Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Alþýðu-samband Ís-lands gaf
fyrir helgi út
skýrsluna Íslensk-
ur vinnumarkaður
2020 og þó að kápan
sé rauð og innihaldið að sumu
leyti einnig er nær lagi að segja
að skýrslan sé svört. Meðal
helstu atriða er að atvinnuleysi
sé í sögulegum hæðum, 9% árs-
tíðaleiðrétt í ágúst síðastliðnum,
atvinnuhorfur séu dökkar og
viðbúið að atvinnulausum fari
fjölgandi í vetur. Þá segir að
mikil fjölgun hafi orðið í hópi
langtímaatvinnulausra og að er-
lent launafólk sé sá hópur á
vinnumarkaði sem orðið hafi
fyrir þyngstu höggi vegna far-
sóttarinnar. Innflytjendur séu
tæplega 20% af starfandi fólki í
landinu en yfir 40% atvinnu-
lausra og langtímaatvinnu-
lausra. Í þessu felst að atvinnu-
leysi er meira en tvöfalt
algengara meðal útlendinga en
Íslendinga, sem er sérstakt
áhyggjuefni og hlýtur að þurfa
að koma til sérstakrar skoðunar.
Annar hópur sem bersýnilega
er afar viðkvæmur eru ung-
menni, en hlutfall ungmenna
sem eru hvorki í námi né starf-
andi hefur farið vaxandi, mest
meðal 19 ára. Í þessum hópi eru
líka útlendingar og þar er aftur
sláandi munur á þeim og ís-
lenskum ungmennum, en er-
lendu ungmennin eru um fimm-
falt líklegri til að vera hvorki í
skóla né í starfi en þau íslensku.
Þetta getur hæglega skapað al-
varleg vandamál af ýmsu tagi
sem brýnt er að reyna að forð-
ast.
Í þessari fróðlegu skýrslu Al-
þýðusambandsins eru nefndar
aðgerðir sem geti dregið úr
skaða kreppunnar sem nú geng-
ur yfir. Lagt er til að efla þurfi
atvinnuleysistryggingakerfið,
að hlutabætur verði virkt úrræði
að minnsta kosti fram á næsta
sumar, að ráðist verði í stórfella
atvinnusköpun og að brugðist
verði við brotthvarfi af vinnu-
markaði og hugað sérstaklega
að þeim hópi ungmenna sem
hvorki eru í námi né starfandi.
Athyglisvert er hve vel Al-
þýðusambandið gerir sér grein
fyrir umfangi vandans og tekur
fram í skýrslu sinni að hann sé
nú verri og útlitið dekkra en tal-
ið var í vor. Um leið er umhugs-
unarvert að Alþýðusambandið
skuli einvörðungu horfa til ríkis-
valdsins í leit að lausnum á þess-
um vanda. Ríkisvaldið hefur
komið myndarlega inn í það
efnahagsáfall sem hér hefur orð-
ið og það er rétt sem fram kem-
ur í skýrslu Alþýðusambandsins
að hlutabæturnar milduðu högg-
ið á vinnumarkaði. Íslendingar
bjuggu svo vel að ríkisvaldinu
var kleift að grípa til kostn-
aðarsamra aðgerða
í þeirri von að þær
myndu fleyta þjóð-
inni í gegnum vand-
ann. En þó að stað-
an hafi verið góð
eru takmörk fyrir
því hvaða byrðar ríkisvaldið,
með öðrum orðum skattgreið-
endur nútíðar og framtíðar, get-
ur borið um langt skeið. Aug-
ljóst er að fleiri þurfa að koma
að lausn þessa vanda og ríkið
getur ekki fjármagnað mikið at-
vinnuleysi um langa framtíð eða
skapað fjölda starfa umfram
þann fjölda sem þegar starfar á
vegum hins opinbera.
Alþýðusambandið bendir í
skýrslunni á að atvinnuleysi hafi
í gegnum tíðina verið lágt á Ís-
landi og áföll í efnahagslífi frem-
ur komið fram í aukinni verð-
bólgu. „Núverandi efnahagsáfall
kemur hins vegar að mestu leyti
fram í neikvæðum afleiðingum á
vinnumarkaði,“ segir þar. Bent
er á að atvinnuleysi hafi vaxið í
fyrra og aftur á vormánuðum
vegna farsóttarinnar með þeim
afleiðingum „að atvinnuleysi er
ekki lengur lægst á Íslandi sé
litið til allra Norðurlandanna“.
Þetta er vitaskuld verulegt
áhyggjuefni og skiljanlegt að Al-
þýðusambandið veki athygli á
þessari neikvæðu þróun.
Viðbrögð Alþýðusambands-
ins eru síður skiljanleg. Ríkis-
valdið eitt getur ekki leyst þann
vanda sem upp er kominn, með-
al annars vegna þess að hann er
ekki skammtímavandi eins og
margir töldu í vor að hann væri.
Ríkisvaldið getur áfram gert
sitt til að styðja við og aðstoða
fólk og fyrirtæki að komast í
gegnum næstu mánuði og miss-
eri, ekki síst með því að örva at-
vinnusköpun með almennum að-
gerðum á borð við lækkun
skatta.
