Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
„Markmið þessara aðgerða er fyrst
og fremst að minnka heildarfjölda
smita á landsvísu,“ segir Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir. Á mið-
nætti tóku gildi hertar samkomu-
takmarkanir og neyðarstig al-
mannavarna var virkjað. Samkomu-
takmark miðast við 20 manns með
nokkrum undantekningum. Tak-
markanirnar gilda í að minnsta
kosti tvær vikur og verður ástandið
metið reglulega á þessum tveimur
vikum.
„Við erum að reyna að vinna gegn
augnu álagi á Landspítalanum. Þar
fjölgar enn á Covid-göngudeilinni
og margir þar eru nokkuð veikir
þann að það má búast við fleiri inn-
lögnum á næstunni. Svo verðum við
líka að reyna að halda smitum meðal
viðkvæmra hópa í algjöru lágmarki
og helst reyna að koma í veg fyrir að
slíkt gerist með öllu. Þá á ég við
hjúkrunarheimili og þess háttar,“
segir Þórólfur.
Líkamsræktarstöðvum er gert að
loka sem og skemmtistöðum, krám
og spilasölum. Sundlaugar verða
áfram opnar en með þrengri fjölda-
takmörkunum, eða 50 prósent af
leyfilegum fjölda samkvæmt starfs-
leyfi. Leikhús, söfn, hárgreiðslu-
stofur og nuddstofur geta haldið
starfsemi áfram innan samkomu-
takmarkana. Um leikhúsin gildir
áfram 100 manna samkomutakmark
og grímuskylda.
Undantekningarnar á samkomu-
takmarkinu eru að 30 manna sam-
komutakmark er í framhalds- og há-
skólum og 50 manna í útförum.
Veitingastaðir verða áfram opnir til
klukkan 23.
Keppnisíþróttir með snertingu
verða áfram leyfðar með hámarks-
fjölda 50 einstaklinga. Áhorfendur
verða ekki leyfðir á íþróttaviðburð-
um innan húss en utandyra er heim-
ilt að hafa áhorfendur, allt að 100 í
hverju rými, að því gefnu að gestir
sitji í númeruðum sæti sem skráð
eru á nafn og noti andlitsgrímu.
Vinnustaðir, verslanir, opinberar
byggingar og þjónustuaðilar þurfa
að skipuleggja sína starfsemi í sam-
ræmi samkomutakmarkanirnar.
Matvöruverslunum undir 1.000 m²
að stærð er heimilt að hleypa 100
einstaklingum í sama rými á hverj-
um tíma. Til viðbótar verður leyft að
hleypa einum viðskiptavini inn fyrir
hverja 10 m² umfram 1.000 m², þó að
hámarki 200 viðskiptavinum í heild.
Fyrirkomulag landamæraskim-
unar verður óbreytt til 1. desember.
Allir sem koma til landsins þurfa að
fara í skimun við komuna til lands-
ins, fara í fjögurra til sex daga
sótkví og fara í aðra sýnatöku, nema
þeir kjósi fjórtán daga sóttkví.
Á föstudag og laugardag greind-
ust alls 108 manns með jákvætt
smit. Alls voru 33 í sóttkví af þeim
108 sem greindust um helgina.
Á landinu öllu voru 634 í einangr-
un, þar af 13 á sjúkrahúsi og 3 á
gjörgæslu í gær. Í sóttkví voru 2.554
og 1.499 í skimunarsóttkví. Flest
smitin eru á höfuðborgarsvæðinu en
þar eru 530 í einangrun og 1.671 í
sóttkví. Á Suðurlandi eru 36 í ein-
angrun og 679 í sóttkví. Á Vestur-
landi eru 26 í einangrun og 33 í
sóttkví. Fæst eru smitin á Austur-
landi, Norðurlandi eystra og vestra.
Þar eru samtals sex í einangrun og
18 í sóttkví.
Hátt í þúsund nemendur í grunn-
skólum voru settir í sóttkví um
helgina. Samkomutakmörk í leik- og
grunnskólum voru ekki hert og
helst því starfsemi á þeim skólastig-
um óbreytt. Engar hömlur gilda hjá
börnum sem eru fædd 2005 og síðar
en hjá þeim sem eldri eru gildir 20
manna hámarksregla, eins metra
nándarmörk og grímuskylda sé ekki
hægt að virða nándarmörk. Allir 200
nemendur á miðstigi í Norðlinga-
skóla, auk 21 kennara, voru sendir í
sóttkví um helgina eftir að smit kom
upp, 600 manns á Selfossi eru einnig
í sóttkví eftir að smit komu upp í
Sunnulækjarskóla.
