Morgunblaðið - 12.10.2020, Side 20

Morgunblaðið - 12.10.2020, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020 ✝ Auður Bessa-dóttir fæddist í Reykjavík 23. nóvember 1944. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 27. september 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Hólmfríður Sig- urðardóttir, f. 12. apríl 1913, d. 16. mars 2001, og Bessi Guðlaugsson, f. 21. apríl 1915, d. 19. september 2009. Auður var þriðja í röðinni af sex systkinum: Gréta, f. 24. október 1935, gift Sævari Guð- mundssyni, Rakel, f. 6. maí 1943, gift Jóhannesi Inga Friðþjófssyni, Haukur, f. 10. janúar 1947, kvæntur Guð- rúnu Kristínu Jónsdóttur, Sig- urður, f. 22. apríl 1950, kvænt- ur Guðnýju Pálsdóttur og Kári, f. 24. maí 1953, kvæntur Sigríði Sigurðardóttur. Eiginmaður Auðar er Fe- ruccio Marinó Buzeti, fæddur í Funtana í Króatíu 14. ágúst 1939. Foreldrar hans voru ember 1997. Barnabarnabörn Auðar eru átta talsins. Auður bjó lengst af á sínum æskuárum á Bústaðavegi í Reykjavík. Gekk fyrst í Laug- arnesskóla og þaðan í Rétt- arholtsskóla og lauk þaðan landsprófi. Auður byrjaði ung að árum að vinna fyrir Póst og síma hjá ýmsum deildum, en lengst af sem deildarstjóri í starfsmannahaldi. Við að- skilnað Póst og síma flutti Auður sig yfir á fjármálasvið Póstsins þar sem hún starfaði þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Menntun var eitt af stóru áhugamálunum og lauk Auður stúdentsprófi frá öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð, tölvunarfræðinámi frá Stjórn- unarfélaginu, viðskipta- og rekstrarnámi 1 og 2 frá end- urmenntun Háskóla Íslands. Til fjölda ára sótti hún fjöl- mörg námskeið í Íslend- ingasögum á vegum eldri borgara enda var áhugi henn- ar mikill á listum og bók- menntum. Útför Auðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 12. októ- ber 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Vegna fjöldatak- markana verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. At- höfninni verður streymt á Fa- cebook: Útför Auður Bessa- dóttir. Maria Gasparini Buzeti og Antonio Buzeti. Auður og Fe- ruccio eignuðust 3 börn: 1) Vésteinn Hilmar Mar- inósson, f. 18. september 1960, maki Margrét Ár- dís Ósvaldsdóttir, f. 1. júní 1962. Börn þeirra Dag- mar Ösp, f. 19. ágúst 1982, Ír- is Ösp, f. 20. nóvember 1985 og Birkir Steinn, f. 7. mars 1994. 2) Hólmfríður Björk Marinósdóttir, f. 15. maí 1962, maki Halldór Rósi Guðmunds- son, f. 5. júlí 1969. Dætur Hólmfríðar úr fyrra sambandi eru Eva Björk, f. 5. ágúst 1980 og Auður Margrét, 4. júlí 1986. Dóttir Halldórs úr fyrra sambandi er Tinna María, f. 3. desember 1991. Saman eiga þau Helgu Dís, f. 4. janúar 1997. 3) Bragi Þór Mar- inósson, f. 15. mars 1965, maki Erla Sigrún Sveinsdóttir, f. 29. júní 1969. Börn þeirra Berg- lind Þóra, f. 1. mars 1995 og Hildur Guðrún, f. 20. sept- Nú er komið að ferðalokum elsku mamma mín. Sár söknuður fylgir alltaf slíkum tímamótum. Elsku mamma við huggum okkur og yljum við ljúfar og góðar minn- ingar um þig. Þú vildir allt fyrir okkur gera, stóðst eins og klettur í blíðu og stríðu og hvattir okkur óspart til góðra verka. Mamma var þriðja í röðinni í stórum systkinahópi. Á æskuár- um hennar var oft þröngt í búi á Bústaðaveginum hjá afa og ömmu en fjölskyldan blómstraði, var kærleiksrík og