Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Qupperneq 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2020 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Dóra og vinir 09.05 Mæja býfluga 09.20 Adda klóka 09.45 Zigby 09.55 Mia og ég 10.20 Lína langsokkur 10.45 Latibær 11.10 Lukku láki 11.35 Ævintýri Tinna 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.50 The Commons 14.45 Life and Birth 16.20 Kviss 17.05 FC Ísland 17.30 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.50 Sportpakkinn 19.00 Bibba flýgur 19.25 Steinda Con: Heimsins furðulegustu hátíðir 20.00 Who Wants to Be a Millionaire 20.55 Grantchester 21.45 Mystery 101: An Education in Murder 23.10 Wentworth 00.05 Queen Sugar ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Uppskriftað góðum degi á Norðurlandi vestra – þáttur 2 20.30 Eitt og annað af flugi Endurt. allan sólarhr. 15.00 Joel Osteen 15.30 Charles Stanley 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 20.00 Mannamál – sígildur þáttur (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Allt annað líf Endurt. allan sólarhr. 14.15 Dr. Phil 15.00 Carol’s Second Act 15.25 90210 16.30 Family Guy 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 17.35 A Million Little Things 18.20 This Is Us 19.05 Með Loga 20.00 The Block 21.20 The Act 22.15 Billions 23.10 Love Island 00.05 Hawaii Five-0 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Tríó. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.05 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Sel- tjarnarneskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Jazzhátíð Reykjavíkur 30 ára. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Að spila fyrir lífi sínu. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Orð um bækur. 20.35 Gestaboð. 21.30 Úr gullkistunni. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Friðþjófur forvitni 07.39 Klingjur 07.50 Lalli 07.57 Grettir 08.08 Nellý og Nóra 08.15 Robbi og Skrímsli 08.37 Hæ Sámur 08.44 Unnar og vinur 09.07 Múmínálfarnir 09.29 Sammi brunavörður 09.39 Þvegill og skrúbbur 09.43 Millý spyr 09.50 Benedikt og skrímslið 10.00 Reikistjörnurnar 11.00 Silfrið 12.10 Í góðri trú – saga ís- lenskra mormóna í Utah 12.50 Risaeðluslóðir 13.45 Svanfríður 14.35 Strandir 15.10 Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni 15.35 Fjölskyldubíó: Zootropolis 17.20 Menningin – samantekt 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 99% norsk 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Smáborgarasýn Frímanns 20.05 Í góðri trú – saga ís- lenskra mormóna í Utah 21.00 Innrásin frá Mars 21.55 Norrænir bíódagar: Ég elska þig – Skilnaðar- grín 23.25 Hljóðrás: Tónmál tím- ans – 11. september 12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í gleðinni með K100. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins. 18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt kvöld. Dj Dóra Júlía finnur ljósa punktinn í tilverunni og flytur góðar fréttir reglulega á K100. Í vikunni fjallaði hún meðal annars um hversu mikilvægt það væri að brjóta upp daglegt líf nú þegar hversdagslegra líf haustsins tekur við. „Hamingjan er ekki endilega háð því hversu mikið er að gerast í sífellu,“ segir Dóra. „Það að vera á ferð og flugi um allan heim með allt í botni er ekki endilega lykillinn. Ég held að þetta ár hafi kennt okkur það og svo margt fleira. Í gær var ég ekki upp á mitt besta og lítil í mér svo ég ákvað að skrifa niður lista af hlutum sem veittu mér hlýju og gleði. Ég gríp gjarnan í skrifin og finn hvernig það léttir lund mína í hvert ein- asta skipti. Það að einfaldlega fara í göngutúr og sund breytti deginum algjörlega til hins betra. Eftir það skellti ég mér á listasafn og gleymdi mér stundarkorn í annarri vídd þar sem listaverkin tóku yfir það sem beið fyrir utan safnið. Ég fór endurnærð út í daginn, umvafin þeirri list sem tilveran er í raun og veru. Leyfum okkur að gleyma okkur stöku sinnum, látum hugann reika og sköpum okkar eigin lífsins listaverk.