Morgunblaðið - 05.10.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2020
Pepsi Max-deild karla
Staðan:
Valur 18 14 2 2 50:17 44
FH 18 11 3 4 37:23 36
Breiðablik 18 9 4 5 37:27 31
Stjarnan 17 8 7 2 27:20 31
KR 17 8 4 5 30:21 28
Fylkir 18 9 1 8 27:30 28
KA 18 3 12 3 20:21 21
ÍA 18 6 3 9 39:43 21
HK 18 5 5 8 29:36 20
Víkingur R. 18 3 8 7 25:30 17
Grótta 18 1 5 12 15:43 8
Fjölnir 18 0 6 12 15:40 6
Lengjudeild karla
Afturelding – Grindavík .......................... 3:2
Víkingur Ó. – Leiknir R........................... 1:3
ÍBV – Vestri .............................................. 1:3
Fram – Þróttur R ..................................... 1:0
Magni – Þór............................................... 3:4
Keflavík – Leiknir F................................. 2:1
Staðan:
Keflavík 19 13 4 2 57:27 43
Leiknir R. 20 13 3 4 50:22 42
Fram 20 12 6 2 41:24 42
Grindavík 19 8 8 3 40:31 32
Þór 20 9 4 7 37:35 31
ÍBV 20 7 9 4 33:27 30
Vestri 20 8 5 7 29:28 29
Afturelding 20 7 4 9 37:33 25
Víkingur Ó. 20 5 4 11 26:44 19
Þróttur R. 20 3 3 14 15:39 12
Magni 20 3 3 14 22:47 12
Leiknir F. 20 3 3 14 19:49 12
2. deild karla
Fjarðabyggð – Kórdrengir...................... 1:6
ÍR – Selfoss ............................................... 1:2
KF – Þróttur V ......................................... 1:1
Kári – Njarðvík......................................... 2:3
Dalvík/Reynir – Haukar .......................... 2:3
Víðir – Völsungur ..................................... 0:2
Staðan:
Kórdrengir 20 14 4 2 45:13 46
Selfoss 20 14 1 5 36:25 43
Þróttur V. 20 12 5 3 39:19 41
Njarðvík 20 12 4 4 39:26 40
Haukar 20 12 0 8 43:28 36
KF 20 8 2 10 33:39 26
Kári 19 7 4 8 32:28 25
Fjarðabyggð 20 7 3 10 30:36 24
ÍR 20 6 1 13 31:39 19
Völsungur 20 5 2 13 25:49 17
Víðir 19 4 1 14 21:51 13
Dalvík/Reynir 20 2 5 13 25:46 11
Pepsi Max-deild kvenna
Staðan:
Breiðablik 15 14 0 1 66:3 42
Valur 16 13 1 2 43:11 40
Selfoss 16 7 1 8 24:20 22
Fylkir 15 5 6 4 22:29 21
Þróttur R. 16 4 6 6 28:34 18
Stjarnan 16 5 3 8 25:34 18
Þór/KA 16 5 3 8 20:37 18
ÍBV 16 5 2 9 16:39 17
FH 16 5 1 10 19:35 16
KR 14 3 1 10 15:36 10
Lengjudeild kvenna
Fjölnir – Afturelding................................ 3:4
Völsungur – Haukar................................. 0:1
Keflavík – Grótta...................................... 3:1
England
Everton – Brighton ................................. 4:2
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp mark og
lék allan leikinn með Everton.
Arsenal – Sheffield United..................... 2:1
Rúnar Alex Rúnarsson sat allan tímann
á varamannabekk Arsenal.
Newcastle – Burnley ............................... 3:1
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
sem varamaður hjá Burnley á 68. mínútu.