En aðilar vinnumarkaðarins
geta líka haft mikil áhrif, eink-
um þegar kemur að baráttunni
við atvinnuleysið. Alþýðu-
sambandið hefur því miður ekki
sýnt þessu hlutverki sínu nokk-
urn skilning, þvert á móti hefur
það knúið viðsemjendur sína til
að halda í kjarasamnings-
bundnar launahækkanir sem
enginn grundvöllur er fyrir
lengur, eins og glöggt sést í
þessari ágætu skýrslu Alþýðu-
sambandsins.
Það er verulegt áhyggjuefni
fyrir landsmenn að á þessum
erfiðu tímum í efnahag þjóð-
arinnar skuli forystumenn Al-
þýðusambandsins ófærir um að
viðurkenna við samningaborðið,
aðeins í skýrsluformi, að for-
sendur kjarasamninga séu löngu
brostnar og þar með að þær
hækkanir sem framundan eru
muni auka á atvinnuleysið og
íþyngja launamönnum enn frek-
ar en orðið er.
Skýrsla Alþýðu-
sambandsins
staðfestir for-
sendubrestinn}
Svört skýrsla á
rauðum grunni
H
vað er að á þessu Alþingi? Svarið
er mjög einfalt. Það er endur-
tekinn krókur á móti bragði. Í
hvert einasta sinn sem einhver
finnur upp bragð til þess að
koma málstað sínum á framfæri þá er því svarað
með krók. Næst þarf þá nýtt bragð og nýjan
krók og svo framvegis. Afleiðingin er löng röð af
brögðum og krókum í einhverjum hliðarveru-
leika sem enginn utanaðkomandi skilur hvernig
virkar.
Fólk sem kemur nýtt inn á þing þarf fyrst að
læra hvernig þetta allt virkar. Allar óskrifuðu
reglurnar. Alla útúrsúningana á reglunum sem
breyta því hvað þær þýða í raun og veru. Ekki
nóg með að þau sem koma ný inn á þing þurfi að
læra þetta allt, þau þurfa að gera það á mettíma.
Án kennara. Af því að í upphafi þings eru teknar
fjölmargar ákvarðanir sem gilda út kjörtímabilið.
Þetta fyrirkomulag hentar þeim flokkum sem kunna á
kerfið. Þeim flokkum sem bera ábyrgð á því hvernig kerfið
virkar af því að þetta eru þeirra brögð og þeirra krókar, sem
hafa komið okkur á þann stað þar sem við erum.
Þess vegna er nauðsynlegt að endurnýja allt af og til. Til
þess að gera óskrifuðu reglurnar aðgengilegar. Til þess að
laga útúrsnúninga í reglunum. Til þess að uppfæra í takt við
nýja tíð og tíma.
Þetta á ekki bara við um reglurnar heldur líka fólkið, því
það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Nýjar og upp-
færðar reglur breyta nefnilega ekki sjálfkrafa þeirri hegðun
sem birtist bak við tjöldin. Brögðin og krókarnir
eru enda yfirleitt hluti af þeim mannlegu sam-
skiptum sem reglurnar ná ekki til.
Tökum klassískt bragð sem dæmi. Flokkur í
stjórnarandstöðu leggur fram breytingartillögu
sem er í anda eins stjórnarflokkanna. Til þess að
halda stjórnarsamstarfinu þá þarf stjórnar-
flokkurinn hins vegar að segja nei við tillögu
sem samt samræmist stefnu flokksins. Stjórnar-
andstaðan fer þá í hneykslunargírinn yfir því að
stjórnarflokkurinn sé að svíkja stefnuna sína og
hvaðeina. Ekki beint sanngjarn málflutningur.
En, hvað ef hver flokkur gæti bara fylgt sinni
sannfæringu og stefnu óháð stjórnarsamstarfi?
Hvað myndi gerast þá? Myndi allt hrynja? Nei.
Alveg örugglega ekki. Það er nefnilega val að
nota stjórnarsamstarfið sem gíslatökuaðferð
þar sem stjórnarflokkarnir skiptast á að taka
mál hver annars í gíslingu til þess að ná samstöðu í rík-
isstjórnarmálum. Samt gæti verið meirihluti í öllu þinginu
fyrir ákveðnum málum sem komast ekki fram hjá einum
stjórnarflokki.
Ástæðan fyrir þessu er fólk sem velur að beita þessari að-
ferð. Fólk sem velur að láta stjórnarsamstarf og þingið
virka á þennan hátt. Við erum með fólk á þingi sem velur að
hóta samstarfsaðilum sínum. Hvað er þá eiginlega að á
þessu Alþingi? Fólk.
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Krókur á móti bragði
Höfundur er þingmaður Pírata.
bjornlevi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Köll heyrast eftir meiri tak-mörkunum á ferðum oghegðun fólks, til að heftafrekari útbreiðslu farald-
urs kórónuveirunnar. Á sama tíma
kalla ýmsir eftir því að takmörk-
unum verði aflétt, veirunni verði
leyft að ganga sinn gang og þannig
myndist hjarðónæmi í samfélaginu.
