Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 24

Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 Ég skrifaði grein í þetta blað í fyrra með sömu fyrirsögn. Margir höfðu sam- band og voru ánægð- ir. En þáverandi yf- irboðarar í Fjallabyggð brugð- ust hins vegar ókvæða við, því ég hafði ekki fengið leyfi þeirra fyrir birtingu grein- arinnar. Þannig er nú málum háttað á þeim bæ. Aðför verkalýðshreyfing- arinnar, Pírata og Samfylking- arinnar að Flugleiðum hefur ver- ið alveg með ólíkindum. Þetta fólk vildi knésetja fyrirtækið með öllum ráðum og beitti fyrir sig meðal annars lífeyrissjóðum. En þeim varð ekki að ósk sinni þar sem 11.000 einstaklingar keyptu hlut í félaginu, margir hverjir til að sýna stuðning í verki, þannig að atlaga þessara niðurrifsafla geigaði. Þegar fyrrverandi for- sætisráðherra þjóðarinnar lagðist á árar með niðurrifsöflunum fannst mörgum að langt væri seilst. Mér virðist forysta verka- lýðshreyfingarinnar þjást af póli- tísku ofstæki og skilningsleysi á hvaðan lífsviðurværi þeirra eigin félagsmanna er upprunnið, sem minnir óneitanlega á máltækið „vitið verður ekki í askana látið“. Kvótakerfið er vinsælt deilu- efni meðal þjóðarinnar og sitt sýnist hverjum. Ég hef verið dyggur stuðningsmaður þessa kerfis og stutt með ráðum og dáð. Nú eru hins vegar farnar að renna á mig tvær grímur. Veiði- heimildum er úthlutað af ríkinu til útgerðanna til mjög langs tíma, á ríflega 10 krónur fyrir hvert þorskígildiskíló. Veiði- skylda útgerðanna er á bilinu 50- 70% og útgerðirnar geta því framleigt 30-50% af úthlutuðum aflaheimildum til annarra kvóta- lítilla eða kvótalausra útgerða. En þá kemur að merg málsins, leiguverðið á þessum vægast sagt skrítna markaði er í kringum 200 krónur á hvert þorskígildiskíló. Ég tel að þetta hafi aldrei verið meiningin með kvótakerfinu. Tökum dæmi; útgerð sem aðallega er með uppsjávarkvóta og einnig botnfiskkvóta getur leigt botnfisk- kvótann frá sér. Tvö þúsund þorskígildistonn gefa 400 milljónir í leigutekjur á ári, en greiðsla til ríkisins er 20 milljónir, þannig að nettó-ávinningurinn fyr- ir útgerðina er 380 milljónir króna. Það er því augljóslega hag- kvæmara að leigja frá sér kvóta en veiða. Breyta þarf tilhögun kvótakerfisins til að skiptingin verði sanngjarnari fyrir ríkissjóð í slíkum tilfellum. Þetta er því mið- ur í boði míns flokks, Sjálfstæðis- flokksins. Fólk og fyrirtæki í landinu fara stöðugt fram á fjármuni úr ríkis- sjóði vegna kórónuveirunnar. Það sér það hver heilvita maður að slíkt er ekki gerlegt nema með endalausri seðlaprentun og lántök- um sem einungis getur endað með skelfingu. Rétt er að minna lands- feðurna á afleiðingar slíkrar að- ferðar í Úganda forðum. Þegar prentvélarnar biluðu og ekki feng- ust varahlutir varð einræðis- herrann, Idi Amin, að flýja land. Margt er skrítið í kýrhausnum II Eftir Gunnar Inga Birgisson Gunnar Ingi Birgisson » Skilningsleysi á hvaðan lífsviðurværi þeirra eigin félags- manna er upprunnið, sem minnir óneitanlega á máltækið „vitið verður ekki í askana látið“. Höfundur er verkfræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri. gunnaringib@simnet.is Nýverið kynnti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra frumvarp til fjárlaga ársins 2021 og fjármálaáætlun til ár- anna 2021-2025. Í kynningunni fjallaði Bjarni um áætlun stjórnvalda