Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 26
14. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-3-3
Guðjón Orri Sigurjónsson
KR
Pétur
Viðarsson
FH
Brynjar Ingi
Bjarnason
KA
Arnar Sveinn
Geirsson
Fylki
Ívar Örn Jónsson
HK
Viktor Karl
Einarsson
Breiðabliki
Ólafur Ingi Skúlason
Fylki
Birnir Snær Ingason
HK
Hilmar Árni
Halldórsson
Stjörnunni
Patrick Pedersen
Val
Óskar Örn Hauksson
KR
2 2
2 3
3 4
4
5
Ellefta umferðin í Pepsi Max-deild
karla var loksins leikin á sunnudag-
inn og síðasta fimmtudag voru
leiknir þrír síðustu leikirnir í fjór-
tándu umferð deildarinnar.
Þar með er búið að hreinsa upp
frestaðar umferðir og leiki í deild-
inni, að undanskildum leik Stjörn-
unnar og KR úr fimmtu umferð,
sem leikinn verður 22. október.
Bjarnason (Val) og Valdimar Þór
Ingimundarson (Fylki).
12 M: Brynjólfur Willumsson
(Breiðabliki), Þórir Jóhann Helga-
son (FH) og Tryggvi Hrafn Har-
aldsson (ÍA).
11 M: Hilmar Árni Halldórsson
(Stjörnunni), Sigurður Egill Lár-
usson (Val) og Karl Friðleifur
Gunnarsson (Gróttu).
non fengu báðir 2 M í 11. umferð-
inni á sunnudag og tóku forystuna.
Staðan í M-einkunnagjöfinni er nú
þannig:
15 M: Atli Sigurjónsson (KR) og
Steven Lennon (FH).
14 M: Patrick Pedersen (Val),
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi) og
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA).
13 M: Kennie Chopart (KR), Aron
Lið umferðarinnar úr 14. og 11.
umferð má sjá hér fyrir ofan og
þannig vill til að þar eru 22 leik-
menn valdir. Enginn var sem sagt
valinn í bæði þessi lið.
Þegar fjórum umferðum og ein-
um leik er ólokið eru enn margir
sem koma til greina að verða leik-
maður ársins hjá Morgunblaðinu.
Atli Sigurjónsson og Steven Len-
11. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Aron Dagur Birnuson
KA
Kwame Quee
Víkingi
Atli Sigurjónsson
KR
Gísli Eyjólfsson
BreiðablikiAron Bjarnason
Val
Lasse Petry
Val
Brynjólfur Willumsson
Breiðabliki
Björn Berg Bryde
Stjörnunni
Guðmundur Kristjánsson
FH
Steven Lennon
FH
Hörður Árnason
HK
2
2
3
3
4
4
5
5
Atli og Lennon efstir og jafnir í M-einkunnagjöfinni
Edinson Cavani skrifaði undir eins
árs samning við enska knattspyrnu-
félagið Manchester United í gær.
Cavani kemur til félagsins á frjálsri
sölu en hann er 33 ára gamall og hefur
leikið með Frakklandsmeisturum PSG
frá árinu 2013. Cavani skoraði 200
mörk í 301 leik með PSG en hann á að
baki 116 landsleiki fyrir Úrúgvæ þar
sem hann hefur skorað 50 mörk.
Knattspyrnumaðurinn Daníel Leó
Grétarsson er genginn til liðs við
enska C-deildarfélagið Blackpool og
skrifaði hann undir tveggja ára samn-
ing við félagið í gær. Daníel kemur til
félagsins frá Aalesund í Noregi þar
sem hann hefur leikið frá árinu 2015.
Daníel er 25 ára gamall miðvörður en
hann er uppalinn hjá Grindavík og á að
baki sex leiki með liðinu í efstu deild
þar sem hann hefur skorað eitt mark.
Þá lék hann sinn fyrsta A-landsleik á
þessu ári gegn Kanada í Kaliforníu.
Miðjumaðurinn Thomas Partey
skrifaði undir fimm ára samning við
enska knattspyrnufélagið Arsenal í
gær. Partey hefur leikið með Atlético
Madrid á Spáni frá árinu 2012 en Ars-
enal borgaði upp samning miðju-
mannsins sem hljóðaði upp á 50 millj-
ónir punda, jafnvirði rúmlega 8,9
milljarða íslenskra króna. Partey á að
baki 27 landsleiki fyrir Gana en hann
hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin
ár. Þá lék hann með Gana gegn Íslandi
á Laugardalsvelli í júní 2018, í lokaleik
Íslands fyrir HM, og jafnaði 2:2 á 87.
mínútu.
Hólmbert Aron Friðjónsson er
genginn til liðs við ítalska knatt-
spyrnufélagið Brescia og skrifaði hann
undir þriggja ára samning við félagið í
gær. Framherjinn, sem er
27 ára gamall, kemur til
ítalska félagsins frá
Aalesund í Noregi
þar sem hann
hefur leikið frá
árinu 2018.
Brescia féll úr
ítölsku A-deildinni á
síðustu leiktíð og
leikur því í B-
deildinni í vet-
ur en Birk-
ir Bjarna-
son,
landsliðs-
maður Íslands í knatt-
spyrnu, er einnig samnings-
bundinn Brescia.
