Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 5
ÞEGAR HRÆÐSLA OG ÞRÁHYGGJA TAKA VÖLDIN AF VITINU
OG KEYRA ÞJÓÐFÉLAGIÐ OG RÍKISSJÓÐ Á HLIÐINA
HRAPALLEG MISTÖK STJÓRNVALDA
Þegar stjórnvöld ákváðu að breyta fyrirkomulagi við landamærasóttvarnir, úr
því að menn væru skimaðir við komu og yrðu svo að bíða niðurstöðu í 24 klst,
í það, frá 19. ágúst, að komumenn yrðu fyrst að vera skimaðir, svo að fara í sótt-
kví í 5-6 daga, og loks aftur að vera skimaðir, þá virkaði það auðvitað eins og
lokun landsins fyrir ferðamönnum. Það var ljóst, að enginn ferðamaður vildi
koma hingað upp á þessi býti; að hanga í óvissu, einangrun og iðjuleysi í allt að
viku. Sóttvarnalæknir og ráðherrar vissu vitaskuld, að þessi ákvörðun og að-
gerð jafngilti lokun landsins fyrir ferðamönnum, og, þá um leið, endanlegt
rothögg á það, sem eftir lifði ferðaþjónustunnar og tengdrar starfsemi, en létu
sig samt hafa það. Eins og ekkert annað kæmist að eða hefði þýðingu, en
meintar COVID-sóttvarnir. Hrapalleg mistök!
ALGJÖRLEGA MISHEPPNUÐ AÐGERÐ
Þegar landamærum var lokað, voru hér 77 virk smit í gangi. Nú, 2. október, eru
aðilar með virkt smit 562, eða sjö sinnum fleiri, þrátt fyrir lokun landamær-
anna, sem átti að draga úr smitum. Og, mönnum til mikillar undrunar, virðast
þeir, sem að standa og ábyrgð bera, sóttvarnalæknir, heilbrigðisráðherra og
forsætisráðherra, ekkert læra; berja bara höfðinu við steininn.
HVERNIG ER FYRIRKOMULAGIÐ Í ÞÝZKALANDI ¿
Eins og undirritaður hefur greint frá, var hann í Þýzkalandi um skeið í síðasta
mánuði. Þegar það var, var Þýzkaland opið gagnvart 25 öðrum þjóðum, þar
á meðal Íslandi, en þegnar allra þessara landa, sem voru vandlega valin, máttu
koma þangað hindrunar- og skimunarlaust. Við val þessara landa fóru Þjóð-
verjar einfaldlega eftir smitastöðu og -þróun í hinum ýmsu löndum. Væri
staðan svipuð eða skárri, en í Þýzkaland, var engin hindrun. Í millitíðinni, er
Ísland komið á rauðan lista í Þýzkalandi, enda kvóti nýsmita hér næstum
tífaldur á við það, sem þar er.
ALGJÖRT „FLOPP“!
Svíar eru með opin landmæri gagnvart öllum þjóðum ESB og EES, 31 þjóð, og
eru þar engar hindranir eða skimanir í gangi. Og, hver er tíðni nýsmita þar,
saman borið við það, sem hér er? 29. september var smitkvóti (nýsmit síðustu
14 daga á 100.000 íbúa) Svía 42,7, en hér var hann 138,7. Þetta þýðir, að fjöldi
nýsmita hér - með lokuðum landamærum, en hjá Svíum voru þau galopin - var
meira en þrisvar sinnum meiri, en hjá Svíum. Annað eins flopp!
OG, HVAÐ SEGIR SÓTTVARNALÆKNIR SVÍA ¿
Sóttvarnalæknir Svía, Anders Tegnell, segir þetta um sóttvarnir á landa-
mærum: „Þegar við höfum mikla útbreiðslu veirunnar innanlands, þá breytir
það litlu, að fá nokkur smit frá útlöndum. Þannig, að við teljum það mikil-
vægara að tryggja góð samskipti við það fólk sem hingað kemur og gera þeim
ljóst, hvaða reglur gilda í Svíþjóð“. Og, hann heldur áfram: „Við teljum það
árangurríkari leið en að loka landamærum, enda hefur það aldrei virkað til
lengri tíma“. Svo mörg voru þau orð sóttvarnalæknis Svíþjóðar, en þar eru
nýsmit, sem sagt, aðeins þriðjungurinn af því, sem hér er.
VEIRAN, NÚ Í 2. BYLGJU, MIKLU VEIKARI, EN Í ÞEIRRI FYRSTU
Í 1. bylgu, marz-apríl, þurfti að leggja 7% þeirra, sem smituðust, inn á sjúkra-
hús. Nú, í þeirri seinni, ágúst-september, hefur aðeins þurft að leggja inn 2%.
