Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.10.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég þekki ekkert hvort það var alger nauðsyn að ráðast í þessar fram- kvæmdir. Ég held að það sé yfirleitt bara vaðið áfram án þess að hugleiða mikið. Mér finnst þetta vera skelfi- leg meðferð á náttúruminjum,“ segir Helgi Björnsson jökla- fræðingur. Framkvæmdir eru nú hafnar á Veðurstofureitn- um svonefnda. Íbúabyggð á að rísa þar sem nú eru veðurmælar Veð- urstofunnar en þeir verða færðir á reit vestan megin við Veðurstöðina. Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra, hefur bent á það á Facebook-síðu sinni að brotinn hafi verið niður klett- ur með jökulristum til að rýma fyrir byggðinni. Virðast margir vera ósátt- ir við að slíkar náttúruminjar séu látnar víkja. Morgunblaðið spurðist fyrir um það hvort Umhverfisstofnun eða Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) hafi fengið erindi vegna umræddra framkvæmda og reyndist svo ekki vera. Í svari við fyrirspurn blaðsins fengust þær upplýsingar frá NÍ að starfsmenn stofnunarinnar hafi ekki skoðað svæðið eftir að framkvæmdir hófust. „Jökulsorfnar klappir sem við sjáum í Öskjuhlíð og við hús Veður- stofunnar eru vitnisburður um ísald- arjökulinn sem lá yfir landinu á ísöld en hörfaði fyrir um 12.000 árum. Jök- ulrákir og hvalbök finnast víða í grá- grýtismyndun höfuðborgarsvæðisins. Öskjuhlíðin og nágrenni þess er vissulega áhugavert svæði og það er á náttúruminjaskrá sem „aðrar nátt- úruminjar“ en hefur ekki verið frið- lýst. Mörk náttúruminjasvæðisins ná ekki yfir svæðið austan við Bústaða- veg og því er umrætt framkvæmda- svæði án verndar skv. Náttúruvernd- arlögum,“ sagði í svari NÍ. Í svarinu er jafnframt bent á að við Litlu Öskjuhlíð, skammt frá umrædd- um framkvæmdum, er útilistaverk sem nefnist „Streymi tímans“ eftir Sólveigu Aðalsteinsdóttur frá 2012. „Verkið byggir einmitt á jökulsorfn- um klöppum svæðisins,“ segir í svari NÍ. Þær upplýsingar fengust frá Um- hverfisstofnun að fimm svæði á höf- uðborgarsvæðinu, sem sambærileg eru svæðinu á Veðurstofureit, væru friðlýst. Þau eru í Laugarásnum í Reykjavík, við Hamarinn í Hafnar- firði, Borgir í Kópavogi (við kirkjuna), á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi og Víghólar í Kópavogi. Helgi Björnsson segir í samtali við Morgunblaðið að betur hefði mátt huga að varðveislu hvalbaka. Aðeins séu örfáar leifar orðnar eftir af þess- ari „stórkostlegu náttúrusköpun“ á höfuðborgarsvæðinu. „Það er gaman að sjá hvernig jökull mótaði land hér inni í borginni. Ég hef hins vegar séð hvalbök fara undir hús eða undir mal- bik og stéttir. Og fleiri slíkar minjar,“ segir hann. Hann segir að á Grímsstaðaholtinu, rétt handan við Suðurgötu, sé enn að finna leifar. „Ég veit ekkert hvað verður úr þeim, hvernig skipulagið er hugsað. Hins vegar er til fyrirmyndar að smá svæði hefur verið þyrmt við Stúdentagarðana. Það setur skemmtilegan svip á umhverfið þar.“ Helgi segir að það sé svo sem ágætt að finna megi fimm svæði sem séu friðuð. „En það væri hægt að bjarga fleirum ef menn yfirleitt hugsuðu um það. Ég vil að menn hafi þetta að minnsta kosti í huga og hvet til að reynt verði að hlífa þessum minjum ef hægt er.“ Skelfileg meðferð á náttúruminjum  Jökulsorfnar klappir brotnar niður á Veðurstofureitnum  Mælar Veðurstofunnar færðir til að rýma fyrir nýrri byggð  „Stórkostleg náttúrusköpun,“ segir jöklafræðingur  Svæðið á náttúruminjaskrá Helgi Björnsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veðurstofureitur Búið er að brjóta upp berg með jökulristum til að koma fyrir mælitækjum Veðurstofunnar á nýjum stað vestan megin við húsið. Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Sameiningarnefnd Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar sam- þykkti á fundi sínum fyrir helgi að leggja til við sveitarstjórnir að þau hefji formlegar sameiningarviðræður sem endi með kosningu íbúa í júní. Til stendur að halda fund í hverju sveitarfélagi fyrir sig á næstu vikum og að búið verði að fjalla um tillöguna fyrir 21. október. Samhugur um sam- eininguna hefur ekki ríkt á svæðinu en var kallað til þess í bókun sveit- arstjórnar Skagastrandar í janúar að hafna tillögu Sigurðar Inga Jóhanns- sonar sveitarstjórnarráðherra um sameiningu sveitarfélaga þar sem íbúafjöldi er undir 1.000 manns. Jón Gíslason, oddviti Húnavatns- hrepps og formaður sameining- arnefndarinnar, segir tímabært að taka ákvörðun í þessu máli og kanna áhuga íbúa í sveitarfélögunum á sam- einingu. Sveitarfélögin hafa átt í óform- legum viðræðum í þrjú ár og eru loks komin að niðurstöðu. Mikil samvinna hefur verið á milli sveitarfélögunum um langt skeið og eru þau saman í byggðasamlagi um meðal annars fé- lags- og skólaþjónustu. „Þetta Covid-ástand hefur tafið okkur heldur betur í þessu. Við höf- um ekki komist í það sem við höfum ætlað okkur. Við höfum ítrekað ætlað að halda íbúafundi sem frestuðust.“ Jón segir ástæðuna fyrir því að ákvörðun hafi loks verið tekin í mál- inu sé fyrst og fremst krafa stjórn- valda um að stækka og efla sveit- arstjórnarstigið. „Það er orðinn almennur vilji á að láta á það reyna í kosningum,“ segir Jón. Íbúafjöldi sameinaðs sveitarfélags í Austur- Húnavatnssýslu myndi verða 1.907. Fjölmennasta sveitarfélagið er Blönduósbær en þar búa 938 manns. Á Skagaströnd búa 473 manns í Húnavatnshreppi búa 371 manns. Fámennasta sveitarfélagið er Skaga- byggð en þar búa 90 manns. „Við höfum stefnt að því að nýta þrýsting um sameininguna við stjórnvöld að koma með einhverja innspýtingu í atvinnulíf og sam- göngumál hér á svæðinu, eins og gerðist fyrir austan. en það eru erf- iðir tímar núna og erfiðara að ná ein- hverju slíku fram. Það er kannski hluti af ástæðunni að það hefur dreg- ist að taka þessa lokaákvörðun,“ seg- ir Jón. Hefja formlegar við- ræður um sameiningu  Sveitarfélög í Austur-Húnavatnssýslu kanna áhuga íbúa Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skagaströnd Formlegar viðræður um sameiningu eru hafnar. Uppboð stjórnvalda á fiskveiðikvóta í Namibíu þykir hafa farið fullkom- lega í vaskinn í liðinni viku, þegar aðeins tókst að koma um 1,3% af kvótanum út. Talið er að þar hafi namibísk stjórn- völd orðið af jafnvirði um 6 milljarða króna, en að tjón hagkerfisins geti numið um 25 ma. kr. Þetta er fyrsta kvóta- uppboð í Namibíu, en þar var boðinn upp kvóti í þremur tegundum, 11.000 t af lýsingi, 72.000 t af hrossamakríl og 392 t af skötusel. Aðeins voru seldar heimildir fyrir 100 t af lýsingi og 1.517 af hrossamakríl, en ekkert af skötusel. Fiskveiðar í landinu eru því í nokkru uppnámi og óljóst um framhaldið. Þátttaka í uppboðinu var mjög dræm, mikið af nýgræðingum án skipa eða veiðireynslu. Aðeins fimm bjóðendur gátu svo staðið við tilboðin þegar á reyndi, fyrir alls 8,4 milljónir namibískra dala, en það er jafnvirði um 86,5 milljóna ís- lenskra króna. Stjórn- völd höfðu vænst jafn- virðis tæpra 6 ma.kr. í uppboðinu, svo þessar lyktir eru mikið áfall, bæði fyrir ríkissjóð Namibíu og fiskveiði- stjórn þar, sem sætt hef- ur mikilli gagnrýni. Fyrra fyrirkomulag, þar sem kvóta var út- hlutað gegn gjaldi, hefði skilað um 315 milljónum namibíudala í ríkiskassann þar syðra, jafnvirði um þriggja milljarða ís- lenskra króna. Félög tengd Samherja tóku ekki þátt í uppboðinu, en á föstudag lauk einmitt rannsókn á úthlutun fiskveiði- heimilda í Namibíu, þar sem grunur er uppi um spillingu á umliðnum ár- um. Málinu hefur nú verið komið til saksóknara. Kvótauppboð í Namibíu í vaskinn  Aðeins 1,3% fiskveiðiheimilda seldust  Tugmilljarða tjón þjóðarbúsins Forsíða The Namibian: „Uppboðið endar með tárum“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.