Chelsea – Crystal Palace ......................... 4:0
Leeds – Manchester City ........................ 1:1
Leicester – West Ham ............................. 0:3
Southampton – WBA ............................... 2:0
Wolves – Fulham...................................... 1:0
Manchester Utd – Tottenham................. 1:6
Aston Villa – Liverpool ............................ 7:2
Staða efstu liða:
Everton 4 4 0 0 12:5 12
Aston Villa 3 3 0 0 11:2 9
Leicester 4 3 0 1 12:7 9
Arsenal 4 3 0 1 8:5 9
Liverpool 4 3 0 1 11:11 9
Tottenham 4 2 1 1 12:5 7
Chelsea 4 2 1 1 10:6 7
Leeds 4 2 1 1 9:8 7
Newcastle 4 2 1 1 6:5 7
West Ham 4 2 0 2 8:4 6
Olísdeild karla
Þór – ÍBV .............................................. 27:34
Fram – ÍR ............................................. 27:24
Staðan:
Afturelding 4 3 1 0 97:90 7
Haukar 4 3 0 1 107:96 6
Valur 4 3 0 1 128:107 6
ÍBV 4 3 0 1 123:112 6
Selfoss 4 2 1 1 100:100 5
FH 4 2 0 2 106:99 4
KA 4 1 2 1 96:95 4
Fram 4 1 1 2 97:102 3
Stjarnan 4 1 1 2 102:108 3
Grótta 4 0 2 2 86:90 2
Þór Ak. 4 1 0 3 94:103 2
ÍR 4 0 0 4 100:134 0
Skagamennirnir Stefán Teitur
Þórðarson og Tryggvi Hrafn Har-
aldsson eru báðir farnir úr landi og
hafa spilað sinn síðasta leik fyrir ÍA
að sögn Jóhannes Karls Guðjóns-
sonar, knattspyrnuþjálfara ÍA.
Stefán Teitur er á leið til danska
B-deildarfélagsins Silkeborg sam-
kvæmt heimildum mbl.is og þá er
Tryggvi Hrafn á leið til norska B-
deildarfélagsins Lillestrøm.
Tryggvi Hrafn hefur skorað 12
mörk í sautján leikjum í deildinni í
sumar á meðan Stefán Teitur hefur
skorað átta mörk í sautján leikjum.
Skagamenn
kveðja deildina
Ljósmynd/Skagafréttir
Atvinnumennska Stefán og Tryggvi
hafa verið lykilmenn í liði ÍA í ár.
Heilbrigðisráðherra hefur opinber-
að nýjar reglugerðir um takmark-
anir á samkomuhaldi til að sporna
við útbreiðslu kórónuveirunnar. Að
meginreglu mega aðeins tuttugu
manns koma saman frá og með deg-
inum í dag en þó með nokkrum
undantekningum.
Engir áhorfendur verða leyfðir á
íþróttaleikjum innandyra en utan-
dyra verður heimilt að hafa áhorf-
endur að því gefnu að þeir sitji í
númeruðum sætum og beri andlits-
grímur. Fram undan eru þrír lands-
leikir á Laugardalsvelli.
Morgunblaðið/Íris
Stuðningur Áhorfendur verða
leyfðir með takmörkunum.
Áhorfendur
beri grímur
VALUR – BREIÐABLIK 0:1
0:1 Agla María Albertsdóttir 74.
MM
Sonný Lára Þráinsdóttir (Breiðabliki)
M
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
Heiðdís Lillýardóttir (Breiðabliki)
Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðabliki)
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðabliki)
Andrea Rán Hauksdóttir (Breiðabliki)
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Hallbera Guðný Gísladóttir (Val)
Guðný Árnadóttir (Val)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Val)
Mist Edvardsdóttir (Val)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Val)
Dómari: Þorvaldur Árnason – 8.
Áhorfendur: 530.
ÞÓR/KA – SELFOSS 1:0
1:0 Madeline Gotta 23.
