Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 15

Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 Haust Fagurt var um að litast í haustveðrinu um helgina og útivistarfólk gat notið blankalogns við Langavatn. Ingó Gróðurríki lands okkar hefur lengst af mátt þola gífurlegt álag vegna rányrkju í formi beitar og skóg- arhöggs sem bættist við náttúrulegar sveiflur vegna eld- gosa og kólnandi loftslags. Sú vakning sem hófst nálægt aldamótunum 1900 um endurreisn jarðvegs og gróð- urs og birtist í setningu „laga um skógrækt og varnir gegn upp- blæstri lands“ árið 1907 (lög nr. 54, 22. nóv. 1907) var mörgum fagnaðarefni og margt hefur áunn- ist á þeirri öld sem síðan er að baki. Deilur um landnýtingu eru þó ekki úr sögunni og enn við- gengst tilfinnanleg ofbeit á vissum landsvæðum. Nýleg og löngu tímabær endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt var framfaraspor, þótt réttast hefði verið að sameina þá málaflokka í einni heildarlöggjöf um gróður- og jarðvegsvernd líkt og gert var í árdaga. Vandamálin af ágengum tegundum Mikið hefur verið um innflutn- ing plöntutegunda til landsins allt frá því um 1900 með það að mark- miði að auka fjölbreytni í skóg- rækt og garðyrkju. Voru Íslend- ingar þar samferða flestum öðrum sem uggðu ekki að sér um skað- vænlegar afleiðingar sem fylgt gætu í kjölfarið. Nú blasa hins vegar við stórfelld vandamál hér sem annars staðar af völdum inn- fluttra tegunda sem gerast ágeng- ar í nýju umhverfi. Alþjóðlega hef- ur verið reynt að bregðast við þessu m.a. undir merkjum Samningsins um verndun líffjölbreytni (Convention of bio- logical diversity) sem Ísland staðfesti 1994 en sinnti lítið sem ekkert um langt skeið. Inn í lögin um náttúruvernd var þó 1999 tekið inn ákvæði um ágengar tegundir og síðan hafa m.a. alaskalúpína og skógarkerfill verið felld undir þá skilgreiningu. Á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands segir um innfluttar teg- undir m.a.: „Flestar þessara fram- andi tegunda hafa lítil sem engin áhrif í nýjum heimkynnum. Lítill hluti þeirra hefur orðið ágengur í nýjum heimkynnum og í þeim til- fellum valda tegundirnar breyt- ingum á vistkerfum og ógna líf- fræðilegum fjölbreytileika. Einnig geta þær valdið verulegu umhverf- islegu, efnahagslegu eða heilsu- farslegu tjóni. Þær ágengu teg- undir sem hafa náð fótfestu hérlendis eru jafnt og þétt að leggja undir sig ný landsvæði og valda bæði almenningi og stjórn- völdum sífellt auknum áhyggjum. – Einnig er óheimilt að rækta út- lendar tegundir á friðlýstum svæðum, á landslagsgerðum er njóta sérstakrar verndar og alls staðar ofan 400 metra hæðar yfir sjó.“ Hraðfara breytingar í ásýnd landsins Ég hef fylgst með þróun gróðurfars við alfaraleiðir í meira en hálfa öld. Um 1970 mátti sjá lúpínu vaxa á smáblettum á stöku stað við þjóðvegi landsins. Þeir fóru hægt stækkandi en síðan um aldamót hefur orðið sprenging í útbreiðslu þessarar öflugu plöntu, sem nú er að kaffæra umhverfi flestra þéttbýlisstaða, að ekki sé talað um hraðfara stækkun svæða þar sem henni hefur verið sáð til uppgræðslu. Lengi vel var það trú margra að lúpínan bærist ekki yfir á gróin svæði, en nú blasir við að hún dreifir sér um mólendi og kjarr auk þess að berast fram með ám og lækjum allt til ósa. Lyng- brekkur