Af þeim 582, sem eru smitaðir, hefur um helmingur engin einkenni, skv. I.E.,
og megnið af hinum helmingnum er léttveikur eða eins og með haustflensu.
Í 1. bylgju voru mest 42 sjúklingar í einu á sjúkrahúsi, og þá létust 10. Nú,
í seinni bylgju, hafa mest verið 13 á sjúkrahúsi (af 582), og enginn hefur látizt.
Ef að kúrva dánartíðni vegna COVID er skoðuð, er hún alls staðar í kringum
okkur á hraðri niðurleið, eða komin niður undir núll. 1. október var hún núll
í Svíþjóð, Danmörku og hér hjá okkur. Það er augljóst, að veira er orðin miklu
veikari, nú í 2. bylgju, en hún var í vor, enda stendur ekkert náttúrulegt
fyrirbrigði kjurrt eða í stað.
ÓTTINN VIÐ MISTÖK OG ÞAÐ AÐ MISSA VÖLDIN
Af hverju viðurkenna stjórnvöld ekki, að veiran sé orðin miklu mildari og
hættuminni? Annars vegar, hygg ég, að sóttvarnalæknir og ráðherrar óttist,
að gera mistök, séu þá hrædd um sitt eigið skinn, sem kannske má skilja, og,
hins vegar, er sú hræðsla eflaust fyrir hendi, að, ef það er viðurkennt og stað-
fest, að veiran sé orðin miklu mildari, þá verði erfiðara að stjórna fólkinu;
halda valdinu yfir því. Mikil völd hafa spillt ýmsum í gegnum tíðina.
RÉTTLÆTIR ÞESSI ÓTTI YFIRKEYRÐAR AÐGERÐIR ¿
Þegar ég segi „yfirkeyrðar aðgerðir“, þá á það fyrst og fremst við um „lokun“
landamæranna. Það eru 13 manns á sjúkrahúsi, þar af 2-3 á gjörgæzlu, kannske
væru þessar tölur lítillega hærri, kannske 15 og 4 eða 5, ef landmærin hefðu
verið opin, en, hvað er það á móti því, að Icelandair varð að segja upp 88 manns,
nú um þessi mánaðamót, akkúrat vegna lokunar landamæranna 19. ágúst,
bílaleigan Hertz varð endanlega að leggja upp laupana og segja 66 manns upp,
út af því sama, auk um 200 annarra starfsmanna, mest fyrirtækja í ferðaþjón-
ustunni, sem endanlega misstu nú vinnuna!? Sennilega standa hér nú um
1.000 manns uppi, að fjölskyldumeðlimum meðtöldum, atvinnulausir, í til-
finningalegu uppnámi, kvíðnir og óöryggir með sína afkomu, sínar fjárhags-
legu skuldbindingar og alla sína framtíð vegna lokunar landamæranna 19.
ágúst. Menn geta velt fyrir sér, hvort sú staða sé ekki á við, eða jafnvel miklu
verri, en meðal, mest skammvinn, flensa.
HRÆÐSLUÁRÓÐUR UM HEILBRIGÐISKERFIÐ
Það líður varla sá dagur, að starfsmenn heilbrigðiskerfanna mæti ekki í sjón-
varpi eða öðrum fjölmiðlum til að lýsa því, oft all fjálglega, hversu allt sé þröng
og erfitt í heilbrigðiskerfinu, og, að COVID kunni að setja það úr skorðum.
En, hver er raunstaðan? Bara á Landspítalanum eru 627 sjúkrarúm (nóvember
2019), en þar af eru 14 til 20 gjörgæzlurúm, eftir þörfum, plús 5 görgæzlurúm
á Akureyri, samtals 19 til 25. Og, hver er staða COVID-sjúklinga og álagið af
þeim? Alls eru, eins og fram hefur komið, 13 á sjúkrahúsi nú og þar af 2-3 í gjör-
gæzlu. Það verður ekki séð, að COVID sé að sprengja heilbrigðiskerfið.
FRÉTTAFLUTNINGUR SUMRA FJÖLMIÐLA FÁRÁNLEGUR
Í langan tíma hefur COVID-19 og allar hörmungarnar og vandræðin í kringum
þann vírus tröllriðið fréttaflutningi og fjölmiðlum, eins og að ekkert annað
hafi skipt neinum verulegu máli, en þetta hefur auðvitað gert fólk kvíðið,
óöruggt og hrætt í stórum stíl. Hér má spyrja, hvaða máli skipta tölur um
sóttkví og smit, dag eftir dag, þegar alla vega helmingur smitaðra veit ekki af
sínum veikindum, og flestir hinna eru léttveikir, eða rétt eins og með flensu?
