Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2020, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2020, Page 19
Morgunblaðið/Ásdís „Bæði stíllinn og úrvalið á Íslandi kom mér ánægjulega á óvart þegar ég flutti hingað fyrst. Einfaldur stíll og hagnýt nálgun heillaði mig. Hins vegar fannst mér eins og það vant- aði eitthvað, ég saknaði hins djarfa, litríka og einstaka í hönnuninni frá Frakklandi. Að búa á Íslandi hefur veitt mér svo mikinn inn- blástur, fyrir það er ég mjög þakklátur. Í staðinn langar mig að deila þekkingu minni, reynslu og ástríðu fyrir gæðahönnun og vörum. Með La Boutique Design langar mig að kynna Íslendingum eitthvað nýtt, klassískt með nútíma-tvisti,“ segir Maxime og tekur fram að í netversluninni sé að finna bæði franska hönnun og líka alþjóðleg merki sem Maxime langar til að kynna Íslendingum. Hann segist geta keppt í verði miðað við það sem gengur og gerist á meginlandi Evrópu með því að vera eingöngu með netverslun. Þrátt fyrir að um netverslun sé að ræða segir hann þjónustustigið hátt. Hann sendir frítt heim á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem fólk getur haft samband og fengið hjálp við val á draumahúsgagninu. „Hugmyndin var ekki bara að skapa vett- vang fyrir franska hönnun heldur var mark- miðið líka að bjóða upp á frábært úrval af vist- vænni hönnun. Hönnun þar sem áhersla er lögð á virðingu fyrir jörðinni og fólki. Við ger- um þeim framleiðendum hátt undir höfði í búðinni með Eco Label sem er stimpill fyrir vistvæna hönnun.“ Hvernig hönnun heillar þig? „Falleg hönnun örvar skynfæri mín og býr til tilfinningar. Lyktin af leðursófanum frá Maxime Sauvageon flytur inn fallega hönnun til Íslands. Það er nauðsynlegt að eiga fallegan spegil. 20.9. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Þú finnur bæklinginn husgagnahollin.is Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 Ísafirði Skeiði 1 DA NS KI R D AG AR AFSLÁTTUR 20%ALLARDANSKAR VÖRUR* * Gildir ekki af sérpöntunum og einungis af völdum vörum frá S kovby. Hv að er u m ar ga r m yn di r a f m ér í þ es su m bæ kli ng i? Ná na r á bl s. 2 S ENDUM FR ÍT T V E F V E R S L U N www.husgagnahollin.is BROSTE BEND Kerti – tvær gerðir, fjórir litir 3.192 kr 3.990 kr 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.