M
Madeline Gotta (Þór/KA)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Heiða Ragney Viðarsdóttir (Þór/KA)
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Berglind Baldursdóttir (Þór/KA)
Kaylan Marckese (Selfossi)
Magdalena Anna Reimus (Selfossi)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Selfossi)
Dómari: Bríet Bragadóttir – 7.
Áhorfendur: Á að giska 100.
ÍBV – FH 1:3
1:0 Karlina Miksone 9.
1:1 Andrea Mist Pálsdóttir 70.
1:2 Phoenetia Browne 77.
1:3 Helena Ósk Hálfdánardóttir 89.
M
Phoenita Browne (FH)
Andrea Mist Pálsdóttir (FH)
Telma Ívarsdóttir (FH)
Karlina Miksone (ÍBV)
Kristjana R. Sigurz (ÍBV)
Dómari: Atli Haukur Arnarsson – 4.
Áhorfendur: Á að giska 100.
ÞRÓTTUR R. – KR 5:0
1:0 Stephanie Ribeiro 16.
2:0 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 30.
3:0 Morgan Goff 36.
4:0 Mary Alice Vignola 44.
5:0 Stephanie Ribeiro (víti) 67.
MM
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti)
Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti)
M
Stephanie Ribeiro (Þrótti)
Jelena Tinna Kujundzic (Þrótti)
Morgan Elizabeth Goff (Þrótti)
Mary Alice Vignola (Þrótti)
Sóley María Steinarsdóttir (Þrótti)
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þrótti)
Alma Mathiesen (KR)
Dómari: Guðmundur P. Friðbertsson – 8.
Áhorfendur: 135.
STJARNAN – FYLKIR 1:1
1:0 Shameeka Fishley 5.
1:1 Berglind Rós Ágústsdóttir 69.
MM
Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki)
M
Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni)
Aníta Ýr Þorvalsdóttir (Stjörnunni)
Shameeka Fishley (Stjörnunni)
Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjörnunni)
Angela Caloia (Stjörnunni)
Katla María Þórðardóttir (Fylki)
María Eva Eyjólfsdóttir (Fylki)
Vesna Elísa Smiljkovic (Fylki)
Dómari: Steinar Gauti Þórarinsson – 5.
Áhorfendur: 113.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Breiðablik er komið með níu og hálf-
an fingur á Íslandsmeistaratilinn
eftir sigur gegn Íslandsmeisturum
Vals í úrvalsdeild kvenna í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildinni, á
Origo-vellinum á Hlíðarenda í 16.
umferð deildarinnar á laugardaginn.
Leiknum lauk með 1:0-sigri Blika
en Agla María Albertsdóttir skoraði
sigurmark leiksins þegar hún fékk
sendingu frá hægri frá Rakel
Hönnudóttur.
Agla María fékk allan tímann í
heiminum til þess að athafna sig í
vítateig Valskvenna en hún tók bolt-
an snyrtilega niður, lagði hann fyrir
sig, og þrumaði honum í nærhornið
fram hjá Söndru Sigurðardóttur í
marki Valskvenna.
Mikil eftirvænting ríkti fyrir
leiknum hjá almennu knattspyrnu-
áhugafólki enda bæði lið verið í al-
gjörum sérflokki í efstu deild
kvenna undanfarin ár.
Þá var einnig um að ræða hálf-
gerðan úrslitaleik um Íslandsmeist-
arabikarinn en fyrir leikinn voru
Valskonur á toppi deildarinnar með
40 stig eftir fimmtán spilaða leiki á
meðan Breiðablik var í öðru sætinu
með 39 stig eftir fjórtán spilaða
leiki.
Selfoss, sem var í þriðja sæti
deildarinnar, var 18 stigum á eftir
toppliði Vals og átti því ekki mögu-
leika á að ná Breiðabliki og Val fyrir
leik helgarinnar.
Blikar höfðu ekki unnið deild-
arleik á Hlíðarenda í fimm ár en síð-
asti sigur þeirra, fyrir leik laug-
ardagsins, var hinn 16. júní 2015
þegar Breiðablik vann 6:0-stórsigur.
