Morgunblaðið - 05.10.2020, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
Sláum nýjan
tón í Hörpu
Við óskum bæði eftir áhugasömum
rekstraraðilum og hugmyndum
einstaklinga að skemmtilegum
nýjungum á neðri hæðum í Hörpu
Nánar á harpa.is/nyr-tonn
.
Út er komin Skýrsla
starfshóps um orku-
öryggi á heild-
sölumarkaði fyrir raf-
orku sem beðið hefur
verið síðan september í
fyrra. Oft er erind-
isbréf nefnda birt í
upphafi svona skýrslna
en svo er ekki í þessu
tilviki. Fyrir fram hefði
maður haldið að nefnd-
inni væri ætlað að
fjalla um það sem tæknimenn nefna
orkuöryggi orkukerfisins og var
meginsjónarmið við hönnun vatns-
orkuvera hér áður fyrr. Þeir mark-
aðsmenn sem sátu í þessari nefnd
virðast þó hafa misst tengslin við
tæknimenn fyrirtækjanna og fjalla
mest um aflöryggi á markaðslegum
forsendum. Slíkt rof á tengslum
kemur fyrst og fremst niður á því
áhættumati sem þessi nefnd hefði
átt að sinna.
Ein megintillaga nefndarinnar er
þessi: „Í raforkulögum komi fram
hvaða sjónarmið skuli leggja til
grundvallar við mat á því hvað teljist
fullnægjandi framboð á raforku.
Viðmiðin verði nánar útfærð í reglu-
gerð sem ráðherra setur.“ Hér virð-
ist nefndin leggja til að löggjafinn og
ráðherra framkvæmi
það verk sem nefndinni
var ætlað að gera, það
er að skilgreina um
rædd viðmið.
Orkuöryggi almenn-
ings snýst um það
hvort það er rafmagn í
innstungunni eða ekki.
Það getur horfið út af
aflskorti, en kemur þá
venjulega aftur innan
skamms tíma. Það get-
ur líka horfið út af
vatnsskorti í lónum og
kemur þá væntanlega ekki aftur fyrr
en næsta vor. Sem dæmi um hættu
sem getur valdið orkuskorti má
nefna þann möguleika að Hálslón
fyrir austan tæmist. Þar með dettur
Fljótsdalsvirkjun að mestu út úr
framleiðslu og raforkuskortur verð-
ur í landinu. Þar breytir litlu þótt
nóg vatn sé í Þórisvatni, því virkj-
anir á því svæði eru ekki nógu stórar
til að bæta úr. Til að koma í veg fyrir
þetta stjórnar Landsvirkjun lónum
sínum svo í þeim lækki nokkuð jafn-
hratt. Stærð lóna og stjórnun þeirra
er fyrsta atriðið sem líta ber á þegar
öryggi raforkukerfisins er rætt. Í
skýrslunni er sjaldan minnst á lón
og þá aðeins í því samhengi að þau
megi nýta til að tryggja öryggi orku
frá vindmyllum. Tæknimennirnir
sem hönnuðu orkukerfið virðast
hafa verið víðs fjarri.
Ef vatnsskortur kemur upp áður
en tenging kemur til útlanda er
hægt að láta álverin draga úr fram-
leiðslu og láta þau hafa annað ál í
staðinn. Eftir að tenging kemur þarf
sérstaka löggjöf sem gerir kleift að
grípa inn í ef sala eftir strengnum er
að tæma lónin. Nefndin gerir sér
hvort tveggja ljóst án efa, en skrifar
ekki um það.
Á raforkumarkaði hér ríkir fá-
keppni milli framleiðenda. Slíkir
markaðir hafa þá eiginleika að leita
ekki í jafnvægi framboðs og eft-
irspurnar heldur í svokallað Nash-
jafnvægi sem skilgreint er í leikja-
fræði. Enda segir í skýrslunni: „Eft-
irspurn eftir raforku á almennum
markaði hefur vaxið undanfarin ár
án þess að markaðurinn hafi brugð-
ist við að ráði, þ.e. breytingar á
orkujöfnuði hafa haft takmörkuð
áhrif til breytinga á verðlagningu. Af
þessu má ráða að skilaboð frá mark-
aðnum hafi ekki ratað út í sam-
félagið.“ Fleiri milliliðir á markaði
ráða hér ekki bót á. Síðan er í skýrsl-
unni farið út í að ræða aukningu á
virkni markaða og fjölgun heild-
söluaðila ásamt atriðum sem lúta að
viðskiptaöryggi þeirra. Það á lítið
skylt við orkuöryggi.
