Morgunblaðið - 12.10.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
varaði við því um helgina að væri
ekki búið að sigrast á uppsveiflu kór-
ónuveirunnar í heitum veiruklösum
eftir 10 daga yrði að grípa til enn
harðari aðgerða gegn útbreiðslu
veirunnar en að undanförnu.
„Það blasir við okkur öllum að
stóru borgirnar, þéttbýlu svæðin,
eru nú sá vígvöllur sem við verðum
að fylgjast með hvort takast muni að
ná valdi á faraldrinum í Þýskalandi
mánuðum saman eins og undanfarn-
ar vikur eða hvort við missum tök á
veirunni,“ sagði Merkel eftir viðræð-
ur við bæjarstjóra um ástandið sl.
föstudag.
„Það mun ráðast á komandi dög-
um og vikum hvernig við munum
sem þjóð komast í gegnum farald-
urinn í vetur,“ bætti hún við.
Höfuðborgin Berlín og Frankfurt
voru í vikunni settar á rauðan lista
yfir mestu áhættusvæði. Bættust
borgirnar við margar sem náð höfðu
inn á rauða listann í síðustu viku. Á
hann eru færð svæði þar sem nýsýk-
ingar mælast fleiri en 50 á hverja
100.000 íbúa sjö daga í röð.
Meðal ráðstafana sem koma sjálf-
krafa til framkvæmda þegar þessu
hlutfalli er náð er skylda til að bera
andlitsgrímu utandyra, skertur af-
greiðslutími kráa og veitingahúsa,
takmörk á áfengissölu og þrengri
ákvæði um hópsamkomur. Sagði
Merkel að bæjarstjórarnir væru
samstiga ríkisstjórn hennar í sótt-
varnamálum. Hún sagði reynsluna
sýna að það taki um 10 daga að koma
í ljós hvort slíkar aðgerðir beri tilætl-
aðan árangur.
Staðnæmist sýkingarhlutfallið
ekki á þeim tíma eru „frekari mark-
vissar þvinganir, óhjákvæmilegar í
þeim tilgangi að hindra samgang og
snertingu,“ segir í samþykkt fund-
arins.
Það sem máli skiptir
Þjóðverjum hefur tekist betur að
hafa stjórn á kórónuveirufaraldrin-
um en flestum Evrópuþjóðum. Þar
hefur ugg sett að ráðamönnum
vegna fjölgunar sýkinga undanfarna
daga og vikur. Sóttvarnastofnun
Þýskalands, sem kennd er við Ro-
bert Koch, varaði um helgina við því
að veiran gæti breiðst út stjórnlaust
sofnaði almenningur á verðinum.
Á blaðamannafundi eftir fundinn
með bæjarstjórunum beindi Merkel
orðum sínum til samlanda sinna og
bað þá lengstra orða að bera að stað-
aldri andlitsgrímur, þvo sér ótt og
títt um hendur og hafa hæfilegt bil í
fólk í kring. Hún hvatti menn einnig
til að brúka smáforrit sem varaði við
veirunni þar sem hún væri talin leyn-
ast og lofta reglulega út. Þá hvatti
hún fólk til að dveljast lengur innan-
dyra á heimilum sínum.
Merkel sagðist skilja vel að styttri
afgreiðslutími og takmörkun á
áfengissölu myndi bitna hart á veit-
ingaþjónustunni sem þegar bæri
þungar byrðar af völdum kórónu-
kreppunnar. En hún sagði það mark-
mið sitt að forðast eins og hægt væri
harðdrægar lokanir eins og þær sem
stöðvuðu nánast þýskt atvinnu- og
efnahagslíf í vor sem leið og bundu
milljónir skóla- og dagvistarbarna
inni á heimilum sínum.
Merkel talaði einnig beint til
yngra fólks sem smitaukning undan-
farið hefur verið rakin til. Bað hún
það að hugsa til aldraðra ættingja og
heilsu þeirra og um sín eigin störf og
möguleika á sviði mennta.
„Betri tímar munu koma með
gleðskap og djammi. En það sem nú
skiptir mestu máli er eitthvað annað.
Við höfum sýnt og sannað að sam-
einuð getum við gengið í gegnum
þetta allt. Það skulum við halda
áfram að gera.“
AFP
Aðgerðir Merkel á blaðamannafundi í Berlín þar sem hún boðaði öflugri við-
spyrnu gegn veirunni, tækist ekki að koma böndum á hana innan 10 daga.
Varar við
enn harðari
viðspyrnu
Merkel gefur veirunni 10 daga áður
en gripið verður til enn þyngri ráðstaf-
ana í stríðinu við kórónuveiruna
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
„Fljúgandi leigubílar“ munu hefja
sig til flugs frá flugvelli norður af
París næsta vor. Munu þeir hafa
gríðarlega miklu hlutverki að
gegna um það leyti sem ólympíu-
leikarnir 2024 fara fram í borg-
inni en þá mun fjöldi ferðamanna
verða meiri en venjulegt er, en um
80 milljónir ferðamanna heim-
sækja París ár hvert.
Þróunar- og æfingaflug flugtax-
anna sem bera nafnið VoloCity fer
fram frá flugvellinum í Pontoise-
Cormeilles-en-Vexin norðvestur
af borginni.
Flugtaxarnir eru smíðaðir í
Þýskalandi hjá fyrirtæki að nafni
Volocopter. Minna þeir helst á
risastóra flugdróna og ganga fyr-
ir rafmagni. Geta þeir hafið sig til
flugs og lent á sama blettinum aft-
ur eftir æfingaflug á stórborgar-
svæðinu.
Samstarfsaðilar um flugtilraun-
irnar eru m.a. fyrirtækið sem rek-
ur jarðlestir Parísarborgar
(RATP) og rekstrarfélag Par-
ísarflugvallanna, ADP. Í yfirlýs-
ingu segjast þeir hafa gert allt sitt
til að upphaf þessa nýja sam-
göngumáta geti stutt við þær sam-
göngur sem fyrir eru, bæði til far-
þega- og vöruflugs. „Að teknu
tilliti til Ólympíuleikanna og
heimsleika fatlaðra 2024 gefst
sérdeilis gott tækifæri til þátttöku
heils samgöngukerfis og gæti Par-
ísarsvæðið þar með tekið forystu í
heimsmarkaði fyrir nýja farar-
skjóta til ferða á borgarsvæðum.“
Flugtilraunirnar koma til með
að standa og falla með afstöðu
íbúanna, öryggisreglum og lögum
um flugstarfsemi. Á fyrri helm-
ingi næsta árs, 2021, verður geng-
ið frá samningum um lending-
arstaði, hleðslustöðvar og
merkingar á jörðu niðri vegna til-
raunanna. „Lendingar og flugtök,
svo og að leggja flugbílnum í
stæði, verða prófuð í raunveru-
legu loftrými í júní 2021. Hið sama
á við um starfsemi kringum bílinn
á lendingarsvæði sínu, hvort sem
það er viðhaldsvinna eða hleðsla
rafgeymanna,“ segja aðstand-
endur flugsins.
VoloCity-flugbíllinn er búinn 18
smáþyrlum og níu rafgeymis-
pökkum. Bíllinn getur flutt tvo
farþega með handfarangur en
heildarþungi þeirra beggja með
farangri má að hámarki vera 200
kíló.
Fullklárt 2030
Flughraði bílsins er 110 km/
klst. í 400 til 500 metra hæð, eða
13-16 hundruð fet. Þannig verður
flugdrægi bílsins 35 kílómetrar.
Forstjóri Volocopter, Fabien
Nestmann, segir fyrirtækið gera
sér vonir um að fá fullt lofthæfis-
skírteini fyrir flugbílinn frá Flug-
öryggisstofnun Evrópusambands-
ins innan tveggja til þriggja ára.
„Við viljum geta sýnt möguleika
hans fyrir Ólympíuleikana 2024,“
segir forseti sýslunnar sem nær
yfir stór-Parísarsvæðið, „Ile de
France“.
Hermt er að það gæti tekið ára-
tug að byggja upp kerfi flugtax-
anna í heild. „Dagurinn sem þú
getur keypt þér miða í taxana á
netinu er líklega nær árinu 2030,“
segir forstjóri RATP, Catherine
Guillouard.
„Þegar til lengri tíma er litið
munum við geta bætt inn ör-
smáum þyrlupöllum hér og þar á
borgarsvæðinu en það fer eftir því
hvað íbúarnir vilja leyfa. Við þurf-
um samþykki þeirra og hávaðinn
sem flugbílarnir koma til með að
gefa frá sér verður lykilatriði,“
bætti Guillouard.
Í sókninni til minni bílameng-
unar og minni umferðarhnúta hef-
ur hugmyndin um flugbíla hlotið
góðar undirtektir um heim allan.
Volocopter hefur þegar prófað
og sýnt flugbíl sinn víða um heim.
Var Singapúr í október í fyrra
valið sem vettvangur fyrsta prufu-
flugs á miðborgarsvæði stór-
borga.
Nokkur önnur fyrirtæki eru að
vinna að og þróa samskonar verk-
efni, þar á meðal Boeing, Airbus,
Toyota og Hyundai.
Í nýliðnum september sýndi jap-
anskt fyrirtæki að nafni SkyDrive
mannað átta þyrla smáfar. Flaug
það um fótboltavöll í fyrstu flug-
tilraunum sínum.
Fljúgandi leigu-
bílar næsta vor
Ganga fyrir rafmagni Bílarnir drífa 35 kílómetra
AFP
Prófanir Volocopter við flugpróf-
anir í Singapúr. Vegna smæðar
sinnar á flygildið auðvelt með að at-
hafna sig inni í stórborgum.
Ber 200 kíló Tveir menn með handfarangur komast í flugtaxa VoloCity í
einu. Saman mega þeir ekki vega meira en 200 kíló með farangrinum.