“ Lífsins listaverk Gautaborg. AFP. | Sænski leikstjór- inn Ruben Östlund fékk gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2017 fyrir kvikmyndina Ferninginn (The Square), ádeilu á siðferði í list- heiminum. Í nýrri mynd sinni beinir hann sjónum að því hvað samfélagið er gagntekið af útliti og neyslu í veld- isvexti. Östlund, sem er 46 ára, er nýkom- inn til Gautaborgar frá Spáni þar sem hann hefur verið að klippa nýj- ustu mynd sína, aðra háðsádeilu, sem nefnist Þríhyrningur sorgar (Tri- angle of Sadness) og er hans fimmta mynd í fullri lengd. Þar leggur hann stækkunarglerið að vestrænum gild- um og siðum. Næsti viðkomustaður er Grikkland þar sem tökum verður haldið áfram. Östlund hefur fylgst með mótmæl- um gegn rasisma og ofbeldi lögreglu undir merkjum „Svört líf skipta máli“. Í myndinni Play tók hann fyrir kerfisbundinn rasisma þar sem fimm svartir krakkar ræna þrjá hvíta og einn asískan krakka. „Ég er rasisti, en ég vil ekki vera það. Og það er mun áhugaverðara samtal, að gangast við því að í hóp- hegðun okkar, hvernig við hugsum, eignum við hópum, sem við þekkjum ekki, ýmsa eiginleika. Það er bara eðlilegt sjálfsbjargareðli,“ segir Östl- und í samtali við AFP. „Við erum rasistar, við erum það. En við getum einnig leitast við að vera það ekki og við getum viljað ekki vera rasistar.“ Hann veltir fyrir sér einlægninni í viðbrögðum við stuðandi myndum í fjölmiðlum þar sem sést allt frá of- beldi lögreglu til látinna flóttabarna. „Sterkasta myndin hefur vinning- inn og hvernig tökumst við þá á við öll þessi málefni, sem krefjast sam- hygðar okkar? Á hluttekning okkar á því augnabliki að ráða för?“ spyr hann. Í nýju myndinni tekur hann einnig fyrir góðgerðarmál og kveðst vera þeirrar hyggju að nútímasamfélög missi áttir þegar þau fara að reiða sig á einstaklinginn frekar en ríkið til að tryggja velferð almennings. „Ef ein- hver er atkvæðamikill í góðgerð- armálum þýðir bara eitt; hann er milljarðamæringur,“ segir hann. Þríhyrningur sorgar gerist í heimi ofurmódela og ofurauðkýfinga. Hóp- ur farþega og þjónustustúlkna af lystiskipi verður strandaglópur á eyðieyju þar sem peningar þeirra og staða verða aukaatriði í lífsbarátt- unni. Að lokum snýr þó gogg- unarröðin aftur. Líkt og í tveimur myndum Öst- lunds á undan þessari er aðal- persónan karlmaður í leit að stöðu sinni í heiminum. „Sú var tíðin að það var viðmiðið að vera karl, það var ekki til gagnrýnin, utanaðkomandi sýn á karlinn líkt og nú er,“ segir hann. Myndin fjallar um fyrirsætuna Carl. Ferill hans er á niðurleið, en kona hans, sem er líka fyrirsæta, er á mikilli siglingu. Í fyrirsætuheiminum eru tekjur karla yfirleitt fjórðungur af tekjum kvenna og gefur það Östlund færi á að fara ofan í hvað gerist þegar kynjahlutverkunum er víxlað. Kórónuveirufaraldurinn hefur taf- ið gerð myndarinnar, en Östlund vonast til að geta sýnt hana á kvik- myndahátíðinni í Cannes á næsta ári. Þetta er fyrsta kvikmynd hans á ensku að kröfu eins af þeim, sem fjármagna hana, og hann segir að það sé nýtt fyrir sér. „Skyndilega er maður að keppa á öðrum vettvangi við allar hinar myndirnar á ensku, en áður var mað- ur „áhugaverður leikstjóri myndar á erlendu tungumáli“,“ segir leikstjór- inn. Sænski leikstjórinn Ruben Östlund fjallar um útlits- dýrkun og neysluhyggju í nýjustu mynd sinni. AFP FIMMTA MYND SÆNSKA LEIKSTJÓRANS ÖSTLUNDS Setur siðferði á vogarskálar Stilla úr myndinni Túristi/Hamfarir (Turist/Force majeure) eftir Östlund.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.