Við höfum hér á landi innleitt lög-
gjöf ESB um raforkumarkaði og því
eðlilegt, eins og gert er í skýrslunni,
að leita fordæma í lögum og reglum
raforkumarkaða þar þegar rætt er
um öryggi notenda rafmagns í víð-
um skilningi. Þar finnast líka dæmi
um ýmsar ráðstafanir sem eiga að
tryggja öryggi notenda en hvetja um
leið til lágmarksfjárfestinga í vél-
arafli því sem breytir orku elds-
neytis í raforku. Þetta tvöfalda
markmið, hámörkun öryggis not-
enda og lágmörkun kostnaðar, er
ekki rætt í skýrslunni, en þetta
tvennt fylgist að.
Þau fordæmi sem er að finna á
raforkumörkuðum Evrópu lúta flest
að því að tryggja það sem tækni-
menn hér á landi nefna aflöryggi.
Orkuöryggi er þar í höndum elds-
neytismarkaða sem útvega stærst-
um hluta orkuveranna þar orku í
formi eldsneytis til raforkuvinnslu.
Sérstaða Íslands er sú að hér eru
orkuverin ekki tengd eldsneytis-
mörkuðum heldur náttúrunni sem
leggur þeim til orku.
Orkuöryggi hér er í því fólgið að
tryggja nægt framboð orku öllum
stundum óháð duttlungum náttúr-
unnar, sem skiptir sér ekki af nein-
um markaðslögmálum. Þetta hafa
tæknimenn orkufyrirtækjanna, þeir
sem hanna virkjanir og orkukerfið,
haft að leiðarljósi alla tíð. Ástæða
þess að þessir tæknimenn hafa svo
lítið komið að málum sem skýrslan
ber með sér kann að vera sú, að raf-
orkufyrirtækin telja þekkingu
þeirra og reynslu til leyndarmála. Sé
svo er það sameiginlega áhættumat
sem nefndin átti að vinna næsta
ókleift.
Séð í þessu ljósi er sú ráðlegging
nefndarinnar, að stjórnvöld axli sjálf
ábyrgð á raforkuörygginu til langs
tíma, eðlileg. Heildsölumarkaður
raforku samkvæmt reglugerðum
ESB verður tæplega til þess sniðinn
að tryggja Íslandi það raforkuöryggi
sem eyja í Norður-Atlantshafi
þarfnast. Þessi skýrsla færir okkur
ekki nær því marki. Stjórnvöld
verða nú að huga að því hvernig ör-
yggismálum verður best fyrir komið
í stjórnkerfinu, afla þeirrar sérþekk-
ingar sem til þarf og hefjast handa
fyrr en síðar.
Um orkuöryggi
Eftir Elías Elíasson » Orkuöryggi hér er í
því fólgið að tryggja
nægt framboð orku öll-
um stundum óháð duttl-
ungum náttúrunnar.
Elías Elíasson
Höfundur er sérfræðingur
í orkumálum.
eliasbe@simnet.is
Flest höfum við lent
í því að vinur eða ætt-
ingi hefur greinst með
krabbamein og því
miður er það svo að
margir látast úr þess-
um sjúkdómi innan
fárra ára þrátt fyrir að
fara í það sem oft er
sagt besta hugsanlega
meðferð. Því miður er
það svo að þær með-
ferðir sem aðallega eru notaðar hér-
lendis virðast í um helmingi tilfella
ekki ráða við sjúkdóminn nema í ör-
fá ár og ef sjúklingur spyr um aðra
möguleika er svarið oftast að þetta
sé eina raunhæfa meðferðin og tal
um annað sé draumórar og óábyrgt
hjal.
Ég hef áður skrifað um Harry
Hoxsey og meðferð hans. Meðferðin
var fólgin í því að taka inn jurtaseyði
sem í dag er kallað Hoxsey-tónik,
taka inn ákveðin bætiefni og vítamín
og fylgja hreinu mataræði, t.d. forð-
ast sykur, hvítt hveiti o.fl. Meðferð
hans var mjög vinsæl í Bandaríkj-
unum frá 1925 til 1955. Þá var hann
kominn með starfsemi í 13 ríkjum
Bandaríkjanna og það
fannst sumum of mikið
af svo góðu og starf-
semi hans var stöðvuð
og sagt að hann væri að
nota aðferðir sem væru
ekki vísindalega sann-
aðar, það að aðferðir
hans virkuðu betur en
flest annað virtist vera
aukaatriði. Síðar voru
þeir sem fremst fóru í
aðförinni að honum
dæmdir fyrir að hafa
farið offari. Um þetta
var gerð heimildarmynd sem heitir
„When healing becomes a crime“
eða þegar það að heila verður glæp-
ur.
Þegar starfsemi hans í Bandaríkj-
unum var stöðvuð bað hann sinn
nánasta samstarfsmann, hjúkr-
unarkonuna Mildred, að fara til
Mexíkó og halda starfseminni áfram
þar, sem hún og gerði. Starfsemin er
þar enn í gangi með nákvæmlega
sömu aðferð og Hoxsey notaði. Ef
einhver vill kynna sér meðferðina er
hægt að skoða heimasíðu þeirra á
netinu, www.hoxseybiomedical.com.