samheldin. Mamma var ung að árum þeg- ar hún kynntist pabba. Ástin blómstraði og 21 árs að aldri var hún orðin þriggja barna móðir. Nám varð að víkja fyrir vinnu og uppeldi barnanna. Hún byrjaði ung að vinna hjá Pósti og síma, sinnti fjölda ábyrgðarstarfa en var lengst af deildarstjóri í starfs- mannahaldi fyrirtækisins. Menntaþráin var sterk og sam- hliða vinnunni lauk hún bæði stúdentprófi og námi í viðskipta- og rekstrarfræðum 1 og 2 við endurmenntun Háskóla Íslands. Útilegurnar og silungsveiðarn- ar á yngri árum mínum eru of- arlega í minningunni. Foreldrar mínir voru duglegir að fara með stjórfjölskyldunni í þær ferðir. Oftast var farið að Þingvallavatni. Þar var veitt og dvalið heilu helg- arnar yfir sumartímann. Veiði- vissan var stundum svo mikil að ömmu og afa og frændum og frænkum var boðið til grillveislu áður en aflinn var kominn á land. Mamma veiddi að sjálfsögðu stærsta fiskinn í þessum veiði- ferðum. Risableikju sem landað var með miklum spenningi og hamagangi. Alla skólagöngu mína var mamma minn helsti bakhjarl, sem hvatti mig áfram og sam- gladdist mér þegar vel gekk. Stuðningurinn minnkaði ekki eft- ir að við Erla eignuðumst Berg- lindi og Hildi. Kisu amma eins og dæturnar okkar kölluðu hana var alltaf reiðubúin að hjálpa. Stelp- unum okkar þótti sérlega gaman að fá að sofa hjá ömmu, því allt var látið eftir þeim og oft var heimilið komið í ansi mikla óreiðu eftir heimsóknina. Þetta gladdi samt mömmu enda unni hún barnabörnunum og hafði mjög gaman af þeim. Þegar við fluttum til Hollands var mamma dugleg að taka upp íslenskt barnaefni á videospólur og senda okkur. Hún hafði metnað fyrir því að stelp- urnar fengju íslenskt efni til að horfa á. Takk elsku mamma fyrir allar heimsóknirnar til okkar á þessum árum. Þær voru okkur ómetanlegar. Eftir erfið og löng veikindi er komið að því að leiðir skilur í þessu lífi og eftir situr tómleiki. Nú ert þú farin í annað og lengra ferðalag. Eftir sitja hlýjar minn- ingar um hetjuna mína mömmu. Takk fyrir allt, elsku mamma. Bragi Þór. Elsku amma okkar, sem end- aði öll samtöl á „love you‘‘ og var alltaf kölluð kisuamma af okkur systrum. Það er ekki hægt að komast hjá því að fara í gegnum minning- arnar okkar saman því hún amma hefur alla tíð aukið lífsgæði okkar og haft lúxus að leiðarljósi. Hún sá til þess þegar við bjuggum úti í Hollandi að við fengjum okkar skammt af íslensku barnaefni. Þetta var fyrir tíma streymis- veitna og vaknaði amma á laug- ardagsmorgnum til þess að taka upp efnið á spólu í vídeótæki, hún safnaði síðan saman nokkrum slíkum og sendi okkur. Eins var amma dugleg að sjá til þess að við fengjum nóg af íslensku nammi með í þessum vídeópakkasend- ingum. Þessar nammisendingar héldu áfram alla tíð því ef amma vissi af okkur veikum heima átt- um við von á að dyrabjöllunni yrði hringt og þar stóð hún með fullan poka af gúmmelaði, hún gerði þetta þangað til við vorum komn- ar yfir tvítugt. Hún amma var alltaf tilbúin að fá okkur til sín og oftar en ekki voru það við systur og Helga Dís frænka. Amma var alltaf dugleg að gera hluti með okkur þegar við fórum í pössun og stendur upp úr sund í Árbæjarlauginni, bíó og verslunarferð í Kringluna þar sem við oftar en ekki fengum ömmu til að kaupa eitthvað mis- nauðsynlegt og alltaf var farið í nammiland. Ásamt