Morgunblaðið - 05.10.2020, Page 1

Morgunblaðið - 05.10.2020, Page 1
M Á N U D A G U R 5. O K T Ó B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  234. tölublað  108. árgangur  YFIRGENGILEG OG SJARMER- ANDI Á SVIÐI REYKJA- LUNDUR 75 ÁRA Í ÁR ÍSLANDSBIKAR- INN Á LEIÐ Í KÓPAVOGINN AFMÆLI FAGNAÐ 10 BLIKAKONUR Í GÍR 26KÓPAVOGSKRÓNIKA 29 Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Neyðarstig almannavarna var virkjað í gær og hertar samkomutakmarkan- ir tóku gildi á miðnætti. Þær gilda í að minnsta kosti tvær vikur. Aðstæður verða metnar reglulega á þessum tveimur vikum að sögn sóttvarna- læknis. Samkomutakmarkanir miðast nú við 20 manns nema í undantekning- artilvikum. Í framhalds- og háskólum miðast samkomutakmark við 30 manns en aðgerðir voru ekki hertar í leik- og grunnskólum. Undantekning er einnig gerð á útförum þar sem fjöldi takmarkast við 50 manns. Leik- hús geta haldið starfsemi sinni óbreyttri og er samkomutakmark þar 100 manns og grímuskylda. Líkams- ræktarstöðvar, skemmtistaðir, krár og spilasalir eru lokaðir en sundlaug- ar verða áfram opnar. Áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaviðburðum innanhúss en utandyra er heimilt að hafa áhorfendur, allt að 100 í hverju rými, að því gefnu að gestir sitji í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn og noti andlitsgrímu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir varasamt að grípa til mishertra að- gerða eftir landshlutum en markmið- ið með aðgerðunum er að minnka heildarfjölda smita á landinu. Um 40 manns eru á biðlista eftir meðferð vegna Covid-19 á Reykja- lundi. Faraldurinn er enn í vexti á heimsvísu en yfir 35 milljónir hafa smitast af veirunni og ríflega ein milljón manns látist af völdum hennar. Hertar sóttvarna- aðgerðir taka gildi  Ekki mega fleiri en 20 koma saman næstu tvær vikurnar MErfiðar vikur fyrir … »4, 10 og 13 Nýgengi smita: 148,4 Nýjar reglur frá og með í dag 150 100 50 0 Hvað má? Hvað má ekki? Jólaskreytingar settar upp í stórverslunum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðabæ á dögunum. Hinum megin við götuna, í stórverslun Costco, eru ýmsar jólavörur nú komnar í sölu. Víst er að margir fara nú að hlakka til jólahátíðarinnar enda erfitt ár að baki. Í dag eru þó enn 80 dagar til jóla. Áhuginn leyndi sér ekki í augum barnanna þegar þau virtu fyrir sér jólaskreytingar sem verið var að setja upp í IKEA í Andrés Magnússon andres@mbl.is Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent Íslandi lokaviðvörun í samn- ingsbrotamáli, sem stofnunin hefur haft til meðferðar undanfarin átta ár. ESA telur að Ísland hafi ekki uppfyllt skuldbindingar um fram- kvæmd samningsins og vill að Evr- ópulöggjöf, sem hér hefur verið inn- leidd, gangi framar landslögum í íslensku réttarfari. Stjórn ESA mun ákveða síðar hvort málinu verði vís- að til EFTA-dómstólsins. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið, að enn sé nokkur tími til stefnu, til þess að kynna sjónar- mið Íslands fyrir ESA. „Ég legg hins vegar áherslu á það, eins og við höf- um gert í samskiptum við ESA, að framkvæmd EES-samningsins er síst lakari hér en í hinum aðildarríkj- unum.“ Sigríður Á. Andersen, for- maður utanríkismálanefndar, telur skýrt að íslensk lög gangi framar er- lendum lögum í íslenskum rétti. »2 Ísland fær lokaviðvörun  ESA vill að EES- reglur gangi framar landslögum á Íslandi Morgunblaðið/Sigurður Bogi EES Guðlaugur Þór Þórðarson er ekki uggandi vegna málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.