og berjalönd hverfa undir þykkan feld hennar og um leið lokast landið kirfilega gestum og gangandi. Það er átakanlegt að sjá umhverfi þéttbýlisstaða lokast af og hyljast í hávöxnum og ógeng- um lúpínubreiðum og fjölbreyttar jarðmyndanir hverfa jafnframt sjónum manna. Skógarkerfillinn ágengi kemur svo stundum í kjöl- farið eins og sjá má m.a. í Esju- hlíðum. Spurningin sem ráðamenn og náttúruunnendur um land allt standa frammi fyrir hljóðar: Hvað er til ráða? Stykkishólmur vísar veginn Höfuðborgin og nágrenni var lengi sofandi gagnvart þeim ófarn- aði sem hlýst af ágengum tegund- um eins og lúpínu. Hins vegar tóku íbúar í Stykkishólmi einna fyrstir við sér vegna útbreiðslu vágestsins þar um slóðir og leit- uðu árið 2007 til bæjarstjórnar sinnar. Sneri hún sér til Nátt- úrustofu Vesturlands sem gerði úttekt á útbreiðslunni. Sýndi sig að lúpína óx þá á 148 stöðum þar um slóðir. Lagði náttúrustofan til að sveitarfélagið reyndi að upp- ræta lúpínu og aðrar ágengar teg- undir á svæðinu. Fylgdi Stykk- ishólmsbær þessum ráðum og síðan hefur verið unnið markvisst að því að halda lúpínu og öðrum slíkum tegundum í skefjum. Ákveðið var að kanna og bera saman árangur tveggja mismun- andi aðferða til að eyða lúpínunni, þ.e. með árlegum slætti og eitrun. Var hópur sérfróðra undir forystu Kristínar Svavarsdóttur fenginn í verkið (Náttúrufræðingurinn árg. 86, 1-2, 2016). Í niðurstöðum hóps- ins um aðgerðir gegn alaskalúpínu segir m.a., að því fyrr sem ráðist er í aðgerðir, þeim mun ódýrari séu þær og líklegri til að skila ár- angri. Sláttur sé æskilegri en eitr- un og slá ætti plönturnar árlega í hámarki blómgunartíma, að jafn- aði í júlímánuði. Nauðsynlegt sé að endurtaka aðgerðirnar þar til lúpína hættir að vaxa á viðkom- andi svæði. – Að sögn forstöðu- manns Náttúrustofu Vesturlands hafa þessar aðgerðir skilað já- kvæðum árangri á heildina litið, en þó misjöfnum eftir árferði. Lúpínan er horfin sums staðar og þéttleiki og útbreiðsla hennar hef- ur minnkað. Ljóst er að hér skipt- ir eftirfylgni og úthald mestu máli. Brýnt að marka stefnu til frambúðar Staðan varðandi lúpínu, kerfil og aðrar ágengar tegundir kallar á skýra stefnu um aðgerðir sam- hliða rannsóknum á árangri. Ljóst er jafnframt að loftslagsbreyt- ingar geta haft veruleg áhrif á út- breiðslu ágengra tegunda sem og annarra, þar á meðal á hálendi Ís- lands. Hafa ber í huga að fleiri tegundir plantna en nú eru taldar ágengar geta bæst við í þann hóp, þar á meðal innfluttar trjáteg- undir og runnar. Hér er ekki fjallað um vágesti úr dýraríkinu eða áhrif ágengra plantna á fugla- líf og fleiri umhverfisþætti, sem auðvitað eru samtengdir. Að und- anförnu hefur fjölgað þeim sveit- arstjórnum sem ræða af alvöru vá af ágengum tegundum og hyggjast grípa til aðgerða, m.a. við Eyja- fjörð. Á vegum umhverfisráðu- neytisins hefur undanfarið verið að störfum verkefnisstjórn um landsáætlun í skógrækt undir for- ystu skógræktarstjóra, þar sem m.a. er lögð áhersla á nátt- úruskóga og líffræðilega fjöl- breytni og að tryggt verði að ekki verði notaðar ágengar framandi tegundir. Jafnhliða er unnið að landgræðsluáætlun með svipuðum áherslum og tryggja á samráð og samræmingu í störfum og stefnu þessara aðila. Er mikið undir því komið að vel takist til í þeim