Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 Þessi misserin eru merkilegir hlutir að gerast. Tekist er á um eðli og framtíð sam- félaga, ekki síst í okkar heimshluta. Þótt ís- lenska hafi mikla aðlög- unarhæfni hefur okkur þó skort orð til að fjalla um þessa atburðarás. Til að mynda hefur sá hópur sem setur mark sitt á samtímann, umfram alla aðra, verið nafnlaus. Á níunda áratugnum þóttu svokall- aðir uppar einkenna tíðarandann. Fyrr höfðu aðrir hópar sett mark sitt á ákveðin tímabil í meira eða minna mæli, t.d. pönkarar og þar áður hipp- ar o.s.frv. Sá hópur sem einkennir okkar tíma hefur hins vegar verið nafnlaus á íslensku. Stundum er talað um „rétttrúnaðarfólkið“ eða „háværa minnihlutann“. Í kaldhæðni er jafnvel rætt um „góða fólkið“ með vísan til sjálfsálits meðlima hópsins. Það er hins vegar nokkuð óþjált en einnig óheppilegt í ljósi þess að meðlimir hópsins eiga margir erfitt með að skilja fyrirbæri a borð við kaldhæðni, háð og húmor. Lýsandi nafn Það var því til þess fallið að ein- falda mjög umræðu um samfélagsmál þegar hópurinn fékk loks viðeigandi nafn. Hópurinn sem einkennir sam- tímann umfram alla aðra eru ybbarn- ir. Nafnið er viðeigandi vegna þess að meðlimir hópsins telja sig yfirleitt yfir aðra hafna og álíta sig jafnan yfirburðafólk með yfirburði yfir „fá- vísan og fordómafullan almúgann“. Fyrir vikið telja þeir það hlutverk sitt að vera yfirboðarar hinna fávísu (hvað sem líður gömlum hugmyndum um lýðræði og skoðanafrelsi). Auk þess er uppáhaldsiðja meðlima hóps- ins sú að ybba sig, ybba gogg og út- skýra fyrir öllum öðrum hvers vegna þeir hafi rangt fyrir sér. Þetta er yfir- leitt gert af talsverðu yfirlæti. Ybbar telja sig enda yfir gagnrýni hafna. Að þeirra mati skiptir yfirbragð meira máli en innihald. Yfir- bragð skiptir raunar öllu máli enda eru ybb- arnir forsprakkar svo- kallaðra ímyndar- stjórnmála (sem einnig eru kölluð sjálfsmynd- arstjórnmál, merki- miðastjórnmál, stimplastjórnmál o.fl). Hvaða nafni sem við- horfin eru nefnd ganga þau öll út á yfirborðs- mennsku og það að skipta fólki í hópa og meta svo réttindi þess og dæma það sem það segir og gerir út frá þeirri skilgeiningu. Í þessu liggur grundvallarmunur á viðhorfi ybbanna og annarra. Flestir telja eðlilegt að fólk geti valið sér hvaða hópi það vill tilheyra, t.d. út frá skoðunum, áhugamálum, atvinnu- grein, búsetu o.s.frv. Slíkt félagsfrelsi er grundvallaratriði í vestrænni sið- menningu. Réttur sem náðist með aldalangri baráttu. Réttur sem um leið byggist á því grundvallaratriði að allir séu jafnréttháir og frjálsir til að skipa sér í hóp eða hverfa frá honum. Ybbarnir flokka fólk hins vegar eftir meðfæddum einkennum eða stöðu þess í einhverju þeirra valdakerfa sem þeir búa til eftir þörfum. Erfiðisvinna Það er þó ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera góður ybbi (þótt þeir vinni jafnan sitjandi). Enda mikil samkeppni um virðingarstöður milli undirhópa og hinar einu sönnu og ei- lífu lífsreglur þeirra breytast hratt. Stuðmenn útskýrðu þetta fyrir mörgum árum: „Að vera í takt við tímann er mjög tímafrekt, til þess þarf ástundun og góða eftirtekt.