Þess má geta að yfirlæknirinn á
stofnuninni vann áður við hefð-
bundnar krabbameinslækningar en
var ekki sáttur við árangurinn og fór
því í nám í náttúrulækningum og var
eftir það ráðinn á Hoxsey clinic.
Ég ætlaði annars í þessari grein
að fjalla um aðra náttúrulega með-
ferð sem er sáraeinföld og flestir
geta því séð um hana sjálfir heima
hjá sér, en það er starfandi heilsu-
stofnun á Malaga á Spáni sem er
með þessa meðferð í gangi;
www.budwigcenter.com. Meðferð
þessa þróaði Johanna Budwig, há-
lærður vísindamaður sem var m.a.
tilnefnd til Nóbelsverðlauna sjö
sinnum. Ég nefni þetta hér vegna
þess að meðferð hennar er sáraein-
föld og því gæti fólk haldið að þetta
væri bara hugdetta búin til í ein-
hverju eldhúsi, en meðferðin er
byggð á margra ára vinnu og rann-
sóknum á virkni og samvirkni ákveð-
inna efna sem eru sem betur fer fá-
anleg í flestum heilsu- og
matvörubúðum.
Líkt og með Hoxsey-meðferðina
er mælt með hollu mataræði, þar
með að sleppa viðbættum sykri,
hvítu hveiti o.fl. Meðferðin byggist á
því að styrkja og efla ónæmiskerfið
sem getur þá ráðið við krabbamein-
ið. Einhverjir lesendur hafa heyrt
talað um súrefnislækningar, sem
m.a. felast í því að auka súrefni í
blóði. Aðferð Johönnu Budwig gerir
þetta á mjög einfaldan hátt. Hún
fann út eftir miklar rannsóknir að
ein besta aðferðin til að auka súrefn-
isupptöku frumna líkamans væri að
borða blöndu af kotasælu og kald-
hreinsaðri hörfræsolíu, gott er að
blanda þessu mjög vel saman t.d.
með töfrasprota, það má blanda út í
þetta ef vill kefír og/eða hreinni líf-
rænni jógúrt. Ef við tökum um það
bil hálfa litla dós af kotasælu og eitt-
hvað af kefír eða jógúrt þarf 4-6
matskeiðar af hörfræsolíu út í það.
Það má hafa smávegis af berjum eða
ávöxtum út í þetta ef vill en að sjálf-
sögðu engan viðbættan sykur eða
sætuefni. Eftir blöndun er þetta um
ein lítil dós og það má skipta henni
niður í 2-3 skammta yfir daginn.
Ég læt hér fylgja í mjög styttu
máli sögu manns sem notaði þessa
meðferð með góðum árangri. Tom
Roland var bara 37 ára þegar hann
10. febrúar 2002 var fluttur með
hraði á sjúkrahús með slæman höf-
uðverk og flökurleika. Hann hélt að
þetta væri slæmt mígreni en skoðun
leiddi í ljós að hann var með illkynja
æxli í heila. Hann fór í aðgerð tveim-
ur dögum síðar þar sem megnið af
æxlinu var skorið burt en læknirinn
sagði honum að svona æxli kæmu
nánast alltaf aftur. Hann gæti próf-
að að fara í geislameðferð en hún
myndi væntanlega bara auka lífs-
líkur hans úr sex mánuðum í tólf.
Tom prófaði að fara í geislameðferð
en hætti henni fljótt því hún var
mjög kvalafull. Þau hjónin fóru að
skoða aðra möguleika og var bent á
Budwig-kúrinn sem hann byrjaði
strax á, tvisvar á dag, hann tók auk
þess inn mulið hákarlabrjósk í töflu-
formi 750 mg 3 x á dag og konan
hans nuddaði höfuð hans með ilm-
kjarnaolíu. Við skoðun eftir þrjá
mánuði hafði ekkert nýtt æxli mynd-
ast og þremur mánuðum þar á eftir
voru allar eftirstöðvar æxlisins
horfnar. Johanna Budwig taldi best
að halda meðferð áfram í 3-5 ár til að
hindra endurkomu meins. Enda má
bara líta á þetta sem hluta af hollum
morgunverði og kvöldsnarli.
Náttúrulegar meðferðir við krabbameini
Eftir Heiðar
Ragnarsson »Einföld meðferð
gegn krabbameini
þróuð af Johönnu
Budwig.
Heiðar Ragnarsson
Höfundur matreiðslumeistari en fæst
líka við augnlestur, heilsuráðgjöf,
nudd, svæðanudd og dáleiðslu.
Skipulagsmálin í Reykja-
vík eru í miklum ógöng-
um. Skrítið er að sjá bílum
ekið upp hluta Laugavegs.
Þrengt hefur verið að
Reykjavíkurflugvelli.
Sundabraut er ekki í aug-
sýn.
Höfnum vinstri meiri-
hlutanum næst.
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Skipulags-
vandi í
Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon