Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.10.2020, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 Baðinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga 10–17 Laugardaga 11–15 Unglingspiltur hefur gengist við nokkrum afbrotum á Siglufirði að undanförnu, innbrotum, húsbroti, þjófnaði og skemmdum á bifreið- um. Lögreglumenn á Tröllaskaga hafa undanfarna daga lagt nótt við dag við rannsókn á nokkrum mál- um á Siglufirði. Meðal afbrota sem tilkynnt hafa verið til lögreglu eru húsbrot, þjófnaður, innbrot og þjófnaður í grunnskóla og nytjataka og skemmdir á bifreiðum. Í tilkynn- ingu lögreglunnar kemur fram að í fyrrakvöld barst ábending um ung- ling á staðnum sem svaraði til lýs- ingar á meintum geranda í um- ræddum málum. Hann hljóp undan þegar lögregla hugðist ræða við hann en náðist skömmu síðar. Síðar fundust sönnunargögn sem tengja hann við málið og við skýrslutöku gekkst hann við öllum brotunum. Ungi maðurinn var látinn laus eftir skýrslutöku en hann er sakhæfur. Lögreglan segir að enn eigi eftir að hnýta nokkra lausa enda í rann- sókninni og ljúka skýrslugerð. Mál- ið verði síðan sent ákæruvaldi. Gekkst við brotum  Öll Siglufjarðar- málin talin upplýst Morgunblaðið/Sigurður Bogi Siglufjörður Unglingurinn hefur játað innbrot og fleiri afbrot. Ákveðið var á hluthafafundi Arn- arlax AS að breyta heiti félagsins í Icelandic Salmon AS. Kemur þetta fram í tilkynningu stjórnar félagsins til Notc-hlutabréfamarkaðarins í kauphöllinni í Osló þar sem hluta- bréf félagsins eru skráð. Kjartan Ólafsson, formaður stjórnar Arn- arlax, gefur þá skýringu í skila- boðum að nafnbreytingin nái aðeins til hins norska eignarhaldsfélags Arnarlax. Arnarlax vinnur að skráningu á Merkur-hlutabréfamarkaðnum í kauphöllinni í Osló og hyggst bjóða út ný hlutabréf í því sambandi. Aukningin er um 10% núverandi hlutafjár. Verð hlutanna hefur ekki verið ákveðið. Hlutabréf félagsins standa nú í 130 norskum krónum á Notc- markaðnum og er verðmæti skráðra hlutabréfa þar um 3,5 milljarðar norskra króna. Samsvarar það um 52 milljörðum íslenskra króna. Er verðmæti bréfanna nærri tvöfalt meira en bréf Icelandair og Eim- skips í íslensku kauphöllinni og að- eins 10 milljörðum undir verðmæti Haga sem lengi hafa verið í hópi verðmætari fyrirtækja. Langt er þó í Arion banka og þó sérstaklega Marel sem er langverðmætasta fé- lagið í íslensku kauphöllinni. Í tilkynningu Arnarlax til norsku kauphallarinnar kemur fram að Leif Inge Nordhammer, forstjóri SalMar, hafi á fundinum í vikunni verið kos- inn í stjórn. SalMar er langstærsti eigandi Arnarlax með tæplega 60% hlut. helgi@mbl.is Nafnbreyting hjá eiganda Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sláturhús Lax unninn fyrir pökkun í laxasláturhúsi Arnarlax á Bíldudal.  Arnarlax tvöfalt verðmætari en Icelandair og Eimskip Alexandra Ýr van Erven gefur kost á sér í embætti ritara Samfylk- ingarinnar. Þetta kemur fram í til- kynningu frá henni. Alexandra er 26 ára nemi í stjórnmálafræði og ensku við Há- skóla Íslands, en hún hefur tekið virkan þátt í starfi flokksins undan- farin ár og meðal annars setið í mið- stjórn Ungra jafnaðarmanna og framkvæmdastjórn hreyfingar- innar. Hún hefur einnig verið virk innan Röskvu, samtaka félags- hyggjufólks við Háskólann, verið oddviti Stúdentaráðs á hugvísinda- sviði og setið í kennslumálanefnd Háskólaráðs. Kosið verður í embætti ritara á landsfundi 6.-7. nóvember. Býður sig fram í emb- ætti ritara Alexandra Ýr van Erven

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.