“ Ybbarnir liggja því yfir Twitter og öðrum safnaðarritum til að fylgjast með, læra nýjustu reglurnar, tungu- takið og frasana og sanna sig. Þá má ekki missa af nokkru tækifæri til að sýna dyggðamont. Einfaldast er að sanna sig með því að níða skóinn af einhverjum öðrum. Þannig myndast oft samkeppni um að verða fyrstur til að ganga sem harð- ast fram gegn þeim sem sætir gagn- rýni hverju sinni. Svo þarf stöðugt að finna ný fórnarlömb. Það þarf ferskt blóð. Þegar sjálfsvirðing fólks byggist á því að vera betri en aðrir vill bera við að það fari að eigna öðrum, sérstak- lega þeim sem láta ekki skilyrðislaust undan rétttrúnaðinum, allar verstu kenndir. Ástæðan er sú að því verri sem náunginn er, þeim mun betri er ybbinn í samanburði. Ybbasamfélagið En samkeppnin er líka mikil innan ybbasamfélagsins (eins og þeir vilja væntanlega láta kalla það). Ef þú ert ekki betri en aðrir ert þú verri en aðr- ir. Ef þú fylgir ekki nýjasta rétttrún- aðinum ertu villutrúar. Ófáir hátt skrifaðir ybbar hafa fallið í ónáð eftir eitt skynsamlegt tíst. Sumir taka svo þátt af ótta án þess að langa beinlínis til þess. Tilgang- urinn er þá stundum bara sá að fá að vera í friði, forðast að verða skotmark („ef þú ert ekki hluti af lausninni ertu hluti af vandamálinu“ er þekktur ybbafrasi). Svo eru það þeir sem hafa ekki tek- ið trúna og skilja hana ekki en sækj- ast eftir að vera innundir hjá þeim sem þeir telja vera „svala gengið“. Þetta er algengt meðal fræga fólksins víða um lönd þegar það þráir að kom- ast í viðtöl í ybbaþáttum eða að fá deilingar á ybbamiðlum. Stundum er þátttakan hagnaðar- drifin þótt það skili ekki alltaf árangri. Þegar fyrirtæki og stofnanir lenda í því að ybba yfir sig er það oft fyrir tilstilli stjórnenda og markaðs- fólks sem alist hefur upp í rétttrún- aðarsamkeppni innan háskólanna og leitast við að nota starfið til að sanna sig í þeim efnum. Þá skiptir ekki máli þótt með því sé verið að fæla burt við- skiptavini og fyrri stuðningsmenn. Ybbar hafa ímugust á stað- reyndum og rökum enda þvælist slíkt mjög fyrir hinni síbreytilegu kenn- ingasmíð þeirra. Í enskumælandi löndum hafa þekktir afreksybbar haldið því blákalt fram að staðreyndir og rökræða séu verkfæri „feðraveld- isins“ til að tryggja völd sín. Þetta hefur jafnvel áhrif á raunvís- indi og augljósustu staðreyndir. Hversu mörg eru kynin? Ef þú spyrð ybba koma mörg svör til greina (eftir því hversu framsæknir þeir eru), öll svör nema tvö. Aktívistar í Bandaríkjunum og Bretlandi hafa enda farið fram á að hætt verði að kenna bókmenntir, heimspeki og vísindi hvítra karla. Samhengisleysi og þversagnir Slík viðhorf valda auðvitað algjöru samhengisleysi og endalausum þver- sögnum en því skyldi það vera vanda- mál þegar staðreyndir skipta ekki máli? Þá er bara að flækja kenning- arnar enn, pakka hlutunum inn í nýj- ar umbúðir og auðvitað koma í veg fyrir gagnrýna umræðu. Dæmin um þversagnir ybbanna eru of mörg til að rekja þau hér en oft er breitt yfir þær með sérkennilegum hugtökum (ybbyrðum) á borð við „menningarnám“. Ekki er langt síðan „fjölmenning“ var ógagnrýnanlegt hugtak. Þrátt fyrir galla í fram- kvæmd fylgdi þó réttmæt ábending um að samfélög lærðu hvert af öðru og tileinkuðu sér það sem reynst hef- ur vel annars staðar. Nú er slíkt glæpur í huga hins upplýsta ybba og kallast menningarnám. Aðeins