um út- gjaldaaukningu til þess að mæta því mikla áfalli sem hagkerfið hefur orðið fyrir. Jafn- framt ræddi Bjarni um mikilvægi þess að jafnvægi yrði aftur skapað í tekjum og útgjöldum hins opinbera. Í áætluninni eru kynntar hug- myndir um hvernig því markmiði verði náð. Bjarni benti einnig á að afleiðingar þess að ná jafnvægi í rekstri ríkissjóðs væru mjög háðar hagþróun komandi ára. Því meiri hagvöxtur sem verður í kjölfar þess að núverandi samdrætti lýkur því minna sársaukafullar verða aðgerð- ir til að ná jafnvægi að nýju. Taka verður undir þessi orð Bjarna. Til hvaða aðgerða gætu stjórn- völd gripið til þess að styðja við hagvöxt þegar samdráttarskeiðinu lýkur? Mikið hefur verið ritað um forsendur hagvaxtar. Frumforsenda er framleiðniaukning. Framleiðni má auka með fjárfestingu í tækni, menntun og innviðum og hvötum til nýsköpunar. Ábyrg hagstjórn og stöðugleiki skipta einnig miklu máli. Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á fjárfestingu í innviðum og menntun í núverandi samdrætti. Það er vel. Hagstjórn á Íslandi undanfarinn áratug hefur verið ábyrg. Fjármála- áætlun gerir ráð fyrir að áframhald verði á því. Krónan er ennþá vandamál Þrátt fyrir ábyrga hagstjórn búa Íslendingar við óstöðugleika á einu sviði. Krónan er ennþá óstöðug samanborið við gjaldmiðla ná- grannalandanna. Nærtækast er að benda á verulega lækkun hennar á þessu ári þrátt fyrir mjög stóran gjaldeyrisvaraforða og takmarkanir á erlenda fjárfestingu lífeyrissjóða. Fyrir lítið opið hagkerfi, sem er eins háð milliríkjaviðskiptum og Ísland, eru slíkar sveiflur dýrkeyptar. Gengissveiflur leiða til óvissu og ófyrirséðra sveiflna í tekjum og kostnaði. Þær gera áætlanagerð erf- iða og torvelda samkeppnisstöðu út- flutningsatvinnuvega. Þær leiða til verðlagssveiflna og ýta undir verð- bólgu. Óvissan, sveiflurnar og smæð myntarinnar leiða til viðvarandi hærra vaxtastigs, sem eykur kostn- að og fækkar arðbærum fjárfest- ingum fyrirtækja og einstaklinga, hækkar verðlag og skerðir hag heimila. Stöðugur gjaldmiðill er því afar mikilvægur fyrir framtíðar- horfur í efnahagsmálum á Íslandi. Valkostir í gjaldeyrismálum Mikið hefur verið rætt og ritað um fyrirkomulag gjaldeyrismála á Íslandi. Ísland hefur reynt margar leiðir til að ná markmiðum stöðug- leika, án þess að það hafi tekist nema tímabundið. Í ágætri skýrslu Seðlabanka Íslands, Valkostir Ís- lands í gjaldmiðils- og gengis- málum, frá 2012 er farið yfir þá val- kosti sem standa Íslandi til boða í gjaldeyrismálum. Niðurstaða henn- ar er að allar leiðir hafi sína kosti og galla. Í fyrrnefndri skýrslu Seðlabank- ans er fjallað um möguleikana á upptöku evru. Tvær leiðir eru þar nefndar, einhliða upptaka og þátt- taka í myntsamstarfi Evrópusam- bandsins, ERM II. Einhliða upp- töku fylgja verulegir gallar sem raktir eru í skýrslunni og gera þann kost ófýsilegan. Þátttaka í ERM II mundi krefjast inngöngu í Evrópu- sambandið, sem er stórt og umdeilt mál. Þar með virðist upptaka evru fjarlægari kostur. Tillaga að málamiðlun En bíðum við. Það er til önnur leið, sem ítrekað hefur verið bent á, m.a. í eftirfarandi greinum eftir Guðmund Magnússon og Stefán Má Stefánsson: Aukaaðild Íslands að Myntbandalagi Evrópu? (Morgun- blaðið, 7. október 2001), greinaröðin Einmana króna (Vísbending, 2007) og EES og krónan (Morgunblaðið 23. mars 2008). Þar er bent