Finna þarf milliveg þessara
tveggja sjónarmiða, segir dr. David
Nabarro, sérfræðingur í faralds-
fræðum og sérstakur erindreki
framkvæmdastjóra Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar í mál-
efnum sem varða faraldur kórónu-
veirunnar. Nabarro ritaði grein um
þetta á vefinn 4SD.info um helgina.
Áhersla á þrjú atriði
Hann segir of miklar takmarkanir
skaða lífsviðurværi fólks og magna
upp óánægju á meðal almennings.
En verði veirunni hleypt af stað án
takmarkana muni það leiða til fjölda
dauðsfalla og langvinnra veikinda
hjá mörgu ungu fólki sem sýkist af
veirunni.
Í því skyni að finna milliveginn
leggur hann til að áhersla verði lögð
á þrjú atriði. Í fyrsta lagi verði fólk
hvatt til að viðhafa allar varúðarráð-
stafanir á öllum tímum.
„Líkamleg fjarlægð, almennileg
grímunotkun, hreinlæti á höndum,
við hósta og á yfirborði, sóttkví þeg-
ar maður er veikur og verja þá sem
eru í mestri áhættu. Það ættu ekki
að vera neinar undanþágur neins
staðar,“ skrifar Nabarro. „Besta
leiðin til að ná þessu er að virkja fólk
og treysta því, frekar en að þvinga
það, ef það er mögulegt.“
Næg skimunargeta mikilvæg
Í öðru lagi þurfi almannaheil-
brigðisþjónustur að skipuleggja sig
til að bjóða svæðisbundinn stuðning
við að brjóta upp smitleiðir og bæla
niður hópsýkingar.
„Það er mikilvægt að það sé næg
skimunargeta til að finna hvar veir-
an er og til að greina og meðhöndla
skyndilega fjölgun smita. Af og til
getur það reynst nauðsynlegt til
skamms tíma að hefta ferðir fólks
svæðisbundið til að auðvelda það að
bæla útbreiðslu smita,“ skrifar
hann.
Í þriðja og síðasta lagi sé nauð-
synlegt að samræmi sé í skilaboðum
stjórnvalda, auk þess sem þau þurfa
að vera skýr, bæði innan ríkja og á
milli ríkja.
„Ef leiðtogar eru ekki stöðugir í
boðum sínum og bönnum, þá verður
fólkið í löndum þeirra ráðvillt og
kannski óánægt,“ skrifar hann og
bendir á í því samhengi að veiran sé
miskunnarlaus og geti breitt ógnar-
hratt úr sér.
„Raunveruleikinn er sá að veiran
er sameiginlegur óvinur, hún er hér
til að vera og við höfum öll hlutverki
að gegna við að halda henni í skefj-
um.“
Almenningur sé lausnin þegar
komi að því að vinna bug á hraðri út-
breiðslu veirunnar. Ef horft sé fram
á við muni mannkynið á endanum
finna út hvernig lifa megi með veir-
unni. „Ég segi, því fyrr því betra.“
Ákvarðanir mikilvægar núna
„Kemur bráðlega fram á sjónar-
sviðið bóluefni sem mun bjarga okk-
ur öllum?“ spyr Nabarro að lokum
og svarar sjálfur:
„Það væri frábært ef það gerðist.
En jafnvel þó að örugg og árang-
ursrík bóluefni birtist á næstu mán-
uðum, þá mun það taka fleiri mánuði
til viðbótar, jafnvel fleiri ár, að
tryggja að þau verði aðgengileg öll-
um. Það er þess vegna sem ákvarð-
anir sem teknar eru núna eru virki-
lega mikilvægar fyrir almenning,
samfélög og hagkerfi alls staðar.“
Skilaboð stjórnvalda
þurfi að vera skýr
AFP
París Gengið fram hjá barnum Au Chat Noir í París. Þar hefur börum og
kaffihúsum verið skellt í lás í tvær vikur frá þriðjudeginum 6. október.
Fleiri en sjö milljónir tilfella kór-
ónuveirusmita hafa verið til-
kynntar í Indlandi. Nálgast fjöldi
staðfestra smita þar fjöldann í
Bandaríkjunum, þar sem flest
smit hafa mælst, eða 7,7 millj-
ónir talsins.
Tæplega 37,3 milljónir smita
hafa verið opinberlega tilkynntar
á heimsvísu. Af þessum fjölda er
litið svo á að tæplega 25,7 millj-
ónum manna sé batnað.
Að minnsta kosti 214 þúsund
hafa látist sökum veirunnar í
Bandaríkjunum. Rúmlega 150
þúsund hafa látist í Brasilíu og
rúmlega 108 þúsund í Indlandi.
37,3 milljónir
hafa smitast
FARALDUR Á FLEYGIFERÐ
AFP
Sydney Baðstrandargestir í mak-
indum á Bondi-ströndinni í Ástralíu.