Kín- verjar mega selja kínverskan mat og Mexíkóar mexíkóskan. Leyfileg hár- greiðsla er meira að segja bundin við kynþætti. Pólitískar rætur Hugmyndir ybbanna eru í grunn- inn vinstrisinnaðar. Þær eiga rætur að rekja til marxískrar menningar- elítu sjöunda áratugarins. Þ.e. svo- kallaðs póstmódernisma án áherslu á stéttabaráttu og bætt kjör verkalýðs- ins. Þó hefur talsverður fjöldi fólks af hægri kanti stjórnmála aðhyllst stefnuna í seinni tíð. Þversagnirnar eru margar. Þrátt fyrir tengingu við sósíalískar stefnur liðinna áratuga er ybbinn jafnan eig- ingjarn. Þótt ybbar séu fljótir til að saka aðra um fordóma eru þeir allra manna fordómafyllstir. Fyrstir til að fordæma og fyrstir til að lýsa sig fórnarlömb. Andstaða við vestræna menningu og gildi Ef finna má einhverja samfellu í viðhorfum ybbanna, aðra en þver- sagnirnar og tilhneigingu til að draga fólk í dilka, er það andstaða við grunngildi vestrænnar menningar. Þar er margt undir; frelsi einstakl- ingsins, tjáningarfrelsi, réttarríkið, jafnræði, sakleysi uns sekt er sönnuð, eignarréttur, einkaréttur ríkisins á valdbeitingu, persónuvernd og svo mætti lengi telja. Ybbinn er auk þess oftar en ekki andsnúninn kristni og gyðingdómi (en telur glæpsamlegt að gagnrýna önnur trúarbrögð). Nýi rétttrúnaður- inn á að koma í staðinn enda tekur hann oft á sig einkenni sértrúarsafn- aðar. Þessu fylgir andstaða við gamlar og góðar hefðir og löngun til að end- urskrifa söguna. Þá skal allt dæmt eftir nýjustu útgáfu rétttrúnaðarregl- unnar, samfélög liðinna alda og fólkið sem tilheyrði þeim. Mest er þó andúðin á nútíma- samfélagi sem að undanförnu hefur verið skilgreint sem hið versta sem sögur fara af m.a. með tilliti til jafn- réttis, misskiptingar, kynþáttahyggju o.s.frv. Raunin er þó þveröfug. Vest- ræn samfélög hafa náð meiri árangri á þessum sviðum en nokkur dæmi eru um og áframhaldandi framfarir byggjast á því að við gerum okkur grein fyrir því að árangurinn kom ekki af sjálfum sér. Hann er afleiðing erfiðis og átaka um aldir og árþús- und. Framtíðaráhrif Þegar öllu er á botninn hvolft byggist ybbahreyfingin á sömu áhrif- um og birtast hjá öllum öfga- samtökum og afleiðingarnar verða þær sömu. Hópur fólks skilgreinir vald sitt út frá því að segjast mál- svarar hópa sem hallar á og telur að málstaðurinn réttlæti brotthvarf frá reyndum grundvallargildum. Á end- anum étur þó byltingin börnin sín. Ybbar hafa verið með okkur lengur en Covid og munu eflaust smita út frá sér löngu eftir að sá faraldur er úr sögunni. Við munum því þurfa að læra að lifa með ybbunum og reyna að forðast smit. Það getur verið erfitt þegar ríkið ver milljörðum í mark- vissa útbreiðslu faraldursins. En það má ekki gefast upp. Áframhaldandi framfarir vestrænnar siðmenningar velta á því. Ybbar Eftir Sigmund Dav- íð Gunnlaugsson »Á endanum étur þó byltingin börnin sín. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins. Landbúnaður á Ís- landi stendur á kross- götum og hefur gert í þó nokkur ár. Neyslu- breytingar almenn- ings, aukin alþjóðleg sem og innlend sam- keppni og breyttur ríkisstuðningur (minni beinn framleiðslu- stuðningur) hafa vald- ið lægri tekjum á framleiðslueiningu hjá bændum. Á móti hafa vaxandi ferðamannafjöldi, nýsköpun í störf- um á landsbyggðinni og stærri bú vegið á móti. Mikill stuðningur landsmanna er við innlenda fram- leiðslu – enda er hún hágæðavara, hrein og ómenguð. Þá hefur aukin krafa um minna kolefnisfótspor, minni lyfjanotkun, meiri sjálfbærni og meiri hollustu ýtt undir fram- leiðslu íslenskra bænda. Ljóst er þó að gera þarf betur. Ríkisstjórnin hefur tekið á nokkrum þeim þáttum sem munu ýta undir jákvæða þróun – en nefna má fleiri. Í þessari grein verður tæpt á nokkrum þeirra. Samstarf afurðastöðva Í þó nokkur ár hefur það blasað við að litlar afurðastöðvar í kjöti mega sín lítils í alþjóðlegri sam- keppni við mun stærri aðila – hvort sem er innanlands eða á erlendum mörkuðum. Því er lífsnauðsynlegt að heimila afurðastöðvunum sam- starf – ekki ósvipað og heimilt er í mjólkuriðnaðinum. Nýverið lýsti ríkisstjórnin vilja sínum til að fara þá leið og auka þar með hagkvæmni og skilvirkni í greininni, í yfirlýsingu sinni vegna endurskoðunarákvæðis lífskjarasamninganna. Fyrirmyndir má sækja til mjólkuriðnaðarins eða sjávarútvegs fyrri tíma og samstarfs fyr- irtækja undir merkjum SÍS, SÍF og SH svo dæmi séu tekin. Einnig hafa þingmenn Fram- sóknar lagt fram slíkt mál á liðnum þingum. Frelsi til heimavinnslu Samhliða breytingum hjá afurða- stöðvunum er mjög mikilvægt að auka frelsi bóndans til athafna og tengja hann betur markaðsstarfinu. Í því skyni á að heimila örslátrun og minni sláturhús með heima- vinnslu. Á bak við slíka lagabreyt- ingu þarf að liggja jákvætt áhættu- mat sambærilegt við það sem Matvælaöryggisstofnun Þýska- lands, með Íslandsvininn Dr. Andr- eas Hensel í broddi fylkingar, gerði þegar heimiluð var heimaslátrun og nærmarkaðssala á lömbum/ lambakjöti í Þýskalandi fyrir nokkr- um árum. Í kjölfar áhættumats á lambaslátrun ætti að fara í sam- bærilegt verkefni varðandi ungn- autaslátrun með sama markmið, þ.e.a.s. heimila örsláturhús með ungneyti. Það sama er hægt að gera í mjólkurframleiðslunni. Vax- andi áhugi er á að kaupa mjólk beint frá bónda og nútímatækni gerir það kleift að vera með geril- sneyðingu við afgreiðslu. Einnig þarf að styrkja nýsköpun og markaðsþekkingu hjá hinum al- menna bónda. Það er mikill áhugi hjá bændum en einnig almenningi á að versla „beint frá býli“. Ríkis- stjórnin hefur þess vegna stóraukið fjármagn til nýsköpunar með stofn- un matvælasjóðs. Þar eru tækifæri fyrir framsækið fólk til sveita. Tollasamningar skoðaðir Fyrirkomulag tollverndar er mik- ilvægur þáttur í starfskjörum bænda. Innan stjórnkerfisins hefur verið unnið að úttekt (sbr. þings- ályktun 1678-149, aðgerðaáætlun í 17 liðum, um hrátt kjöt, o.fl.). Vinnunni hefur seinkað, átti að vera lokið í desember 2019 en liggur vonandi fyrir von bráðar enda væntanlega ein af forsendum þeirr- ar stefnumótunar sem er í gangi. Í kjölfar tollasamninga við ESB er mikilvægt að fara yfir hvernig eftirliti er háttað með framkvæmd þeirra. Þar undir er útfærsla út- boða – tollvernd er til að jafna mun milli innlendrar framleiðslu og er- lendrar – og þess vegna ætti mark- mið útfærslunnar að vera að vernda innlenda framleiðslu. Eftirlitið þarf að virka. Þær frétt- ir berast þessi misserin að þar sé allt í skötulíki. Innflutnings- fyrirtækin komist upp með að brjóta tollasamninginn