fjallar um nýþjóðernishyggju og po-
púlisma í alþjóðlegu samhengi.
„Þetta er mjög heit umræða og
nægir í því sambandi að nefna þjóð-
arleiðtoga eins og Trump, Pútín og
Erdogan,“ segir Þröstur, „auk þess
Þröstur Helgason,
dagskrárstjóri Rásar 1.
Ætlunin að
svara stærri
spurningum
„Svona er þetta“ nefnist nýr þáttur sem hefur
göngu sína á Rás 1 kl. 9.05 í dag, sunnudag. Þar
mun Þröstur Helgason, dagskrárstjóri rásarinnar,
fá til sín gesti sem hafa sérþekkingu á tilteknum
málum eða búa að áhugaverðri reynslu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Eiríkur Bergmann stjórn-
málafræðingur verður
fyrsti gestur Þrastar í dag.
Morgunblaðið/Hari
James Het-
field kann vel
við sig á sviði.