því var amma dugleg að fara með okkur í bíltúra og keyrði einu sinni sjö hringi í röð á hringtorginu hjá Eskihlíð- inni og skellihló. Í bílnum hennar ömmu voru alltaf brjóstsykur, rautt extratyggjó og rauður ópal. Það var alltaf mikill lúxus að fá að gista bæði í Eskihlíð og Sól- eyjarrima og amma var alltaf tilbúin að klóra okkur á bakinu meðan við horfðum á mynd, nudda tásurnar og lakka á okkur neglurnar, því amma var alltaf með svo fallega lakkaðar neglur og við vildum vera eins. Eins standa upp úr „stelpu- ferðirnar“ eins og amma var vön að kalla þær en þá fór hún með okkur systur og Helgu Dís frænku upp í bústað. Uppi í bú- stað kenndi amma okkur að sauma út og dekraði okkur allar þrjár. Okkur skorti ekki ímynd- unaraflið og urðum við til að mynda hræddar við heimsókn frá krókódíl, ísbirni og hrútum sem myndu stanga okkur uppi í bú- stað en alltaf sá amma til þess að snúa hræðslunni upp í grín og knúsa okkur allar þrjár. Amma var alltaf með allar upp- lýsingar á hreinu og þá sérstak- lega dagsetningar. Hún var fyrst að óska okkur til hamingju með daginn þegar við áttum afmæli og heyrði í okkur á öðrum tyllidög- um. Hún var okkar helsti aðdá- andi og sá til þess að baða okkur í hrósi við hvert tækifæri sem gafst. Elsku kisuamma okkar, þú skilur eftir stórt skarð og við munum sakna þín en um leið þökkum við þér fyrir allt. „Love you!“ Berglind Þóra og Hildur Guðrún. Það er með sorg í hjarta sem ég skrifa þessi orð til þín elsku amma mín. Ég er svo ólýsanlega þakklát fyrir allar minningarnar, ferðalögin, hversdagsleikann sem og stuðning frá þér í gegnum lífið. Þú varst ein af áhrifamestu manneskjum í lífi mínu og ég á þér svo margt að þakka. Ég er svo þakklát fyrir að við náðum að eiga saman notalega stund tveim- ur dögum áður en þú fórst þar sem við náðum að rifja upp kærar stundir, eins og öll ferðalögin sem við fórum í saman í gegnum tíð- ina. Ég gleymi aldrei þegar ég fékk hringingu frá þér þar sem þú tilkynntir mér að við værum að fara til Prag daginn eftir! Þessi ferð gaf ekki bara af sér endalaus söfn, heldur einnig alls konar kristalsmuni sem við vissum ekki hvernig í veröldinni við ættum svo að koma heim. En það var ekki bara svo að við værum tvær saman að ferðast, heldur var síð- asta ferðin okkar með vinkonum þínum þar sem við fórum til Gdansk í notalega jólaferð. Á þeim tíma varstu nýbúin að fá fréttirnar um krabbameinið en varst staðráðin í að fara samt sem áður og sagðir: „Ef ekki núna, hvenær þá?“ Það lýsir þér einmitt svo vel, að takast á við hlutina af æðruleysi. Það voru ekki bara við sem átt- um einstakt samband heldur bættist við Sara Björk eftir að hún fæddist. Hana langar til þess að segja: „Elsku amma kisa, þú varst góð og skemmtileg og ég fékk alltaf eitthvað gott þegar ég kom í heimsókn. Bless elsku amma kisa.