Morgunblaðið - 12.10.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Sláum nýjan
tón í Hörpu
Við óskum bæði eftir áhugasömum
rekstraraðilum og hugmyndum
einstaklinga að skemmtilegum
nýjungum á neðri hæðum í Hörpu
Nánar á harpa.is/nyr-tonn
.
fasteignaverdmat.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Óbreytt staða í Grímsvötnum
Öskustrókurinn fór strax í yfir 20 kílómetra hæð í Grímsvatnagosi árið 2011
Staðan í Grímsvatnaöskjunni er
óbreytt frá því sem var 30. september
þegar Veðurstofan hækkaði viðbún-
aðarstig fyrir flug úr grænu í gult.
Hægt hefur á hækkun vatnsyfirborðs
í Grímsvötnum frá því sem var í sum-
ar þegar leysingar voru meiri og
skjálftavirkni hefur ekki breyst.
Einar Gestsson, náttúruvársér-
fræðingur á Veðurstofu Íslands, segir
að litakóðinn sé í fjórum stigum. Gult
sé næstlægsta stig hans. Hann segir
að tilgangur hækkaðs viðbúnaðar-
stigs sé að láta fluggeirann vita að
virkni sé heldur meiri en venjulega og
að breytingar kunni að vera í aðsigi.
Ekki er þó bannað að fljúga yfir
Grímsvötn.
Þegar viðbúnaðarstigi fyrir flug
var breytt fyrir tæplega tveimur vik-
um voru mælingar að nálgast þau
gildi sem sáust fyrir síðasta eldgos í
Grímsvötnum en það var árið 2011.
Er því búist við jökulhlaupi. Gos
fylgja stundum í kjölfarið en geta líka
hafist án þess að jökulhlaup komi á
undan.
Flug stöðvaðist í
einn eða tvo daga
Í eldgosinu í maí 2011 fór ösku-
strókurinn fljótlega í yfir 20 km hæð.
Flugumferð um Keflavíkurflugvöll og
innanlandsvelli stöðvaðist í einn eða
tvo daga. Þótt aska hafi truflað mjög
mannlíf og athafnalíf á Kirkjubæjar-
klaustri og sveitunum þar í kring
urðu áhrifin ekkert í líkingu við eld-
gosið í Eyjafjallajökli sem truflaði
flugumferð víða í Evrópu vikum sam-
an. Vegna þess fylgjast erlend blöð,
ekki síst í Bretlandi, með fréttum af
eldfjöllum á Íslandi. Einar Gestsson
segir að VAAC í Englandi sé strax
látið vita af slíkum breytingum enda
geri stofnunin spár um öskudreifingu
frá eldfjöllum fyrir flugið. helgi-
@mbl.is
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir,
alþingismaður og
formaður Við-
reisnar, spilaði
golf á golfvell-
inum í Hvera-
gerði síðdegis á
laugardag, þrátt
fyrir tilmæli Golf-
sambands Ís-
lands um að kylf-
ingar á höfuðborgarsvæðinu leituðu
ekki til golfvalla utan þess, á meðan
hertar sóttvarnaaðgerðir eru á
höfuðborgarsvæðinu. Hún situr sjálf
í stjórn Golfsambandsins.
„Þetta er náttúrlega algerlega
óafsakanlegt í ljósi tilmæla. Ég er
alltaf í sveitinni en það afsakar ekki
það að hafa farið í golf,“ segir Þor-
gerður við mbl.is en hún dvaldi í
sumarhúsi sínu í Ölfusi. Fleiri brutu
tilmælin. Þannig var greint frá því
að 26 kylfingar úr Reykjavík hefðu
leikið golf á Akranesi í fyrradag.
Virti ekki
tilmæli um
golfiðkun
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Þorgerður segir
það óafsakanlegt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Friðað hús Hljómskálinn verður væntanlega málaður að utan á næsta ári.
Áfram hefur verið unnið að við-
gerðum á Hljómskálanum við
Tjörnina í Reykjavík í ár. Búast má
við því að húsið verði komið í gott
horf á næsta ári.
„Húsið er í fínu standi. Búið er að
gera við þakkantinn en þar var ein-
hver leki og verið er að endurgera
gluggana í upprunalegri mynd. Bú-
ið er að smíða þá og þeir verða sett-
ir í á næsta ári,“ segir Lárus Hall-
dór Grímsson, stjórnandi
Lúðrasveitar Reykjavíkur.
Skipt var um fyrstu gluggana fyrir
25 árum og fyrir 20 árum voru settir
nýir pílárar í brjóstriðið á þakbrún
hússins. Vonast Lárus til að fram-
kvæmdum við gluggana ljúki á næsta
ári og þá verði húsið málað.
Hljómskálinn sem Hljómskála-
garðurinn er kenndur við var byggð-
ur fyrir nærri 100 árum fyrir Lúðra-
sveit Reykjavíkur. Hljómsveitin
hefur æfingar sínar í húsinu og einn-
ig Skólahljómsveit Vesturbæjar.
Fleiri tengdar hljómsveitir æfa í
húsinu og þar hafa verið haldnir AA-
fundir í tvo áratugi.
Lúðrasveitin fékk 5 milljónir úr
húsafriðunarsjóði í ár, jafnháa
fjárhæð og í fyrra, til að gera við
húsið sem er friðað. Lárus segir að
félagið sjálft hafi litla fjármuni af-
gangs til að leggja í slíkar fram-
kvæmdir.
helgi@mbl.is
Gert við Hljómskálann
Nýir gluggar eru til og verða settir í húsið á næsta ári
Haustið minnir á sig og senn lýkur útivistinni hjá
kúnum. Spáð er góðu veðri á Norðurlandi og bú-
ast má við því að enn séu eftir nokkrir daga í
grænfóðrinu. Kýrnar á Laxamýri njóta þess að
vera í sólinni. Þær búa lengi að útivistinni og
þannig verður vetrarvistin í fjósinu bærilegri.
Norðlensku mjólkurkýrnar klára kálið
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Endurheimt votlendis í landi
Kirkjubóls í Korpudal við Önund-
arfjörð lýkur í dag. Alls hafa 24
hektarar lands þá verið endur-
heimtir og með framkvæmdinni
stöðvuð árleg losun upp á 480 tonn
af koltvísýringi. Er það sambærileg
losun og frá um 240 fólksbílum á
ári.
Í tilkynningu frá Votlendissjóði
segir að jörðin á Kirkjubóli hafi
verið framræst af ríkinu í óþökk
landeigenda fyrir 50 árum. Ríkið
hafi þannig borgað fyrir framræs-
ingu lands sem aldrei var nýtt.
Fyrr í haust stóð Votlendissjóður
að endurheimt lands á jörðinni
Gottorp við Hópið í Húnaþingi
vestra. Svæðið sem var endurheimt
er um 33 hektarar að stærð og má
áætla að það hafi losað um 660 tonn
af koltvísýringi á ári. Í báðum til-
fellum var endurheimtin unnin að
beiðni landeigenda, í samstarfi Vot-
lendissjóðs og Landgræðslunnar.
Endurheimta 24
hektara af votlendi