á að þrátt fyrir að þátttaka í ERM II krefjist aðildar að Evrópusamband- inu sé ekkert því til fyrirstöðu að Ís- land geri tvíhliða samning við Evr- ópusambandið um samstarf í gjaldeyrismálum í tengslum við samninginn um Evrópska efnahags- svæðið. Í fyrrnefndum greinum er bent á að ekkert í lögum Evrópu- sambandis banni slíkt samstarf. Bent er á að fyrirmynd mætti sækja í fyrirrennara ERM II, Peninga- kerfis Evrópu (e. European Monet- ary System, EMS), og Evrópska gengissamstarfsins (e. European Exchange Rate Mechanism, ERM). Samstarf þetta hófst árið 1979 og lauk þegar ERM II tók yfir hlut- verk þess. Því var ætlað að tryggja innbyrðis stöðugleika á gjaldmiðlum Evrópuþjóðanna. Tvíhliða samningur við Evrópu- sambandið gæti orðið grunnur að fyrirkomulagi sem væri hliðstætt gjaldeyrisfyrirkomulagi Dana. Í slíku fyrirkomulagi væri krónunni einungis leyft að sveiflast á mjög þröngu bili gagnvart evru og yrði gengið sameiginlega varið af Seðla- banka Íslands og Seðlabanka Evr- ópu. Ísland mundi væntanlega þurfa að undirgangast kröfur um ábyrga hagstjórn, en það hafa íslensk stjórnvöld þegar gert með lögum um opinber fjármál. Á móti væri gengissveiflum gagnvart okkar stærsta viðskiptasvæði varanlega eytt. Er málamiðlun raunhæf? Er slíkur samningur pólitískt raunhæfur? Fyrirfram er ekkert því til fyrirstöðu að láta á það reyna. Bent skal á að öll rök sem studdu gerð EES-samningsins sem og ERM á sínum tíma mundu einnig styðja þetta skref. Hvoru tveggja var ætlað að auðvelda viðskipti inn- an Evrópu. Markmið EES- samningsins er einkum að tryggja fjórfrelsi og eðlilega samkeppni inn- an Evrópska efnahagssvæðisins. Aðilar samningsins ættu því að styðja heilshugar skref sem styrkja samninginn og auka virkni hans. Við blasir að stöðugt gengi krón- unnar gagnvart evru auðveldar gríðarlega að markmið samningsins náist. Trúverðugleiki Íslands sem við- semjanda hefur aldrei verið meiri. Hagstjórn á Íslandi hefur verið mun betri en margra aðildarríkja Evrópusambandsins undanfarinn áratug. Hinn gríðarlegi gjaldeyris- varaforði Íslands mundi einnig auka mjög trúverðugleika Íslands í samn- ingaviðræðunum og styrkja fyrir- komulagið, yrði það tekið upp. Til mikils að vinna Trygging stöðugleika í gjaldeyr- ismálum yrði stórt framfaraskref sem mundi hafa víðtæk áhrif. Það mundi styrkja samkeppnisstöðu ís- lenskra útflutningsfyrirtækja. Það mundi opna landið fyrir erlendri fjárfestingu. Það mundi lækka vexti. Það mundi auðvelda sam- keppni á mörkuðum þar sem sam- keppni er nú erfið, s.s. um banka- þjónustu og tryggingar. Það mundi auðvelda fjárfestum, t.d. lífeyris- sjóðum, að dreifa áhættu sinni án þess að taka um leið gjaldeyris- áhættu. Síðast en ekki síst mundi það bæta hag almennra Íslendinga með minni verðbólgu, aukinni sam- keppni um framboð á vöru og þjón- ustu og lægri vöxtum. Full ástæða er til þess að íslensk stjórnvöld kanni hvort raunhæft sé að gera slíkan samning. Til mikils er að vinna. Eftir Daða Má Kristófersson og Stefán Má Stefánsson » Trygging stöðug- leika í gjaldeyris- málum yrði stórt fram- faraskref sem mundi hafa víðtæk áhrif. Stefán Már Stefánsson Daði Már er prófessor í hagfræði og Stefán Már prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands. Málamiðlun í gjaldeyrismálum Daði Már Kristófersson Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.