með rangri flokkun á vörum, jafnvel svo árum skipti. Afleiðingin eru undanskot á tollum, jafnvel svo nemur hundr- uðum milljóna, án þess að nokkur eftirlits- og ábyrgðaraðili bregðist við. Það er ekki hægt að sætta sig við að samningar séu brotnir, þann- ig skekkist samkeppni við bændur, samkeppni milli fyrirtækja sem halda sig innan laga og hinna sem svíkjast um að greiða opinber gjöld og snuða þannig almenning beint. Þetta þarf að rannsaka. Að auki hefur orðið forsendu- brestur eftir að samningurinn komst á. Annars vegar hafa þeir sem fóru fram á að samningar yrðu gerðir, mjólkuriðnaðurinn og „afurðastöðvar í kjöti“, einhverra hluta vegna ekki nýtt tækifærin sem samningurinn skapaði þeim. Hins vegar er Bretland gengið úr ESB – eða í þann mund að gera það. Það er því mín skoðun og til skoðunar innan ríkistjórnarinnar að það eigi að segja þessum ESB- tollasamningi upp. Lýðheilsa og öryggi Ein stærsta áskorun samtímans og þar með framtíðarinnar er sjálf- bær matvælaframleiðsla sem trygg- ir annars vegar örugg matvæli og hins vegar nægjanlegan mat handa sífellt fleira fólki án þess að ganga á auðlindir jarðar. Víða um heim eru framleidd matvæli sem hvorugt standast, þ.e.a.s. eru ágeng í auð- lindanýtingu (menga, spilla landi/ vatni) og eru menguð/spillt sjálf. Þannig er þauleldi (svín, fuglar, naut) víða þannig að afurðirnar eru salmonellusmitaðar, kamfýlubakt- eríusmitaðar og í vaxandi mæli með bakteríur sem þola öll venjuleg sýklalyf. Almennt má segja að allur heimurinn glími við þessi vandamál – þó mismikið. Ísland og Noregur skera sig þó úr – staðan í þessum löndum er mjög góð og Svíþjóð og Finnland skammt þar fyrir aftan. Enda er tíðni matarsýkinga hér- lendis mjög lág í alþjóðlegum sam- anburði og þ.a.l. kostnaður við slík leiðindi lágur hérlendis. Staðan er víða mjög slæm – t.a.m. víða í Asíu, Suður- og Austur-Evrópu og Am- eríku. Þannig er talið að um 50 þús- und manns látist árlega vegna sýklalyfjaónæmis bæði í Bandaríkj- unum og Evrópu. Og um 2050 muni jafnmargir látast vegna sýkla- lyfjaónæmis og af völdum krabba- meins. Staðan á Íslandi er því eftirsókn- arverð með hrein og örugg matvæli, gnægð af hreinu hágæðavatni og loftgæði eins og þau gerast best. Í þessu felast mikil lífsgæði. En hvernig tryggjum við örugg- an aðgang að innlendum mat- vælum? Það þarf augljóslega að grípa til í það minnsta þeirra að- gerða sem nefndar hafa verið til þess að bæta afkomu bænda. Svo höfum við val. Ríkisstjórnin styður við frumkvæði um að velja íslenskt. Átakið „Láttu það ganga“ er gott og gilt, styður við innlenda fram- leiðslu og skapar störf. Regluverkið um upprunamerkingar þarf að vera skýrara. Að einhverju leyti er fram- tíð landbúnaðar í höndum hvers og eins. Ef við viljum fá öruggan, ómengaðan og hollan mat á borðið – fyrir börnin okkar og foreldra sem og okkur sjálf – þá eigum við að geta gert kröfu í versluninni, á veit- ingastaðnum og mötuneytinu um upprunamerkingar. Við höfum val. Íslenskt – já takk. Landbúnaður – hvað er til ráða? Eftir Sigurð Inga Jóhannsson Sigurður Ingi Jóhanns- son »Mikill stuðningur landsmanna er við innlenda framleiðslu. Höfundur er formaður Framsóknar- flokksins og samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.