“ Mér finnst óskaplega erfitt að takast á við raunveruleikann ein en ég ætla að trúa því að þú vakir yfir okkur og halda fast í allar minningar. Við elskum þig elsku amma. Eva Björk og Sara Björk. Elsku Auður systir, mikið var sárt að geta ekki kvatt þig. Covid kom í veg fyrir það. En við eigum margar góðar minningar um þig. Þú varst besta vinkona mín. Og áttum við margar stundir á lista- söfnum, en þú byrjaðir að fara á söfn með Möggu föðursystur okk- ar. En eftir það fórum við saman og fórum svo og fengum okkur kaffi eða mat, þetta voru okkar stundir meðan þú hafðir heilsu til. Aðalmálið hjá þér var að mennta þig á yngri árum, þó svo að þú værir í fullri vinnu hjá Pósti og síma. Þú varðst stúdent, fórst í tölvunarfræðinám og nám við há- skólann. Á síðari árum fórst þú alla föstudaga í fornsögur hjá eldri borgurum. Þú varst einstaklega gjafmild og alltaf tilbúin að hjálpa. Á yngri árum fórum við með mökum okk- ar Marinó og Inga og börnum úti- legu. Þá áttum við bara hvít tjöld sem voru botnlaus, þá var notast við plast í botninn. Og stundum fór öll stórfjölskyldan saman í úti- legu. Þú varst fyndin og alltaf til í smá sprell. Ég á eftir að sakna samtala okkar. Við samhryggjumst þér, Mar- inó minn, og börnum ykkar, Vé- steini, Hólmfríði og Braga Þór og börnum þeirra. Man ég æskuárin yndisbros – og tárin gleði og sviðasárin sól og daga langa. Vinarhönd á vanga nú græt ég sárt um sólarlag þau sumarbros og liðinn dag. (Stefán frá Hvítadal) Blessuð sé minning Auðar systur og mágkonu. Rakel og Ingi. Við Auður vorum bekkjarsyst- ur frá unga aldri. Fyrst í Laug- arnesskóla og síðar Réttarholts- skóla sem þá var nýstofnaður. Smáíbúða- og Bústaðahverfið var að byggjast upp og við krakkarn- ir í hverfinu nutum frelsisins til hins ýtrasta og mörg vinabönd mynduðust. Í Réttó myndaðist góð vinátta milli nokkurra stelpna sem hefur haldist alla tíð. Sá vinskapur inn- siglaðist með stofnun leynifélags- ins Svörtu handarinnar 25. janúar 1958, en svo kallaðist vinahópur- inn. Í Svörtu hendinni voru ásamt mér og Auði þær Ingibjörg Edda, Erla, Ólöf, Gunnella og Jórunn. Mikið var baukað og brallað í Svörtu hendinni. Leynifundir voru haldnir í litlu húsi í Bakka- gerði sem stóð við heimili Ingi- bjargar Eddu. Þar var mikið sungið og spilað, meðal annars Jailhouse Rock með Presley, sem ómaði víða um hverfið. Við fórum einnig saman í sleðaferðir í Ár- túnið, skíðaferðir og útilegur. Þótti þessi félagsskapur það öf- undverður að strákarnir í bekkn- um stofnuðu sitt eigið leynifélag sem nefndist Hvíta löppin. Nú eru þær Ingibjörg Edda, Erla og nú Auður mín allar horfnar á braut. Þegar við Auður stofnuðum fjölskyldur okkar og hófum okkar framtíðarstörf rofnaði sambandið um tíma. En þegar Erla í Svörtu hendinni hafði frumkvæði að því að hittast árlega ákváðum við Auður að fara einnig að skoða leikhúslíf bæjarins reglulega. Við þetta bættust einnig utanland- ferðir svo sem til Pétursborgar og Póllands. Einnig lásum við Ís- lendingasögurnar í hópi eldri borgara og fórum í flestar sögu- ferðir sem boðið var upp á í tengslum við þær. Síðasta ferðin var nú í maí en þá var hún orðin mjög veik. Vinátta okkar Auðar efldist og dafnaði eftir því sem árin liðu og margt var á prjónunum fram undan hjá okkur. Hún Auður var með eindæmum góðhjörtuð og gjafmild og hafði gaman af því að gefa vaxandi fjölskyldu sinni fal- legar og vel valdar gjafir. Sem dæmi má nefna að þegar við vor- um staddar í Póllandi eitt sinn fyrir jólin átti hún eftir að finna hátt í 30 jólagjafir. Samheldnin í fjölskyldu Auðar er með eindæm- um góð og ætti að vera okkur öll- um til fyrirmyndar. Nú erum við aðeins þrjár eftir í Svörtu hendinni sem kveðjum vinkonu okkar. Elsku Auður mín, ég kveð þig með kærri kveðju og með þökk fyrir allt. Guð blessi minningu þína. Ég votta fjölskyldu Auðar mína innilegustu samúð. Þín vinkona, Elínborg. Auður Bessadóttir ✝ Þórunn Þráins-dóttir fæddist í Hruna á Húsavík 13. nóvember 1931. Hún lést á Hrafn- istu Hf. þann 24. september 2020. Foreldrar henn- ar voru Þráinn Maríusson og María Steingríms- dóttir. Systkini hennar eru: Helga, látin; Steingrímur, lést á fyrsta hans, Jóhannesi Gísla Brynjólfs- syni og Jennýju Láru Gísladótt- ur. Foreldrar hans höfðu byggt húsið og svo stækkuðu þau það og þar ólust börnin þeirra þrjú upp. Börn Þórunnar og Brynjólfs eru: 1) María Líndal, f. 1951, synir hennar eru Arnar Þór, Hilmar Þór og Lárus Þór. 2) Jó- hannes Líndal, f. 1952, kona hans er Ingigerður Jakobsdóttir og synir þeirra eru Brynjólfur Líndal, Jakob Líndal og Andri Líndal, sem er látinn. 3) Þráinn Líndal, f. 1966, kona hans er Hulda Pétursdóttir og dætur þeirra eru Aníta Þórunn og Telma Björg. Útför Þórunnar fór fram í kyrrþey. ári; Kristín; Bjarni og Höskuldur. Þórunn fór til Reykjavíkur 16 ára að vinna fyrir sér, sem húshjálp eins og margar stúlkur þekktu. Þar kynnt- ist hún eiginmanni sínum Brynjólfi Líndal Jóhann- essyni. Þau hófu búskap á Holtsgötu 14 í Hafnarfirði hjá foreldrum Elsku hjartans amma Tóta mín. Ég kveð þig með mikilli sorg í hjarta og söknuði. Sam- band okkar var einstakt alveg fram á þinn seinasta dag. Ég á svo óteljandi margar fallegar minningar með þér sem munu hjálpa mér á þessum erfiðu dög- um. Þú varst einstök amma, þú sýndir öllu sem ég tók mér fyrir hendur einlægan áhuga og vildir alltaf taka þátt í öllu í mínu lífi. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og sagðir ósjaldan við mig hvað þú værir stolt af mér. Ég er þakklát fyrir síðustu stundina okkar saman, og að við hefðum náð að segjast elska hvor aðra eins og við vorum alltaf vanar að gera þegar við kvöddumst. Nú hefur þú fengið hvíldina og ert komin til elsku besta afa Binna og Andra okkar sem við sökn- uðum báðar svo mikið. Ég verð áfram „duglega stelpan hennar ömmu Tótu“, eins og þú sagðir svo oft við mig. Ég elska þig allt- af amma mín, það er enginn eins og þú. Takk fyrir allt, minning þín er ljós í lífi mínu. Við hittumst svo aftur seinna hinum megin við himininn. Þín Aníta Þórunn Þráinsdóttir. Þórunn Þráinsdóttir Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, STELLA STEFÁNSDÓTTIR, Starrahólum 11, lést á heimili sínu 30. september. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 14. október klukkan 15. Í ljósi aðstæðna munu aðeins nánustu aðstandendur og vinir verða viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: www.rafmennt.is/stella. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Ásmundur Reykdal Stefán Örn Einarsson Hafdís Huld Reinaldsdóttir Guðjón Sævar Guðbergsson Jóhann Kr. Ásmundsson Ása Þorkelsdóttir Ögmundur Reykdal Valgerður Aðalsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur bróðir minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLI HERTERVIG SVEINBJÖRNSSON, fyrrv. verslunarmaður, lést miðvikudaginn 7. október síðastliðinn á Landspítalanum í Fossvogi. Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Tómas Sveinbjörnsson Alda Baldursdóttir Ingvar Þór Ólason Gréta Björg Hilmarsdóttir Sveinbjörn Óli Ólason og afabörnin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.