Erfiðar vikur fyrir höndum
Neyðarstig almannavarna virkjað og hertar samkomutakmarkanir hafa tekið gildi Líkamsrækt-
arstöðvar, skemmtistaðir og krár loka Sundlaugar áfram opnar en með þrengri fjöldatakmörkunum
Kórónuveirusmit á Íslandi Heimild:covid.is
2.921 staðfestsmit Nýgengi innanlands 3. okt.
148,4 ný smit sl. 14 dagaá 100.000 íbúa
13 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,þar af 3 á gjörgæslu
287.010 sýni hafaverið tekin
Þar af í landamæraskimun
153.101
sýni, samtals í skimun 1 og 2
1.499 einstaklingar eruí skimunarsóttkví2.554 einstaklingareru í sóttkví
634 eru með virktsmit og í einangrun
Nýgengi smita frá 30. júní
150
100
50
0
148,4
7,4
Nýgengi innanlands
Nýgengi, landamæri
júlí ágúst september
Fara í
leikhús
Fara í
klippingu
Fara í nudd
Fara á leiki
innanhúss
Spila í spilakassanum
Fara á
barinn
Hertar reglur taka gildi í dagÞETTAMÁ ÞETTAMÁ EKKI
Fara í sund
Fara í
ræktina
Tryggvi Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Bjargs, líkamsrækt-
arstöðvar á Akureyri, kallaði eftir
því um helgina að reglur um lokanir
verði í samræmi við alvarleika far-
aldursins í hverjum landshluta.
„Það hefur varla farið fram hjá
neinum að smitum hefur fjölgað til
muna síðustu tvær vikur, á höf-
uðborgarsvæðinu. Smit á Norður-
landi vestra-eystra og Austurlandi
hafa varla mælst. En samt á að loka
líkamsræktarstöðvum á öllu land-
inu,“ sagði Tryggvi í pistli á Face-
book.
Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir segir að varasamt geti
verið að grípa til mishertra aðgerða
eftir landshlutum. Hann segir að ef
gripið yrði til hertra aðgerða aðeins
á höfuðborgarsvæðinu en ekki ann-
ars staðar gæti staðan versnað á
öðrum svæðum. Þá þyrfti að losa
um á höfuðborgarsvæðinu en herða
úti á landi. „Það er ekki gott að vera
í slíkum eltingarleik við þessa veiru
og við viljum auðvitað ná að keyra
heildarfjölda smita niður á lands-
vísu, þess vegna grípum við til sömu
aðgerða alls staðar,“ sagði Þórólfur.
Víðir Reynisson, yfirlög-
regluþjónn almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra, segir að það hafi
verið skoðað að skipta aðgerðum
eftir landshlutum við ákvörðun
nýrra og hertra aðgerða sem tóku
gildi á miðnætti. „Við skoðuðum al-
veg að skipta þessu niður eftir
landshlutum, þ.e.a.s. að það yrðu
mögulega hertar aðgerðir á einum
stað en rýmri annars staðar. Nið-
urstaðan var hins vegar sú að stað-
an núna kallaði á aðgerðir á öllu
landinu,“ sagði Víðir.
Vill ekki fara í elting-
arleik við veiruna
Hertra aðgerða þörf um land allt
Leikhúsin munu geta haldið starf-
semi sinni áfram þrátt fyrir hertar
samkomutakmarkanir. Hundrað
manna samkomutakmark er í gildi
í leikhúsunum og grímuskylda
meðal gesta. Brynhildur Guðjóns-
dóttir borgarleikhússtjóri segir
það ekkert launungarmál að það
sé ekki rekstrarlega hagkvæmt að
sýna fyrir tæplega hálfum sal en
þau séu að vernda störf og næra
þjóðarsálina á þessum erfiðu tím-
um. Sýningin Oleanna var frum-
sýnd um miðjan september og
helgina var Útlendingurinn –
morðgáta frumsýnd og gekk að
sögn Brynhildar vel. „Við sjáum
hag í því andlega að fá gesti í hús-
ið. Við erum að vernda störf og
halda lífi í leikhúsinu og það gefur
okkur mikla gleði. Gleðin og nær-
ingin sem þetta gefur okkur öllum
er ómetanleg,“ segir Brynhildur.
Hún segir að ákvörðun verði tekin
í dag um hvort eitthvað breytist í
starfsemi leikhússins.
Leikhúsin halda
starfsemi áfram
Ekki rekstrarlega hagkvæmt