Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 6
Kranar 53% íbúða í byggingu í ná-
grannasveitarfélögum eru í fjölbýli.
Morgunblaðið/Hari
Um 820 íbúðir eru nú í byggingu í
nágrannasveitarfélögum höfuðborg-
arsvæðisins en voru 1.020 á sama
tíma í fyrra.
Þetta kemur fram í samantekt
Samtaka iðnaðarins um niðurstöður
talningar á íbúðum í byggingu í sept-
embermánuði.
Fram kemur að samdrátturinn
nemur rétt tæpum 20% á milli ára
sem er svipað samdrættinum sem
kom í ljós í sömu talningu á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Jafn margar íbúðir eru nú á
fyrstu byggingarstigum samanborið
við hausttalninguna 2019 eða um 330
talsins. Samdráttinn má því rekja til
fækkunar íbúða á byggingarstigum
4 og 5 þegar 579 íbúðir voru á þeim
stigum í hausttalningu 2019 en 332
nú og nemur samdrátturinn 43%.
Hins vegar eru fleiri íbúðir nú á
byggingarstigum 6 og 7 en fyrir ári
og nemur aukningin um 35%, fer úr
116 íbúðum í 157,“ segir enn fremur í
umfjöllun SI.
Ef litið er á byggingu íbúða í fjöl-
býlishúsum kemur í ljós að sam-
kvæmt talningunni eru 53% íbúða í
byggingu í fjölbýli í nágrannasveit-
arfélögum höfuðborgarsvæðisins,
33% eru í byggingu í rað- eða par-
húsum og aðeins 14% flokkast sem
einbýli.
„Það er nokkuð frábrugðið því
sem er á höfuðborgarsvæðinu en
talningin bendir til þess að um 93%
íbúða í byggingu þar séu í fjölbýli og
aðeins 4% í einbýli,“ segir þar.
Tæplega 20% samdráttur í
smíði nýrra íbúða frá síðasta ári
820 íbúðir í byggingu í nágrenni við höfuðborgarsvæðið
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020
...betra fyrir umhverfið
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
TAUBLEIUR
bambus.is
Ný og
endurbætt
netverslun
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ný talning Samtaka iðnaðarins (SI)
á íbúðum sem eru í byggingu leiðir í
ljós verulegan samdrátt, sér í lagi á
fyrstu byggingarstigum. Talningin
fór fram í nýliðnum mánuði og kom í
ljós að á höfuðborgarsvæðinu og í
nágrannasveitarfélögum eru 4.946
íbúðir í byggingu.
„Samdráttur íbúða í byggingu á
höfuðborgarsvæðinu og nágrenni
mælist um 18% frá hausttalningu SI
2019. Mestur samdráttur eða 41% er
á fyrstu byggingarstigum, þ.e. að
fokheldu. Leita þarf aftur til eftir-
hrunsáranna 2010-2011 til að finna
viðlíka samdrátt í byggingu íbúðar-
húsnæðis á umræddu svæði. Hins
vegar fjölgaði fullgerðum íbúðum
umtalsvert á milli ára,“ segir í um-
fjöllun samtakanna. Er staðan talin
benda til þess að umtalsvert færri
fullgerðar íbúðir komi inn á íbúða-
markaðinn á næstu árum.
Ójafnvægi á næstu 2 árum
,,Það sem slær mig í þessum tölum
er fyrst og fremst að við erum að sjá
verulega mikinn samdrátt á fyrstu
byggingarstigum þ.e. fram að fok-
heldu. Hann heldur áfram og er að
dreifa sér meira út eftir byggingar-
stigunum en áður var, segir Ingólfur
Bender, aðalhagfræðingur Samtaka
iðnaðarins.
Ingólfur segir þessar niðurstöður
gefa vísbendingu um að mun færri
fullbúnar íbúðir muni koma inn á
markaðinn á næsta og þarnæsta ári.
Að sögn hans hafa samtökin því
lækkað fyrri spá sína úr því að ríf-
lega 2.500 fullbúnar íbúðir verði til-
búnar á næsta ári niður í tæplega
2.000 íbúðir. Síðan megi gera ráð
fyrir að fullbúnum íbúðum muni
halda áfram að fækka enn meira á
árinu 2022 og að á því ári komi um
1.900 fullbúnar íbúðir á markað, sem
er mikil lækkun frá fyrri spá fyrir
ári, sem gerði ráð fyrir að um 2.700
íbúðir verði fullbúnar á árinu 2022.
,,Þetta er veruleg breyting frá
fyrri framtíðarhorfum, sem á sér
stað á sama tíma og maður sér fyrir
sér að hagkerfið er þá að taka við sér
miðað við þær spár sem hafa verið
settar fram að undanförnu. Við
stöndum þá væntanlega frammi fyr-
ir því að ójafnvægi sé að koma aftur
upp á íbúðamarkaði á næstu tveimur
árum líkt og við höfum verið að tak-
ast á við á síðustu árum, þar sem
uppsöfnuð þörf hefur skapast vegna
þess að það hefur verið mun minna
byggt heldur en þörf hefur verið á.
Það bjó til þann skort sem litaði
markaðinn á tímabilinu 2016 til 2019,
segir hann.
Spurnin eftir íbúðarhúsnæði hefur
ekki verið að dragast saman á mark-
aði að undanförnu og bendir Ingólf-
ur á að veltutölur á íbúðamarkaði í
júlí og ágúst sl. leiði í ljós að í umtals-
verð aukning átti sér stað í þeim
mánuðum frá síðasta ári. Þannig
fjölgaði t.d. kaupsamningum í ágúst
um 40% frá sama mánuði í fyrra.
