Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Utanríkisþjónustan hvetur nú ís- lenska ríkisborgara sem búsettir eru í Bretlandi, eða stefna á að setjast þar að til lengri eða skemmri tíma, að tryggja réttindi sín í landinu með tilliti til þess að um áramót lýkur að- lögunartímabili í kjölfar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Í nýju innflytjendakerfi Bretlands sem tek- ur við um áramótin, það er 1. janúar 2021, felst að námsmenn og aðrir sem vilja starfa í Bretlandi þurfa að sækja um vegabréfsáritun til þess og uppfylla tiltekin skilyrði um mennt- un, tungumálakunnáttu og að hafa fengið tilboð um starf eða námsvist eftir því sem við á. 1.500 hafa sótt um réttindi Fólk sem setur stefnuna á Bret- land og vill falla undir núverandi kerfi þarf því að flytja til Bretlands fyrir lok árs til að geta sótt um þessi réttindi. Þau kallast á ensku pre- settled status. Umsóknarfrestur, fyrir þá sem eru komnir til Bret- lands fyrir áramót, er formlega til 30. júní á næsta ári en fólk er ein- dregið hvatt til þess engu að síð- ur að sækja um fyrir áramótin til að tryggja rétt- indi sín í Bret- landi sem best. Samkvæmt tölum frá innanríkis- ráðuneyti Bret- lands höfðu um 1.500 Íslendingar sótt um og fengið réttindi aðfluttra í júní síðastliðnum, að sögn Stefáns Hauks Jóhannessonar, sendiherra Íslands í Lundúnum. „Rétt er að leggja áherslu á að námsmenn, sem hófu nám í Bret- landi núna í haust en hafa ekki enn ekki haldið utan og eru í fjarnámi heima vegna heimsfaraldursins, verða að vega og meta aðstæður þar sem ekki er hægt að sækja um þessi réttindi, „pre-settled status“, fyrr en þeir koma hingað út,“ segir sendi- herrann og heldur áfram: „Slíkt er mjög nauðsynlegt enda eru engar undanþágur í boði fyrir þann hóp. Sendiráðið hefur ekki upplýsingar um hversu margir ís- lenskir námsmenn eru væntanlegir til Bretlands í nám á næstunni en gera má ráð fyrir að fjöldinn sé eitt- hvað minni en vanalega vegna heimsfaraldursins.“ Gangi frá tryggingamálum Eitt af því sem útganga Bretlands úr ESB leiðir til er að Evrópska sjúkratryggingakortið, sem Íslend- ingar þekkja vel, gildir ekki þar í landi frá næstu áramótum. Því er nauðsynlegt að íslenskir ríkisborg- arar gangi frá málum gagnvart sínu tryggingafélagi komi þeir til Bret- lands, jafnvel þótt aðeins standi til að millilenda þar. Bendir Stefán Hauk- ur á að sjúkrahúsvist og læknisþjón- usta geti því orðið ansi dýr ef fólk er ekki með viðeigandi tryggingar. Mikilvægt sé því að ganga frá öllu í tíma.“ Allt sem viðvíkur brotthvarfi Breta úr ESB hefur verið forgangs- mál í starfi íslensku utanríkisþjón- ustunnar og starfi sendiráðsins í Lundúnum á síðustu misserum. Hnýta hefur þurft marga lausa enda enda eru miklir hagsmunir í húfi, hvað varðar viðskipti, borgararétt- indi, flugsamgöngur og fleira. „Við höfum átt mikil samskipti við Breta í gegnum allt ferlið og metum stöðugt þróun mála og miðlum til okkar stjórnvalda. Við höfum mótað sameiginlega sýn með Bretum um samskiptin næstu tíu árin með sam- starfsyfirlýsingu. Þá hafa farið fram fjölþættar viðræður til að leysa úr málum sem hafa komið upp í ferlinu. Við bætist svo öflug upplýsingagjöf og samráð við okkar hagsmuna- aðila.“ Íslendingar tryggi réttindi sín í Bretlandi  Nýtt innflytjendakerfi í gildi um ára- mót  Námsmenn fá ekki undanþágu AFP Lundúnir Margar leiðir víða frá liggja til þessarar stóru heimsborgar. Frá næstu áramótum þarf að huga að ýmsu. Stefán Haukur Jóhannesson Skemmtiskip Siglt á Thamesfljóti. Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - Við erum hér til að aðstoða þig! - • Sérsmíðaðir skór • Skóbreytingar • Göngugreiningar • Innleggjasmíði • Skóviðgerðir Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands Tímapantanir í síma 533 1314

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.