Það eru margir sjúkdómar miklu skæðari, hættulegri og banvænni en COVID,
nú í 2. bylgju. Ætti þá ekki að fara að tína til alla daglega þróun í kringum þá?
Það eru yfir 600 innlagðir sjúklingar á Landspítala að staðaldri. Hvernig væri,
að fréttamenn reyndu aðeins, að skýra sína sýn og greiningar. Það eru „aðeins“
13 COVID sjúklingar á spítala! Það eina, sem í raun skiptir máli, er tala veikra,
þeirra, sem þurfa á sjúkrahúsvist að halda. Hitt hefur litla eða enga þýðingu,
og er til þess eins fallið, að skelfa eða jafnvel hræða líftóruna úr fólki.
ERU ALLIR, SEM NÚ SMITAST, UNGIR, OG TÖLUR UM FÁAR INNLAGNIR
ÞVÍ EKKI MARKTÆKAR ¿
Það er auðvitað til tölfræði um þá, sem virkilega veikjast og eru lagðir inn,
sem þó eru ekki „nema“ 13, í bili, og mun hún sýna, að sjúklingar eru mest milli
þrítugs og sjötugs. Hins vegar blasir sú staðreynd við, að eldri borgarar eru
álíka mikið á ferðinni, nú og í vor - sennilega minna verndaðir nú af stofnu-
num og stjórnvöldum, en e.t.v varkárari sjálfir - án þess að fá smit eða veikjast
alvarlega. Gott dæmi er um aldraða íbúa Eirs, 5 manns, sem allir smituðust án
þess virkilega að veikjast, að mér skilst. Annað dæmi get ég nefnt úr mínu
eigin umhverfi, þar sem rúmlega tvítug stúlka smitaðist, en heimsótti frænku
sína og eiginmann, fólk á áttræðis aldri, daginn áður en hún veiktist, kjassaði
þau og faðmaði, án þess, að þau smituðust. Móðir stúlkunnar, kona á sextugs
aldri, en þær búa saman, smitaðist heldur ekki. Bráðsmitandi er veiran greini-
lega ekki um þessar mundir.
ER ÞAÐ HLUTVERK SÓTTVARNALÆKNIS AÐ STÝRA LANDINU ¿
Sóttvarnalæknir var ráðinn til að stjórna sóttvörnum landsmanna, en ekki
öðru. Ráðherrar og ríkistjórn voru kjörin til að stjórna landinu. Í sambandi við
COVID-19 virðist heilbrigðisráðherra nánast vera orðinn undirskriftarfulltrúi
sóttvarnalæknis, og forsætisráðherra tjáir sig í gátum eða út í loftið. Ekki er
vitað til þess, að heilbrigðisráðaherra hafi gert annað en að árita minnisblöð
sóttvarnalæknis og þar með breytt þeim í reglugerðir. Þetta eru auðvitað
kolómöguleg vinnubrögð. Ráðherra og ríkisstjórn verða að skoða heildar-
myndina, áður en þeir taka afstöðu, ekki aðeins einn vinkil málsins, af fjöl-
mörgum, og þá allra sízt, ef vægi þess vinkils hefur snarminnkað.
GRÍMUNOTKUN JAFNVEL VIRKARI EN SÓTTKVÍ
Morgunblaðið átti viðtal við aðstoðarmann forstjóra Landspítalans 29. sept-
ember, og var fyrirsögn fréttarinnar þessi: „Fólk með grímu komist hjá
sóttkví“. Var því þar lýst, hvernig Landspítalinn beitti grímum og fjarlægðar-
reglum til að komast hjá að þurfa að beita sóttkví. „Grímunotkun getur forðað
einstaklingum frá því að sæta sóttkví“, sagði aðstoðarmaðurinn. „Núna fara
miklu færri heilbrigðisstarfsmenn í sóttkví en í fyrri bylgju“, bætti hún við.
Þetta er í samræmi við það, sem undirritaður upplifði í Þýzkalandi. Þar virtist
gríman vera helzta vörnin, fyrir mann sjálfan og gagnvart öðrum, og var
maður meðan hana fyrir vitunum eða í höndum, hvert sem maður fór. Þetta
virðist hafa farið fram hjá sóttvarnalækni, heilbrigðisráðherra og forsætis-
ráðherra, eða eru þau bara að berja höfðinu við steininn!? Hefði ekki verið nær,
að ráðherrar hefðu nú innleitt grímuskyldu á veitingastöðum, og þar sem
önnur hópþjónusta og -starfsemi fer fram, frekar en að reka síðasta naglann
í líkkistu margs veitingastaðarins, og ýmislegs annars, með yfirkeyrðum sam-
komutakmörkunum og bönnum!?