Morgunblaðið - 12.10.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2020
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
Fjölskylda
Eiginkona Rúnars er Sunna Eir
Haraldsdóttir, f. 11.10. 1986, hjúkr-
unardeildarstjóri Hornbrekku á
Ólafsfirði. Foreldrar hennar eru
hjónin Haraldur Gunnlaugsson, f.
26.7. 1959, útvegstæknir og Alda
María Traustadóttir, f. 21.10. 1964,
stuðningsfulltrúi. Þau eru búsett í
Ólafsfirði.
Áður var Rúnar giftur Ingu Björk
Harðardóttur, f. 12.11. 1964, kennara
og gullsmið.
Börn Rúnars eru: 1) Þór Adam, f.
23.12. 1986, tölvunarfræðingur í sam-
búð með Telmu Glóeyju Jónsdóttur
hjúkrunarfræðingi. Sonur Þórs og
Telmu er Máni, f. 13.7. 2017. Þau eru
búsett í Svíþjóð; 2) Tinna Ósk Ompi,
f. 18.3. 2000, nemi í Svíþjóð; 3) Sóley
Dögg, f. 2.9. 2001, nemi í Svíþjóð; 4)
Sigmundur Elvar, f. 15.2. 2012 og 5)
Kamilla Sigríður, f. 5.5. 2017.
Systkini Rúnars eru Kristjana Sig-
urðardóttir, f. 15.11. 1953, d. 6.7. 1973;
Unnur Blomfeldt, f. 13.5. 1967; Sæ-
mundur Andrés Friðriksson, f. 22.3.
1962, d. 3.5. 1990; Ásvaldur Frið-
riksson, f. 29.7. 1959; Guðrún Sigríður
Friðriksdóttir, f. 10.8. 1957 og Friðrik
Júlíus Friðriksson, f. 9.2. 1956.
Foreldrar Rúnars eru Friðrik Sig-
mundur Friðriksson, f. 4.5. 1932, sjó-
maður lengst af og verkstjóri hjá
Norðurverki á Akureyri, og Sigur-
veig Ásvaldsdóttir, f. 16.8. 1931,
saumakona og húsmóðir. Þau bjuggu
á Akureyri en búa nú á Hornbrekku á
Ólafsfirði við góða heilsu og héldu
upp á 65 ára brúðkaupsafmæli sitt 16.
ágúst sl.
Rúnar
Friðriksson
Sigurbjörg Jónatansdóttir
vinnukona fráGrímsstöðum,
Reykjahlíðarsókn
Jón Sigurðsson
á Litlu-Reykjum,Grenjaðar-
staðarsókn, S.-Þing.
Kristjana Jónsdóttir
húsfreyja í Múla íAðaldal
Ásvaldur Jónatansson
bóndi, síðast í Múla íAðaldal
Sigurveig Ásvaldsdóttir
frá Norðurhlíð íAðaldal,
saumakona og húsmóðir,
Akureyri
Herborg Jónsdóttir
húsfreyja í Tumsu í
Aðaldal, S.-Þing.
Jónatan Ágúst Jónatansson
síðast bóndi í Tumsu
íAðaldal, S.-Þing.
Guðrún Markúsdóttir
húsfreyja á Glerá í
Kræklingahlíð, Eyjafirði
Andrés Kristjánsson
bóndi á Glerá í
Kræklingahlíð, Eyjafirði
Júlíana Andrésdóttir
húsfreyja á Höfða í Glerárþorpi
Friðrik Sæmundsson
vélamaður á Höfða í Glerárþorpi
Sigríður Ólöf Jónsdóttir
húsfreyja áAkureyri
Sæmundur Friðriksson
sjómaður í Grímsey og áAkureyri
Úr frændgarði Rúnars Friðrikssonar
Friðrik Sigmundur Friðriksson
frá Akureyri, sjómaður og
verkstjóri hjá Norðurverki,Akureyri
„ÞETTA ER ATHYGLISVERT. ALLT SEM
VIÐ VITUM ER AÐ HÚN VAR EKKI HÉR Í
GÆR.”
„ÉG KEM EKKI HEIM Á FÖSTUDAGINN.
ÞEIR ERU BÚNIR AÐ SKIPTA ÚT ÖLLUM
LÁSUNUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að elska
kjánaskapinn í honum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„LIFA, HLÆJA,
ELSKA”…
LÍFSMOTTÓ TIL AÐ
LIFA EFTIR, GRETTIR
KANNSKI
FYRIR ÞIG
ÉG KANN BETUR
VIÐ „éta, sofa,
endurtaka”
HRÓFLUR! HELGA!
ÉG HEF EKKI SÉÐ
YKKUR FRÁ ÞVÍ Í
BRÚÐKAUPINU YKKAR!
MIKIÐ ER GOTT AÐ
EIRÍKUR ER EKKI
JAFNLYGINN OG
MIG MINNTI …
HELGA, ÞÚ
HEFUR EKKERT
ELST!
HANN ER ENN SAMI
LYGAHUNDURINN!
OH,
TAKK,
EIRÍKUR!
Nú er nýútkomin bókin „140vísnagátur“ eftir skáldbónd-
ann Pál Jónasson í Hlíð á Langa-
nesi, þar sem hann er fæddur og
hefur dvalið mestan hluta ævinnar.
Hann hefur unnið ýmis störf, var
kúabóndi í 20 ár, en nú býr hann að-
allega við æðarkollur og orð eins
og segir á bókarkápu. Þetta er
fjórða bók Páls. „Hananú. Fugla-
limrur“ kom út 2007, en síðan
vísnagátur þrívegis 2012, 2018 og
2020.
Gátur Páls eru með ýmsum hætti.
Í síðustu bók sinni byrjar hann á 14
léttum gátum af sama toga til að
koma mönnum á bragðið:
Aldur minn er ansi
Óli hefur glóbjart
Villi minn er voða
Nú veistu svarið upp á
Hér er önnur gáta:
Eftir bílslys brotið nú,
bítast um það hundar.
Verkfæri og kennt við kú,
hvergi hlykkjótt brautin sú.
Og hér er þriðja gátan:
Uppnefni sem aular fá,
einn í burt er snjólaus.
Kyngetu var sviptur sá,
svartur finnst í ættum, já.
Hananú er bráðskemmtileg bók
og kennir þar margra fugla. Mér
þykir síðasta limran skemmtileg og
vel við hæfi, – „Ráðgjöf“ heitir hún:
Það kom til mín eldgömul ugla
sem eflaust er gáfuðust fugla,
leit á mig og þagði –
en loks þó hún sagði:
„Æ, hættu nú ræfill að rugla.“
Ástandskolla
Æðarkolla sem einum
unni svartbak í meinum.
Hún vakti í nótt
hún veit það er ljótt
og vill ekki segja það neinum.
„Fyrirgefðu K.N.“ kallar Páll
þessa limru:
Nú flórgoðar fá að standa
fyrir náð heilags anda
oní frjálshyggjuflór
sem er feiknlega stór,
og ætla hver öðrum að granda.
Rétt er að láta limruna „Frjáls-
hyggja“ fylgja:
Á árlegu haustþingi hrafna
skal hröfnum á bæina jafna,
en nú hættu þeir við
þennan þjóðlega sið
svo frjálshyggja fengi að dafna.
Og svo er hér „Frjáls fjölmiðlun“:
Á friðarráðstefnu fugla
funduðu Skúmur og Ugla,
Svartbakur, Kjói
og síðan einn spói,
hann var fulltrúi vopnlausra fugla.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af skáldbóndanum í Hlíð