Eitt
ogannað
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020
Jimmy Butler fór á kostum í fyrri-
nótt þegar Miami Heat náði að
leggja Los Angeles Lakers að velli,
115:104, í þriðja úrslitaleik liðanna
um NBA-meistaratitilinn í körfu-
knattleik í Disneylandi. Þar með
minnkaði Miami forskot Lakers í
2:1 og hleypti spennu í einvígið en
margir höfðu spáð 4:0-sigri Lakers
eftir tvo fyrstu leikina. Butler skor-
aði 40 stig, átti 13 stoðsendingar og
tók 11 fráköst og skyggði algjör-
lega á LeBron James sem skoraði
25 stig fyrir Lakers, tók 10 fráköst
og átti átta stoðsendingar.
Butler skyggði
á LeBron
AFP
NBA Jimmy Butler reynir að kom-
ast fram hjá LeBron James.
Valgeir Valgeirsson, knatt-
spyrnumaður úr HK, mun leika sem
lánsmaður hjá knattspyrnufélaginu
Brentford næstu sjö mánuðina. Val-
geir , sem er einungis 18 ára gam-
all, heldur út til Englands á morgun
og mun hann æfa og spila með B-
liði félagsins á komandi keppn-
istímabili en Brentford leikur í
ensku B-deildinni.
Enska félagið er með kauprétt á
leikmanninum næsta sumar en
þrátt fyrir ungan aldur á Valgeir
að baki 35 leiki í efstu deild þar sem
hann hefur skorað sjö mörk.
Valgeir samdi
við Brentford
Morgunblaðið/Hari
England Valgeir hefur spilað sinn
síðasta leik í úrvalsdeildinni í bili.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Eftir að ellefta umferðin í Pepsi
Max-deild karla var loks leikin á
sunnudaginn er 18 umferðum lokið
(mínus einn leikur) og þá blasa við
tvær stórar spurningar:
Hvenær verður Valur Íslands-
meistari?
Verður Steven Lennon fyrstur
í sögunni til að skora 20 mörk í
efstu deild karla?
Valsmenn geta orðið Íslands-
meistarar fimmtudagskvöldið 15.
október þegar keppni heldur áfram
eftir landsleikjahléið. Ef FH-
ingum tekst ekki að sigra KA á Ak-
ureyri í leik sem hefst klukkan 15
um daginn á Greifavellinum verða
Valsmenn meistarar á Würth-
vellinum í Árbæ ef þeim tekst að
sigra Fylki. Þá myndu þeir ná tíu
eða ellefu stiga forskoti á FH með
þrjár umferðir eftir.
Annars fá þeir tækifæri til að
verða meistarar á sínum heimavelli
mánudaginn 19. október þegar þeir
taka á móti Fjölnismönnum.
Valsmönnum nægir að fá fjögur
stig úr fjórum leikjum, svo framar-
lega sem FH vinnur ekki alla fjóra
leiki sína og vinnur í leiðinni upp
nítján marka forskot Hlíðarenda-
liðsins.
Steven Lennon skoraði sína
fjórðu þrennu fyrir FH í deildinni
þegar liðið vann ÍA 4:0 á sunnudag-
inn, og aðra þrennuna á þessu tíma-
bili. Hann er kominn með 17 mörk í
18 leikjum en fimm leikmenn deila
markametinu sem er 19 mörk.
Andri Rúnar Bjarnason jafnaði það
síðast árið 2017 og er sá eini á þess-
ari öld sem hefur náð 19 mörkum.
Lennon er nú búinn að „toppa
sjálfan sig“ en hann hefur áður mest
skorað 15 mörk á einu tímabili í
deildinni. Það var árið 2017. Hann
hefur jafnframt þotið upp marka-
lista deildarinnar í ár. Lennon var
sautjándi markahæsti leikmaður
hennar frá upphafi þegar tímabilið
hófst, með 71 mark. Nú er hann
kominn með 88 mörk og er orðinn
sjöundi markahæstur frá upphafi.
Hann fór yfir annan Hafnfirðing á
sunnudaginn, Hörð Magnússon,
sem gerði 87 mörk í deildinni á sín-
um tíma, og er fyrir stuttu farinn
framúr markahrókum eins og
Björgólfi Takefusa (83), Ragnari
Margeirssyni (83), Arnari Gunn-
laugssyni (82), Steingrími Jóhann-
essyni (81), Guðmundi Stein-
arssyni (81) og Ríkharði Jónssyni
(78).
Valsmaðurinn Patrik Pedersen
hefur líka þotið upp markalistann í
ár. Hann skoraði sitt 70. mark í
deildinni í 6:0 sigri Vals á Gróttu,
það 15. á tímabilinu, og lék þá ein-
mitt sinn 100. leik í deildinni með
Hlíðarendafélaginu.
Meistarar í
Árbænum eða
á Hlíðarenda?
Lennon í 7. sæti á markalistanum
Morgunblaðið/Golli
Líklegir Steven Lennon verður líklega markakóngur og Haukur Páll Sig-
urðsson tekur líklega við Íslandsbikarnum fyrir hönd Valsmanna.
Danmörk
GOG – Kolding..................................... 32:21
Viktor Gísli Hallgrímsson varði níu skot í
marki GOG.
Ágúst Elí Björgvinsson varði tvö skot í
marki Kolding.
KNATTSPYRNA
2. deild kvenna, Lengjudeildin:
Grindavíkurv.: Grindavík – Fram....... 15.30
2. deild karla:
Nesfiskvöllur: Víðir – Kári .................. 15.30
HANDKNATTLEIKUR
Coca Cola-bikar karla, 32ja liða úrslit:
Ásvellir: Haukar – Selfoss ................... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Höllin Ak.: Þór Ak. – Keflavík.................. 20
1. deild kvenna:
IG-höllin: Hamar/Þór – Stjarnan........ 19.15
Í KVÖLD!