Einnig hefur raunverð íbúða verið að
hækka.
,,Undir niðri eru tiltölulega sterkir
eftirspurnarþættir til staðar þrátt
fyrir niðursveifluna, sem er harla
óvenjulegt. Það eru kannski þrír
þættir sem eru að ráðandi þar. Það
er sú vaxtalækkun sem hefur orðið á
húsnæðislánum og að kaupmáttur
launa hefur verið vaxandi. Við sjáum
líka að fólksfjölgun hefur átt sér stað
í landinu þrátt fyrir niðursveifluna.
Allt eru þetta þættir sem þrýsta á
aukna íbúðareftirspurn um þessar
mundir, segir hann.
Eftirspurnin á næsta og þarnæsta
ári knýi einnig á um frekari upp-
byggingu íbúðarhúsnæðis og aukið
framboð á fullbúnum íbúðum. ,,En
samkvæmt okkar spá sem byggist á
þessari talningu íbúða í byggingu, þá
eru líkur á að þróunin sé í gagnstæða
átt, þ.e. að fullbúnum íbúðum muni
fækka talsvert, segir hann.
9% samdráttur í Reykjavík
Sé eingöngu litið á stöðuna á höf-
uðborgarsvæðinu kemur í ljós að í
september voru rúmlega 4.100 íbúðir
í byggingu á höfuðborgarsvæðinu
samkvæmt talningu SI. Mælist sá
samdráttur um 17% frá haust-taln-
ingu síðasta árs. Benda samtökin á
að viðlíka samdráttur í byggingu
íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæð-
inu hafi ekki sést síðan á árunum
2010-2011.
„Um 78% íbúða í byggingu á höf-
uðborgarsvæðinu eru innan Reykja-
víkur og Kópavogs. Í Reykjavík
nemur samdráttur íbúða í byggingu
á milli ára tæpum 9%, en þar af er
um 47% fækkun á íbúðum á fyrstu
byggingarstigum. Þá fjölgar full-
gerðum íbúðum um 179% frá sept-
ember í fyrra. Í Kópavogi var sam-
dráttur bæði á íbúðum að fokheldu
og íbúðum sem eru fokheldar og til-
búnar til innréttinga (byggingarstig
4 og 5). Hins vegar fjölgaði fullgerð-
um íbúðum frá haust-talningu SI en í
heildina nam samdráttur íbúða í
byggingu í Kópavogi ríflega 31% á
milli ára,“ segir í umfjöllun SI.
Á undanförnum árum hafa taln-
ingar SI á íbúðum í byggingu bent til
að fram undan væri vaxandi fjöldi
fullbúinn íbúða að koma á markað.
Ákveðin vatnaskil virtust þó verða í
fyrra þegar SI birtu haust-talningu
sína sem benti til þess að fjöldi
fullbúinna íbúða myndi fara minnk-
andi á næstu árum. Nýja talningin
bendir til hins sama og að fækkun
fullbúinna íbúða á næstu tveimur ár-
um verði enn meiri en fyrri spár
gerðu ráð fyrir eins og fyrr segir.
„Í spá SI nú í september 2020 er
gert ráð fyrir að 1.986 íbúðir verði
fullbúnar á höfuðborgarsvæðinu og í
nágrannasveitarfélögum árið 2021.
Það eru um 21% færri íbúðir en SI
spáðu fyrir árið 2021 í september
2019 en svipaður fjöldi og kom fram í
spá SI í vor-talningunni í mars á
þessu ári. Í nýju talningunni er gert
ráð fyrir að fullbúnum íbúðum muni
halda áfram að fækka á árinu 2022
þegar áætlað er að 1.923 fullbúnar
íbúðir fari á markað. Það eru um
28% færri fullbúnar íbúðir en SI
spáðu fyrir það ár í september-spá
sinni í fyrra,“ segir í samantekt SI.
Veruleg fækkun íbúða í byggingu
Leita þarf aftur til eftirhrunsáranna 2010-2011 til að finna viðlíka samdrátt í byggingu íbúða
Ný talning SI bendir til að mun færri fullgerðar íbúðir komi inn á íbúðamarkaðinn á næstu árum
1.986
2.513
1.923
2.667
0,7
2,4
3,1
0,6
2,9
2,5
0,8
2,8
1,8
1,3
2,2
1,5
Íbúðir í byggingu skv. talningu Samtaka iðnaðar ins
Fjöldi íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni Fjöldi íbúða í byggingu að fokheldu
á höfuðborgarsvæðinu
Spá SI um fullbúnar íbúðir
árin 2021 og 2022
Spá í sept. 2019 Spá í sept. 2020
Þúsundir íbúða Að fok heldu Til búnar til innréttinga Fullgerðar íbúðir
mars september mars september
2019 2020
Heimild: SI
2021 2022
Samtals
4.946 íbúðir
sept. mars sept. mars sept. mars sept.
2018 2019 20202017
1.156
2.190
2.668
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Úlfarsárdal 1.156 íbúðir eru í byggingu á fyrstu byggingarstigum á höfuðborgarsvæðinu, sem er 47% samdráttur
en mun fleiri íbúðir eru þó á síðustu byggingarstigum, þ.e. fullbúnar íbúðir, en taldar voru á sama tíma í fyrra.