Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
12. október 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.01
Sterlingspund 178.57
Kanadadalur 104.76
Dönsk króna 21.875
Norsk króna 14.987
Sænsk króna 15.624
Svissn. franki 151.11
Japanskt jen 1.3028
SDR 195.15
Evra 162.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 193.6381
Hrávöruverð
Gull 1912.4 ($/únsa)
Ál 1786.0 ($/tonn) LME
Hráolía 43.36 ($/fatið) Brent
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það er erfitt að finna rétta orðið til að
lýsa því sem Sruli Recht fæst við. Ein-
faldast væri að kalla hann hönnuð en
sá titill nær ekki nógu vel utan um þá
miklu breidd og taumlausu sköpunar-
gleði sem einkennir verk hans.
Sruli fæddist í Ísrael en fluttist til
Íslands nokkrum árum fyrir banka-
hrun, með viðkomu í Melbourne og
London á leiðinni. Hann er í dag ís-
lenskur ríkisborgari, var áberandi í
hönnunar- og
listasenunni hér á
landi og regluleg-
ur gestur á síðum
Morgunblaðsins
fram til ársins
2015 þegar hann
sökkti sér í verk-
efni sem takmörk-
uðu frelsi hans til
að tjá sig við fjöl-
miðla og kölluðu á
að dvelja í lengri og skemmri tíma
fjarri landinu.
Nú er Sruli sjálfstæður og frjáls að
nýju, og minnti á sig með tölvupósti
eftir að blaðamaður fjallaði á dögun-
um um Norlan-viskíglasið vinsæla í
ViðskiptaMogganum. Sruli hannaði
glasið á sínum tíma og lagði þannig
grunninn að merkilegu fyrirtæki sem
í dag býður upp á heila línu af fal-
legum ílátum og aukahlutum fyrir
viskíunnendur.
Norlan-glasið var fyrst kynnt til
sögunnar fyrir fimm árum á hópfjár-
mögnunarvefsíðunni Kickstarter og
fóru viðtökurnar fram úr björtustu
vonum en um 808.000 dalir söfnuðust
fyrir framleiðslunni. „Ég held að í dag
sé Norlan búið að selja um það bil
hálfa milljón glasa, sem er algjör bil-
un,“ segir Sruli.
Listin að skapa athöfn
Lesendur geta reynt að reikna það
út frá þessum sölutölum hversu verð-
mætur reksturinn í kringum Norlan-
vörurnar er orðinn. Fyrirtækið hefur
mjög litla yfirbyggingu og selur glös-
in beint til kaupenda í gegnum vefsíð-
una Norlanglass.com auk þess að
starfa með um og yfir 30 minni versl-
unum víðs vegar um heiminn.
Lykillinn að árangrinum, segir
Sruli, var að skapa nýja upplifun í
kringum viskídrykkju. „Ég er mjög
hrifinn af hefðum og helgisiðum og
gengur hönnun Norlan-glassins út á
að skapa ákveðna athöfn og upplifun
sem snýst um meira en bara áfengið í
glasinu,“ segir hann. „Sjálfur hef ég
aldrei verið mikill drykkjumaður en
hef mjög gaman af því að búa til eitt-
hvað fallegt úr hversdagslegum at-
höfnum.“
Óhætt er að segja að hvert smáat-
riði í Norlan-vörulínunni sé úthugsað
og Sruli búinn að velta því mikið fyrir
sér hvernig fólk upplifir viskí; allt frá
því hvernig drykkurinn hreyfist um
glasið yfir í hvernig sessunautar
halda augnsambandi í ánægjulegu
samtali yfir góðum drykk. Og kannski
er þar komin önnur ástæða fyrir vel-
gengni verkefnisins: það var ekki lagt
af stað með því hugarfari að græða
sem mest á sem skemmstum tíma og
fara stystu leið í mark, heldur var
markmiðið að hanna grip sem hefði
dýpra gildi. „Fyrir stóran hóp fólks
snýst hönnun öðru fremur um skreyt-
ingu, og þó mér gangi ekki til að gagn-
rýna það hvernig markaðurinn starf-
ar, þá eru mörkin á milli hönnunar og
tísku orðin óljós, og markmiðið virðist
einkum að fylla heimkynni fólks af
alls kyns gripum. Hönnun er orðin að
ferli sem bregst við (e. reactive) til að
skaffa það sem neytandinn vill þá
stundina,“ útskýrir Sruli.