Breiðablik gekk illa að ná upp
takti í sinn leik og liðið saknaði
Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur
mikið. Sveindís Jane Jónsdóttir lék
sem fremsti maður Blika en Vals-
konur lokuðu vel á hana og henni
gekk illa að finna samherja sína á
köntunum í lappir. Þar með tókst
Blikum ekki að nýta sín skæðustu
sóknarvopn sem skyldi.
Blikar sýndu hins vegar mikinn
styrk með að vinna leikinn þrátt fyr-
ir að hafa ekki náð að spila sinn leik
og það sannaðist í raun hversu mik-
ið liðið hefur þroskast undir stjórn
Þorsteins Halldórssonar á und-
anförnum árum.
Þjálfaraskák á Hlíðarenda
Valskonur eiga hrós skilið fyrir
sína framgöngu í leiknum en allir
leikmenn liðsins lögðu sig 150%
fram og hlupu fyrir allan peninginn
á Hlíðarenda.
Sóknarmenn Vals voru mjög dug-
legir að pressa varnarmenn Blika
allan leikinn og Kópavogsliðið náði
því aldrei neinum takti í uppspil sitt
sem er einn helsti styrkleika liðsins.
Blikar þurfti því mjög reglulega að
þruma boltanum langt fram völlinn.
Þá voru miðjumenn Valskvenna
mjög öflugir í hjálparvörninni og
þeir mættu trekk í trekk á kantinn
til þess að aðstoða bakverði sína við
að verjast kantmönnum Blika. Það
er því sorglegt að liðið hafi ekki
fengið neitt úr úr leiknum miðað við
vinnuframlag Valskvenna.
Þegar allt kemur til alls var leik-
urinn frábær skák tveggja frábærra
liða. Leikurinn olli engum von-
brigðum og var einn best spilaði
leikur sem sést hefur í efstu deild
kvenna í mörg ár.
Þegar öllu er á botninn hvolft hef-
ur Breiðablik verið besta lið sum-
arsins og því kannski hægt að segja
sem svo að liðið hafi átt sigurinn
skilinn.
Það var hins vegar auðvelt að vor-
kenna Valskonum á Hlíðarenda á
laugardaginn en þær fá tækifæri
næsta sumar til þess að end-
urheimta bikarinn á nýjan leik.
Þangað til verður bikarinn í góðu
yfirlæti hjá Breiðabliki í Kópavog-
inum.
Þór/KA vann lífsnauðsynlegan
1:0-sigur gegn Selfossi í Boganum á
Akureyri en sigurinn skaut Þór/KA
úr fallsæti og er liðið nú tveimur
stigum frá fallsvæðinu.
FH kom til baka gegn ÍBV á
Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum eft-
ir að hafa verið 1:0-undir í hálfleik.
Leiknum lauk með 3:1-sigri FH sem
er nú með 1 stigi minna en ÍBV sem
er í áttunda sæti
Þróttur úr Reykjavík er kominn
úr fallsæti eftir 5:0-stórsigur gegn
botnliði KR í Laugardal. Staða KR
er hins vegar afar slæm en liðið er 7
stigum frá öruggu sæti.
Fylki mistókst að koma sér upp
í þriðja sæti deildarinnar þegar liðið
heimsótti Stjörnuna í Garðabæ en
liðið er með stigi minna en Selfoss
og á leik til góða á Selfyssinga.
Úrslitaleikur
sem olli engum
vonbrigðum
Morgunblaðið/Íris
Einvígi Alexandra Jóhannsdóttir (t.v) og Elísa Viðarsdóttir (t.h) eigast við á
Hlíðarenda í aðdraganda sigurmarks Breiðabliks sem kom á 74. mínútu.
Íslandsmeistarabikarinn er á leið í
Kópavoginn eftir ársdvöl á Hlíðarenda