efn- um. Lífríkið og aukin kennsla Nýlega hefur komið fram að menntamálaráðherra hyggst auka kennslu í náttúrufræði á grunn- skólastigi úr tveimur tímum á viku í fjóra. Sem kennari í nátt- úrufræði forðum tíð tel ég þetta skynsamlega hugmynd. Þýðing góðs skilnings og þekkingar á náttúrufræði er mikilvægari nú en nokkru sinni, auk þeirrar lífsfyll- ingar sem góð þekking á umhverf- inu gefur hverjum og einum. Sam- hliða þarf að tryggja góða kennsluhætti á þessu sviði og rúm til fræðslu við breytilegar að- stæður úti í náttúrunni. Eftir Hjörleif Guttormsson » Spurningin sem ráða- menn og náttúru- unnendur um land allt standa frammi fyrir hljóðar: Hvað er til ráða? Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Gróðurríki Íslands í mikilli hættu vegna ágengra plöntutegunda Nú á miðvikudaginn er haldinn umhverfis- dagur atvinnulífsins þar sem sagðar verða sögur af árangri fjölmargra fyrirtækja í umhverf- ismálum og flutt áhuga- verð erindi. Auk þess verða veitt umhverf- isverðlaun atvinnulífsins fyrir framtak ársins og til umhverfisfyrirtækis ársins. Þetta er í fimmta sinn sem Samtök atvinnulífsins og öll aðildarsamtök þeirra standa fyrir umhverfisdeginum sem hefur öðlast sess sem einn mik- ilvægasti árlegi viðburður samtak- anna. Í ljósi aðstæðna mun dagskráin fara fram á vefnum og ég hvet sem flesta til að fylgjast með en allar upp- lýsingar má nálgast á heimasíðum samtakanna. Um áratugaskeið hafa umhverf- ismál verið eitt meginstefið í starfi allra samtakanna í atvinnulífinu sem endurspegla þannig áherslur félags- manna sinna. Liður í öllum ábatasöm- um rekstri er að gæta að sjálfbærri nýtingu auðlinda, góðri nýtingu að- fanga og að draga úr myndun úr- gangs. Við búum svo vel Íslendingar að hafa aðgang að miklum auðlindum til lands og sjávar. Samstaða hefur ríkt um að viðhalda og efla fiskistofna og aðrar auðlindir sjávar. Sama á við um orkulindirnar. Ferðaþjónustan þarf sömuleiðis að varðveita sterka upp- lifun og viðhald áfangastaða um land allt þannig að ferðamenn geti komið aftur og aftur og sagt frá einstakri náttúru lands- ins og sögu fólks sem hér býr. Aðrar atvinnu- greinar tengjast auð- lindagreinunum beint og óbeint hvort sem það er iðnaður eða þjónusta. Umhverfi er hér hreinna en víðast, and- rúmsloftið tært og það eru hagsmunir fyrir- tækjanna að svo megi haldast. Nýsköpun og tækniþróun ásamt frum- kvæði einstaklinga og fyrirtækja mun leiða til þess að áfram mun draga úr umhverfisáhrifum í atvinnulífinu og mengun minnka. Lausnir sem hér verða til munu einnig skapa aukin út- flutningsverðmæti. Þekking Íslend- inga á orkunýtingu og sífellt meiri verðmæti úr sjávarfangi og framfarir á þessum sviðum og öðrum mun eftir sem áður leggja grunn að góðum lífs- kjörum hér á landi. Framfarirnar byggjast á kunnáttu, reynslu og menntun og því skiptir höfuðmáli að skólakerfið sé framúrskarandi og að samstarf fyrirtækja, skóla og stofnana sé í öndvegi við nýsköpun og þekking- aruppbyggingu. Allt er þetta samofið og ekkert má án hins vera. Umhverfið í öndvegi Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson Halldór Benjamín Þorbergsson »Um áratugaskeið hafa umhverfismál verið eitt meginstefið í starfi allra samtakanna í atvinnulífinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.