Jafnmikið lagt í umbúðirnar
Og þar er hönnuðurinn kannski
kominn að kjarna þess sem drífur ár-
angur Norlan: að aðstandendur verk-
efnisins þorðu að búa til djúpa upp-
lifun og sérstaka sögu í kringum
vöruna. „Norlan selur ekki viskíglös
heldur ákveðinn lífsstíl, og gerir það
með því að segja vissa sögu sem kaup-
andinn getur séð sjálfan sig í,“ segir
Sruli og líkir árangursríkri vöruhönn-
un við það að gera stiklu fyrir kvik-
mynd þar sem koma þarf til skila í
knöppu formi hver er hetjan, hver
skúrkurinn og vekja nægilegan áhuga
á söguþræðinum til að laða að fleiri
áhorfendur. „Þegar upp er staðið
finnst fáum viskí sérstaklega bragð-
góður drykkur en ánægjan sprettur
upp úr athöfninni í kringum drykk-
inn: að heyra ísmolann smella ofan í
glasið og líða eitt augnablik eins og
söguhetju í glæpasögu.“
Það var út af mikilvægi sögunnar í
kringum vöruna að aðstandendur
Norlan ákváðu að kosta jafnmiklu til
við hönnun og framleiðslu um-
búðanna og glassins sjálfs. Par af
Norlan-glösum berst kaupendum í
snotrum sívalningum sem kallast á
við hönnun glasanna og öllu pakkað
inn af kostgæfni. „Þó svo að það eigi
líklega við um 99% af öllum kaupend-
um að þeir losa sig fljótt við umbúð-
irnar þá felst í því mikilvæg athöfn að
taka glösin upp úr pakkanum þegar
hann berst heim að dyrum. Upplif-
unin er nánast leikræn, þar sem
kaupandinn flettir burtu hverju lag-
inu á fætur öðru og verður þannig um
leið hluti af þeirri sögu sem varan seg-
ir.“
Vörur samfléttaðar
hefðum og menningu
Hér grunar Sruli að megi finna
einn helsta styrkleika íslenskra hönn-
uða og framleiðenda. Hann nefnir
hvað það er mikill kostur við íslenskt
hönnunarsamfélag og atvinnulíf að
boðleiðir eru stuttar og óformlegar,
og fólk og fyrirtæki óhrædd við að
taka áhættu með nýjar lausnir og
frumlegar vörur. Þá segir hann engan
standa Íslendingum á sporði þegar
kemur að því að segja sögur, og að sjá
megi hvernig sögur hafa leikið stórt
hlutverk í árangri íslenskrar vöru á
erlendum mörkuðum: „Skyr er mjög
gott dæmi. Þar hefur tekist að tengja
vöruna við þúsund ár af harðri lífsbar-
áttu Íslendinga og flétta saman við
menningu og aldagamlar hefðir,“ seg-
ir hann og minnir á hvernig viskí-
framleiðendur beiti svipuðum aðferð-
um þegar þeir undirstrika uppruna
og sérkenni eigin vöru svo að drykk-
urinn verður samofinn sögu, menn-
ingu og náttúrufari hvers héraðs.
„Með því að hafa bæði góða hönnun
og góða sögu að segja er árangurinn
vís.“
Aðalatriði að geta sagt sögu
Handverk Glerblásari mótar Norlan-glasið. Meira en 800.000 dalir söfnuðust á Kickstarter þegar glasið var kynnt.
Sruli Recht náði ævintýralegum árangri með Norlan-viskíglasinu og lagði hönnun hans grunninn að
stöndugum rekstri Hann leggur áherslu að flétta vandaða vöruhönnun saman við sögu sem hrífur
Sruli Recht
Þróun Undanfarið hefur Sruli leitað á óvenjulegar slóð-
ir í sköpun sinni og gert forvitnilega tilraun með
„vörum“ sem tengjast þeirri athöfn að taka eigið líf.
Upplifun Norlan-glasið varð síðar að heilli línu af fögr-
um gripum sem gera viskídrykkju að upplifun. Norlan
hefur selt um hálfa milljón glasa á fimm árum.
Gangi allt að óskum mun Virgin Or-
bit takast að afla allt að 200 millj-
óna dala í fjármögnunarlotu þar
sem fyrirtækið er verðmetið á um
það bil einn milljarð dala. Virgin
Orbit er hluti af viðskiptaveldi
Richards Bransons og sérhæfir sig í
að koma gervihnöttum út í geim
með eldlflaugum sem risaþotur
bera upp í 35.000 feta hæð og
sleppa síðan lausum.
Wall Street Journal greinir frá
þessu og minnir á að rekstur Virgin
Orbit hafi ekki gengið áfallalaust
fyrir sig á þessu ári en í maí mis-
heppnaðist tilraun félagsins til að
koma eldflaug á sporbaug.
Áætla markaðsgreinendur að um
400 milljónum dala hafi verið varið
í að þróa eldflaugatækni Virgin Or-
bit en félagið tilheyrir smáum en
vaxandi hópi öflugra fyrirtækja
sem sjá mikil tækifæri fólgin í því
að koma minni gervihnöttum á lág-
an sporbaug með mun ódýrari
hætti en ef notaðar væru hefð-
bundnar eldflaugar. ai@mbl.is
AFP
Metnaður Richard Branson hefur
varið miklu í reksturinn.
Eldflaugafélag Bran-
sons leitar fjármagns
Allt um sjávarútveg